Two to Tango |
||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||
Settið samanstendur af: Prjónuðum toppi með gatamynstri úr DROPS Alpaca og bolero með gatamynstri úr DROPS Alpaca. Stærð S - XXXL.
DROPS 178-59 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA Á FRAM- OG BAKSTYKKI: Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki á hlið, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ÚRTAKA Í HANDVEGI: Fækkið lykkjum innan við 3 lykkjur garðaprjón. Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum á eftir 3 lykkjum garðaprjón þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. Fækkið lykkjum á undan 3 lykkjum þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna upp að handvegi, síðan er framstykki og bakstykki prjónað til loka hvort fyrir sig. TOPPUR: Fitjið upp 480-528-576-624-720-768 lykkjur á hringprjón 2,5 með Alpaca. Prjónið 1 umferð slétt, síðan er prjónað þannig: * 1 lykkja slétt, 3 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-*. Haldið áfram með stroff svona. Þegar stykkið mælist 2 cm er öllum 3 lykkjum brugðið fækkað í 2 lykkjur brugðið, fækkið lykkjum með því að prjóna 2 lykkjur brugðið saman = 360-396-432-468-540-576 lykkjur. Þegar stykkið mælist 3 cm er önnur hver 2 lykkjur brugðið fækkað til 1 lykkju brugðið = 300-330-360-390-450-480 lykkjur. Þegar stykkið mælist 4 cm er restin af 2 lykkjur brugðið fækkað í 1 lykkju brugðið = 240-264-288-312-360-384 lykkjur. Þegar stroffið mælist 6 cm er skipt yfir á hringprjón 3, prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan þannig: Prjónið A.1 yfir allar lykkjur (= 20-22-24-26-30-32 mynstureiningar A.1). Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 200-220-240-260-300-320 lykkjur í umferð. Setjið 2 prjónamerki í stykkið, 1 í byrjun umferðar og 1 eftir 100-110-120-130-150-160 lykkjur = hliðar. Prjónið þannig: Sléttprjón yfir fyrstu 110-120-130-140-160-170 lykkjurnar, A.2 yfir næstu 80-90-100-110-130-140 lykkjur (= A.2 kemur beint yfir 8-9-10-11-13-14 mynstureiningar A.1), sléttprjón yfir síðustu 10 lykkjur. Haldið áfram með þetta mynstur. Þegar stykkið mælist 12 cm er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hlið (= 4 lykkjur færri) – LESIÐ ÚRTAKA Á FRAM- OG BAKSTYKKI. Fækkið lykkjum með 6-6-7-7-7-7 cm millibili alls 5 sinnum = 180-200-220-240-280-300 lykkjur. Þegar stykkið mælist ca 39-40-41-42-43-44 cm og eftir eru 3 umferðir þar til prjónuð hefur verið heil mynstureining á hæðina af A.2 er prjónað GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – yfir 12-12-14-14-16-18 lykkjur í hvorri hlið (= 6-6-7-7-8-9 lykkjur hvoru megin við prjónamerki), aðrar lykkjur halda áfram eins og áður. ATH! Byrjið með 1 umferð brugðið yfir 12-12-14-14-16-18 lykkjur í hvorri hlið, prjónið 1 umferð slétt yfir 12-12-14-14-16-18 lykkjur í hvorri hlið – nú er eftir 1 umferð í A.2. Þessi umferð er prjónuð þannig: Fellið af fyrstu 3-3-4-4-5-7 lykkjur, prjónið 3 lykkjur brugðið, prjónið næstu 78-88-96-106-122-130 lykkjur eins og áður, prjónið 3 lykkjur brugðið, fellið af næstu 6-6-8-8-10-14 lykkjur, prjónið 3 lykkjur brugðið, prjónið næstu 78-88-96-106-124-130 lykkjur, prjónið 3 lykkjur brugðið, fellið af síðustu 3-3-4-4-5-7 lykkjurnar. HVORT STYKKI ER NÚ PRJÓNAÐ TIL LOKA FYRIR SIG: BAKSTYKKI: Setjið fyrstu 84-94-102-112-130-136 lykkjur á þráð, prjónið yfir síðustu 84-94-102-112-130-136 lykkjur í umferð (= það svæði þar sem A.2 hefur