DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4620.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Hello Kitten

Settið samanstendur af: Húfu fyrir börn í garðaprjóni, öldumynstri og eyrnaleppum. Vafningspeysu og buxum í garðaprjóni og gatamynstri. Stærð fyrirburar – 4 ára. Settið er prjónað úr DROPS BabyMerino.

DROPS Baby 29-9
DROPS Design: Mynstur nr bm-072-by
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Í allt settið þarf ca (250) 250-300-300-350 (350-400) g DROPS Baby Merino.
-----------------------------------------------------------

HÚFA:
Stærð: (fyrirburar) 0/1 - 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Höfuðmál:
ca (28/32) 34/38 - 40/42 - 42/44 - 44/46 (48/50 - 50/52) cm

Efni:
DROPS BABY MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
(50)-50-50-50-50-(50-50) g litur 26, ljós bleikfjólublár

PEYSA:
Stærð: (fyrirburar) 0/1 - 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Stærð í cm: (40/44) 48/52 - 56/62 - 68/74 - 80/86 (92 - 98/104)

Efni:
DROPS BABY MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
(100) 150-150-150-150 (200-200) g litur 26, ljós bleikfjólublár

BUXUR:
Stærð: (fyrirburar) 0/1 - 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Stærð í cm: (40/44) 48/52 - 56/62 - 68/74 - 80/86 (92 - 98/104)

Efni:
DROPS BABY MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
(100) 150-150-150-150 (200-200) g litur 26, ljós bleikfjólublár


DROPS HRINGPRJÓNAR (40 cm, 60 cm eða 80 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 lykkjur og 48 umferðir með garðaprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.
DROPS PRJÓNAR OG SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS HRINGPRJÓNAR (40 cm) NR 2,5 – eða þá stærð sem þarf til að 26 lykkjur og 34 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 2,5.
DROPS HEKLUNÁL NR 2,5 – fyrir kant og snúru.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4620.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Húfa: Sjá mynsturteikningu A.1.
Peysa: Sjá mynsturteikningu A.2.
Buxur: Sjá mynsturteikningu A.3.
Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Veljið rétt mynstur fyrir stærð.

ÚRTAKA-1 (á við um húfu):
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum þannig: Prjónið 1 kantlykkju með garðaprjóni, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri), prjónið sléttprjón þar til 3 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), 1 kantlykkja með garðaprjóni.

ÚRTAKA-2 (á við um peysu):
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum á eftir 1 kantlykkju og A.2 þannig (á við um hægra framstykki): Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri).
Fækkið lykkjum á undan 1 kantlykkju og A.2 þannig (vinstra framstykki): Prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri).

ÚRTAKA-3 (á við um buxur):
Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið síðan 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið 2 lykkjur (prjónamerki situr mitt á milli þessa 2 lykkja) og prjónið síðan 2 lykkjur snúnar slétt saman (= 1 lykkja færri).

ÚTAUKNING (á við um buxur):
Aukið út um 2 lykkjur með því að slá 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við 2 lykkjur, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn til að koma í veg fyrir göt.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka, ofan frá og niður.

HÚFA:
Fitjið upp (79) 89-99-103-107 (115-121) lykkjur á hringprjón 3 með Baby Merino.
Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, þar til stykkið mælist 3 cm. Prjónið nú þannig: (25) 28-32-34-35 (39-42) lykkjur í garðaprjóni, A.1 yfir (29) 33-35-35-37 (37-37) lykkjur og prjónið (25) 28-32-34-35(39-42) lykkjur í garðaprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið svona þar til stykkið mælist (14) 14-15-16-16 (18-19) cm. Prjónið 4 umferðir garðaprjón.
Í næstu umferð frá réttu er fellt af fyrir eyrnaleppum þannig: Fellið af fyrstu (5) 8-10-10-9(11-12) lykkjur, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu (20) 20-22-24-26 (28-30) lykkjur (= 1. eyrnaleppur) og setjið þessar lykkjur á þráð, fellið af næstu (29) 33-35-35-37 (37-37) lykkjur, prjónið garðaprjón yfir næstu (20) 20-22-24-26 (28-30) lykkjur (= 2. eyrnaleppur) og setjið þessar lykkjur á þráð, fellið af síðustu (5) 8-10-10-9 (11-12) lykkjur. Klippið frá.

