DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2288.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Mazo

Toppur með v-hálsmáli, áferðamynstri og klauf í hliðum, prjónaður neðan frá og upp úr DROPS Muskat. Stærð S - XXXL.

DROPS 178-66
DROPS Design: Mynstur r-709
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS MUSKAT frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
200-200-200-250-250-300 g litur 06, ljós bleikur

DROPS HRINGPRJÓNN (60 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 lykkja og 28 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2288.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Veljið mynstur fyrir rétta stærð.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ATH: Nýjar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur A.2.

ÚRTAKA:
Fækkið um 1 lykkju innan við 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum á eftir 3 kantlykkjum í garðaprjóni þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.
Fækkið lykkjum á undan 3 kantlykkjum í garðaprjóni þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan 3 kantlykkjum í garðaprjóni og prjónið 2 lykkjur slétt saman.

--------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka í 2 stykkjum og saumað saman í lokin.

BAKSTYKKI.
Fitjið upp 81-89-97-107-119-133 lykkjur með Muskat á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið stroff þannig (1. umferð = rétta): Prjónið 3 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið 1 lykkju slétt, endurtakið A.1 (= 2 lykkjur) þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 3 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka þar til A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina.
Prjónið síðan A.2 (= 2 lykkjur) yfir A.1. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 5 cm er fitjuð upp 1 ný lykkja í lok 2 næstu umferða (merkir þar sem klauf endar) = 83-91-99-109-121-135 lykkjur.

Prjónið mynstur þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 1 lykkja slétt, A.2 þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 7 cm er aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið – LESIÐ ÚTAUKNING!
Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 10 cm = 87-95-103-113-125-139 lykkjur. Þegar stykkið mælist 19-20-21-22-23-24 cm prjónið frá ör í A.3 yfir miðju 7 lykkjur í umferð – passið uppá að þessi umferð merkt með ör sé prjónuð frá röngu!
Í fyrstu umferð frá réttu eftir A.3 er prjónað áfram yfir fyrstu 44-48-52-57-63-70 lykkjur í umferð og þær 44-48-52-57-63-70 lykkjur sem eftir eru, eru settar á þráð.

HÆGRI HLIÐ AÐ AFTAN:
= 44-48-52-57-63-70 lykkjur. LESIÐ ALLAN NÆSTA KAFLA – lykkjum er fækkað fyrir hálsmáli og handveg samtímis þannig:
Prjónið mynstur A.2 eins og áður með 3 kantlykkjum í garðaprjóni að hálsi og 1 kantlykkju í garðaprjóni að hlið.
KANUR Í HÁLSI:
Í fyrstu umferð frá réttu byrjar úrtaka fyrir háls.
Fækkið um 1 lykkju innan við 3 kantlykkjum í garðaprjóni – LESIÐ ÚRTAAKA. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 16-18-20-22-24-26 sinnum.
HANDVEGUR:
Þegar stykkið mælist 21-22-23-24-25-26 cm prjónið garðaprjón yfir ystu 10-10-12-11-11-14 lykkjur í hlið (meðtalin 1 kantlykkja í garðaprjóni). Þegar prjónaðar hafa verið 4 umferðir í garðaprjóni) yfir þessar lykkjur eru felldar af fyrstu 7-7-9-8-8-11 lykkjur í byrjun á umferð fyrir handveg. Næstu 3 lykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni (= kantur að handveg). Fækkið um 1 lykkju innan við 3 kantlykkjur í garðaprjóni við handveg. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 10-12-12-14-18-20 sinnum.

Eftir allar úrtöku fyrir handveg og háls eru 11-11-11-13-13-13 lykkjur eftir á prjóni fyrir hlýra. Haldið áfram með mynstur eins og áður með 3 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið. Hlýrinn er prjónaður síðan eins og útskýrt er í A.4 – veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð. Þegar stykkið mælist 39-41-43-45-47-49 cm fellið af.

VINSTRI HLIÐ AÐ AFTAN:
Setjið til baka 44-48-52-57-63-70 lykkjur af þræði í hinni hliðinni á hringprjón 4 og prjónið alveg eins og í hægri hlið að aftan, nema spegilmynd – ATH! Þegar fellt er af fyrir handveg í hlið er fellt af í byrjun á umferð frá röngu (í stað byrjun umferðar frá réttu). Aðrar úrtökur fyrir handveg og hálsmáli eru gerðar frá réttu!