verið prjónað) – byrjið frá réttu: Haldið áfram í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – yfir 3 lykkjur í hvorri hlið, 9-9-18-18-27-25 lykkjur sléttprjón, mynstur A.2 eins og áður yfir næstu 60-70-60-70-70-80 lykkjur (= 6-7-6-7-7-8 mynstureiningar), 9-9-18-18-27-25 lykkjur sléttprjón, 3 lykkjur garðaprjón, JAFNFRAMT er fækkað um 1 lykkju innan við 3 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið – LESIÐ ÚRTAKA Í HANDVEG. Fækkið lykkjum svona í 6. hverri umferð 4-0-0-0-0-0 sinnum, í 4. hverri umferð 2-5-9-6-6-2 sinnum, síðan í annarri hverri umferð 0-4-4-10-17-23 sinnum = 72-76-76-80-84-86 lykkjur. Þegar A.2 hefur verið prjónað 2-2-3-3-4-4 sinnum á hæðina eftir skiptingu við handveg eru prjónaðar 2 umferðir sléttprjón með 3 lykkjum garðaprjón í hvorri hlið, prjónið síðan 6 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. FRAMSTYKKI: Setjið til baka 84-94-102-112-130-136 lykkjur af þræði á prjóninn. Haldið áfram í sléttprjóni og 3 lykkjum garðaprjóni í hvorri hlið, fækkið lykkjum alveg eins og á bakstykki. JAFNFRAMT þegar prjónaðar hafa verið 14-14-28-28-42-42 umferðir sléttprjón er prjónað A.2 yfir miðju 60-70-60-70-70-80 lykkjur, aðrar lykkjur halda áfram eins og áður, haldið áfram með úrtöku í hlið. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru prjónaðar 2 umferðir sléttprjón með 3 lykkjum garðaprjón í hvorri hlið, prjónið síðan 6 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur (nú hafa verið prjónaðar jafnmargar umferðir á bakstykki og á framstykki). Eftir alla úrtöku eru 72-76-76-80-84-86 lykkjur í umferð. Í næstu umferð eru fyrstu 17-17-17-18-19-19 lykkjur settar á þráð (prjónið þær fyrst), fellið af næstu 38-42-42-44-46-48 lykkjur, haldið áfram að prjóna yfir síðustu 17-17-17-18-19-19 lykkjur á prjóni. Prjónið garðaprjón yfir þessar lykkjur þar til band / hlýri á öxl mælist ca 12-14-8-12-6-8 cm, mátið e.t.v. flíkina og ákveðið lengdina á bandinu / hlýra. Fellið af. Setjið til baka fyrstu 17-17-17-18-19-19 lykkjur á prjóninn og prjónið á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið band / hlýra á öxl niður frá framstykki yfir á bakstykki. ------------------------------------------------------- BOLERO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón í 2 stykkjum sem saumuð eru saman við miðju að aftan. BOLERO: Fitjið upp 175-199-223-247-271-295 lykkjur á hringprjón 2,5 með Alpaca. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, prjónið síðan frá réttu þannig: 3 lykkjur garðaprjón, * 1 lykkja slétt, 3 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir og prjónið 1 lykkju slétt og 3 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram með stroff. Þegar stykkið mælist 2 cm er öllum 3 lykkjum brugðið fækkað í 2 lykkjur brugðið, fækkið lykkjum með því að prjóna 2 lykkju brugðið saman frá réttu = 133-151-169-187-205-223 lykkjur. Þegar stykkið mælist 3 cm er önnur hver 2 lykkja brugðið fækkuð í 1 lykkja brugðið = 112-127-142-157-172-187 lykkjur. Þegar stykkið mælist 4 cm er restin af 2 lykkjur brugðið fækkað í 1 lykkju brugðið = 91-103-115-127-139-151 lykkjur. Þegar stykkið mælist 6 cm er skipt yfir á hringprjón 3, prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, prjónið síðan frá réttu þannig: 3 lykkjur garðaprjón, byrjið í 2. umferð í A.1 og prjónið A.1 yfir næstu 84-96-108-120-132-144 lykkjur (= 7-8-9-10-11-12 mynstureiningar af A.1), prjónið 1 lykkju slétt og endið með 3 lykkjur garðaprjón. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka eru 77-87-97-107-117-127 lykkjur í umferð. Haldið svona áfram: 3 lykkjur garðaprjón, A.2 yfir næstu 70-80-90-100-110-120 lykkjur (= 7-8-9-10-11-12 mynstureiningar af A.2), prjónið 1 lykkju slétt og endið með 3 lykkjur garðaprjón. Haldið áfram með þetta mynstur þar til stykkið mælist ca 45-47-49-51-53-55 cm, endið eftir eina heila mynstureiningu af A.2 á hæðina, prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur og fellið af. Prjónið annað stykki á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið saman affellingarkanta á báðum stykkjum með lykkjuspori. Brjótið stykkið saman á lengdina og saumið síðan saman hliðar meðfram strikuðu línunum eins og útskýrt er í mynsturteikningu. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (32)
Kristin wrote:
Hallo! Ich stricke Gr. XL. Nach allen Abnahmen am Rumpfteil in der entsprechenden Länge und angegebenen Gesamtmaschen sollen die Krausrippen über 14 Maschen (je 7 beidseits der Markierer) gestrickt werden. Doch leider sind nur 5 Maschen zwischen dem Markierer und dem Rapport A2 übrig. Sollen da 2 Maschen vom Rapport als Krausrippe mit verwendet werden?
23.03.2024 - 13:50DROPS Design answered:
Liebe Kristin, stricken Sie glatt rechts die Maschen von A.2 die nicht mehr im Lochmuster gestrickt werden können, und stricken Sie die 7 Maschen nach der 1. Markierung (1. A.2 vom Rückenteil) + die 7 Maschen vor der 2. Markierung (letztes A.2 vom Rückenteil) Krausrechts. Viel Spaß beim Stricken!
02.04.2024 - 08:32Liliana Perez wrote:
Hello! Pattern mentions, "purl 1 row from wrong side, then work as follows from right side: 3 stitches in garter stitch, A.1 over the next 84 stitches (= 7 repetitions of A.1), knit 1 and finish with 3 stitches in garter stitch." This allows me to start A.1 on the right side of my project, however, all the decreases and increases end up being knit up on the wrong side. Since the diagram tells me to purl my knit sts on the wrong side, does that go for my increases and decreases to?
09.12.2023 - 23:36DROPS Design answered:
Dear Mrs Perez, you are right, to get the lace pattern worked from right side, start diagram with 2nd row for the shoulder warmer. Happy knitting!
11.12.2023 - 08:53Ashraf wrote:
Hello dear I'm going to start knitting this beautiful pieces, but I can't understand how A1 pattern causes a decrease in the number of stitches, where and how should the decreses be done? Thank you for answering my question
28.08.2023 - 14:19Ashraf answered:
Sorry, I found the answer to my question, but couldn't find a way to delete it from the site. Thank you anyway, love
28.08.2023 - 14:32Eva wrote:
Hei. Jeg stusser over formen rundt ermehullet. I str. XL skal det felles 6 ganger på hver 4. pinne og 10 ganger på annenhver pinne. Skulle disse vært i omvendt rekkefølge? Altså på annenhver pinne først og så på hver 4. pinne? Det forekommer meg å være det som gir den smidigste runde formen rundt armen og at det er det som er gjort på bildet. Mvh Eva
03.08.2020 - 23:49DROPS Design answered:
Hei Eva. Nei, bildet viser det som er blitt gjort slik det står i oppskriften. Men bildet viser en størrelse i S, så det kan nok avvike litt i størrelse XL. Men om du syns det vil passe deg å gjøre det omvendt, kan du gjøre det, så lenge maske antallet stemmer til slutt. God Fornøyelse!
