Hello Kitten |
||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||
Settið samanstendur af: Húfu fyrir börn í garðaprjóni, öldumynstri og eyrnaleppum. Vafningspeysu og buxum í garðaprjóni og gatamynstri. Stærð fyrirburar – 4 ára. Settið er prjónað úr DROPS BabyMerino.
DROPS Baby 29-9 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Húfa: Sjá mynsturteikningu A.1. Peysa: Sjá mynsturteikningu A.2. Buxur: Sjá mynsturteikningu A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Veljið rétt mynstur fyrir stærð. ÚRTAKA-1 (á við um húfu): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum þannig: Prjónið 1 kantlykkju með garðaprjóni, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri), prjónið sléttprjón þar til 3 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), 1 kantlykkja með garðaprjóni. ÚRTAKA-2 (á við um peysu): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum á eftir 1 kantlykkju og A.2 þannig (á við um hægra framstykki): Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri). Fækkið lykkjum á undan 1 kantlykkju og A.2 þannig (vinstra framstykki): Prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri). ÚRTAKA-3 (á við um buxur): Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið síðan 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið 2 lykkjur (prjónamerki situr mitt á milli þessa 2 lykkja) og prjónið síðan 2 lykkjur snúnar slétt saman (= 1 lykkja færri). ÚTAUKNING (á við um buxur): Aukið út um 2 lykkjur með því að slá 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við 2 lykkjur, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn til að koma í veg fyrir göt. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka, ofan frá og niður. HÚFA: Fitjið upp (79) 89-99-103-107 (115-121) lykkjur á hringprjón 3 með Baby Merino. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, þar til stykkið mælist 3 cm. Prjónið nú þannig: (25) 28-32-34-35 (39-42) lykkjur í garðaprjóni, A.1 yfir (29) 33-35-35-37 (37-37) lykkjur og prjónið (25) 28-32-34-35(39-42) lykkjur í garðaprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið svona þar til stykkið mælist (14) 14-15-16-16 (18-19) cm. Prjónið 4 umferðir garðaprjón. Í næstu umferð frá réttu er fellt af fyrir eyrnaleppum þannig: Fellið af fyrstu (5) 8-10-10-9(11-12) lykkjur, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu (20) 20-22-24-26 (28-30) lykkjur (= 1. eyrnaleppur) og setjið þessar lykkjur á þráð, fellið af næstu (29) 33-35-35-37 (37-37) lykkjur, prjónið garðaprjón yfir næstu (20) 20-22-24-26 (28-30) lykkjur (= 2. eyrnaleppur) og setjið þessar lykkjur á þráð, fellið af síðustu (5) 8-10-10-9 (11-12) lykkjur. Klippið frá. EYRNALEPPUR: = (20) 20-22-24-26 (28-30) lykkjur. Setjið til baka lykkjur af öðrum þræðinum á prjóninn, prjónið garðaprjón og fækkið um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið á stykki – LESIÐ ÚRTAKA-1, þannig: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin á stykki í 4. hverri umferð alls (6) 6-5-5-6 (6-7) sinnum og 1 lykkja hvoru megin á stykki í annarri hverri umferð alls (2) 2-4-5-5 (6-6) sinnum = 4 lykkjur. Eyrnaleppurinn mælist ca (6) 6-6-6-7 (8-8) cm. Fellið af og festið enda. Prjónið hinn eyrnaleppinn á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið saman hliðarna, saumið þær kant í kant í ystu lykkju. Brjótið síðan húfuna þannig að saumurinn liggi við miðju að aftan, saumið síðan uppfitjunarkantinn alveg eins. BAND: Klippið 6 þræði ca 60 cm og þræðið þá hálfa leið í gegnum toppinn á eyrnaleppnum, þ.e.a.s. að það verða alls 12 þræðir til að flétta með. Fléttið eina fléttu. Hnýtið hnút neðst niðri. Gerið alveg eins á hinum eyrnaleppnum. ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón. Byrjað er á öðru framstykkinu, lykkjur eru fitjaðar upp fyrir ermi og prjónið upp að öxl. Síðan er hitt framstykkið prjónað, bæði framstykkin eru sett saman og prjónað er niður yfir bakstykki. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið LAUST upp (34) 37-44-48-52 (55-62) lykkjur á hringprjón 3 með Baby Merino og prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan (1. umferð = rétta). Prjónið frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, A.2 yfir 6 lykkjur og prjónið garðaprjón út umferðina. Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist (9) 12-16-16-17 (20-23) cm – passið uppá að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Prjónið 1 stutta umferð (með byrjun frá réttu) þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, A.2, snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið til baka frá röngu eins og áður. Snúið stykkinu. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! LYKKJUM ER FÆKKAÐ Í HÁLSMÁLI JAFNFRAMT ÞVÍ SEM LYKKJUM ER FJÖLGAÐ FYRIR ÖXL/ERMI. ÚRTAKA FYRIR HÁLSMÁLI: Fækkið um 1 lykkju fyrir hálsmáli innan við 1 kantlykkju og A.2 í byrjun umferðar – LESIÐ ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls (18) 18-22-24-26 (28-32) sinnum, síðan er lykkjum fækkað í 4. hverri umferð alls 2 sinnum. ÖXL/ERMI: Þegar stykkið mælist (12) 15-19-20-21 (24-27) cm eru fitjaðar upp nýjar lykkjur í lok hverrar umferðar frá réttu (= að hlið) fyrir ermi þannig: Fitjið upp (3) 4-6-6-6 (6-6) lykkjur alls (4) 4-4-5-6 (7-8) sinnum og (16) 19-19-18-19 (23-26) lykkjur alls 1 sinni. Eftir allar útaukningu og úrtöku eru (42) 52-63-70-79 (90-102) lykkjur á prjóni fyrir öxl/ermi. Haldið áfram í garðaprjóni og A.2 þar til stykkið mælist 20) 24-28-30-32 (36-40) cm – stillið af þannig að endað sé með 4. umferð í A.2, prjónið nú áfram í garðaprjóni yfir allar lykkjur. Setjið 1 prjónamerki = mitt ofan á öxl. Fitjið upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar við hálsmál (= frá röngu) alls 2 sinnum = (46) 56-67-74-83 (94-106) lykkjur (síðasta umferð = ranga). Setjið allar lykkjur á þráð. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið LAUST upp (34) 37-44-48-52 (55-62) lykkjur á hringprjón 3 með Baby Merino og prjónið 6 umferðir garðaprjón (1. umferð = rétta). Prjónið frá réttu þannig: Prjónið garðaprjón þar til 7 lykkjur eru á prjóni, A.2 yfir 6 lykkjur og 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist (9) 12-16-16-17 (20-23) cm – stillið af að næsta umferð sé frá röngu. Prjónið 1 stutta umferð (með byrjun frá röngu) þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, A.2, snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið til baka frá réttu. Snúið stykkinu og prjónið til baka frá röngu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! LYKKJUM ER FÆKKAÐ Í HÁLSMÁLI JAFNFRAMT ÞVÍ SEM LYKKJUM ER FJÖLGAÐ FYRIR ÖXL/ERMI. ÚRTAKA FYRIR HÁLSMÁLI: Fækkið um 1 lykkju fyrir hálsmáli á undan A.2 og 1 kantlykkju í lok umferðar. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls (18) 18-22-24-26 (28-32) sinnum, síðan er lykkjum fækkað í 4. hverri umferð alls 2 sinnum. ÖXL/ERMI: Þegar stykkið mælist (12) 15-19-20-21 (24-27) cm eru fitjaðar upp nýjar lykkjur í lok hverrar umferðar frá röngu (= að hlið) fyrir ermi þannig: Fitjið upp (3) 4-6-6-6 (6-6) lykkjur alls (4) 4-4-5-6 (7-8) sinnum og (16) 19-19-18-19 (23-26) lykkjur alls 1 sinni. Eftir alla útaukningu og úrtöku eru (42) 52-63-70-79 (90-102) lykkjur á prjóni fyrir öxl/ermi. Haldið áfram í garðaprjóni og A.2 þar til stykkið mælist 20) 24-28-30-32 (36-40) cm – stillið af þannig að endað sé með 4. umferð í A.2, prjónið nú áfram í garðaprjóni yfir allar lykkjur. Setjið 1 