DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4928.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS Extra 0-1378
DROPS Design: Mynstur ne-244
Garnflokkur C eða A + A
-----------------------------------------------------------

Stærð: 35/37 - 38/40 - 41/43
Lengd fótar: 22 - 24 - 27 cm

Efni:
DROPS NEPAL frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
150-150-150 g litur 8908, vatnsblár
100-100-100 g litur 8911, sæblár
100-100-100 g litur 0100, natur

DROPS HEKLUNÁL NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 17 fastalykkjur og 20 umferðir verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4928.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR-1 (á við þegar heklað er í hring):
Hver umferð byrjar með 1 loftlykkju sem kemur í stað 1. fastalykkju og her umferð endar með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju í byrjun umferðar.

HEKLLEIÐBEININGAR-2 (á við þegar heklað er fram og til baka):
Hver umferð byrjar með 1 loftlykkju, loftlykkjan kemur ekki í stað fyrstu fastalykkju.

LITASKIPTI:
Til að fá fallega skiptingu þegar skipt er um lit er síðasta fastalykkjan hekluð áður en skipt er um lit þannig: Stingið heklunálinni í síðustu lykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum um heklunálina með nýja litnum og dragið þráðinn í gegnum allar lykkjurnar á heklunálinni. Haldið áfram með nýja litnum.

2 FASTALYKKJUR HEKLAÐAR SAMAN:
* Stingið heklunálinni í næstu lykkju, sækið þráðinn *, endurtakið frá *-* einu sinni til viðbótar, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 fastalykkja færri).
-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TÁTILJUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Byrjað er að hekla stykkið í hring frá sóla, neðan frá og upp. Síðan er heklað fram og til baka.

SÓLI:
UMFERÐ 1: Heklið loftlykkjuumferð með 21-25-29 loftlykkjum (meðtalin 1 loftlykkja til að snúa við með) með heklunál 4 með litnum sæblár í DROPS Nepal.
Heklið 4 fastalykkjur í 2. loftlykkju frá heklunálinni, setjið fyrra prjónamerki mitt á milli þessa 4 fastalykkja, heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 18-22-26 loftlykkjum, heklið 4 fastalykkjur í síðustu loftlykkju, setjið seinna prjónamerki mitt á milli þessa 4 fastalykkja, heklið síðan í hring á gagnstæðri hlið við loftlykkjuumferðina, heklið 1 fastalykkju í hverja af 18-22-26 lykkjunum, endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju = 44-52-60 fastalykkjur. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
UMFERÐ 2: LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR-1. Heklið * 1 fastalykkju í hverja lykkju þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, heklið 2 fastalykkjur í hvora af næstu 2 lykkjum (prjónamerki á nú að sitja mitt á milli þessa lykkja) *, endurtakið frá *-* alls 2 sinnum, heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju út umferðina = 4 fastalykkjur fleiri.
UMFERÐ 3: Heklið eins og umferð 2 = 52-60-68 fastalykkjur.
UMFERÐ 4: Heklið * 1 fastalykkju í hverja lykkju þar til 4 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í hvora af næstu 2 lykkjum, 2 fastalykkjur í hvora af næstu 2 lykkjum (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), 1 fastalykkja í hvora af næstu 2 lykkjum, 2 fastalykkjur í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* alls 2 sinnum, heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju út umferðina = 8 fastalykkjur fleiri.
UMFERÐ 5 OG ÁFRAM: Heklið eins og umferð 4 2-2-1 sinnum, síðan er heklað eins og umferð 2 1-1-3 sinnum = 80-88-96 fastalykkjur.
Klippið frá og festið enda. Héðan er fyrra prjónamerkið einungis notað. ATH: Ef prjónamerkið hefur færst aðeins til, verður að færa þetta prjónamerki þannig að það sitji mitt framan á tá.

KANTUR Á SÓLA:
Byrjið næstu umferð mitt á annarri hliðinni, þ.e.a.s. byrjið í 21.-23.-25. fastalykkju á undan prjónamerki. Heklað er að tá með litnum natur þannig:
UMFERÐ 1: Heklið 1 fastalykkju í aftari lykkjubogann á hverri fastalykkju.
UMFERÐ 2-3: Heklið nú venjulega fastalykkju í gegnum báða lykkjubogana – heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju.
UMFERÐ 4: Heklið nú hálfa rönd í lok umferðar á hæl þannig: Heklið 1 fastalykkju í hverja af fyrstu 40-44-48 fastalykkjunum, skiptið yfir í sæbláan – LESIÐ LITASKIPTI og heklið 1 fastalykkju í hverja af síðustu 40-44-48 fastalykkjum.
UMFERÐ 5-6: Skiptið yfir í litinn natur. Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 80-88-96 fastalykkjur. Klippið frá og festið enda. Geymið stykkið.

