DROPS Cotton Light
DROPS Cotton Light
50% Bómull, 50% Polyester
frá 374.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3366.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Forever Lace

Heklað vesti með ferningi og gatamynstri, heklað ofan frá og niður úr DROPS Cotton Light. Stærð S - XXXL.

DROPS 178-29
DROPS Design: Mynstur cl-070
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS COTTON LIGHT frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
450-500-550-600-650-750 g litur 34, ljós gallabuxnablár

DROPS HEKLUNÁL NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 22 stuðlar og 11 umferðir verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.
DROPS PERLUTALA, Hringlaga (blá) NR 612: 3 st í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cotton Light
DROPS Cotton Light
50% Bómull, 50% Polyester
frá 374.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3366.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun hverrar umferðar með fastalykkju er fyrstu fastalykkju skipt út fyrir 1 loftlykkju. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju.
Í byrjun hverrar umferðar með hálfum stuðli er fyrsta hálfa stuðli skipt út fyrir 2 loftlykkjur. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 2. loftlykkju.
Í byrjun hverrar umferðar með stuðli er fyrsta stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkjur. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju.
Í byrjun hverrar umferðar með þríbrugðnum stuðli er fyrsta þríbrugðna stuðli skipt út fyrir 5 loftlykkjur. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 5. loftlykkju.

ÚTAUKNING:
Aukið út í hvorri hlið með því að hekla auka loftlykkjuboga (= 6 loftlykkjur og 1 fastalykkja) um fyrsta og síðasta loftlykkjubogann í umferð (= loftlykkjubogi með 3 loftlykkjum).

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Heklaði ferningurinn á bakstykki er heklaður í hring. Síðan er heklað fram og til baka í stykkjum og í lokin eru stykkin sett saman.

BAKSTYKKI:
HEKLAÐUR FERNINGUR: Byrjið með heklunál 3 og Cotton Light. Heklið 4 loftlykkjur og tengið þær saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Heklið í hring frá umferð með ör þannig: Heklið A.1a (sýnir hvernig umferðin byrjar og endar) – LESIÐ HEKLFESTUNA! Þegar öll mynsturteikningin hefur verið hekluð til loka á hæðina mælist ferningurinn ca 21 x 21 cm. Heklið keðjulykkjur fram að 4. fastalykkju á undan næsta horni (= 3 loftlykkjubogar frá horni – sjá stjörnu í A.1b).
Byrjið á umferð 3 í mynsturteikningu og heklið þannig: Heklið A.2a í fastalykkju (sýnir hvernig umferð byrjar og endar), heklið A.2b yfir næstu 3 loftlykkjuboga, * heklið A.2c (= horn), heklið A.2b yfir næstu 9 loftlykkjuboga (= 3 mynstureiningar) *, endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar, heklið A.2c í horni og endið á A.2b yfir næstu 6 loftlykkjuboga (= 2 mynstureiningar) í umferð. Þegar mynsturteikning hefur verið hekluð til loka á hæðina mælist ferningurinn ca 34 x 34 cm. Nú er ferningurinn í stærð S og M lokið. Í stærð L, XL, XXL og XXXL er haldið áfram þannig: Byrjið á 2. umferð í mynsturteikningu og heklið A.3a (sýnir hvernig umferð byrjar og endar), heklið A.3b umferðina hringinn en í hvert horn er heklað A.3c. Þegar mynsturteikning hefur verið hekluð til loka á hæðina mælist ferningurinn ca 39 x 39 cm og ferningurinn í stærð L og XL er lokið. Í stærð XXL og XXXL eru 2 síðustu umferðirnar í umferð A.3 heklaðar 1 sinni til viðbótar á hæðina (= alls 2 sinnum á hæðina). Heklaði ferningurinn mælist ca 43 x 43 cm og stærð XXL og XXXL er lokið. Klippið frá.