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið eins og bakstykki.

FRÁGANGUR:
Saumið saman báða hlýrana með lykkjuspori svo að saumurinn verði ekki of þykkur. Saumið hliðarsauminn innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið fyrir handveg og niður að klauf. Endurtakið í hinni hliðinni. Klippið frá og festið enda.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = prjónið 1 lykkju slétt framan í og aftan í sömu lykkju (= 1 lykkja fleiri)
symbols = byrjið í þessari umferð - passið uppá að byrjað sé frá röngu!
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Mazo

Gabi, Germany

Mazo

Jenny, Finland

Skrifaðu athugasemd um DROPS 178-66

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (46)

country flag Irene Simeone wrote:

Buongiorno, sto seguendo le istruzioni ma sono un po' confusa :( il davanti del lavoro è quello in cui si vedono le coste oppure quello in cui ci sono una specie di nodini? spero riusciate a capire cosa intendo. Grazie mille! Irene

03.03.2022 - 15:24

DROPS Design answered:

Buonasera Irene, il davanti del lavoro è quello in cui inizia a lavorare a coste sul dietro. Buon lavoro!

04.03.2022 - 17:46

country flag Stella wrote:

When it says to work 4 rows over 10 garter stitches, does is mean 4 rows with the 10 garter stitches or the 10 garter stitches with 4 rows of A2 over it?

03.01.2022 - 21:52

DROPS Design answered:

Dear Stella, this means you work the next 4 rows with the 10 sts in garter stitch instead of pattern and the remaining stitches as before. Happy knitting!

04.01.2022 - 07:26

country flag Angela Beaty wrote:

In the Back Piece section, work from arrow in A.3 over the middle 7 stitches on row, Is this actually in the middle of the 96 stitches? So you skip the first 4 rows and just do the arrow row? Then work A.3 over the first 48 stitches do you start from the bottom of the diagram or from the arrow?

19.08.2021 - 10:21

DROPS Design answered:

Dear Angela, when you work from the arrow, yes, you're working over the middle 7 stitches of the 96 stitches and you skip the first 4 rows and start from the arrow row. In the rest of the stitches, you work A.2. After finishing A.3, in the next row, there is a split for the opening. The rows under the arrow are actually from A.2 and are there just to give a context or to make it continuous visually.

30.08.2021 - 19:26

country flag Katzilicious wrote:

I'm still confused, can you explain "work from arrow in A.3 over the middle 7 stitches on row - adjust so that this row marked with arrow is worked from wrong side. On first row from right side after A.3 work over the first 44-48-52-57-63-70 stitches on row and slip the remaining 44-48-52-57-63-70 stitches on 1 stitch holder"? So how do I read the chart? From the right bottom? And when i work from arrow A.3 do i start with RS or WS? Thank you

18.05.2021 - 12:06

DROPS Design answered:

Dear Katzilicious, you read the diagram from right to left and from bottom up, from the right side. Here you have a lesson on how to read a diagram: https://www.garnstudio.com/lesson.php?id=68&cid=19 A.3 begins from the wrong side. Work 5 rows of A.3, which is in the center of the front or the back. The next step is to separate this part into two. You work one part with the V-neck and then you work the second part from the stitch holder. Happy knitting!

07.08.2021 - 11:30

country flag Jessica wrote:

Hi again! Thanks for the help, it clears things up, but I’m still not sure what I should be doing when I switch to the A.3 chart. It says the row marked by the arrow should be worked from the WS, but to do that, I’d have to work the row below from the RS, meaning I’d be doing a row of knitting. But the A.2 pattern states that for RS rows I should P1 K1. I’m not sure how these two charts fit together. Any help would be great.

07.05.2021 - 13:32

country flag Jessica wrote:

Hi! I’m a little confused about what to do once I’ve done the first 8 rows in A.1. I’m finishing on the WS so starting A.2 on the RS with a P1 K1 and 3 garter stitches at each end, then on the WS purling all stitches, but from previous comments that doesn’t seem to be the correct pattern, and after I got to switching to A.3, doing the row indicated by the arrow on the WS indicates that the previous RS row should be all knitted, not P1 K1 as I have done. Any help would be appreciated.