EYRNALEPPUR:
= (20) 20-22-24-26 (28-30) lykkjur. Setjið til baka lykkjur af öðrum þræðinum á prjóninn, prjónið garðaprjón og fækkið um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið á stykki – LESIÐ ÚRTAKA-1, þannig: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin á stykki í 4. hverri umferð alls (6) 6-5-5-6 (6-7) sinnum og 1 lykkja hvoru megin á stykki í annarri hverri umferð alls (2) 2-4-5-5 (6-6) sinnum = 4 lykkjur. Eyrnaleppurinn mælist ca (6) 6-6-6-7 (8-8) cm. Fellið af og festið enda.
Prjónið hinn eyrnaleppinn á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið saman hliðarna, saumið þær kant í kant í ystu lykkju. Brjótið síðan húfuna þannig að saumurinn liggi við miðju að aftan, saumið síðan uppfitjunarkantinn alveg eins.

BAND:
Klippið 6 þræði ca 60 cm og þræðið þá hálfa leið í gegnum toppinn á eyrnaleppnum, þ.e.a.s. að það verða alls 12 þræðir til að flétta með. Fléttið eina fléttu. Hnýtið hnút neðst niðri.
Gerið alveg eins á hinum eyrnaleppnum.

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón.
Byrjað er á öðru framstykkinu, lykkjur eru fitjaðar upp fyrir ermi og prjónið upp að öxl. Síðan er hitt framstykkið prjónað, bæði framstykkin eru sett saman og prjónað er niður yfir bakstykki.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið LAUST upp (34) 37-44-48-52 (55-62) lykkjur á hringprjón 3 með Baby Merino og prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan (1. umferð = rétta). Prjónið frá réttu þannig:
Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, A.2 yfir 6 lykkjur og prjónið garðaprjón út umferðina. Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist (9) 12-16-16-17 (20-23) cm – passið uppá að næsta umferð sé prjónuð frá réttu.
Prjónið 1 stutta umferð (með byrjun frá réttu) þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, A.2, snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið til baka frá röngu eins og áður. Snúið stykkinu.

LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! LYKKJUM ER FÆKKAÐ Í HÁLSMÁLI JAFNFRAMT ÞVÍ SEM LYKKJUM ER FJÖLGAÐ FYRIR ÖXL/ERMI.
ÚRTAKA FYRIR HÁLSMÁLI:
Fækkið um 1 lykkju fyrir hálsmáli innan við 1 kantlykkju og A.2 í byrjun umferðar – LESIÐ ÚRTAKA-2.
Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls (18) 18-22-24-26 (28-32) sinnum, síðan er lykkjum fækkað í 4. hverri umferð alls 2 sinnum.
ÖXL/ERMI:
Þegar stykkið mælist (12) 15-19-20-21 (24-27) cm eru fitjaðar upp nýjar lykkjur í lok hverrar umferðar frá réttu (= að hlið) fyrir ermi þannig: Fitjið upp (3) 4-6-6-6 (6-6) lykkjur alls (4) 4-4-5-6 (7-8) sinnum og (16) 19-19-18-19 (23-26) lykkjur alls 1 sinni.
Eftir allar útaukningu og úrtöku eru (42) 52-63-70-79 (90-102) lykkjur á prjóni fyrir öxl/ermi.