HÆGRI ÖXL:
Byrjið á 2. umferð í mynsturteikningu og heklið öxlina fram og til baka þannig:
Heklið A.4a um loftlykkjuboga í horni A – sjá mynsturteikningu, heklið A.4b yfir næstu 20-20-25-25-25-25 stuðlana (4-4-5-5-5-5 mynstureiningar), heklið A.4a um bilið á milli næstu 2 stuðla. Snúið og haldið svona áfram þar til mynsturteikningin hefur verið hekluð til loka á hæðina. Heklið umferð 2-5 1-1-1-2-2-2 sinnum til viðbótar á hæðina (= alls 2-2-2-3-3-3 sinnum á hæðina). Öxlin mælist ca 8-8-8-12-12-12 cm frá heklaða ferning. Klippið frá og festið enda.

VINSTRI ÖXL:
Hoppið yfir 35-35-35-35-45-45 stuðla fyrir hálsmáli á eftir hægri öxl = 20-20-25-25-25-25 stuðlar fyrir vinstri öxl. Í bilið á milli næstu 2 stuðla er þráðurinn festu með 1 fastalykkju (= A.4a). Byrjið á 2. umferð í mynsturteikningu og heklið A.4a (eins og útskýrt er frá að ofan), heklið A.4b yfir næstu 20-20-25-25-25-25 stuðla (= 4-4-5-5-5-5 mynstureiningar), heklið A.4a um loftlykkjuboga í horni B - sjá mynsturteikningu. Snúið við og heklið síðan eins og hægri öxl.

VINSTRI HLIÐ (á milli horna B og C – sjá mynsturteikningu): Hoppið yfir 15 stuðla í öllum stærðum frá loftlykkjuboga í horni B. Byrjið á umferð 2 í mynsturteikningu og heklið A.4c yfir næstu 10 stuðla, heklið A.4b yfir næstu 50-50-60-60-70-70 stuðla, endið með A.4a um loftlykkjuboga í horni C á heklaða ferningnum (= 12-12-14-14-16-16 loftlykkjubogar). Snúið við og heklið fram og til baka þar til 4. umferð hefur verið hekluð til loka á hæðina. Nú hefur fækkað um 1 loftlykkjuboga í A.4c = 11-11-13-13-15-15 loftlykkjubogar. Heklið umferð 3 og 4 í A.4a og A.4b 0-1-1-2-3-4 sinnum á hæðina (= 3-5-5-7-9-11 umferð með loftlykkjubogum). Nú eru 11-11-13-13-15-15 loftlykkjubogar fyrir vinstri hlið. Heklið umferð 3 frá röngu þannig: Heklið A.4a, heklið A.4b alls 5-5-6-6-7-7 sinnum á breidd, heklið 3 loftlykkjur og 1 fastalykkju um næsta loftlykkjuboga. Klippið frá. ATH: Þessi umferð er hekluð til að hliðin verði aðeins skálaga út neðst niðri. Festið enda með 1 fastalykkju um efsta loftlykkjubogann í hlið séð frá réttu (þ.e.a.s. loftlykkjubogann yst við handveg), heklið 3 loftlykkjur (= 1 stuðull), heklið 4 stuðla um sama loftlykkjuboga, heklið 5 stuðla um hvern og einn af næstu 4-4-5-5-6-6 loftlykkjubogum (= fram að síðasta loftlykkjuboga sem var heklaður í fyrri umferð), heklið 3 stuðla um næsta loftlykkjuboga (nú þegar er ein fastalykkja um þennan loftlykkjuboga), haldið síðan áfram með 5 stuðla um hvern og einn af næstu 6-6-7-7-8-8 loftlykkjuboga og heklið 2 stuðla um síðasta loftlykkjuboga (= loftlykkjubogi með 3 loftlykkjum) = 55-55-65-65-75-75 stuðlar. Nú er vinstri hlið tilbúin. Klippið frá og festið enda.

HÆGRI HLIÐ (á milli horn A og D – sjá mynsturteikningu)
Hægri hlið er hekluð alveg eins og vinstri hlið nema spegilmynd. Heklið frá röngu og hoppið yfir 15 stuðla frá loftlykkjuboga í horni A. Klippið ekki þráðinn frá þegar síðasta umferð með stuðlum hefur verið hekluð til loka.

