DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5676.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 175-11
DROPS Design: Mynstur cm-065
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Mál:
Breidd efst: ca 156 cm.
Hæð við miðju: Ca 75 cm.

Efni:
DROPS COTTON MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
300 g litur nr 29, sægrænn

DROPS HEKLUNÁL NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 18 stuðlar og 9 umferðir verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5676.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað fram og til baka.

SJAL:
Byrjið með Cotton Merino og heklunál 4 og heklið mynstur í hring eftir mynsturteikningu A.1. Loftlykkjuhringurinn og fjórar fyrstu umferðirnar eru heklaðar í hring og síðan er afgangurinn af sjalinu heklaður fram og til baka! ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar allt A.1 hefur verið heklað til loka er haldið áfram frá fyrstu umferð í mynsturteikningu þannig:
Heklið A.2a (3 loftlykkjur = 1 stuðull og 3 loftlykkjur), heklið A.2b alls 3 mynstureiningar á breidd (þ.e.a.s. 5 stuðlar um hvern og einn af fyrstu 9 loftlykkjubogum), heklið A.2c (= 3 loftlykkjur), síðan eru heklaðir 5 fyrstu stuðlarnir í A.2b um sama loftlykkjuboga (þ.e.a.s. miðju loftlykkjuboginn), haldið síðan áfram með A.2b þar til heklaðar hafa verið alls 3 mynstureiningar á breidd (þ.e.a.s. 5 stuðlar um hvern og einn af næstu 8 loftlykkjubogum), heklið A.2d um síðasta loftlykkjuboga = 46 stuðlar á hvoru megin við miðju loftlykkjuboga. Haldið áfram fram og til baka með A.2a til A.2d. Þegar mynsturteikningin hefur verið hekluð til loka á hæðina eru 75 stuðlar hvoru megin við miðju loftlykkjuboga.

Haldið nú áfram þannig:
UMFERÐ 1 (frá röngu): Heklið 7 loftlykkjur, 1 fastalykkju um fyrsta loftlykkjuboga, * heklið 5 loftlykkjur, hoppið yfir 5 stuðla, 1 fastalykkja *, endurtakið frá *-* 14 sinnum til viðbótar, en síðasta fastalykkjan er hekluð um miðju loftlykkjubogann á sjalinu, 3 loftlykkjur, 1 fastalykkja um sama loftlykkjuboga, * heklið 5 loftlykkjur, hoppið yfir 5 stuðla, heklið 1 fastalykkju *, endurtakið frá *-* 14 sinnum til viðbótar, heklið 6 loftlykkjur, 1 fastalykkju um síðasta loftlykkjuboga. Nú eru 16 loftlykkjubogar hvoru megin við loftlykkjubogann mitt í sjali.
UMFERÐ 2: Heklið 7 loftlykkjur, * 5 stuðlar um fyrsta/næsta loftlykkjuboga *, endurtakið frá *-* 15 sinnum til viðbótar, heklið (5 stuðla, 3 loftlykkjur, 5 stuðlar) um loftlykkjuboga mitt á sjali, * heklið 5 stuðla um fyrsta/næsta loftlykkjuboga *, endurtakið frá *-* 15 sinnum til viðbótar, heklið 5 stuðla um síðasta loftlykkjuboga, heklið 4 loftlykkjur og 1 stuðul um síðasta loftlykkjuboga í umferð. Nú eru 85 stuðlar hvoru megin við loftlykkjuboga mitt í sjali.
UMFERÐ 3: Heklið 11 loftlykkjur, 1 fastalykkja um fyrsta loftlykkjuboga, * 6 loftlykkjur, hoppið yfir 5 stuðla, 1 fastalykkja *, endurtakið frá *-* 15 sinnum til viðbótar, heklið 6 loftlykkjur, A.3 um miðju loftlykkjubogann. Haldið síðan áfram með * 6 loftlykkjur, hoppið yfir 5 stuðla, 1 fastalykkja *, endurtakið frá *-* 15 sinnum til viðbótar, heklið 6 loftlykkjur, 1 fastalykkja um síðasta loftlykkjuboga, 8 loftlykkjur, 1 stuðull um síðasta loftlykkjuboga. Nú eru 18 loftlykkjubogar hvoru megin við A.3.
UMFERÐ 4: Heklið 11 loftlykkjur, 1 fastalykkja um fyrsta loftlykkjuboga, * 6 loftlykkjur, 1 fastalykkja um næsta loftlykkjuboga *, endurtakið frá *-* fram að loftlykkjuboga mitt á sjali, heklið 6 loftlykkjur, A.3 um loftlykkjubogann mitt í sjali. Heklið síðan * 6 loftlykkjur, 1 fastalykkju um næsta loftlykkjuboga *, endurtakið frá *-* fram að síðasta loftlykkjuboga, 6 loftlykkjur, 1 fastalykkja um síðasta loftlykkjuboga, 8 loftlykkjur, 1 stuðull um síðasta loftlykkjuboga.
Endurtakið umferð 4 7 sinnum til viðbótar, en í hveri umferð sem er endurtekin er hekluð frá *-* 1 sinni fleiri (þ.e.a.s. í hverri umferð sem er hekluð, verður 1 loftlykkjuboga fleiri hvoru megin við A.3) = alls 9 umferðir með loftlykkjuboga og 26 loftlykkjubogar hvoru megin við A.3.

