DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5676.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

My Fairy

Settið samanstendur af: Skírnarkjól eða kjól fyrir nafnagjöf prjónaður ofan frá með laskalínu og gatamynstri úr DROPS Cotton Merino. Prjónuð húfa með gatamynstri úr DROPS Cotton Merino. Stærð 0-2 ára.

DROPS Baby 29-1
DROPS Design: Mynstur nr cm-001-by
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

KJÓLL:
Stærð: 0/6 - 6/12 - 12/18 mán (2) ára
Stærð í cm: 52/68 - 68/80 - 80/86 (92)
Öll lengdin:
36-38-47 (49) cm (kjóll með venjulegri lengd)
80-82-91 (93) cm (síður kjóll)

Efni:
DROPS COTTON MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
250-250-300 (350) g litur 01, natur (fyrir kjól með venjulegri lengd)
400-450-500 (600) g litur 01, natur (fyrir síðan kjól)

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 lykkja og 28 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.
DROPS HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 21 lykkja og 30 umferðir með gatamynstri verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 cm) NR 3 – fyrir kant með garðaprjóni og gatakanti.
DROPS HEKLUNÁL NR 3 – fyrir picotkant.
DROPS PERLUTALA, blóma (hvít) NR 600: 3 st í allar stærðir.
FYLGIHLUTIR: ca 2,5-3 metrar silkiborði (ca 25 mm breiður).

HÚFA:
Stærð: 0/6 - 6/12 - 12/18 mán (2) ára
Höfuðmál: ca 40/42 - 42/44 - 44/46 (48/50) cm

Efni:
DROPS COTTON MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
50-50-100 (100) g litur 01, natur

DROPS HRINGPRJÓNN NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 23 lykkjur og 34 umferðir með gataumferð verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.
DROPS HEKLUNÁL NR 3 – fyrir picotkant.
FYLGIHLUTIR: Ca 1 meter silkiborði (ca 15 mm breiður).

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5676.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.10. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING:
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 96 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 25) = 3,84. í þessu dæmi þá er aukið út eftir ca 4. hverja lykkju. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi á kjól):
Fækkið lykkjum hvoru megin við prjónamerki mitt undir ermi þannig: Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna (= 2 lykkjur færri).

ÚRTAKA (á við um miðjustykki aftan á húfu):
Fækkið lykkjum innan við ystu lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum á eftir fyrstu lykkju í garðaprjóni þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna.
Fækkið lykkjum á undan síðustu lykkju í garðaprjóni þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan síðustu lykkju í garðaprjóni og prjónið 2 lykkjur slétt saman.