ÁFRAM NIÐUR YFIR FRAM- OG BAKSTYKKI: STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN! Heklið nú áfram yfir fram- og bakstykki yfir neðsta kantinn í hliðum og heklaða ferningi. Byrjið frá röngu og heklið frá umferð 2 í mynsturteikningu þannig: Heklið A.4a, heklið 3-4-4-5-6-7 mynstureiningar A.4b meðfram neðsta kanti í hægri hlið, haldið síðan á fram með A.4b yfir 75-75-85-85-95-95 stuðlar á heklaða ferningi (á milli horns D og C), heklið 3-4-4-5-6-7 mynstureiningar A.4b meðfram neðsta kanti í vinstri hlið og endið með A.4a = 21-23-25-27-31-33 loftlykkjubogar. Heklið umferð 3 og 4 í mynsturteikningu 3 sinnum (= alls 7 umferðir með loftlykkjubogum) JAFNFRAMT er aukið út um 1 loftlykkjuboga í hvorri hlið í hvert skipti sem umferð 4 er hekluð – LESIÐ ÚTAUKNING = 27-29-31-33-37-39 loftlykkjubogar. Stykkið mælist ca 7 cm. Heklið næstu umferð frá réttu þannig: Heklið 4 stuðla um hvern loftlykkjuboga, JAFNFRAMT er aukið út um 14-6-13-5-4-11 stuðla jafnt yfir = 122-122-137-137-152-167 stuðlar.

Heklið frá umferð 2 í mynsturteikningu frá röngu þannig: Heklið A.2a, heklið A.2b (= 8-8-9-9-10-11 mynstureiningar á beidd), heklið A.2a. Í síðustu umferð í mynsturteikningu er aukið út um 15-25-20-30-35-30 stuðla jafnt yfir = 137-147-157-167-187-197 stuðlar. Þegar mynsturteikning hefur verið hekluð til loka á hæðina mælist stykkið ca 15 cm.

Heklið frá umferð 2 í mynsturteikningu frá röngu þannig: Heklið A.4a, heklið A.4b þar til 1 stuðull er eftir í umferð, heklið A.4a (= 27-29-31-33-37-39 loftlykkjubogar). Heklið umferð 3 og 4 þar til heklaðar hafa verið alls 5-7-5-5-5-7 umferðir með loftlykkjubogum á hæðina. Stykkið mælist ca 20-22-20-20-20-22 cm.

Heklið næstu umferð frá réttu þannig: Heklið 4 stuðla um hvern loftlykkjuboga JAFNFRAMT sem auknir eru út 14-6-13-5-4-11 stuðlar jafnt yfir = 122-122-137-137-152-167 stuðlar. Byrjið á umferð 2 í mynsturteikningu og heklið A.2a, heklið A.2b (= 8-8-9-9-10-11 sinnum á breidd), heklið A.2a. Þegar mynsturteikning hefur verið hekluð til loka á hæðina mælist stykkið ca 70-70-75-79-83-85 cm frá öxl. Klippið frá og festið enda.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
HÁLFUR FERNINGUR: Heklið 4 loftlykkjur og tengið þær saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Heklið fram og til baka frá umferð með ör í mynsturteikningu þannig: Heklið A.1a (sýnir hvernig umferðin byrjar og endar), heklið A.1b alls 2 sinnum, heklið A.1c (sýnir hvernig umferðin byrjar og endar). Þegar mynsturteikningin hefur verið hekluð til loka á hæðina mælist hálfi ferningurinn ca 21 x 11 cm. Byrjið á umferð 3 í mynsturteikninu og heklið þannig: Heklið A.5a, heklið A.2b yfir næstu 3 loftlykkjuboga, heklið A.2c (= horn), heklið A.2b yfir næstu 9 loftlykkjuboga (= 3 mynstureiningar), heklið A.2c (= horn), heklið A.2b yfir næstu 3 loftlykkjuboga, endið með A.5b. Þegar mynsturteikningin hefur verið hekluð til loka á hæðina mælist hálfi ferningurinn ca 34 x 18 cm.
Nú er hálfi ferningur í stærð S og M lokið. Í stærð L, XL, XXL og XXXL haldið áfram þannig: Byrjið á næst síðustu umferð í mynsturteikningu og heklið A.5a (hálfur stuðull í næst síðustu umferð er heklaður um bilið á milli 3. og 4. stuðuls), heklið síðan A.3b umferðina hringinn en í hverju horni er heklað A.3c, endið með A.5b (ATH: 1. hálfi stuðullinn er heklaður um bilið sem er á milli þegar 9 stuðlar eru eftir í umferð og 2. Hálfi stuðullinn er heklaður um bilið á milli þegar 4 stuðlar eru eftir í umferð). Þegar mynsturteikningin hefur verið hekluð til loka á hæðina mælist hálfi ferningurinn ca 39 x 20 cm og hálfi ferningur í stærð L og XL er lokið. Í stærð XXL og XXXL eru síðustu 2 umferðirnar heklaðar 1 sinni til viðbótar á hæðina (= alls 2 sinnum á hæð). Hálfi ferningurinn mælist ca 43 x 22 cm og stærð XXL og XXXL er lokið. Klippið frá.