Heklið nú mynstur frá fyrstu umferð í mynsturteikningu A.2, alveg eins og áður í stykki, en heklaðar eru fleiri mynstureiningar á breiddina þannig:
Heklið A.2a (3 loftlykkjur = stuðull og 3 loftlykkjur), heklið A.2b alls 9 mynstureiningar á breidd (þ.e.a.s. 5 stuðlar um hvern og einn af fyrstu 27 loftlykkjubogum), heklið A.2c (= 3 loftlykkjur), heklið síðan 5 fyrstu stuðlana í A.2b um sama loftlykkjuboga (þ.e.a.s. í miðju loftlykkjubogann), haldið síðan áfram með A.2b þar til heklaðar hafa verið alls 9 mynstureiningar á breidd (þ.e.a.s. 5 stuðlar um hvern og einn af næstu 26 loftlykkjubogum), heklið A.2d um síðasta loftlykkjuboga = 136 stuðlar hvoru megin við miðju loftlykkjubogann. Haldið áfram fram og til baka með A.2a til A.2d. Þegar mynsturteikning hefur verið hekluð til loka á hæðina eru 165 stuðlar hvoru megin við miðju loftlykkjuboga.

Haldið áfram þannig:
UMFERÐ 1 (frá röngu): Heklið 7 loftlykkjur, 1 fastalykkja um fyrsta loftlykkjuboga, * heklið 5 loftlykkjur, hoppið yfir 5 stuðla, 1 fastalykkja*, endurtakið frá *-* 32 sinnum til viðbótar, en síðasta fastalykkjan er hekluð um miðju loftlykkjubogann á sjali, 3 loftlykkjur, 1 fastalykkja um sama loftlykkjuboga, * heklið 5 loftlykkjur, hoppið yfir 5 stuðla, heklið 1 fastalykkju *, endurtakið frá *-* 32 sinnum til viðbótar, heklið 6 loftlykkjur, 1 fastalykkja um síðasta loftlykkjuboga. Nú eru 34 loftlykkjubogar hvoru megin við loftlykkjubogann mitt í sjali.
UMFERÐ 2: Heklið 7 loftlykkjur, * 5 stuðlar um fyrsta/næsta loftlykkjuboga*, endurtakið frá *-* 33 sinnum til viðbótar, heklið (5 stuðlar, 3 loftlykkjur, 5 stuðlar) um loftlykkjubogann mitt á sjali, * heklið 5 stuðla um fyrsta/næsta loftlykkjuboga *, endurtakið frá *-* 33 sinnum til viðbótar, heklið 5 stuðla um síðasta loftlykkjuboga, heklið 4 loftlykkjur og 1 stuðul um síðasta loftlykkjuboga frá umferð. Nú eru 175 stuðlar hvoru megin við útaukningu mitt á sjali.
UMFERÐ 3: Heklið 11 loftlykkjur, 1 fastalykkja um fyrsta loftlykkjuboga, * 6 loftlykkjur, hoppið yfir 5 stuðla *, endurtakið frá *-* 33 sinnum til viðbótar, heklið 6 loftlykkjur, A.3 um miðju loftlykkjubogann.
Haldið síðan áfram með * 6 loftlykkjur, hoppið yfir 5 stuðla, 1 fastalykkja *, endurtakið frá *-* 33 sinnum til viðbótar, heklið 6 loftlykkjur, 1 fastalykkja um síðasta loftlykkjuboga, 8 loftlykkjur, 1 stuðull um síðasta loftlykkjuboga. Nú eru 36 loftlykkjubogar hvoru megin við A.3.
UMFERÐ 4: Heklið 11 loftlykkjur, 1 fastalykkja um fyrsta loftlykkjubogann, * 6 loftlykkjur, 1 fastalykkja um næsta loftlykkjuboga *, endurtakið frá *-* fram að loftlykkjuboga mitt á sjali, heklið 6 loftlykkjur, A.3 um loftlykkjubogann mitt á sjali. Heklið síðan * 6 loftlykkjur, 1 fastalykkja um næsta loftlykkjuboga *, endurtakið frá *-* fram að síðasta loftlykkjuboga, 6 loftlykkjur, 1 fastalykkja um síðasta loftlykkjuboga, 8 loftlykkjur, 1 stuðull um síðasta loftlykkjuboga.
Endurtakið umferð 4 7 sinnum til viðbótar, en í hverri umferð sem er endurtekið er heklað frá *-* 1 sinni fleiri (þ.e.a.s. fyrir hverja umferð sem er hekluð, verður 1 loftlykkju fleiri hvoru megin við miðju loftlykkjuboga) = alls 9 umferðir með loftlykkjubogum og 44 loftlykkjubogar hvoru megin við A.3.