OFAN Á TÁ – HÁLFHRINGUR:
Heklið 4 loftlykkjur með heklunál 4 með litnum natur og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Heklið síðan fram og til baka – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR -2!
UMFERÐ 1: Heklið 6 fastalykkjur um hringinn.
UMFERÐ 2: Heklið 2 fastalykkjur í hverja fastalykkju = 12-12-12 fastalykkjur.
UMFERÐ 3: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju.
UMFERÐ 4: Heklið 1 fastalykkju í hvora af fyrstu 2 lykkjunum, * 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í hvora af næstu 2 lykkjum *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, heklið 2 fastalykkjur í síðustu lykkju = 16-16-16 fastalykkjur.
UMFERÐ 5: Heklið 1 fastalykkju í fyrstu fastalykkju, * 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 3 fastalykkjum *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, heklið 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju, 1 fastalykkja í hvora af síðustu 2 lykkjum = 20-20-20 fastalykkjur.
UMFERÐ 6: Heklið 1 fastalykkju í hvora af fyrstu 2 fastalykkjum, * 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 4 fastalykkjum *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, heklið 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju, heklið 1 fastalykkju í hvora af síðustu 2 fastalykkjum = 24-24-24 fastalykkjur – klippið ekki frá! Stærð 35/37 og 38/40 heklið síðan frá ALLAR STÆRÐIR.

STÆRÐ 41/43:
UMFERÐ 7: Heklið 1 fastalykkju í hverja af fyrstu 3 fastalykkjum, * 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 5 fastalykkjum *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, heklið 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju, heklið 1 fastalykkju í hvora af síðustu 2 lykkjum = 28 fastalykkjur – klippið ekki frá!

ALLAR STÆRÐIR:
Heklið síðan eina umferð þversum með byrjun frá réttu, þ.e.a.s. um hverja umferð (= 6-6-7 umferð hvoru megin við loftlykkjuhringinn). Heklið fram og til baka þannig:
UMFERÐ 1: Hoppið yfir fyrstu umferð, heklið 1 fastalykkju um hverja af næstu 5-5-6 umferðum, heklið 1 hálfan stuðul um loftlykkjuhringinn, heklið 1 fastalykkju um hverja af næstu 5-5-6 umferðum, hoppið yfir síðustu umferð, endið með 1 keðjulykkju í byrjun fyrri umferðar = 11-11-13 lykkjur.
UMFERÐ 2-5: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju.
Skiptið yfir í sæbláan – næsta umferð í frágang byrjar hér – frá réttu!

FRÁGANGUR (kantur á sóla og hálfhring):
Leggið hálfhringinn ofan á kant á sóla, miðja á hálfhring (= 12-12-14-fastalykkjur í hvorri hlið) á að mæta prjónamerki við miðju framan á kanti. Heklið 1 umferð hringinn með litnum sæblár þannig: Munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR-1! Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju/um hverja umferð í gegnum bæði lögin = 80-88-96 fastalykkjur. Klippið frá og festið enda. Geymið stykkið.

BAND:
Heklið lítið band sem síðar er heklað saman með síðustu umferð á hliðarstykki. Heklið fram og til baka með litnum natur þannig:
UMFERÐ 1: Heklið 5 loftlykkjur, snúið við og heklið 1 fastalykkju í 2. loftlykkju frá heklunálinni, heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 3 loftlykkjum = 4 fastalykkjur.
UMFERÐ 2-11: Munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR-2! Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju. Klippið frá og festið enda. Geymið bandið.

HLIÐAR-/BAKSTYKKI:
Heklið hliðarstykki fram og til baka frá síðustu umferð frá kanti. Nú er ekki lengur heklað yfir 24-24-28 fastalykkjur við miðju að framan.
UMFERÐ 1 (= rétta): Heklið með litnum vatnsblár. Heklið 1 fastalykkju í hverja af þeim 56-64-68 fastalykkjum sem eftir eru.
UMFERÐ 2 (= ranga): Heklið 2 FASTALYKKJUR SAMAN – sjá útskýringu að ofan, 1 fastalykkja í hverja fastalykkju þar til 2 fastalykkjur eru eftir í umferð, heklið 2 fastalykkjur saman (= 2 fastalykkjur færri).
UMFERÐ 3: Heklið 2 fastalykkjur saman, 1 fastalykkja í hverja af næstu 21-25-27 fastalykkjur, 2 fastalykkjur saman, 1 fastalykkja í hverja af næstu 4 fastalykkjum, 2 fastalykkjur saman, 1 fastalykkja í hverja og eina af næstu 21-25-27 fastalykkjur, endið með 2 fastalykkjur saman (= 4 fastalykkjur færri) = 50-58-62 fastalykkjur.
UMFERÐ 4: Endurtakið umferð 2 = 48-56-60 fastalykkjur.
UMFERÐ 5: Heklið 2 fastalykkjur saman, 1 fastalykkja í hverja af næstu 18-22-24 fastalykkjur, 2 fastalykkjur saman, 1 fastalykkja í hverja af næstu 4 fastalykkjum, 2 fastalykkjur saman, 1 fastalykkja í hverja af næstu 18-22-24 fastalykkjur, endið með 2 fastalykkjur saman (= 4 fastalykkjur færri) = 44-52-56 fastalykkjur.
Endurtakið umferð 2 7-9-9 sinnum til viðbótar = 30-34-38 fastalykkjur í síðustu umferð. Heklið síðan 6-6-6 umferðir með 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = alls 18-20-20 umferðir.
Síðasta umferð er hekluð saman við band frá réttu þannig: Heklið 1 fastalykkju í hverja af fyrstu 13-15-17 fastalykkjur, brjótið bandið í tvennt og heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 4 fastalykkjum í gegnum öll 3 lögin, heklið síðan 1 fastalykkju í hverja af síðustu 13-15-17 fastalykkjur. Klippið ekki frá!