HÆGR ÖXL: Hoppið yfir 19-19-19-19-24-24 stuðla frá miðju að framan og heklið öxl alveg eins og vinstri öxl á bakstykki.

HÆGRI HLIÐ: Heklið hægri hlið alveg eins og vinstri hlið á bakstykki.

ÁFRAM NIÐUR YFIR FRAM- OG BAKSTYKKI: STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN! Byrjið frá réttu, yst við hægri hlið og heklið frá umferð 2 þannig: Heklið A.4a, heklið 3-4-4-5-6-7 mynstureiningar A.4b meðfram neðsta kanti á hægri hlið, haldið síðan áfram með A.4b yfir næstu 35-35-40-40-45-45 stuðla, heklið A.4b yfir þá 3 stuðla sem eftir eru og endið með A.4a = 11-12-13-14-16-17 loftlykkjubogar. Heklið umferð 3 og 4 í mynsturteikningu 3 sinnum (= alls 7 umferðir með loftlykkjubogum) JAFNFRAMT er aukið út um 1 loftlykkjuboga á hægri hlið eins og á bakstykki = 14-15-16-17-19-20 loftlykkjubogar. Stykkið mælist ca 7 cm. Heklið næstu umferð frá röngu þannig: Heklið 5 stuðla um hvern loftlykkjuboga, JAFNFRAMT í stærð M og XXL er fækkað um 5-2 stuðla jafnt yfir og í stærð L er aukið út um 5 stuðla jafnt yfir = 70-70-85-85-93-100 stuðlar.

Heklið frá umferð 2 í mynsturteikningu frá réttu þannig: Heklið A.2a 1-1-1-1-0-1 sinni, heklið A.5a 0-0-0-0-1-0 sinnum, heklið A.2b 4-4-5-5-5-6 sinnum, heklið A.5b. Í síðustu umferð í mynsturteikningu er lykkjufjöldinn jafnaður til 70-75-80-85-95-100 stuðla. Þegar mynsturteikning hefur verið hekluð til loka á hæðina mælist stykkið ca 15 cm.

Heklið frá umferð 2 í mynsturteikningu frá réttu þannig: Heklið A.4a, heklið A.4b þar til 1 stuðull er eftir í umverð, heklið A.4a (= 14-15-16-17-19-20 loftlykkjubogar). Heklið umferð 3 og 4 þar til heklaðar hafa verið alls 5-7-5-5-5-7 umferðir með loftlykkjubogum á hæðina. Stykkið mælist ca 20-22-20-20-20-22 cm. Heklið eina umferð með stuðlum frá röngu þannig: Heklið 5 stuðla um hvern loftlykkjuboga, JAFNFRAMT í stærð M og XXL er fækkað um 5-2 stuðla jafnt yfir og í stærð L er aukið út um 5 stuðla jafnt yfir = 70-70-85-85-93-100 stuðlar.

Snúið við og heklið frá umferð 2 í mynsturteikningu frá réttu þannig: Heklið A.2a 1-1-1-1-0-1 sinnum, heklið A.5a 0-0-0-0-1-0 sinnum, heklið A.2b 4-4-5-5-5-6 sinnum, heklið A.5b. Þegar mynsturteikning hefur verið hekluð til loka á hæðina mælist stykkið ca 70-72-75-79-83-85 cm frá öxl. Klippið frá og festið enda.