prjónamerki = mitt ofan á öxl. Fitjið upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar við hálsmál (= frá réttu) alls 2 sinnum = (46) 56-67-74-83 (94-106) lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. BAKSTYKKI: Prjónið sléttar lykkjur yfir vinstra framstykki frá réttu (= (46) 56-67-74-83 (94-106) lykkjur), fitjið upp (8) 8-10-10-12 (14-16) nýjar lykkjur (= aftan við hnakka) og prjónið inn hægra framstykki á hringprjóninn (= sléttar lykkjur frá réttu) = (100) 120-144-158-178 (202-228) lykkjur. NÚ ER STYKKIÐ MÆLT FRÁ PRJÓNAMERKI Á ÖXLUM. Haldið áfram í garðaprjóni fram og til baka. Þegar stykkið mælist (6) 7-7-7½-8 (9-9) cm fækkið lykkjum fyrir ermalykkjur þannig: Fækkið lykkjum í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið á stykki þannig: (16) 19-19-18-19 (23-26) lykkjur 1 sinni og (3) 4-6-6-6 (6-6) lykkjur alls (4) 4-4-5-6 (7-8) sinnum = (44) 50-58-62-68 (72-80) lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist ca (20) 24-28-30-32 (36-40) cm – brjótið stykkið saman tvöfalt við prjónamerki á öxlum og passið uppá að framstykki og bakstykki séu jafn löng – fellið síðan laust af. FRÁGANGUR: Saumið hliðar- og ermasauma kant í kant í ystu lykkjubogana. HEKLAÐUR KANTUR: Heklið með heklunál 2,5 í kringum allt opið á peysunni þannig (frá réttu): Heklið 1 fastalykkju í fyrstu lykkjuna, * 1 loftlykkja, hoppið yfir ca 2 lykkjur/umferðir, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* hringinn alla peysuna, en í hvert horn (þar sem úrtaka fyrir hálsmáli byrjar á framstykkjum) er heklað band þannig: 1 fastalykkja í hornið, heklið loftlykkur í ca 20-25 cm, snúið við og heklið 1 keðjulykkju í hverja loftlykkju til baka, heklið 1 fastalykkju aftur í hornið á framstykki. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju. Heklið 2 laus bönd: Heklið loftlykkjur í ca 20-25 cm, snúið við og heklið 1 keðjulykkju til baka í hverja loftlykkju. Klippið frá og heklið 1 band til viðbótar alveg eins. Saumið niður 1 band innan við í hægri hlið og 1 band utan við í vinstri hlið. Passið uppá að böndin verði í sömu hæð og hin böndin. ------------------------------------------------------- BUXUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring, ofan frá og niður. Umferðin byrjar við miðju að aftan. BUXUR: Fitjið upp (88) 96-104-120-128 (136-144) lykkjur á hringprjón 2,5 með Baby Merino. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar (= miðja að aftan) og 1 prjónamerki eftir (44) 48-52-60-64 (68-72) lykkjur (= miðja að framan). Prjónið stroff frá miðju að aftan þannig: 1 lykkja slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, endurtakið frá *-* og endið með 2 lykkjur brugðið og 1 lykkju slétt. Þegar stroffið mælist 4 cm er prjónaður gatakantur fyrir band þannig: * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur brugðið saman, 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur brugðið saman, 1 lykkja slétt *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn. Prjónið 1 umferð stroff með 2 lykkjum slétt, 2 lykkjur brugðið. Prjónið upphækkun að aftan með stroffi þannig: Prjónið (7) 7-9-9-9 (9-9) lykkjur, snúið við, herðið á þræði, prjónið (14) 14-18-18-18 (18-18) lykkjur til baka, snúið við, herðið á þræði, prjónið (20) 20-26-26-26 (26-26) lykkjur, snúið við, herðið á þræði, prjónið (26) 26-34-34-34 (34-34) lykkjur til baka. Haldið svona áfram með því að prjóna (6) 6-8-8-8 (8-8) lykkjur fleiri í hvert skipti sem snúið er við þar til prjónað hefur verið yfir alls (50) 50-66-66-82 (82-82) lykkjur. Snúið við. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið frá miðju að aftan þannig: Prjónið (17) 19-21-25-27 (29-31) lykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, A.3 (= 10 lykkjur), prjónið (34) 38-42-50-54 (58-62) lykkjur í garðaprjóni, A.3 yfir 10 lykkjur, prjónið (17) 19-21-25-27 (29-31) lykkjur í garðaprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist (10) 12-13-16-15 (16-17) cm mælt frá miðju að framan, er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 2 miðju lykkjur að framan og aftan – LESIÐ ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út í annarri hverri umferð alls (8) 8-8-8-12 (12-12) sinnum = (120) 128-136-152-176 (184-192) lykkjur. Þegar stykkið mælist (15) 17-18-21-22 (23-24) cm mælt við miðju að framan (útaukning á nú að vera lokið) fellið af lykkjur fyrir opi í næstu umferð með sléttum lykkjum þannig: Byrjið við miðju að aftan og fellið af (6) 6-6-6-8 (8-8) fyrstu lykkjur, prjónið sléttprjón þar til (6) 6-6-6-8 (8-8) lykkjur á undan prjónamerki fram og fellið af (12) 12-12-12-16 (16-16) lykkjur, prjónið sléttprjón þar til eftir eru (6) 6-6-6-8 (8-8) lykkjur í umferð, fellið af síðustu (6) 6-6-6-8 (8-8) lykkjur. Setjið lykkjur af annarri skálminni á þráð og prjónið nú skálmar hvora fyrir sig til loka. SKÁLM: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. = (48) 52-56-64-72 (76-80) lykkjur. Skiptið lykkjunum niður á 4 sokkaprjóna nr 3 og setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar (= innan á skálm). Haldið áfram í garðaprjóni og A.3 í hlið eins og áður í (1) 1-1-2-2 (2-3) cm – passið uppá að næsta umferð sé 1 umferð slétt. Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA-3 þannig: STÆRÐ FYRIRBURI -12/18 MÁN: Í 4. hverri umferð. STÆRÐ 2 ÁRA: í 6. hverri umferð. STÆRÐ 3/4 ÁRA: Í 8. hverri umferð. ALLS (8) 10-10-12-12 (12-12) sinnum = (32) 32-36-40-48 (52-56) lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist (24) 28-32-38-42 (48-55) cm, þá heldur A.3 áfram eins og áður en lykkjurnar í garðaprjóni eru prjónaðar í stroffprjóni með 2 lykkjum slétt/2 lykkjur brugðið þar til stykkið mælist ca (26) 30-34-40-44 (50-57) cm frá uppfitjunarkanti – passið uppá að síðasta umferðin sé 4. umferð í A.3. Prjónið stroff yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist (27) 31-35-41-45 (51-58) cm frá uppfitjunarkanti. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Setjið lykkjur frá hinni skálminni yfir á sokkaprjón nr 3 og prjónið á sama hátt og fyrri skálm. FRÁGANGUR: Saumið (12) 12-12-12-16 (16-16) lykkjur sem felldar voru af á milli skálma, að hvorri annarri. SNÚRA: Heklið snúru í mitti með heklunál 2,5 þannig: Heklið loftlykkjur í ca 110 cm, snúið við og heklið 1 keðjulykkju til baka í hverja loftlykkju, klippið frá og festið enda. Snúran er þrædd í gegnum gatakant á buxum og er hnýtt í slaufu að framan. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (68)
Irina wrote:
Da wir ja in Runden stricken werden alle 4 Reihen (das A3 Muster) von rechts nach links gelesen?
30.12.2020 - 08:43DROPS Design answered:
Liebe Irina. Ja , naturlich. Das ist korrekt. Viele Spass zum Stricken!
03.01.2021 - 16:41Irina wrote:
Moin, ich stricke die Hose in Grösse 1-3 Monate. Habe die Erhöhung gestrickt. Ist die letzte Reihe(50 Maschen) eine Rückreihe.?Dann wende ich und stricke eine Hinreihe .Ab denn Markierer stricke ich 19 Maschen und dann muss ich mit den 10 Maschen A3 anfangen . Aber ich habe da immer zuerst 2 rechte Maschen. Wo ist mein Fehler?
30.12.2020 - 08:38DROPS Design answered:
Liebe Irina, es stimmt so, aber in der Größe 0/1 Monat, die Grösse 1/3 Monate ist etwas unterschiedlich (= 3. Grösse) = 104 Maschen anschlagen, die verkürzten Reihen beginnen mit 9 linke Maschen und enden mit 66 Maschen (= Rückreihe), wenden und bis hintere Mitte stricken - und dann 21 M (= Mitte Rückenteil), A.3 ... . Viel Spaß beim stricken!