10.08.2020 - 14:13Viviane TERMOLLE wrote:
Bonjour, je ne suis pas une fan des aiguilles circulaires mais par contre beaucoup de modèles me plaisent mais j'aimerai les réaliser en aiguilles normales. Comment faire pour obtenir les explications adaptées. Merci pour votre réponse
01.07.2020 - 12:07DROPS Design answered:
Bonjour Mme Termolle, vous trouverez ici, comment adapter un modèle sur aiguilles droites. Bon tricot!
01.07.2020 - 15:34Julia wrote:
Liebes Team bei der 6 Runde muss ich insgesamt 20 maschen abnehmen in eine Reihenfolge oder ist es egal
04.05.2020 - 19:21DROPS Design answered:
Liebe Julia, die Abnahmen sind im Diagram (= 6. Reihe) gezeichnet, dh wenn Sie diese 6. Reihe in A.1 stricken, werden Sie 2 Maschen in jedem A.1 abnehmen (= 3 Abnahmen aber nur 2 Umschläge). Es sind jetzt nur noch 10 M in jedem A.1, und jetzt stricken Sie die übrigen Reihen von A.1 wie gezeigt. Viel Spaß beim stricken!
05.05.2020 - 10:27Julia wrote:
Hallo liebes Team mache ich vielleicht ein Fehler bei den rapport von den einen auf den anderen ich muss laut anleitung 20 rapport bei 240 maschen stricken!
04.05.2020 - 12:41DROPS Design answered:
Liebe Julia, oh Sie stricken vielleicht lieber Grôsse S? dann haben Sie 240 Maschen und stricken A.1 (= 12 M bei der 1. Reihe) 20 Mal, dh 12 x 20 = 240 M. Schauen Sie alle vorrige Antworte und sagen Sie uns bescheid, ob Sie es jetzt richtig haben. Viel Spaß beim stricken!
04.05.2020 - 15:54Julia wrote:
Hallo liebes Team ich mache es wie es da beschrieben wird aber zum schluss habe ich eine masche weniger statt 240 maschen habe ich 239 maschen zum schluss sieht es so aus 7 maschen rechts oder es fehlt eine masche weniger ich kann das muster nicht richtig machen ich habe es oft gestrickt und immer ein Fehler und muster wird es nicht können Sie mir ein tutorial machen oder es zeigen mein Problem sind die ersten Reihen am Anfang mit dem muster Danke im voraus
04.05.2020 - 11:58DROPS Design answered:
Liebe Julie, in die 3. Größe wiederholen Sie A.1 insgesamt 24 Mal, so haben Sie 24 x 10 = 240 Maschen wenn A.1 fertig ist. Viel Spaß beim stricken!
04.05.2020 - 15:52Jula wrote:
Könnten Sie mir helfen habe Probleme mit dem Diagramm A1 Drops 178-59 am Anfang ist es nicht verständlich genug !
01.05.2020 - 22:55DROPS Design answered:
Liebe Julia, hier können Sie finden, wie man Diagramme liest - A.1 wird zuerst über 12 Maschen gestrickt aber bei der 6. Runde nehmen Sie 2 Maschen in jedem A.1 ab = A.1 wird jetzt über 10 M bis zur Ende gestrickt. Viel Spaß beim stricken!
04.05.2020 - 11:19Sarah wrote:
You should link this pattern to the Snow Angel set, as it's the same lace pattern & frill, just a smaller needle size! I decided to use the leftover yarn from a Snow Angel set to make a matching shrug, thinking I'd have to change the lace pattern & stitch count on a pattern that was the right shape, but here it was, already waiting for me!
07.12.2019 - 17:30