DROPS Flora
DROPS Flora
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5632.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Spring Valley

Prjónaður toppur með öldumynstri, hringlaga berustykki og marglitu mynstri úr DROPS Flora. Stærð S - XXXL.

DROPS 175-7
DROPS Design: Mynstur fl-003
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS FLORA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
200-250-250-300-350-350 g litur 16, pistasía
50-50-50-50-50-50 g litur 01, natur
50-50-50-50-50-50 g litur 19, kóral
50-50-50-50-50-50 g litur 17, gulur
50-50-50-50-50-50 g litur 12, turkos

DROPS HRINGPRJÓNAR (40 + 60 eða 80 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 lykkjur og 32 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.
DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 521: 7-7-7-8-8-8 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Flora
DROPS Flora
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5632.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Allt A.4 er prjónað í sléttprjóni – sjá mynsturteikningu fyrir rétta stærð.

ÚRTAKA-1:
Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki í hlið. Prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. Þær lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstur í A.3 á hlið þegar úrtaka er gerð eru prjónaðar í sléttprjóni.

ÚRTAKA-2:
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 377 lykkjur) mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 42) = 8,7. Þ.e.a.s. í þessu dæmi þá er prjónuð 7. og 8. hver lykkja saman. Ekki er úrtaka yfir kanta að framan. Fækkið lykkjum með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman frá réttu og 2 lykkjur brugðið saman frá röngu.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

UPPHÆKKUN:
Byrjið frá réttu og prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 53-55-57-59-61-63 lykkjur, setjið eitt prjónamerki (= miðja að aftan), prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 7-7-7-8-8-8 lykkjur, snúið, herðið á þræði og prjónið 14-14-14-16-16-16 sléttar lykkjur, snúið, herðið á þræði og prjónið 21-21-21-24-24-24 sléttar lykkjur, snúið, herðið á þræði og prjónið 28-28-28-32-32-32 sléttar lykkjur. Haldið svona áfram fram og til baka með því að prjóna yfir 7-7-7-8-8-8 lykkjur fleiri í hvert skipti þar til prjónað hefur verið yfir miðju 63-63-63-72-72-72 lykkjur í umferð, prjónið sléttar lykkjur út umferðina.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, neðan frá og upp.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 367-409-451-472-514-556 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna 3 með litnum pistasía. Prjónið frá réttu – þannig: A.1 yfir fyrstu 5 lykkjur, A.2 yfir næstu 357-399-441-462-504-546 lykkjur (= 17-19-21-22-24-26 mynstureiningar á breiddina), endið með A.1 yfir síðustu 5 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar síðasta umferðin í A.2 hefur verið prjónað eru 248-276-304-318-346-374 lykkjur á prjóni, í síðustu umferð í A.2 er lykkjufjöldinn jafnaður jafnt út til 251-281-299-323-353-383 lykkjur. Prjónið síðan frá réttu – þannig: A.1 yfir fyrstu 5 lykkjur eins og áður, A.3 A (= 6 lykkjur), A.3 B yfir næstu 228-258-276-300-330-360 lykkjur, A.3 C yfir næstu 7 lykkjur og A.1 yfir síðustu 5 lykkjur eins og áður. Setjið 2 prjónamerki í stykkið, 65-73-77-83-91-98 lykkjur inn frá hvorri hlið (bakstykki = 121-135-145-157-171-187 lykkjur). Þegar stykkið mælist 8 cm er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við hvort prjónamerki (= 4 lykkjur færri) – LESIÐ ÚRTAKA-1. Fækkið með 3 cm millibili alls 8-9-9-9-9-9 sinnum = 219-245-263-287-317-347 lykkjur. Þegar stykkið mælist 34-34-35-35-35-35 cm fellið af 10-10-12-12-14-16 lykkjur í hvorri hlið frá réttu (= 5-5-6-6-7-8 lykkjur hvoru megin við hvort prjónamerki)= 199-225-239-263-289-315 lykkjur á fram- og bakstykki. Geymið stykkið og prjónið kant í handvegi.

KANTUR Í HANDVEGI:
Kantur í handvegi er prjónaður á stutta hringprjóna.
Fitjið upp 70-80-90-92-98-102 lykkjur á stutta hringprjóna 3 með litnum pistasía. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, fellið síðan af fyrstu 10-10-12-12-14-16 lykkjur í umferð = 60-70-78-80-84-86 lykkjur.
Prjónið hinn kantinn í handvegi á sama hátt.