LASKALÍNA:
Aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við lykkju með prjónamerki í.
Aukið út þannig: Byrjið nákvæmlega á undan lykkju með prjónamerki í, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt (= lykkja með prjónamerki í), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagati í hægri kant að framan (þegar flíkin er mátuð).
1 hnappagat = prjónið aðra og þriðju lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
STÆRÐ 0/6 MÁN: 2, 5 og 8 cm.
STÆRÐ 6/12 MÁN: 2, 5 og 8 cm.
STÆRÐ 12/18 MÁN: 2, 6 og 10 cm.
STÆRÐ 2 ÁRA: 2, 6 og 10 cm.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Prjónað er fram og til baka frá miðju að aftan þar til tölukantur að aftan hefur verið prjónaður til loka, síðan er stykkið prjónað áfram í hring að óskaðri lengd (venjulegur kjóll eða langur kjóll) – sjá útskýringu í uppskrift.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 50-54-54 (58) lykkjur á hringprjón 3 með Cotton Merino. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð frá réttu þar sem auknar eru út 21 lykkjur jafnt yfir (aukið er út á eftir ca annarri hverri lykkju og ekki er aukið út yfir síðustu 3 lykkjur í hvorri hlið) = 71-75-75 (79) lykkjur í umferð.
Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið þannig (byrjið við miðju að aftan – ATH: EKKI er prjónað þegar prjónamerkin eru sett í): Hoppið yfir fyrstu 10-11-11 (12) lykkjur (= hægra bakstykki, séð þegar flíkin er mátuð), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, hoppið yfir næstu 12 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, hoppið yfir næstu 20-22-22 (24) lykkjur (= framstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, hoppið yfir næstu 12 lykkjur (= ermi) og setjið síðasta prjónamerkið í næstu lykkju (nú eru 13-14-14 (15) lykkjur á prjóni á eftir síðasta prjónamerki (= vinstra bakstykki).
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið sléttprjón fram og til baka frá miðju að aftan, en 3 síðustu lykkjur í hvorri hlið eru prjónaðar í garðaprjóni (= tölukantur).
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA og munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan.
JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við 4 prjónamerkin – sjá útskýringu að ofan (= 8 lykkjur fleiri). Aukið svona út í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 11-13-15 (16) sinnum = 159-179-195 (207) lykkjur. Eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu er næsta umferð prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 25-28-30 (32) lykkjur eins og áður (= vinstra bakstykki), setjið næstu 34-38-42 (44) lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 6-6-8 (8) nýjar lykkjur á prjóninn (= undir ermi), prjónið næstu 44-50-54 (58) lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 34-38-42 (44) lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 6-6-8 (8) nýjar lykkjur á prjóninn (= undir ermi) og prjónið 22-25-27 (29) lykkjur sem eftir eru eins og áður (= hægra bakstykki). Berustykki er nú lokið og fram- og bakstykki og ermar eru prjónuð áfram hvert fyrir sig.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Setjið 1 prjónamerki í stykkið – HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Byrjið við miðju að aftan, fitjið upp 3 kantlykkjur að framan á vinstra bakstykki undir 3 kantlykkjum á hægra bakstykki (þannig að kanturinn að framan fyrir hnappagöt liggi efst). Prjónið 1 umferð slétt hringinn yfir allar lykkjur og prjónið JAFNFRAMT lykkjur frá tveimur köntum að framan slétt saman 2 og 2 = 100-112-124 (132) lykkjur í umferð. Prjónið síðan sléttprjón hringinn í 1-2-2 (3) cm – fækkið JAFNFRAMT 4-8-12 (12) lykkjur jafnt yfir í 1. umferð = 96-104-112 (120) lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið mynstur hringinn eftir mynsturteikningu A.1. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka er skipt yfir á hringprjón 4,5. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 25-29-33 (37) lykkjur jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING = 121-133-145 (157) lykkjur. Prjónið síðan mynstur í hring þannig: A.2A (= 2 lykkjur), A.2B (= 12 lykkjur) alls 9-10-11 (12) sinnum og A.2C (= 11 lykkjur). Haldið svona áfram með mynstur, en fylgið síðan uppskrift fyrir óskaða lengd á kjól (kjóll með venjulegri lengd eða síðum kjól).

KJÓLL MEÐ VENJULEGRI LENGD:
Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina í öllum stærðum er haldið áfram með mynstur alveg eins, en nú er A.3 prjónað í stað A.2. Þegar A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er aukið út um 2 lykkjur í hverri einingu með gataumferð = 141-155-169 (183) lykkjur í umferð. Prjónið síðan mynstur eins og áður, en nú er A.4 prjónað í stað A.3. Þegar A.4 hefur verið prjónað 1-1-2 (2) sinnum á hæðina (eða að óskaðri lengd) prjónið A.5 í stað A.4. Eftir A.5 eru 161-177-193 (209) lykkjur í umferð. Prjónið nú mynstur eftir mynsturteikningu A.9 alveg eins í ca 5 cm, þ.e.a.s. prjónið A.9A (= 2 lykkjur), A.9B (= 16 lykkjur) alls 9-10-11 (12) sinnum og A.9C (= 15 lykkjur). Prjónið 4 umferðir sléttprjón. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið A.1 hringinn yfir allar lykkjur áður en fellt er laust af (ATH: Í 5. umferð í A.1 er síðasta lykkjan í umferð prjónuð slétt).
Kjóllinn mælist ca 36-38-47 (49) cm frá öxl og niður.

