DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3168.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 175-17
DROPS Design: Mynstur w-654
Garnflokkur C eða A + A
-----------------------------------------------------------

Mál:
Breidd: ca 36 cm.
Hæð (mælt frá botni að horni: ca 45 cm.

Efni:
DROPS PARIS frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
100 g litur 01, apríkósa
100 g litur 16, hvítur
100 g litur 33, millibleikur
50 g litur 41, sinnep
50 g litur 20, ljós bleikur
50 g litur 27, ferskja

DROPS HEKLUNÁL NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 14 stuðlar verði 10 cm á breidd. Einn ferningur mælist 12 cm á breidd og 12 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3168.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. A.3 útskýrtir hvernig taskan er hekluð saman.

LITIR Á FERNINGUM:
Uppfitjun + 1. og 2. og 5. umferð er alveg eins á öllum ferningum.
3. og 4. umferð eru heklaðar í lit á ferningi.

UPPFITJUN + UMFERÐ 1: sinnep
UMFERÐ 2: hvítur
UMFERÐ 5: apríkósa

FERNINGUR 1: Heklið 7 ferninga með millibleikur.
FERNINGUR 2: Heklið 2 ferninga með ferskja.
FERNINGUR 3: Heklið 4 ferninga með apríkósa.
FERNINGUR 4: Heklið 2 ferninga með ljós bleikur.

LITASKIPTI:
Til að fá fallega litaskiptingu þegar skipt er um lit er síðasta keðjulykkjan í umferð hekluð með nýja litnum þannig: Stingið heklunálinni í fyrstu loftlykkjuna frá byrjun umferðar, bregðið þráðinn um heklunálina með nýja litnum og dragið uppsláttinn í gegnum lykkjuna á heklunálinni. Festið enda jafnóðum.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TASKA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Taskan samanstendur af 15 ferningum með 4 mismunandi litasamsetningum – LESIÐ LITIR Á FERNINGUM.

FERNINGUR:
Heklið með heklunál 5 með Paris. Heklið A.1 – LESIÐ LITASKIPTI.
ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!

FRÁGANGUR:
Leggið ferningana saman með réttu númeri á ferningum eins og útskýrt er í A.2 (strikaða línur sýna ferninga sem eru brotnir inn að bakhlið, aðrir ferningar eru settir saman tvöfaldir). Ferningarnir eru heklaðir saman í lengjur fyrst á ská í aðra áttina, síðan á ská í hina áttina. Heklið ferningana saman í lengjur þannig:

Leggið 2 ferninga saman með röngu á móti röngu og heklið í gegnum bæði lögin með litnum apríkósa þannig – sjá A.3 (A.3 sýnir hornin á 4 ferningum):
1 fastalykkja um hornið, * 4 loftlykkjur, 1 fastalykkja um næsta loftlykkjuboga *, endurtakið frá *-* fram að horni (= 5 loftlykkjubogar), heklið 4 loftlykkjur (= skipting yfir næstu 2 ferninga). Haldið síðan áfram alveg eins þar til allir ferningarnir hafa verið heklaðir saman á breiddina. Klippið frá og eftir hverja lengju.

HEKLAÐUR KANTUR:
Heklið kant í lokin í kringum opið á töskunni með litnum apríkósa þannig: Byrjið í einu horninu á toppnum. Heklið * 1 fastalykkju um loftlykkjubogann í horni, 4 loftlykkjur, 1 fastalykkja um sama horn, 4 loftlykkjur (1 fastalykkja um næsta loftlykkjuboga, 4 loftlykkjur), endurtakið frá (-) fram að næsta horni á töskunni *, endurtakið frá *-* meðfram 3 næstu hliðum, endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun umferðar.

TVINNUÐ SNÚRA:
Klippið 4 þræði apríkósa + 2 þræði með litnum millibleikur ca 4 metra. Tvinnið þá saman þar til þeir taka í, leggið snúruna saman tvöfalda þá kemur hún til með að tvinna sig aftur saman. Hnýtið einn hnút í hvorn enda. Gerið aðra snúru til viðbótar alveg eins. Þræðið aðra snúruna í gegnum loftlykkjubogann í horni á toppnum í annarri hliðinni á töskunni – þræðið snúruna eins og útskýrt er í A.4 (A). Þræðið hina snúruna alveg eins, en í toppinn í annarri hlið á töskunni. Dragið síðan fyrri snúruna í gegnum seinni snúruna eins og útskýrt er í A.4 (B), hnýtið saman enda á snúrunni og gerið alveg eins í hinni hliðinni.