KANTUR AÐ FRAMAN: Heklið kant framan á hægra framstykki þannig: Byrjið fyrir miðju að framan frá röngu, þ.e.a.s. frá hálsi og festið enda með 1 fastalykkju. Heklið * 4 loftlykkjur, hoppið yfir ca 2½ cm, heklið 1 fastalykkju um kantinn *, endurtakið frá *-* meðfram öllum kantinum, snúið við og heklið síðustu umferð í mynsturteikningu frá réttu þannig: Heklið A.4a, heklið A.4b þar til 1 fastalykkja er eftir, heklið A.4a. Snúið stykkinu og heklið umferð 2-4. Klippið frá og festið enda.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Heklið vinstra framstykki alveg eins og hægra framstykki nema spegilmynd. Þ.e.a.s. öxlin er hekluð eins og hægri öxl á bakstykki. Helkið síðan eins og hægri hlið á bakstykki. Þegar heklað er niður yfir fram- og bakstykki, heklið fyrstu umferð með loftlykkjubogum frá réttu eins og á hægra framstykki, nema spegilmynd. Þegar síðasta umferð í A.4a, A.4b og A.5c hafa verið heklaðar til loka er heklað frá réttu þannig: Heklið A.5a, heklið A.2b 4-4-5-5-5-6 sinnum, A.5b 0-0-0-0-1-0 sinnum, A.2a 1-1-1-1-0-1 sinnum. Stillið af eftir hægra framstykki.

FRÁGANGUR:
Saumið saman axlasauma yst í lykkjubogana svo að saumurinn verði ekki þykkur.
Leggið síðan framstykki að hlið á bakstykki og heklið hliðarnar saman frá réttu þannig:
Byrjið með 1 fastalykkju í fyrsta stuðul að handvegi, heklið 3 loftlykkjur, heklið 1 fastalykkju í stuðul í gangstæðri hlið, * heklið 3 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1 cm, heklið 1 fastalykkju í stuðul/um loftlykkjuboga í hinni hliðinni *, endurtakið frá *-* niður meðfram allri hliðinni. Klippið frá og festið enda. Heklið saman hina hliðina alveg eins.
Saumið tölur í vinstri kant að framan í gegnum síðustu umferð með stuðlum sem heklaðir voru á kanti að framan. Saumið fyrstu töluna ca 3 cm frá hálsi, síðan eru hinar 2 tölurnar saumaðar með ca 7 cm millibili. Hneppið tölunum í gegnum loftlykkjubogana á kanti að framan.

KANTUR HANDVEGUR:
Byrjið með 1 fastalykkju mitt undir handvegi, * heklið 3 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1 cm, 1 fastalykkja *, endurtakið frá *-* hringinn allan handveginn, en endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju. Klippið frá og festið enda. Endurtakið í kringum hinn handveginn á sama hátt.

KANTUR HÁLSMÁL:
Byrjið mitt framan á kanti að framan á hægra framstykki og heklið þannig:
UMFERÐ 1 (rétta): Heklið 1 fastalykkju, * heklið 3 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1 cm, 1 fastalykkja *, endurtakið frá *-* í kringum allt hálsmálið. Fjöldi loftlykkjuboga á að vera á oddatölu.
UMFERÐ 2 (ranga): Heklið 3 loftlykkjur, 1 fastalykkja í fyrsta loftlykkjuboga, * 3 loftlykkjur, hoppið yfir 1 loftlykkjuboga, 1 fastalykkja um næsta loftlykkjuboga *, endurtakið frá *-* að síðasta loftlykkjuboga, heklið 3 loftlykkjur og endið með 1 fastalykkju í fyrstu lykkju í byrjun fyrri umferðar. Klippið frá og festið enda.