KANTUR AÐ FRAMAN FYRIR SKÓREIM:
Heklið 1 kant áfram niður yfir umferð þar sem lykkjum fækkaði, þannig: Heklið * 2 loftlykkjur, hoppið yfir 1 umferð, heklið 1 fastalykkju um næstu umferð *, endurtakið frá *-* meðfram öllum skásniðna kantinum, endið með 1 keðjulykkju í síðustu umferð = 9-10-10 loftlykkjubogar. Klippið frá og festið enda. Heklið 1 kant í hinn skásniðna kantinn á sama hátt, nema gagnstætt, þ.e.a.s. byrjað er neðst niðri með 1 keðjulykkju í fyrstu umferð, endið með 1 keðjulykkju efst uppi.

SPÆLL:
Heklið nú spæl fram og til baka í 11-11-13 fastalykkjum sem heklaðar voru þversum ofan á hálfhring. Heklið með litnum vatnsblár.
UMFERÐ 1: Munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR-2! Heklið 2 fastalykkjur í fyrstu fastalykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 9-9-11 lykkjum, heklið 2 fastalykkjur í síðustu fastalykkju = 13-13-15 fastalykkjur.
UMFERÐ 2: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju.
Endurtakið umferð 2 17-19-19 sinnum til viðbótar, heklið síðan þannig: * Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju, snúið við og heklið 2 fastalykkjur saman, 1 fastalykkja í hverja fastalykkju þar til 2 fastalykkjur eru eftir, heklið 2 fastalykkjur saman (= 2 fastalykkjur færri) *, endurtakið frá *-* alls 3-3-4 sinnum = 7-7-7 fastalykkjur. Klippið frá og festið enda.

SKRAUT:
Heklið 3 loftlykkjur með litnum natur og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju.
UMFERÐ 1: Heklið 3 loftlykkjur (= 1 stuðull), heklið 11 stuðla um hringinn, endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju, skiptið yfir í litinn sæblár.
UMFERÐ 2: Munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR-1. Heklið 2 fastalykkjur í hvern stuðul = 24 fastalykkjur.
Saumið skrautið niður með smáu, fínu spori ca mitt á annarri hlið á hliðarstykki.

SNÚRA:
Gerið tvinnaða snúru þannig: Klippið 2 þræði í litnum natur ca 4 metra. Tvinnið þá saman þar til þeir taka í, leggið snúruna saman tvöfalda og þá kemur hún til með að tvinna sig aftur saman. Hnýtið hnút á hvorn enda. Þræðið snúruna í gegnum loftlykkjuumferðina (annar hver loftlykkjubogi) alveg eins og þegar strigaskór eru þræddir.

Heklið aðra tátilju á sama hátt, nema saumið skrautið í gagnstæða hlið á hliðarstykki.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 30.05.2022
Nýtt efnismagn: DROPS NEPAL frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C) 100 g í allar stærðir litur 0100, natur
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1378

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (54)

country flag Ronja Kaul wrote:

Bei der 3. Runde vom Seitenteil sind bei mir am Ende 4 Maschen zuviel übrig geblieben nachdem ich das letzte Mal 25 feste Maschen und 2 Maschen zusammen gehäkelt habe. Was war da mein Fehler ? LG Ronja

24.03.2024 - 22:25

DROPS Design answered:

Liebe Frau Kaul, bei der 2. Reihe haben Sie schon 2 Maschen abgenommen, so wird die 3. Reihe über 62 Maschen gehäkelt: 2 M zs, 25 M, 2 M zs, 4 M, 2 M zs, 25 M, 2 M zs (2+25+2+4+2+25+2= 62 M) = 58 M übrig. Viel Spaß beim häkeln!

