DROPS Puna
DROPS Puna
100% Alpakka
frá 968.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7744.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Namdalen

Settið samanstendur af: Prjónaðri húfu með áferð og peysu með hringlaga berustykki, laskalínu og áferð, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL. Settið er prjónað úr DROPS Puna.

DROPS 179-1
DROPS Design: Mynstur pu-014
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Í allt settið þarf ca 500-550-600-650-700-750 g DROPS Puna.

PEYSA:
Stærð: S - M - L - XL - XXL – XXXL

Efni:
DROPS PUNA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
400-450-500-550-600-650 g litur 10, bleikfjólublár

HÚFA:
Stærð: S/M - L/XL
Höfuðmál: 54/56 - 58/60

Efni:
DROPS PUNA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
100-100 g litur 10, bleikfjólublár

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40, 60 og 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 lykkja og 28 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 3,5 fyrir stroff – eða þá stærð sem þarf til að 22 lykkjur og 30 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Puna
DROPS Puna
100% Alpakka
frá 968.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7744.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Peysa: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2.
Húfa: Sjá mynsturteikningu A.3 og A.4.
Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 240 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 8) = 30. Í þessu dæmi þá er aukið út eftir ca 30. hverja lykkju. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

LASKALÍNA:
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Endurtakið við þau prjónamerki sem eftir eru í umferð (= 8 lykkjur fleiri í hverri umferð). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA (á við miðju undir ermi):
Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Byrjun á umferð = miðja að aftan. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjón/stuttan hringprjón.

PEYSA:
Fitjið upp 114-120-126-132-138-144 lykkjur á hringprjón 3,5 með Puna. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan MYNSTUR – sjá útskýringu að ofan, eftir mynsturteikningu A.1 (= 38-40-42-44-46-48 mynstureiningar 3 lykkjur í fyrstu umferð). Þegar prjónaðar hafa verið 6 umferðir af mynsturteikningu (til og með umferð merktri með ör í mynsturteikningu) skiptið yfir á hringprjón 4.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið síðan áfram þar til A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina. Nú eru 228-240-252-264-276-288 lykkjur í umferð og stykkið mælist 10 cm frá uppfitjunarkanti. Prjónið 2 umferðir sléttprjón og aukið út um 2-8-16-24-20-34 lykkjur jafnt yfir í síðustu umferð – lesið ÚTAUKNING – sjá útskýringu að ofan = 230-248-268-288-296-322 lykkjur. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Setjið 4 prjónamerki í stykkið án þess að prjóna: Setjið 1. prjónamerki eftir 34-36-39-43-46-51 lykkjur, 2. prjónamerki eftir 47-52-56-58-56-59 lykkjur, 3. prjónamerki eftir 68-72-78-86-92-102 lykkjur og 4. prjónamerki eftir 47-52-56-58-56-59 lykkjur. Nú eru 34-36-39-43-46-51 lykkjur eftir í umferð. Prjónið nú sléttprjón og í næstu umferð byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið svona út í 4. hverri umferð alls 6-8-9-10-12-13 sinnum = 278-312-340-368-392-426 lykkjur. Haldið síðan áfram í sléttprjóni án þess að auka út lykkjur þar til stykkið mælist 23-25-27-29-31-33 cm frá uppfitjunarkanti.
Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 40-44-48-53-58-64 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 59-68-74-78-80-85 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur undir ermi, prjónið næstu 80-88-96-106-116-128 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 59-68-74-78-80-85 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur undir ermi, prjónið næstu 40-44-48-53-58-64 lykkjur í umferð (= hálft bakstykki).

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 176-192-212-232-256-280 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt á milli nýrra lykkja sem fitjaðar voru upp undir ermum í hvorri hlið (= 4-4-5-5-6-6 lykkjur hvoru megin við prjónamerkin). STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN!
Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 3 cm er prjónað A.2 (= 6 lykkjur) mitt undir hvorri ermi þannig að það verða 3 lykkjur af mynsturteikningu hvoru megin við prjónamerki.
Í hvert skipti sem A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina hefur verið aukið út um 4 lykkjur í umferð. Nýjar lykkjur er prjónaðar í sléttprjóni. Haldið svona áfram þar til A.2 hefur verið prjónað til loka 11 sinnum á hæðina = 220-236-256-276-300-324 lykkjur. Stykkið mælist ca 27 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 20-22-23-24-27-30 lykkjur jafnt yfir = 240-258-279-300-327-354 lykkjur. Prjónið 1 umferð. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið nú stroff (1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til stroffið mælist 4 cm. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð slétt og fellið af með sléttum lykkjum. Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur notið e.t.v. grófari prjóna eða sláið uppá prjóninn á eftir ca 4. hverri lykkju. Uppslátturinn er síðan felldur af eins og venjuleg lykkja. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón.
Setjið 59-68-74-78-80-85 lykkjur af þræði á sokkaprjón 4. Prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 67-76-84-88-92-97 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í nýjar lykkjur = mitt undir ermi. STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN! Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 3 cm er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 8.-6.-5.-4.-4.-3. hverri umferð alls 11-14-16-18-19-20 sinnum = 45-48-52-52-54-57 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 0-0-1-1-0-0 lykkjur = 45-48-51-51-54-57 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni hringinn þar til stykkið mælist 35-33-32-30-28-27 cm (ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis). Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5. Prjónið nú stroff (1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til stroffið mælist 4 cm. Skiptið til baka yfir á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð slétt. Fellið síðan af með sléttum lykkjum. Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur notið e.t.v. grófari prjóna eða sláið 1 sinni prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju. Uppslátturinn er síðan felldur af eins og venjuleg lykkja. Ermin mælist ca 39-37-36-34-32-31 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring, ofan frá og niður á sokkaprjóna. Skiptið yfir á stuttan hringprjón eftir þörf.