Nú er mynstrið heklað frá fyrstu umferð í mynsturteikningu A.2, alveg eins og áður í stykkinu, en heklaðar eru fleiri mynstureiningar á breiddina þannig:
Heklið A.2a (3 loftlykkjur = 1 stuðull og 3 loftlykkjur), heklið A.2b alls 15 mynstureiningar á breidd (þ.e.a.s. 5 stuðlar um hvern og einn af næstu 45 loftlykkjubogum), heklið A.2c (= 3 loftlykkjur), síðan eru 5 fyrstu stuðlarnir heklaðir í A.2b um sama loftlykkjuboga (þ.e.a.s. miðju loftlykkjuboga), haldið síðan áfram með A.2b þar til heklaðar hafa verið alls 15 mynstureiningar á breidd (þ.e.a.s. 5 stuðlar um hvern og einn af næstu 44 loftlykkjubogum), heklið A.2d um síðasta loftlykkjubogann = 226 stuðlar hvoru megin við miðju loftlykkjubogann. Haldið áfram fram og til baka með A.2a til A.2d.
Endið eftir 4. umferð í mynstri. Klippið frá og festið enda.

Mynstur

symbols = heklið 4 loftlykkjur og tengið þær í hring með 1 keðjulykkju
symbols = 1 loftlykkja
symbols = 1 fastalykkja um loftlykkjuboga
symbols = 1 hálfur stuðull um loftlykkjuboga/um bilið á milli þríbrugðnu stuðla
symbols = 1 stuðull um loftlykkjuboga
symbols = 1 stuðull í lykkju
symbols = 1 tvöfaldur stuðull um loftlykkjuboga
symbols = 1 þríbrugðinn stuðull í lykkju
symbols = 1 þríbrugðinn stuðull um loftlykkjuboga

symbols = heklið 2 stuðla saman um loftlykkjuhring/loftlykkjuboga þannig: Heklið 1 stuðul, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 stuðul til viðbótar, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar lykkjur á heklunálinni
symbols = umferðin byrjar með 3 loftlykkjur og endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar
symbols = umferðin byrjar með 2 loftlykkjur og endar með 1 keðjulykkju í 2. loftlykkju í byrjun umferðar, heklið síðan keðjulykkjur fram að fyrsta loftlykkjuboga
symbols = umferðin byrjar með 2 loftlykkjur og endar með 1 keðjulykkju í 2. loftlykkju í byrjun umferðar
symbols = byrjið í þessari umferð
symbols = umferðin byrjar með að heklaðar eru keðjulykkjur fram að loftlykkjuboga, síðan eru heklaðar 4 loftlykkjur
symbols = umferðin byrjar með að heklaðar eru keðjulykkjur fram að loftlykkjuboga, síðan eru heklaðar 7 loftlykkjur
diagram
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 175-11

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (76)

country flag Brechtje Schwippert wrote:

Aan het einde van a2 heb ik in plaats van de benodigde 75 stokjes aan beide zeiden maar 65. Wat is de beste manier om dit op te lossen? Ik heb het patroon al een keer uitgetrokken en opnieuw gehaakt maar ik blijf uitkomen op 65.