SÍÐUR KJÓLL:
Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina í öllum stærðum er haldið áfram með sama hætti með mynstur, en nú er A.3 prjónað í stað A.2. Þegar A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina og hefur verið aukið út um 2 lykkjur í hverri einingu með gatamynstri = 141-155-169 (183) lykkjur. Prjónið síðan mynstur eins og áður, en nú er prjónað A.4 í stað A.3. Þegar A.4 hefur verið prjónað 2-2-3 (3) sinnum á hæðina, prjónið nú mynstur með sama hætti, en nú er prjónað A.5 í stað A.4. Þegar A.5 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina hefur verið aukið út um 2 lykkjur í hverri einingu með gatamynstri = 161-177-193 (209) lykkjur. Prjónið síðan mynstur eins og áður, en nú er A.6 prjónað í stað A.5. Þegar A.6 hefur verið prjónað 2 sinnum á hæðina í öllum stærðum (eða að óskaðri lengd), prjónið A.7 í stað A.6. Þegar A.7 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina hafa verið auknar út 2 lykkjur í hverri einingu með gatamynstri = 181-199-217 (235) lykkjur. Prjónið 1 mynstureiningu á hæðina með A.8. Eftir A.8 eru 201-221-241 (261) lykkjur í umferð. Nú er prjónað mynstur eftir mynsturteikningu A.10 alveg eins í ca 5 cm, þ.e.a.s. prjónið A.10A (= 2 lykkjur), A.10B (= 20 lykkjur) alls 9-10-11 (12) sinnum og A.10C (= 19 lykkjur). Prjónið 4 umferðir sléttprjón. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið A.1 hringinn yfir allar lykkjur áður en fellt er laust af (ATH: Í 5. umferð í A.1 er síðasta lykkjan í umferð prjónuð slétt). Kjólinn mælist ca 80-82-91 (93) cm frá öxl og niður.

BÁÐIR KJÓLARNIR:

ERMI:
Setjið lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki yfir á sokkaprjón 4. Prjónið 1 umferð slétt og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8 (8) nýjum lykkjum mitt undir ermi = 40-44-50 (52) lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í nýju lykkjurnar (= byrjun á umferð og miðja undir ermi) – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 2 cm í öllum stærðum er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – LESIÐ ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3-2½-2- (2) cm millibili alls 4-6-8 (8) sinnum = 32-32-34 (36) lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 16-18-20 (23) cm. Skiptið yfir á sokkaprjón 3 og prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, áður en fellt er laust af með sléttum lykkjum.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

PICOTKANTUR:
Heklið picotkant neðst niðri í kringum báðar ermar með heklunál 3 þannig: 1 fastalykkja í fyrstu lykkju, * 3 loftlykkjur, 1 stuðull í fyrstu loftlykkju sem var hekluð, hoppið yfir 2 lykkjur á ermi, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* nema endið umferð með 1 keðjulykkju í fastalykkju í byrjun umferðar (í stað 1 fastalykkju í næstu lykkju).
Heklið alveg eins picotkant meðfram hálsmáli í skiptingunni á milli kants með garðaprjóni og sléttprjóni á berustykki – ATH: Kanturinn er brotinn saman ofan frá og niður.

FRÁGANGUR:
Saumið 3 tölur í vinstri tölukant að aftan.
Þræðið silkiborðann upp og niður í gegnum gataumferð á berustykki (byrjið og endið við miðju að framan) og hnýtið slaufu við miðju að framan.

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón.