HÚFA:
Fitjið upp 11-12 lykkjur á sokkaprjón 4 með Puna. ATH: Skiljið eftir enda ca 30 cm til að draga saman toppinn á húfunni í lokin!
UMFERÐ 1: Prjónið slétt.
UMFERÐ 2: Prjónið 1-1 lykkju slétt, * 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-*= 21-23 lykkjur.
UMFERÐ 3: Prjónið slétt. Allur uppsláttur er prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.
Prjónið nú MYNSTUR – sjá útskýringu að ofan, þannig:
Prjónið mynsturteikningu a.3 (= 1 lykkja í fyrstu umferð) 21-23 sinnum í umferð. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 126-138 lykkjur í umferð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið mynsturteikningu A.4 (= 6 lykkjur) yfir hverja mynsturteikningu A.3. Þegar A.4 hefur verið prjónað 5 sinnum á hæðina mælist stykkið ca 26 cm.
Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til húfan mælist 28-28 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Klippið frá og festið enda. Dragið toppinn saman á húfunni með því að þræða endann upp og niður í lykkjurnar eina og eina, herðið að og festið enda.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = brugðin lykkja
symbols = stingið niður prjóninum á milli 4. og 5. lykkju, dragið þráðinn í gegn (= 1 ný lykkja), prjónið 1 lykkju slétt, 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt.
symbols = prjónið nýju lykkjuna frá fyrri umferð og næstu lykkju (= 2 lykkjur) slétt saman (= 1 lykkja færri)
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið
symbols = í byrjun á þessari umferð (= 19. og 31. umferð í A.1 og 7. umferð í A.4 er fyrst prjónuð 1 lykkja slétt (ekki teiknuð inn í mynsturteikningu), síðan eru endurteknar 6 lykkjur í mynsturteikningu umferðina hringinn. Prjónið næstu umferð (= 20. og 32. umferð í A.1 og 8. umferð í A.4) þannig: Hoppið yfir fyrstu lykkju slétt í mynsturteikningu og prjónið þær 6 lykkjur sem eftir eru, endurtakið síðan allar 7 lykkjurnar umferðina hringinn (þ.e.a.s. síðasta lykkjan sem var prjónuð í umferð er brugðin). Haldið áfram með þær umferðir sem eftir eru eins og útskýrt er í mynsturteikningu).
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat
symbols = prjónið 2 lykkjur slétt saman
symbols = takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir
symbols = þegar þessi umferð hefur verið prjónuð til loka, skiptið yfir á hringprjón 4
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 179-1

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (46)

country flag Marcela wrote:

Dobrý den. Jak docílím výstřihu 3 cm, který je zobrazen na rozkresu? Když budu plést podle návodu, budu mít přední i zadní díl stejný. Myslela jsem, že někde budou použity zkrácené řady. Děkuji za odpověď.

07.01.2024 - 18:14

country flag Mickael wrote:

Bonjour je suis au 19e rang du motif A1 je fais la première maille endroit comme indiqué et je répète tout le long les 6 mailles du motif mais je me retrouve à la fin avec deux mailles je ne sais pas quoi faire je démarrer avec 264 mailles je suis en taille XL

06.12.2023 - 08:27

DROPS Design answered:

Bonjour Mickael, le diagramme est juste un peu décalé mais vos mailles vont s'aligner, tricotez simplement les mailles comme indiqué dans le diagramme. Retrouvez la vidéo de A.1 ici. Bon tricot!