02.04.2024 - 09:24

country flag Ilka Lüdke wrote:

Hallo, besteht die Möglichkeit ein Zeichnung der Sohle zubekommen. Ich habe ein Problem die Maschen so zu erreichen wie sie drin stehen. Der Runde Drei habe ich 55 Maschen statt 52 . Aber in der 2. Runde stimmt die Anzahl. Eine Zeichnung würde mir da gut helfen. Vielen Dank LG Ilka

29.02.2024 - 11:36

DROPS Design answered:

Liebe Frau Lüdke, so häkeln Sie die 25 Luftmaschen: 4 fM in die 2. Lm (4 fm / 2 Lm), 1 fM in je die nächsten 22 Lm (= 22 fM/22 Lm), 4 fM in die nächste = die letzte Lm (= 4 fm / 1 Lm) - (2+22+1=25 Lm), dann 1 fM in je die nächsten 22 Lm (= 22 fM/22 Lm), 1 KM in die 1. Luftmasche = 4+22+4+22=52 fM, dh 4 fM in je die 1. und die letzte Luftmasche und 1 fM in die 22 Luftmaschen beidseitig (und auf beiden Seite von der Luftmaschenkette). Viel Spaß beim häkeln!

29.02.2024 - 16:15

country flag Marian Stomphorst wrote:

Zou u mijn vraag van 2 augustus Willen beantwoorden

25.08.2023 - 12:03

country flag Marian Stomphorst wrote:

Ik kan niet verder bij de halve cirkel. Ben maat 38/40 aan haken dus moet niet toer 7 haken maar door naar alle maten...nou dan snap ik het echt niet,haak aan de andere kant, "hoeveel steken "Sla eerste toer over? Zou u mij duidelijk uitleg willen geven

02.08.2023 - 22:00

country flag Marian Stomphorst wrote:

Ik snap toer 5 niet, haak zoals voor toer 4, 2-2-1 keer, ......enzo hoe moet ik die toer nu gaan haken,en ik denk dat het meer toeren worden als toer 5. Hoop dat u mij begrijpt

01.08.2023 - 18:52

DROPS Design answered:

Dag Marian,

Je haakt de 5e toer zoals toer 4 en omdat er staat 'toer 5 en verder' wordt er met 2-2-1 keer bedoelt dat je voor de kleinste en middelste maat 2 keer toer 4 haakt, en voor de grootste maat 1 keer toer 4. Daarna haak je 1-1-3 toeren als toer 2.

08.08.2023 - 11:50

country flag Farha wrote:

This is a lovely pattern. I really enjoyed making these. Just a tip though: I personally needed two skeins of the white, and only 2 skeins of the aqua blue, instead of one white, and three aqua blue. The sea blue was about right, but I had to buy another white as I ran out while working these. (I was making the largest size). Other than this, it was another gorgeous Drops pattern and was a lot of fun to make.

20.05.2022 - 21:55

country flag Begoña wrote:

Hola, habría un esquema para hacer la suela de la zapatilla ya que no se saben las vueltas que lleva y como hacer los aumentos, gracias

17.01.2022 - 19:18

DROPS Design answered:

Hola Begoña, este patrón no tiene diagrama. La suela se explica al inicio del patrón. Se recomienda usar marcapuntos o hilos marcadores para marcar las vueltas y los aumentos.

17.01.2022 - 20:04

country flag Ferial wrote:

Thank you so much i learn knitting because of your help.....thank you so muchhhhh

06.01.2022 - 22:26

country flag Titine wrote:

Bonjour, je n'ai pas compris comment faire les allers retours sur le dessus du pied en demi cercle.

03.05.2021 - 11:37

DROPS Design answered:

Bonjour Titine, parlez-vous de la partie DESSUS DU PIED - DEMI-CERCLE; crochetez en rangs (pas en rond), les rangs 1 à 6 en tournant bien à la fin de chaque rang, vous allez ainsi réaliser une sorte de demi-cercle en partant du bord côté lacets sur la 1ère photo pour terminer par l'arrondi qui sera crocheté avec le bout du pied côté pointe en bleu. Quand ce demi-cercle est terminé, vous crochetez le long des rangs + au milieu du rond + le long des rangs pour remonter et faire la languette. Bon crochet!

03.05.2021 - 13:37

country flag Anna Maria wrote:

Si può realizzare questo progetto con 2 taglie più piccole? Aspetto una risposta al più presto. Grazie in anticipo.

30.01.2021 - 11:29

DROPS Design answered:

Buongiorno Anna Maria, deve lavorare un campione e riprogettare il lavoro considerando 2 taglie in meno. Purtroppo in questa sede non ci è possibile aiutarla diversamente. Buon lavoro!

30.01.2021 - 12:42