07.08.2023 - 15:37

DROPS Design answered:

Dag Brechtje,

Waarschijnlijk heb je toch ergens een lossenlus met een stokje op een vorige toer over het hoofd gezien. Als het patroon verder symmetrisch is en mooi doorloopt en niet trekt o.i.d. zou het verder geen probleem moeten zijn en zou je verder kunnen haken met minder stokjes.

14.08.2023 - 14:18

country flag Mick wrote:

I've done until just before A.3. So I have 6 chain stitches. Now I have to work 5 chain stitches (=A.3. row1) around the middle chain space. But how? Shouldn't the A.3. row1 be 1sc+3ch+1sc or something like that, instead of 5ch? Otherwise you can't get into the middle chain space. You'll end up 6ch +5ch (and then 6ch again).

09.06.2023 - 18:12

DROPS Design answered:

Dear Mick, A.3 is worked in the middle of shawl, after the 6 chains work A.3 = 2 dc together+5 chains + 2 dc together around the chain-space from previous row, then crochet 6 chains and finish row as explained on the other side of shawl. Happy crocheting!

12.06.2023 - 08:11

country flag Potxoli wrote:

Todo bien hasta llegar a la parte segunda donde pone 75 puntos altos en cada lado. No sé dónde salen esos 75 puntos. A mi me salen 46 que cada lado

29.04.2023 - 15:34

DROPS Design answered:

Hola Potxoli, después de llegar a 46 puntos altos, continuar trabajando A.2a y A.2b hasta llegar a 75 puntos altos. Los aumentos están incluidos en el diagrama.

30.04.2023 - 22:20

country flag Caroline wrote:

Ik zit vast bij de toer waar je 46 stokjes hebt aan beide kanten....... Wat moet ik nu verder doen? Er staat; ga verder heen en weer met A2a tot en met A2d, tot er 75 stokjes zijn aan beide kanten. Betekent dit dat ik nog een rij van telkens 5 stokjes moet haken?

07.02.2023 - 10:55

country flag Manuela Hernandez Gomez wrote:

Hola me encantan los chakes de Drops pero escrito es un lio y con grafico por partes de A2a, A2b..... Aun mas lio, no podrian poner el grafico completo porque por partes es un jaleo, al menos para mi, gracias

18.07.2022 - 18:27

country flag Aleksandra wrote:

Dzień dobry! Czy w pierwszym akapicie w poleceniu: „ Dalej przerabiać schematy A.2a - A.2b w tę i z powrotem.” faktycznie robimy od schematu A.2a do A.2b czy jednak wszystkie schematy po kolei? Pozdrawiam ( :

30.06.2022 - 13:31

DROPS Design answered:

Witaj Aleksandro, robimy schematy po kolei, na początku rzędu schemat A.2a jak wcześniej, następnie powtarzamy A.2b na jednym boku szala, na środku (czubek szala) A.2c, dalej powtarzamy A.2 b na drugim boku szala i na końcu rzędu przerabiamy A.2 d. Pozdrawiamy!

30.06.2022 - 18:11

country flag Richard Howell wrote:

I just finished the last row in diagram A.2a with the 5 double crochets. I’m lost on how to begin the next 2 rows before making the arrow looking motif. These are shown in your diagram A.2b.Yep

03.04.2022 - 03:52

DROPS Design answered:

Dear Mr Howell, after you have worked A.2a to A.2b and you have 75 dc on each side of the middle chain-space, work as described in the written pattern from ROW 1 to ROW 4 a total of 8 times (with A.3 in the middle as described). Then you will follow diagrams again with A.2a, A.2b and A.2c. Happy crocheting!

04.04.2022 - 09:42

country flag Richard Howell wrote:

I just finished the last row in diagram A.2a with the 5 double crochets. I’m lost on how to begin the next 2 rows before making the arrow looking motif. These are shown in your diagram A.2b.

22.03.2022 - 17:28

country flag Richard Howell wrote:

Is there a way I can send you a picture of where I am at with my work

21.03.2022 - 16:51

DROPS Design answered:

Dear Mr Howell, feel free to bring your work to your store or send them a picture per Mail - so that they can help you with an overview of your work. You can also join our DROPS Workshop where other crocheters will be able to help you. Happy crocheting!

22.03.2022 - 09:47

country flag Richard Howell wrote:

Hello and thanks for the quick response. I’m hoping I can send attachments for you to see where I am at.

21.03.2022 - 16:47

DROPS Design answered:

Dear Mr Howell, you cannot send any attachment, just write here; but please write your question here giving more all details on what you are working on and which row/which place on the row you are stuck.

22.03.2022 - 09:45