HÚFA:
Fitjið upp 70-78-82 (90) lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 3 með Cotton Merino.
Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 7-3-7 (3) lykkjur jafnt yfir = 63-75-75 (87) lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.2A (= 2 lykkjur), A.2B (= 12 lykkjur) alls 4-5-5 (6) sinnum, A.2C (= 11 lykkjur) og 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 12-13-14 (15) cm prjónið 2 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Klippið frá.
Setjið nú ystu 23-28-28 (33) lykkjur í hvorri hlið á hvor sinn þráð eða hjálparprjón = 17-19-19 (21) lykkjur eftir á prjóni (= miðjustykki aftan á húfu). Prjónið garðaprjón fram og til baka yfir miðju stykki JAFNFRAMT er síðasta lykkjan í hverri umferð (bæði frá réttu og frá röngu) prjónið slétt saman með fyrstu lykkju af þræði/hjálparprjóni. Haldið svona áfram. JAFNFRAMT þegar miðjustykki mælist 4 cm í öllum stærðum er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við miðjustykki – LESIÐ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 8-8-9 (9) cm = 13-15-15 (17) lykkjur eftir á miðjustykki. Prjónið síðan áfram þar til allar lykkjur á þræði / hjálparprjóni í hvorri hlið hafa verið prjónaðar saman við miðjustykki, fellið síðan af 13-15-15 (17) miðjulykkjur á miðjustykki.

FRÁGANGUR:
Prjónið upp frá réttu ca 66-72-76 (82) lykkjur meðfram neðri kanti á húfu á hringprjón 3 og prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.1 með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið (1. umferð = frá röngu). Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka er fellt af með sléttum lykkjum frá réttu.

PICOTKANTUR:
Heklið picotkant framan á húfu. Byrjið frá réttu neðst niðri í horni og heklið með heklunál 3 þannig: 1 fastalykkja í fyrstu lykkju, 3 loftlykkjur, 1 stuðull í fyrstu loftlykkju sem var hekluð, hoppið yfir 2 lykkjur á húfu, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* meðfram öllum kanti framan á húfu. Klippið frá og festið enda.

Þræðið silkiborða upp og niður í gegnum gataumferð neðst niðri á húfu.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = frá réttu/röngu: 2 lykkjur slétt saman
symbols = takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
symbols = takið 2 lykkjur óprjónaðar eins og prjóna eigi þær slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = engin lykkja, hoppið yfir þessa rúðu
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 29-1

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (58)

country flag Asta wrote:

Nå ser jeg det skal være et kast på pinnen i A1. Skal begynne på A2 og har 145 masker på pinnen. Det stemmer jo ikke med A2 som har 25 masker i bredden. Skal man bare strikke A2A og A2B først? Og så A2C eller hele skjemaet som det står?

04.01.2019 - 22:41

DROPS Design answered:

Hei Asta. Jeg regner med du strikker størrelse 12/18 mnd, siden du har 145 masker. Du skal strikke A.2A kun over de første 2 maskene på omgangen. Så gjentar du A.2B 11 ganger i bredden (altså over de neste 132 maskene), og avslutter omgangen med å strikke A.2C over de siste 11 maskene. A.2A viser altså hvordan omgangen starter og A.2C viser hvordan omgangen slutter, mens A.2B er "hoveddelen" av mønsteret. God fornøyelse

07.01.2019 - 07:46

country flag Asta wrote:

I diagram A1 skal man strikke to masker sammen. Da har man bare halvparten av maskene igjen. Videre står det at man skal øke 33 masker fra 121 masker som man hadde før man strikket to og to sammen. Dette skjønner jeg ikke.

04.01.2019 - 07:28

country flag Loredana Brusamolino wrote:

Sto eseguendo il modello lungo ma ho verifucato che mancano le indicazioni per la lavorazione dello schema A6. Probabilmente c'è un errore nella descrizione del lavoro.

17.12.2018 - 08:19

DROPS Design answered:

Buongiorno Loredana. Abbiamo aggiunto la parte mancante del testo. La ringraziamo per la segnalazione. Buon lavoro!