Mynstur

symbols = keðjulykkja
symbols = loftlykkja
symbols = fastalykkja um loftlykkju/loftlykkjuboga
symbols = stuðull um loftlykkjuboga
symbols = hálfur stuðull um loftlykkjuhring
symbols = heklið 3 tvöfalda stuðla um loftlykkjuna, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin í hvern og einn af þessum tvöföldu stuðlum, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar lykkjur á heklunálinni.
symbols = heklið 4 loftlykkjur og tengið þær í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju – sjá punkt í hring, umferðin byrjar og endar hér
symbols = loftlykkjubogi frá síðustu umferð í ferningi
symbols = 4 loftlykkjur
symbols = fastalykkja um 2 loftlykkjuboga
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

My Daisy

Francesca, Italy

My Daisy

Paloma, Spain

My Daisy

Juni, Norway

Skrifaðu athugasemd um DROPS 175-17

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (19)

country flag Wesley Perry wrote:

As long as credit for the pattern is given, is it okay to sell the finished project? Also what is the appropriate way to give credit for the pattern? I’m assuming on the tag, but would just like to know how to give credit to the designer while also making sure people understand that the person selling still handmade the item. Would “Handmade by insert name. Pattern by insert designer” be appropriate and/or what are alternative ways to do this? Thank you!

17.03.2024 - 16:05

DROPS Design answered:

Dear Wesley, for details of how can youuse these patterns for making pieces for sale, please see the framed text at the bottom of the pattern. Happy Knitting!

19.03.2024 - 00:13

country flag Susan Viljoen wrote:

I did read your answer on the strap, but I still dont get the 'picture' is there perhaps a tutorial on how to assemble the strap

16.09.2023 - 17:06

DROPS Design answered:

Dear Susan, unfortunately, we have no tutorials for how to assemble the cord. When looking at the picture, try to follow the union of the white string (A) into the chain space (the triangular shape) and the black string (B) into the loops formed by the A string. Happy crochetting!

17.09.2023 - 21:50

country flag Rosemarie Morlet wrote:

Can you give me a more in-depth explanation of how to attach the strap

31.07.2022 - 21:32

DROPS Design answered:

Dear Mrs Morlet, insert the first strap = A (in chart) as shown in A.4, then insert the 2nd strap (B) the same way on the other side of bag - now you will insert the ends of strap B into the loop of A as shown in A.4 and knot both ends of B together. repeat on the other side with the ends of A into the loops of B (reversed). Happy assembly!

01.08.2022 - 12:03

country flag Paloma wrote:

Me encantó hacer este bolso ❤ Creo que voy a repetirlo, está vez en otro colores. Gracias!!

10.04.2022 - 21:02

country flag Janette Gwillim wrote:

Re, picture instructions versus written. I personally like the picture instruction, I do not see how they cannot be followed, you look at the picture and do what it shows, please continue with pictorial instructions. Thank you Janette

04.08.2021 - 10:47

country flag Alyson wrote:

Hello!!! First of, thank you so much for sharing this beautiful project! It was so much fun making it and it was so easy to follow the diagram! Loved the end result, the only thing I'm struggling with is with doing the strap! Is there any way I can get assistance with it?! I just don't understand the instructions :) maybe you have a video? Thank you in advance!

08.02.2021 - 05:34

DROPS Design answered:

Dear Alyson, make 2 twisted cords and insert one of both = A in A.4 in one of the top corner of one side of the bag, at the same time, the 2nd cord (= B) should be inserted as shown in diagram - repeat on the other end of bag. Hope this will help. Enjoy!

08.02.2021 - 11:00

country flag Eline wrote:

Super duidelijke video's en hele leuke tas! 👌😍 Spijtig dat ik geen foto kan uploaden van het resultaat...

17.08.2020 - 10:52

country flag Carolyn A Noel wrote:

Do you have a written pattern for DROPS 175-17 also what kind of yarn is it made from

13.07.2020 - 16:25

DROPS Design answered:

Hi Carolyn, We do not have a written pattern for this piece at the moment. The Paris yarn is 100% cotton. Happy crafting!

14.07.2020 - 07:47

country flag Darlene A Fetterman wrote:

I am not Pamela there is no PAMELA in the comments and no one asked the same questions as I did. I do not like reading charts Here is my question again Why can none of you Stunning patterns be written up so people who don't want to or can't follow charts Thank you Dar

16.09.2019 - 05:46

DROPS Design answered:

Dear Mrs Fetterman, sorry for using the wrong name, previous answer has been edited. The DROPS patterns are knitted and crocheted by thousands and thousands of people  around the world. We understand however that in certain countries, with different knitting/crochet traditions than Scandinavia, our patterns might be written in a way that differs from what some are used to. But of course we want everyone to understand our patterns, so that’s why we have created an extensive library of tutorial videos as well as step by step lessons that explain how to follow the techniques we use and how to read the diagrams in our patterns - see our FAQ. Give them a try!

16.09.2019 - 11:46

country flag Darlene A Fetterman wrote:

Why can none of you Stunning patterns be written up so people who don't or can't follow charts Thank you dar

07.07.2019 - 06:34

DROPS Design answered:

Dear Mrs Fetterman, we are sorry, but we do not have the pattern in a written format, not only because our patterns are available in several languages, and this way charts would be helpful for all those crafters, but also because they show visually not only the how to do one stitch after the other, but also the placement of stitches in relation to each other, and how the rows should follow each othe. We have a number of videos explaining how to read charts, like : THIS. And don't forget, you can always ask for help, in person in the store you bought your DROPS yarn from. Happy Crafting!

07.07.2019 - 17:13