07.05.2021 - 11:22

DROPS Design answered:

Dear Jessica, the garter stitches in A.2 (= P from RS, P from WS) should be worked over the P stitches in A.1, so that you will work A.2 from RS: 3 sts in garter st, K1, (P1, K1) repeat from (to) and finish with 3 sts in garter stitch and from WS: K3, P to the last 3 sts, P3. Happy knitting!

07.05.2021 - 13:00

country flag Katzilicious wrote:

I'm confuse about worked A.1 until it had been vertically worked and work A.2 over A.1 can you please explain? Thank you

06.05.2021 - 07:39

DROPS Design answered:

Dear Katzilicious, work first the 8 rows in A.1 as explained: (from RS = 3 sts in garter stitch, knit 1, repeat A.1 (read from the right towards the left= P1, K1), 3 sts in garter st / from WS: 3 sts in garter st, A.1 (read from the left towards the right = P1, K1), P1, 3 sts in garter st). Then work: 3 sts in garter st, knit 1, repeat A.2 (= 1 st in garter st, 1 st in stocking st), and finish with 3 sts in garter st, from WS: 3 sts in garter st, repeat A.1 (=1 st in stocking st = P, 1 st in garter st = K), P1, 3 sts in garter st. Hope this help. Happy knitting!

06.05.2021 - 07:45

country flag Diana wrote:

I prefer written instructions as opposed to charts. Is there anyone who has written out the instructions? Also, there are no instructions on how many inches or rows we need to knit for each diagram. I am a long time knitter but find almost all of the patterns here quite confusing with no written instructions or actual row/inches for each size. I understand the patterns are translated from Norwegian and it is not an easy task to ensure everything is explained in detail.

29.03.2021 - 22:35

DROPS Design answered:

Dear Diana, we use charts insted of written out instructions not only because they are available in many languages, but also because we believe that with charts one can see not only the very next step, but one can see teh larger picture, as how stitches and rows relate to each other en large. We also have a lesson about how to read diagrams here, and one can always ask for help in the store where they bought their DROPS yarn from (over the phone or in person). We have many knitters who actually prefer diagrams to written instructions. Happy Knitting!

30.03.2021 - 11:50

country flag Müller wrote:

Guten Tag, ich vertehe nicht beim Rückenteil, dass man A.2 über A.1 stricken soll, wie wird das gemeint? Dann steht da außerdem, dass man A2 stricken soll bis 1 Masche übrig ist. Soll man also die reihe so oft wiederholen bis 1 Masche übrig ist und dass dann mit allen einzelnen reihen von A2? Danke im voraus!

17.01.2021 - 23:25

DROPS Design answered:

Liebe Frau Müller, Sie sollen die 2 Maschen von A.2 über die 2 Maschen von A.1 stricken/in der Breite wiederholen, so haben Sie 1 Masche kraus rechts (= die 1. Masche in A.2) über die linke Masche von A.1 und die rechte Masche in A.2 stricken Sie über die rechte Masche in A.1. Beim A.1 hatten Sie 1 linke Masche beidseitig innerhalb die rechte Masche vor/nach den 3 M krausrechts - hier wird das gleiche, Dann stricken Sie mit A.2 und 1 M krausrechts beidseitig + 1 Masche glatt rechts nach der 1. Randmasche. Viel Spaß beim stricken!

18.01.2021 - 11:16

country flag Melanie wrote:

Hallo, ich verstehe den Anfang des Rückenteils nicht. Wieso steht da zweimal 1. Reihe. Erst steht da 1. Rück Reihe und dann 1. Vor Reihe. Warum steht das 2 mal da und müsste es nicht it vor Reihe beginnen? Ich würde noch gerne wissen, wie man stricken muss, falls man das Top länger als angegeben haben möchte. Danke im Voraus!

15.01.2021 - 08:30

DROPS Design answered:

Liebe Melanie, nach Anschlag stricken Sie alle Maschen links = diese Reihe wird von der Rückseite gearbeitet. Dann stricken Sie die nächste Reihe von der Vorderseite = Hinreihe mit A.1 (= 1. Reihe = Hinreihe) und 3 M kraus rechts beidseitig. Leider können wir nicht jede Anleitung nach jedem Wunsch umrechnen. Gerne kann Ihnen Ihr DROPS Händler damit helfen. Viel Spaß beim stricken!

15.01.2021 - 15:16