Haldið áfram í garðaprjóni og A.2 þar til stykkið mælist 20) 24-28-30-32 (36-40) cm – stillið af þannig að endað sé með 4. umferð í A.2, prjónið nú áfram í garðaprjóni yfir allar lykkjur. Setjið 1 prjónamerki = mitt ofan á öxl.
Fitjið upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar við hálsmál (= frá röngu) alls 2 sinnum = (46) 56-67-74-83 (94-106) lykkjur (síðasta umferð = ranga). Setjið allar lykkjur á þráð.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið LAUST upp (34) 37-44-48-52 (55-62) lykkjur á hringprjón 3 með Baby Merino og prjónið 6 umferðir garðaprjón (1. umferð = rétta).
Prjónið frá réttu þannig: Prjónið garðaprjón þar til 7 lykkjur eru á prjóni, A.2 yfir 6 lykkjur og 1 kantlykkja í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist (9) 12-16-16-17 (20-23) cm – stillið af að næsta umferð sé frá röngu.
Prjónið 1 stutta umferð (með byrjun frá röngu) þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, A.2, snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið til baka frá réttu. Snúið stykkinu og prjónið til baka frá röngu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
LYKKJUM ER FÆKKAÐ Í HÁLSMÁLI JAFNFRAMT ÞVÍ SEM LYKKJUM ER FJÖLGAÐ FYRIR ÖXL/ERMI.
ÚRTAKA FYRIR HÁLSMÁLI:

Fækkið um 1 lykkju fyrir hálsmáli á undan A.2 og 1 kantlykkju í lok umferðar.
Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls (18) 18-22-24-26 (28-32) sinnum, síðan er lykkjum fækkað í 4. hverri umferð alls 2 sinnum.
ÖXL/ERMI:
Þegar stykkið mælist (12) 15-19-20-21 (24-27) cm eru fitjaðar upp nýjar lykkjur í lok hverrar umferðar frá röngu (= að hlið) fyrir ermi þannig: Fitjið upp (3) 4-6-6-6 (6-6) lykkjur alls (4) 4-4-5-6 (7-8) sinnum og (16) 19-19-18-19 (23-26) lykkjur alls 1 sinni.
Eftir alla útaukningu og úrtöku eru (42) 52-63-70-79 (90-102) lykkjur á prjóni fyrir öxl/ermi.

Haldið áfram í garðaprjóni og A.2 þar til stykkið mælist 20) 24-28-30-32 (36-40) cm – stillið af þannig að endað sé með 4. umferð í A.2, prjónið nú áfram í garðaprjóni yfir allar lykkjur. Setjið 1 prjónamerki = mitt ofan á öxl.
Fitjið upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar við hálsmál (= frá réttu) alls 2 sinnum = (46) 56-67-74-83 (94-106) lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu.

BAKSTYKKI:
Prjónið sléttar lykkjur yfir vinstra framstykki frá réttu (= (46) 56-67-74-83 (94-106) lykkjur), fitjið upp (8) 8-10-10-12 (14-16) nýjar lykkjur (= aftan við hnakka) og prjónið inn hægra framstykki á hringprjóninn (= sléttar lykkjur frá réttu) = (100) 120-144-158-178 (202-228) lykkjur.
NÚ ER STYKKIÐ MÆLT FRÁ PRJÓNAMERKI Á ÖXLUM.
Haldið áfram í garðaprjóni fram og til baka.
Þegar stykkið mælist (6) 7-7-7½-8 (9-9) cm fækkið lykkjum fyrir ermalykkjur þannig: Fækkið lykkjum í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið á stykki þannig: (16) 19-19-18-19 (23-26) lykkjur 1 sinni og (3) 4-6-6-6 (6-6) lykkjur alls (4) 4-4-5-6 (7-8) sinnum = (44) 50-58-62-68 (72-80) lykkjur.
Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist ca (20) 24-28-30-32 (36-40) cm – brjótið stykkið saman tvöfalt við prjónamerki á öxlum og passið uppá að framstykki og bakstykki séu jafn löng – fellið síðan laust af.

FRÁGANGUR:
Saumið hliðar- og ermasauma kant í kant í ystu lykkjubogana.