Mynstur

symbols = heklið 4 loftlykkjur og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju
symbols = 1 loftlykkja
symbols = 1 fastalykkja um loftlykkjboga/á milli 2 stuðla
symbols = 1 fastalykkja í lykkju
symbols = heklið 2 stuðla saman um loftlykkjuhring/loftlykkjuboga þannig: Heklið 1 stuðul, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 stuðul til viðbótar en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar lykkjur á heklunálinni
symbols = 1 stuðull um loftlykkjuboga
symbols = 1 stuðull í lykkju
symbols = 1 hálfur stuðull um loftlykkjuboga/um bilið á milli 2 þríbrugðna stuðla/stuðla
symbols = 1 tvíbrugðinn stuðull um loftlykkjuboga
symbols = 1 þríbrugðinn stuðull í lykkju/um loftlykkjuboga
symbols = byrjun á þessari umferð/röð í mynsturteikningu
symbols = í þessa fastalykkju er heklað A.2a – sjá útskýringu í uppskrift
symbols = teikning með máli sýnir bakstykki á vesti
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 178-29

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (29)

country flag Angelika wrote:

Ich würde die Weste gern arbeiten, verstehe aber das 1. Diagramm nicht richtig (ich bin keine Anfängerin). Ist es möglich, ein Diagramm mit der ganzen Runde zu bekommen, dies ist ja nur 1/4 der Runde. Liebe Grüße Angelika

03.08.2023 - 16:51

DROPS Design answered:

Liebe Angelika, das Diagram A.1b wiederholen Sie einfach 4 Mal in der Runde, so bekommen Sie ein Quadrat. Die Runden beginnen/enden mit A.1a. In 07.08.2023 - 09:20

country flag Valerie Poole wrote:

Hi there, are all your patterns in UK crochet terms or US? Many thanks Val.

06.02.2023 - 17:44

DROPS Design answered:

Hi Valerie, All our patterns have been translated/written in both US and UK English. Use the box under the photograph to adjust the language to the one you feel most comfortable with. Happy crafting!

07.02.2023 - 07:03

country flag Sabrina wrote:

Posso avere spiegazioni su come e quando lavorare lo schema A.1c\r\nPerché sulle spiegazioni non lo trovo\r\nGrazie

20.05.2022 - 20:02

DROPS Design answered:

Buonasera Sabrina, A.1c si lavora alla fine della riga quando si lavora A.1. Buon lavoro!

22.05.2022 - 18:27

country flag Joyce wrote:

I love this pattern and would like to make it. Can I download as PDF ?

29.05.2021 - 03:30

DROPS Design answered:

Dear Joyce, click on the print icon, select pattern, then continue to pattern, and then select save us PDF. Happy Crafting!

29.05.2021 - 03:48

country flag Marianne Christensen wrote:

Det er en fin opskrift men kunne man ikke opdatere diagrammet som det er i opskrift 177-31 som er den lukkede trøje i samme model. Ryggen er jo det samme i begge opskrifter men meget utydeligt beskrevet i dette diagram. Diagrammet er langt bedre i den anden opskrift Mange hilsner fra en hækle fan

06.05.2021 - 09:54

DROPS Design answered:

Hej Marianne, tak for dit synspunkt, fint at give besked til andre hæklere her - god dag! :)

06.05.2021 - 13:03

country flag Bianca wrote:

Hoi Ziet er super leuk uit maar na 4 keer uithalen opnieuw beginnen ben ik ermee gestopt Lastig patroon, ik krijg het het in ieder geval niet voor elkaar en heb toch al aardig dingen gemaakt

28.03.2021 - 14:16

country flag Marianna wrote:

Onödigt krångligt mönster.

30.09.2020 - 17:45

country flag Jack wrote:

Doe ik op mijn eigen manier en dat lukt dan wel, maar als het hele patroon zo moeilijk gaat dan is de lol er bij mij vanaf. coursework writing services australia

20.04.2020 - 17:09

country flag Fiona wrote:

On the BAND, you work A.4a - A.4b - A.4a, rows 1 - 4 and then cut the strand. On the photo, though, it looks like you finish on row 5, meaning 5 double crochets (US) in each chain space. Also because the buttons are supposed to be sewn on "through the last row of double crochets". So, do I crochet row 5 too? Thanks.

10.04.2020 - 18:36

DROPS Design answered:

Dear Fiona, on the front band you crochet the rows 2 to 4 in A.4, ie 3 rows with ch-spaces + 1 row with 5 double crochets in each ch-space. The buttons will be sewn in this row on left front piece and buttoned between 2 double crochets from right front piece. Happy crocheting!

14.04.2020 - 10:46