04.01.2021 - 12:57Encarna wrote:
He tenido un Jersey con esa lana BABY DROPS BABY y le a salido un montón de bola o pelusa como le queramos llamar, pero a otro dia de estrenarlo
18.11.2020 - 10:50Astrid Kamin wrote:
Hallo, komme nicht weiter ab dem Rückenteil. ich werd weich , habe gelesen gestrickt wieder und wieder neu gelesen. Ich komme einfach nicht weiter. \r\nMaschen des linken Vorderteil in der Hin-Reihe rechts stricken , neue Maschen aufnehmen und die Maschen des rechten Vorderteils in der Hin-Reihe rechts auf die Nadel stricken????\r\nWäre schön dazu ein Video zusehen.\r\nFreue mich auf eine Antwort, \r\nliebe Grüße Astrid
01.11.2020 - 13:53DROPS Design answered:
Liebe Frau Kamin, das Rückenteil wird jetzt von oben nach unten gestrickt, dh Von der Vorderseite = Hinreihe: stricken Sie die Maschen vom linken Schulter/Vorderteil, jetzt schlagen Sie neuen Maschen für den Halsausschnitt (zwischen beiden Vorderteile) und stricken Sie die stillgelegten Maschen von rechten Schulter/Vorderteil - dieses Video zeigt, wie man Maschen am Ende einer Reihe anschlägt - hier nehmen Sie diese Maschen am Ende einer Hinreihe (nach li. Vorderteil) und stricken jetzt danach die Maschen von re. Vorderteil. Viel Spaß beim stricken!
02.11.2020 - 09:50Yrsa Østergaard wrote:
Hvordan kan jeg strikke retstrikning( med riller) når jeg strikker rundt blir’ det da glatstrikning ???
28.09.2020 - 20:57DROPS Design answered:
Hej Yrsa. Retstrik strikkes rundt således: Strik 1 omgang ret og 1 omgang vrang osv. Mvh DROPS Design
29.09.2020 - 09:03Marie Königsson wrote:
Vad menas med \"ingen maska,hoppa över denna ruta\" i mönsterdiagram A.3
27.08.2020 - 14:48Lucia wrote:
Este patrón me gusta pero la técnica de punto nolose como podría hacer este mismo patrón en ganchillo
18.07.2020 - 22:14DROPS Design answered:
Hola Lucia. No hacemos patrones personalizados. Lamentablemente no hay en este momento una chaqueta a ganchillo de este tipo en nuestra colección.
20.07.2020 - 20:48Lia wrote:
Hi any baby patterns available in English?
11.04.2020 - 16:13DROPS Design answered:
Dear Lia. Here you have a list of all the baby patterns available in English. https://www.garnstudio.com/search.php?action=browse&c=3&lang=en Happy knitting!
12.04.2020 - 19:20Lilo wrote:
Hallo, ich bin jetzt bei den Abnahmen für den Zwickel angekommen. Der Arbeitsfaden ist jetzt hinten, wird dieser abgeschnitten oder stricke ich damit das erste Bein? Also schließe ich die Runde für das erste Bein und stricke mit dem Arbeitsfaden weiter. Ich hoffe, ich habe mich verständlich ausgedrückt ;-)
31.03.2020 - 12:14DROPS Design answered:
Liebe Lilo, wenn Sie also die Maschen für den Zwickel abketten, beginnen Sie am an der hinteren Mitte und enden Sie an der hinteren Mitte, dh der Faden wird am Ende dieser Reihe abgeschnitten. Viel Spaß beim stricken!
31.03.2020 - 12:50Lilo wrote:
Hallo, ich stricke die Hose und habe gerade die verkürzten Reihen für Erhöhung gestrickt und bin jetzt auf der linken Seite. Muss ich nochmal wenden oder stricke ich jetzt die Hose auf der linken Seite fertig?
21.03.2020 - 12:58DROPS Design answered:
Liebe Lilo, ja genau, stricken Sie noch eine Rückreihe bis zur hinteren Mitte und dann stricken Sie mit den grösseren Nadeln ab der hinteren Mitte in der Runde. Viel Spaß beim stricken!
23.03.2020 - 09:23