BERUSTYKKI:
(1. umferð = frá röngu) Prjónið inn kant í handvegi á sama hringprjón 3 eins og fram- og bakstykki þar lykkjur voru felldar af fyrir handveg, jafnframt er fækkað um 2-0-0-4-6-4 lykkjur jafnt yfir = 317-365-395-419-451-483 lykkjur. Prjónið frá réttu – þannig: A.1 yfir fyrstu 5 lykkjur, A.4 yfir næstu 306-354-384-408-440-472 lykkjur (= 51-59-64-51-55-59 mynstureiningar af A.4), endið með fyrstu lykkju í A.4 og A.1 yfir síðustu 5 lykkjur. Haldið áfram með þetta mynstur. Í fyrstu umferð með ör er fækkað um 24-30-30-24-24-32 lykkjur jafnt yfir – LESIÐ ÚRTAKA-2. Fækkið síðan um 36-42-42-40-40-48 lykkjur jafnt yfir í næstu umferð með ör. Frá 1.-1.-1.-2.-2.-2. umferð með úrtöku er prjónað A.1 í hvorri hlið með litnum natur. Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 113-125-155-155-187-163 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu með litnum natur þar sem fækkað er um 6-14-40-36-64-36 lykkjur jafnt yfir = 107-111-115-119-123-127 lykkjur. Prjónið 1 umferð frá röngu. Til að fá betra form þá er prjónuð smá UPPHÆKKUN aftan við hnakka með litnum natur – sjá útskýringu að ofan. Prjónið að lokum 4 umferðir GARÐAPRJÓN með litnum natur – sjá útskýringu að ofan, fellið síðan af. Toppurinn mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm fyrir öxl.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í jafnt yfir í vinstri kanti að framan, tölum er hneppt í gegnum götin í hægri kanti að framan.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 31.05.2017
Mynsturteikning A.1 og A.2 hefur verið uppfært, útaukning hefur verið fjalægð úr uppskrift

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu með pistasía
symbols = slétt lykkja frá röngu, brugðin lykkja frá réttu með pistastía
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = natur
symbols = turkos
symbols = kóral
symbols = gulur
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 175-7

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (15)

country flag Eb wrote:

Merci de votre aide!La vidéo montre comment raccorder une manche déjà montée à part sur une autre aiguille, mais l'explication du modèle parle de les "monter sur la même aiguille"et"en rond",alors que c'est en aller retour sur la vidéo.On la monte donc à part,en faisant juste une côte mousse?Je n'arrive décidément pas à comprendre,pourtant, je tricote depuis des années, sur aiguilles circulaires,en rond,en aller retour,des raglans éventuellement.

15.06.2021 - 14:56

DROPS Design answered:

Bonjour Eb, la bordure des manches se tricote séparément (faites en 2, une pour chaque manche) = 2 côtes mousse = 4 rangs endroit, puis on rabat les 10 à 16 premières mailles du tour (emmanchure) et on met en attente. Pour l'empiècement, on va placer les 60 à 86 mailles de la bordure de chaque manche au-dessus des 10 à 16 m rabattues pour les emmanchures à la fin du dos/devants. Et vous retrouvez donc cette partie dans la vidéo: comment reprendre toutes les mailles des manches/des devants/du dos ensemble. En espérant que ça soit plus clair ainsi. Bon tricot!

15.06.2021 - 16:35

country flag Eb wrote:

Bonjour,Madame et navrée de vous déranger. Je n'arrive pas à comprendre comment monter les mailles au niveau des manches(juste avant l'empiècement):faut il absolument mettre les autres mailles sur une aiguille supplémentaire?Je n'arrive pas à les tricoter en rond?On les monte sur l'envers?Navrée ,je suis perdue et ne sais comment continuer...Merci beaucoup!

14.06.2021 - 23:15

DROPS Design answered:

Bonjour Eb, cette vidéo montre comment tricoter les mailles des manches au-dessus des mailles rabattues pour les emmanchures, les premiers rangs sont parfois un peu serrés à cette transition et vous pouvez vous aider d'une autre aiguille si besoin, mais après quelques rangs tout sera plus simple. Bon tricot!

15.06.2021 - 08:19

Bellinda Notari wrote:

What is ment by "Set eyelet pattern"? because : and what means:Row1....A3"A" across next 6sts, A3"B" across next 276 sts, A3"C" across next 7 sts, ... why those "A", "B" and "C", which should mean the colors of the yarn, when the body is knit in only 1 color (pistachio)!! ??

23.11.2018 - 21:04

DROPS Design answered:

Dear Belinda, "set eyelet pattern" means that you continue the pattern as it was knitted before. If you take a look at the diagram, you can see that "A", "B" and "C" refers to the different parts of the pattern repeat, and not the colors. Happy Knitting!