15.02.2024 - 08:59

country flag Lisa wrote:

In working chart A.1, when I'm at the end of R 19 I have 3 stitches left before the marker (as it comes it would be K-P-P). I followed the video for the beginning of the R and knit the first stitch. Everything else looks right. It almost looks like I need to do one more pull through between 4-5 stitches, then K-P-P-K, but that would be going over the end of R marker to achieve that. Thanks for your help.

21.04.2023 - 05:47

DROPS Design answered:

Dear Lisa, make sure that you get (K1, P2, K1, P2) on previous round, then work: (K1 = first stitch in diagram, will be worked at the end of the round); *P2, insert needle down between 4th and 5th stitch, pull yarn through (= 1 new stitch), knit 1, purl 2, knit 1 (this knit 1 is the first stitch next repeat*, repeat from *-* all the round; on last repeat you will end working the first stitch of the round together with the last repeat (K1, p2, k1). See also time code approx. 09:00 in this video. Happy knitting!

21.04.2023 - 08:27

country flag Domi wrote:

Bonjour, j’aimerais faire ce modèle (pull et bonnet) en kid Silk et alpaca. Est ce possible et combien me faudrait il de laine . Merci pour votre réponse

29.03.2023 - 22:55

DROPS Design answered:

Bonjour Domi, un mélange kid-Silk + Alpaca correspond à une épaisseur de laine du type groupe de fils C, or, ce modèle se tricote en Puna, groupe du fils B, vous ne pourrez pas utiliser ce mélange car votre tension serait différente. Retrouvez ici tous les modèles de tension 17-16 m où vous pourrez utiliser ce mélange (utilisez alors le convertisseur pour calculer les nouvelles quantités correspondantes). Bon tricot!

11.04.2023 - 09:40

country flag Pelletier wrote:

Les augmentations sous les bras sous les bras se font en tricotant le diagramme A2, donc avec des jetés. Au tour suivant, dois-je tricoter les jetés torses ? Il me semble que si je tricote les jetés normalement, les trous que cela va créer font faire bizarre sur les côtés du pull. Que feriez-vous?

01.01.2023 - 20:01

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Pelletier, les jetés de A.2 se tricotent normalement, à l'endroit pour qu'ils forment des jours, vous aurez ainsi une ligne de 2 jours sous chaque manche, le long des côtés. Vous pouvez bien sûr les tricoter torse si vous ne voulez pas de trous. Bon tricot!

02.01.2023 - 15:56

country flag Claudia wrote:

Buongiorno, mi piace tantissimo questo modello è approfittando dell' Alpaca party volevo ordinare questo stesso filato ma non trovo il colore nel puna

21.09.2022 - 23:11

DROPS Design answered:

Buonasera Claudia, questo colore non è più presente nella cartella colori di Puna, ma può scegliere tra gli altri bellissimi colori!. Buon lavoro!

22.09.2022 - 16:14

country flag Catherine Vaesken wrote:

Lorsque vous dites : sauter la premiere maille endroit du diagramme et tricoter les mailles restantes , est ce que je dois passer cette premiere maille sur l'aiguille de droite sans la tricoter , merci de votre reponse

08.06.2021 - 10:13

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Vaesken, tout à fait, elle sera tricotée à la fin du tour avec les 2 dernières mailles du diagramme (= quand on tricote: piquer l’aiguille entre la 4ème et la 5ème maille, ramener une boucle (= 1 nouvelle maille), tricoter 1 maille endroit, 2 mailles envers, 1 maille endroit). Bon tricot!

08.06.2021 - 11:38

country flag åse wrote:

Denne genseren ble mislykket for meg, dessverre. Den ble altfor vid i bolen på grunn av økningene i siden. Jeg synes også den ble vid i halsen og "bumsete". Jeg har ellers strevd mye med telling, og fulgt oppskriften. Nå ser jeg ingen annen utvei enn å rekke hele genseren opp igjen, og strikke en annen modell som er enklere, og går høyere opp bak i nakken.

31.12.2019 - 11:20

country flag IvyLeaguer wrote:

I have a question on the reason for knitting diagram A.2. for body (waist down). It looks like knitting A.2. creates holes (in addition to increasing the number of stitches) -- why do we do that? Why do we want holes? Is this for decoration?

22.07.2019 - 16:21

DROPS Design answered:

Dear IvyLeaguer, yes, this pattern is mostly for decoration - the row of holes creates the "side" and helps opical shaping. If you dont want to make it, just make stocking st instead. Happy knitting!

22.07.2019 - 16:41

country flag IvyLeaguer wrote:

Under the Increase Tip, it states: "Increase 1 stitch by making a yarn over. On next round work yarn overs twisted to avoid holes." How do we "work yarn overs twisted" in the next round, when we are working in the round?

07.06.2019 - 06:22

DROPS Design answered:

Dear Ivy, please see our video how to knit A.1 HERE. Happy knitting!

07.06.2019 - 07:02