17.12.2018 - 09:10

country flag Rachel wrote:

Can you tell me why I am losing stiches while following the pattern A2? Do I need to increase each knitted row after I complete the pattern for one row? So first row is the pattern. Then the second row is all knit. Do I need to increase back to the original amount of stiches I had in row 1?

26.09.2018 - 23:58

DROPS Design answered:

Hi Rachel, The rows in A.2 have the same number of yarn overs and decreases. So for example, row 1 has a total of 8 yarn overs (increases), 6 purl/knit 2 togethers and 1 psso and knit 2 together, which is a total of 8 decreases. So the number of stitches remains the same. Happy knitting!

27.09.2018 - 07:59

country flag Carol wrote:

Can you tell me where the A1 pattern is please

26.09.2018 - 21:03

DROPS Design answered:

Hi Carol, The patterns A.1 and A.2 plus the measurement sketch are all at the bottom of the page. Happy knitting!

27.09.2018 - 08:07

country flag Carol wrote:

I am trying to knit the bonnet. I am really struggling with this, alls ok until I get to the 3rd or 4th pattern row. Do you work across all the 23 pattern stitches until the end of row, or is it the same as the others rows where you work first 12 stitches 5 times.

10.09.2018 - 22:05

DROPS Design answered:

Dear Carol, it is the same as with the other patterns. Start with the 'A' part, then repeat 'B' until you get to the last repeat, and do the 'C' for the last stitches. Happy crafting!

10.09.2018 - 23:16

country flag Antonina Rosenberg wrote:

Hei. Ønsker å få strikket denne dåpskjolen i hvitt (ikke naturhvitt) og ull har dere noe forslag til garn ?

07.09.2018 - 15:39

DROPS Design answered:

Hej Antoniana, Her ser du hvilke hvide som findes :) Farger

11.09.2018 - 09:42

country flag Maria Isabel Vieira De Campos Rola Pereira wrote:

Estou a fazer uma touca. tenho 63 malhas e vou começar a fazer o desenho. Dizem para fazer A.2A, 2m 4x, A.2B, 12m e A.2C, 11m e 2 malhas de ourela. Se eu fizer 1 ourela A.2A(2m) A.2B(12m) e A.2C (11m) e depois repetir A.2A(2m) A.2B(12m) e A.2C (11m) 1 ourela, são 54m. Ora se tenho 63 na agulha há uma diferença de 9m. É possivel ajudarem-me? e já agora como repito o A.2A 4x???? não consigo entender. Obrigada

09.08.2018 - 13:25

DROPS Design answered:

Bom dia, O diagrama que se repete 4 vezes é o diagrama A.2B. O diagrama A.2A só se faz 1 vez ( 2 m). Esperamos que consiga fazer esta bonita touca.

16.08.2018 - 11:23

country flag Isabel Rola Pereira wrote:

Estou a fazer a touca. Se tenho 63 malhas nao consigo entender o esquema . O esquema tem 25 malhas mais duade orla 27 se eu repetir mais 25 ficam 52. Nao consigo entender. E possivel explicar ? Obrigada

07.08.2018 - 18:24

DROPS Design answered:

Bom dia, Veja, por favor,a outra resposta que enviámos. Bom tricô!

17.08.2018 - 11:54

country flag Julia wrote:

Hi! It's such a beautiful dress, I can't wait to start the project with the DROPS yarn I bought :) Quick question though... Do I need to knit two ridges and only then (row 5) should start increasing the number of stitches? Also, how do I make the edge look neat? Should I skip the first stitch or is there another technique I should be using? Thank you very much in advance!!

12.07.2018 - 03:06

DROPS Design answered:

Dear Julia, that's correct you will increase evenly on 5th row (= after the 2 ridges = 4 rows with K sts). Edge sts are worked in garter st (= 3 sts in garter st on each side for the button bands). Happy knitting!

12.07.2018 - 09:11