25.11.2018 - 11:11

Bellinda Notari wrote:

YOU CONFUSE ME ALSO WITH YOUR MISTAKES !!! YOUR REPLY IS COMPLETELY WRONG AND ACTUALLY INACCEPTABLE !! Chart A1 refers to 21 sts and Chart A2 refers to 5 sts!!!!! YOU MIXED THE 2 CHARTS ; AGAIN!! ARE THERE OTHER MISTAKES I HAVE TO KNOW???

20.11.2018 - 14:36

Bellinda Notari wrote:

AGAIN YOUR REPLY IS COMPLETELY WRONG AND ACTUALLY INACCEPTABLE !! Chart A1 refers to 5 sts and Chart A2 refers to 21 sts!!!!! YOU MIXED THE 2 CHARTS ; AGAIN!! ARE THERE OTHER MISTAKES I HAVE TO KNOW???

20.11.2018 - 14:34

DROPS Design answered:

Dear Mrs Notari, diagrams have been corrected online - see correction in May 2017, we are sorry for any inconvience caused - there shouldn't be any other mistake. Should you have any other questions about the pattern, you are welcome to ask them there. Happy knitting!

21.11.2018 - 09:17

Bellinda Notari wrote:

Can you tell me the corrections of the charts & all the to knit sts in those charts, please, because I already knitted the 5 border in stocking sts ; do I have to knit same sts as mention with the 2 knits sts & the YO's? and do I knit the 21 sts from chart A1 instead of A2 for all the remaining stitches for the lower cardigan border (the waves?)! BECAUSE YOU MADE THIS MISTAKES I KNITTED THE 11 ROWS THE WRONG WAY ; I AM VERY DISAPPOINTED IN DROPS ! ! ! are there other mistakes??

20.11.2018 - 13:24

DROPS Design answered:

Dear Mrs Notari, diagrams A.1 and A.2 have been edited in May 2017 as follows: you are working A.1 over the first 5 sts, then repeat A.2 over the next sts (17-19-21-22-24-26 times in width) until 5 sts remain and work the last 5 sts in A.1. There are more rows in A.1 but when A.1 has been worked 1 time in height, you repeat A.1 from row 1 and continue A.2. The number of sts in A.2 will decrease by and by: you dec 2 sts in each A.2 on row 5 (= A.2 is now worked over 19 sts) then on row 11 (= A.2 is then worked over 17 sts) and 21 (A.2 is then worked over 14 sts). Happy knitting!

20.11.2018 - 14:24

country flag Natalie wrote:

Hej! Jag blir inte klok på minskningarna och hur jag ska få mönstret att stämma efter dessa! När jag minskat 2x2 maskor (1 på varje sida om de två markörerna) är det ju bara tre maskor mellan omtag och 2 räta tillsammans - ska jag så sticka tre mellan dessa (och fyra resten) eller hur ska jag göra?

06.06.2018 - 20:29

country flag Kirsten wrote:

Hier wurde schon auf die Verwechselung zwischen A1 und A2 hingewiesen. Desweiteren, stricke ich gerade. In der Erklärung des Diagramms steht unter " 2 Maschen rechts zusammenstricken" nochmal das selbe , wozu zu der Erklärung eigentlich ... " 1 Umschlag zwischen 2 Maschen" gehört. ! So ist jedenfalls die Erklärung bei anderen Drops Anleitungen ! Wie soll man das nun stricken? Wenn ich nochmals 2 Maschen zusammen stricke, wird das Stück im Nu immer kleiner und es fehlt das Lochmuster!?????

24.05.2017 - 13:26

DROPS Design answered:

Liebe Kirsten, 5. Reihe in A.1 wird so gestrick: 3 x 2 M rechts zusammen, dann (1 Umschlag, 1 M re) x 5, 1 Umschlag, 3 x 2 M rechts zusammen = 19 M übrig (2 M werden abgenommen). Viel Spaß beim stricken!

24.05.2017 - 14:53

country flag Magotte wrote:

Bonjour A1 et A2 ne sont ils pas inversés? Pourquoi 21 mailles sur A1, alors que je suis en bordure? Merci

17.04.2017 - 08:32

DROPS Design answered:

Bonjour Margotte, il semble qu'il y ait effectivement une erreur, tricotez les 5 m pour la bordure devant et répétez les 21 m en largeur (point de vagues), merci pour votre retour. Bon tricot!

18.04.2017 - 11:12

country flag Svenja Grönewald wrote:

Könnte es eventuell sein, dass nicht Muster A1 über 5 Maschen gestrickt wird sondern A2?

29.03.2017 - 20:29

DROPS Design answered:

Liebe Frau Grönewald, Danke für den Hinweis. Das Diagram mit 5 Maschen soll für die Blende gestrickt sein und das mit 21 Maschen wird dann inzwischen wiederholt. Viel Spaßbeim stricken!

30.03.2017 - 09:05