HEKLAÐUR KANTUR:
Heklið með heklunál 2,5 í kringum allt opið á peysunni þannig (frá réttu):
Heklið 1 fastalykkju í fyrstu lykkjuna, * 1 loftlykkja, hoppið yfir ca 2 lykkjur/umferðir, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* hringinn alla peysuna, en í hvert horn (þar sem úrtaka fyrir hálsmáli byrjar á framstykkjum) er heklað band þannig: 1 fastalykkja í hornið, heklið loftlykkur í ca 20-25 cm, snúið við og heklið 1 keðjulykkju í hverja loftlykkju til baka, heklið 1 fastalykkju aftur í hornið á framstykki. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju.
Heklið 2 laus bönd: Heklið loftlykkjur í ca 20-25 cm, snúið við og heklið 1 keðjulykkju til baka í hverja loftlykkju. Klippið frá og heklið 1 band til viðbótar alveg eins. Saumið niður 1 band innan við í hægri hlið og 1 band utan við í vinstri hlið. Passið uppá að böndin verði í sömu hæð og hin böndin.

-------------------------------------------------------

BUXUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring, ofan frá og niður. Umferðin byrjar við miðju að aftan.

BUXUR:
Fitjið upp (88) 96-104-120-128 (136-144) lykkjur á hringprjón 2,5 með Baby Merino.
Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar (= miðja að aftan) og 1 prjónamerki eftir (44) 48-52-60-64 (68-72) lykkjur (= miðja að framan).
Prjónið stroff frá miðju að aftan þannig: 1 lykkja slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, endurtakið frá *-* og endið með 2 lykkjur brugðið og 1 lykkju slétt.
Þegar stroffið mælist 4 cm er prjónaður gatakantur fyrir band þannig: * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur brugðið saman, 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur brugðið saman, 1 lykkja slétt *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn. Prjónið 1 umferð stroff með 2 lykkjum slétt, 2 lykkjur brugðið.
Prjónið upphækkun að aftan með stroffi þannig: Prjónið (7) 7-9-9-9 (9-9) lykkjur, snúið við, herðið á þræði, prjónið (14) 14-18-18-18 (18-18) lykkjur til baka, snúið við, herðið á þræði, prjónið (20) 20-26-26-26 (26-26) lykkjur, snúið við, herðið á þræði, prjónið (26) 26-34-34-34 (34-34) lykkjur til baka. Haldið svona áfram með því að prjóna (6) 6-8-8-8 (8-8) lykkjur fleiri í hvert skipti sem snúið er við þar til prjónað hefur verið yfir alls (50) 50-66-66-82 (82-82) lykkjur. Snúið við. Skiptið yfir á hringprjón 3.
Prjónið frá miðju að aftan þannig: Prjónið (17) 19-21-25-27 (29-31) lykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, A.3 (= 10 lykkjur), prjónið (34) 38-42-50-54 (58-62) lykkjur í garðaprjóni, A.3 yfir 10 lykkjur, prjónið (17) 19-21-25-27 (29-31) lykkjur í garðaprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist (10) 12-13-16-15 (16-17) cm mælt frá miðju að framan, er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 2 miðju lykkjur að framan og aftan – LESIÐ ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út í annarri hverri umferð alls (8) 8-8-8-12 (12-12) sinnum = (120) 128-136-152-176 (184-192) lykkjur.
Þegar stykkið mælist (15) 17-18-21-22 (23-24) cm mælt við miðju að framan (útaukning á nú að vera lokið) fellið af lykkjur fyrir opi í næstu umferð með sléttum lykkjum þannig: Byrjið við miðju að aftan og fellið af (6) 6-6-6-8 (8-8) fyrstu lykkjur, prjónið sléttprjón þar til (6) 6-6-6-8 (8-8) lykkjur á undan prjónamerki fram og fellið af (12) 12-12-12-16 (16-16) lykkjur, prjónið sléttprjón þar til eftir eru (6) 6-6-6-8 (8-8) lykkjur í umferð, fellið af síðustu (6) 6-6-6-8 (8-8) lykkjur. Setjið lykkjur af annarri skálminni á þráð og prjónið nú skálmar hvora fyrir sig til loka.

SKÁLM:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.
= (48) 52-56-64-72 (76-80) lykkjur.
Skiptið lykkjunum niður á 4 sokkaprjóna nr 3 og setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar (= innan á skálm). Haldið áfram í garðaprjóni og A.3 í hlið eins og áður í (1) 1-1-2-2 (2-3) cm – passið uppá að næsta umferð sé 1 umferð slétt.
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA-3 þannig:
STÆRÐ FYRIRBURI -12/18 MÁN: Í 4. hverri umferð.
STÆRÐ 2 ÁRA: í 6. hverri umferð.
STÆRÐ 3/4 ÁRA: Í 8. hverri umferð.
ALLS (8) 10-10-12-12 (12-12) sinnum = (32) 32-36-40-48 (52-56) lykkjur.

Prjónið áfram þar til stykkið mælist (24) 28-32-38-42 (48-55) cm, þá heldur A.3 áfram eins og áður en lykkjurnar í garðaprjóni eru prjónaðar í stroffprjóni með 2 lykkjum slétt/2 lykkjur brugðið þar til stykkið mælist ca (26) 30-34-40-44 (50-57) cm frá uppfitjunarkanti – passið uppá að síðasta umferðin sé 4. umferð í A.3. Prjónið stroff yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist (27) 31-35-41-45 (51-58) cm frá uppfitjunarkanti. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Setjið lykkjur frá hinni skálminni yfir á sokkaprjón nr 3 og prjónið á sama hátt og fyrri skálm.

FRÁGANGUR:
Saumið (12) 12-12-12-16 (16-16) lykkjur sem felldar voru af á milli skálma, að hvorri annarri.

SNÚRA:
Heklið snúru í mitti með heklunál 2,5 þannig: Heklið loftlykkjur í ca 110 cm, snúið við og heklið 1 keðjulykkju til baka í hverja loftlykkju, klippið frá og festið enda. Snúran er þrædd í gegnum gatakant á buxum og er hnýtt í slaufu að framan.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = engin lykkja, hoppið yfir þessa rúðu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 2 lykkjur slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir
symbols = 3 lykkjur slétt saman
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 29-9

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (67)

country flag Marjolaine wrote:

Bonjour, je viens de finir le gilet, merci pour vos réponses toujours très rapides ! Mes coutures côtés sont très bien en revanche mes coutures sous les manches sont très laides, du au fait qu'on augmente 4 mailles par 4 mailles et que cela fait des escaliers... alors que de l'autre côté (celui où l'on rabat cela est plus joli) j'ai beau chercher je n'ai pas trouvé de solution de couture satisfaisante.... auriez vous une astuce ou un tuto ? Merci beaucoup !

05.12.2023 - 21:45

DROPS Design answered:

Bonjour Marjolaine, pour la couture sous les manches, vous pouvez assembler les mailles en suivant l'une des 2 techniques que l'on montre dans cette vidéo. Bon tricot!

06.12.2023 - 08:19

country flag Marjolaine wrote:

Bonjour, je suis en train de réaliser le modèle en taille 1/3 mois et j\\\'arrive à la fin du devant droit. Vous dites qu\\\'il doit rester 52 mailles quand toutes les augmentations et diminutions sont faites mais j\\\'en compte 54 (37 mailles de montage -18 diminutions + 35 augmentations = 54) ou alors je fais une erreur quelque part ? \\r\\nMerci pour votre réponse ^^ marjolaine

21.11.2023 - 23:43

DROPS Design answered:

Bonjour Marjolaine, notez que la taille 1/3 mois est la 3ème taille, autrement dit vous devriez monter 44 mailles, les 37 mailles sont pour la taille 0/1 mois; vous montez ainsi 37 mailles et diminuez 20 mailles pour l'encolure (soit 18 fois tous les 2 rangs + 2 fois tous les 4 rangs) et montez 35 mailles au total = 52 mailles. Bon tricot!

22.11.2023 - 09:27

country flag Judy Taylor wrote:

I can't get the image of the pattern, for A1, A2 or A3 to load. Can you help?

16.10.2023 - 17:05

DROPS Design answered:

Dear Mrs Taylor, it might have been a temporary bug, diagrams should be visible, try to refresh the page (with ctrl + F5 for example). Happy knitting!

17.10.2023 - 09:07

country flag Ana wrote:

Puedo hacer el gorrito con agujas rectas?,. Gracias

29.01.2023 - 11:50

DROPS Design answered:

Hola Ana, en principio puedes usar agujas rectas. La aguja circular se utiliza para trabajar más cómodamente con un alto número de puntos.

29.01.2023 - 20:34

country flag Bonnardel Danielle wrote:

Je pourrais avoir l'explication en français svp

30.11.2022 - 09:09

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Bonnardel, volontiers, tous nos modèles sont disponibles en français, cliquez sur le menu déroulant sous la photo pour changer la langue et ainsi trouver les explications en français. Bon tricot!

30.11.2022 - 11:50

country flag Grete Rasmussen wrote:

Drops Baby 29-9 \\r\\nHue , Kan overhovedet ikke løse gåde ! \\r\\nJeg syr huen sammen , flette de 2stk snore ? Bindebånd ?\\r\\nSkal ørene bare stritte ud \\r\\nVh . Grete Rasmussen

10.09.2022 - 20:07

country flag Natalie wrote:

Jeg er i gang med at strikke bukserne, og kan simpelthen ikke finde ud af om jeg stadig skal strikke rundt, efter ribben, eller om jeg skal strikke frem og tilbage?

08.03.2022 - 12:01

DROPS Design answered:

Hei Natalie. Når du skal strikke forhøyningen bak, strikkes det frem og tilbake over de maskene det står i oppskriften. Når forhøyningen er ferdig strikkes byttes det til rundpinne 3 og det strikkes rundt igjen. mvh DROPS Design

14.03.2022 - 10:34

country flag Ghislain Francine wrote:

J'ai bien tricoté le bonnet, mais je n'arrive pas à le monter, comment faut-il procéder?

13.02.2022 - 16:33

DROPS Design answered:

Bonjour Francine, vous allez assembler le bonnet au milieu dos, autrement dit les côtés du bonnet doivent être cousus entre eux de haut en bas (du rang de montage jusqu'aux mailles rabattues), puis vous pliez le bonnet pour que cette couture soit au milieu dos du bonnet. Et vous assemblez maintenant les mailles du montage entre elles (comme pour une couture d'épaules). Bonne continuation!

14.02.2022 - 10:33

country flag Plasman Dominique wrote:

Bonjour, encore une petite question concernant ce bonnet . Je dois terminer de tricoter A1 à 16 cm de hauteur (taille 1 an). Je mesure où ? (au milieu de mon tricot, à l'endroit le plus "long " du motif j'ai bien 16 cm, mais sur la partie centrale j'ai un cm de moins et sur les côtés, 2 cm de moins. A quel endroit dois je mesurer la hauteur avant de tricoter les 2 côtes mousse. Merci pour ce modèle et pour votre aide.

18.11.2021 - 16:47

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Plasman, mesurez au plus court, la partie qui descend un peu sur le front - si vous en avez la possibilité, n'hésitez pas à essayer pour ajuster la longueur si besoin. bon tricot!

24.11.2021 - 09:53

country flag Dominique Plasman wrote:

Bonjour, pour le bonnet j'ai bien tricoté 3 cm de points mousse après avoir monté les mailles. Sur la photo de votre modèle j'ai l'impression que ce bord mousse es beaucoup plus petit (2 cm ?) Je me trompe ? Cordialement

16.11.2021 - 12:25

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Plasman, le bonnet se tricote de haut en bas, on ne voit pas vraiment bien les 3 premiers cm du haut sur la photo - il se termine par 2 côtes mousse (que l'on voit bien sur la photo côté front/visage, juste avant les cache-oreilles. Bon tricot!

16.11.2021 - 13:36