DROPS Flora
DROPS Flora
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6336.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Spring Valley Jumper

Prjónuð peysa með öldumynstri, hringlaga berustykki og marglitu mynstri úr DROPS Flora. Stærð S - XXXL.

DROPS 175-9
DROPS Design: Mynstur fl-002
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS FLORA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
250-300-300-350-400-400 g litur 16, pistasía
50-50-50-50-50-50 g litur 01, natur
50-50-50-50-50-50 g litur 19, kóral
50-50-50-50-50-50 g litur 17, gulur
50-50-50-50-50-50 g litur 12, turkos

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 + 60 eða 80 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 lykkjur og 32 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Flora
DROPS Flora
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6336.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Allt A.4 er prjónað í sléttprjóni – athugið mynsturteikningu fyrir rétta stærð.

ÚRTAKA-1:
Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki í hlið. Prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjuna yfir lykkjuna sem var prjónuð. Þær lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í A.2 á hlið þegar úrtaka er, eru prjónaðar í sléttprjóni.

ÚRTAKA-2:
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 396 lykkjur) og deilið með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 42) = 9,4. Í þessu dæmi þá er prjónuð 8. og 9. hver lykkja saman. Fellið af með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman.

ÚTAUKNING:
Aukið út mitt undir ermi: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki. Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur (prjónamerki er staðsett á milli þessa 2 lykkja) og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir svo ekki myndist gat (útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni).

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

UPPHÆKKUN:
Klippið frá og byrjið við miðju að aftan – setjið eitt prjónamerki hér. Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 7-7-7-8-8-8 lykkjur, snúið, herðið á þræði og prjónið 14-14-14-16-16-16 sléttar lykkjur, snúið, herðið á þræði og prjónið 21-21-21-24-24-24 sléttar lykkjur, snúið, herðið á þræði og prjónið 28-28-28-32-32-32 sléttar lykkjur. Haldið áfram fram og til baka með því að prjóna yfir 7-7-7-8-8-8 lykkjur fleiri í hvert skipti sem prjónað hefur verið yfir miðju 63-63-63-72-72-72 lykkjur í umferð, prjónið að prjónamerki við miðju að aftan.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 357-399-441-462-504-546 lykkjur á hringprjóna 3 með litnum pistasía. Prjónið A.1 yfir allar lykkjur (= 17-19-21-22-24-26 mynstureiningar á breidd). ATHUGIÐ PRJÓFESTUNA! Þegar síðasta umferðin í A.1 hefur verið prjónuð eru 238-266-294-308-336-364 lykkjur á prjóni, í síðustu umferð í A.1 er lykkjufjöldinn jafnaður út jafnt yfir til 240-270-288-312-342-372 lykkjur. Prjónið A.2 yfir allar lykkjur (= 40-45-48-52-57-62 mynstureiningar á breidd). Setjið 2 prjónamerki í stykkið, eitt í byrjun á umferð og eitt eftir 120-135-144-156-171-186 lykkjur (= eitt prjónamerki í hvora hlið á peysu). Þegar stykkið mælist 8 cm er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki (= 4 lykkjur færri) – LESIÐ ÚRTAKA-1. Fækkið lykkjum með 3 cm millibili alls 8-9-9-9-9-9 sinnum = 208-234-252-276-306-336 lykkjur. Þegar stykkið mælist 34-34-35-35-35-35 cm fellið af 10-10-12-12-14-16 lykkjur í hvorri hlið (= 5-5-6-6-7-8 lykkjur hvoru megin við hvort prjónamerki) = 188-214-228-252-278-304 lykkjur. Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMAR:
Ermin er prjónuð í hring á sokkaprjóna neðan frá og upp, skiptið yfir í stutta hringprjóna þegar prjónaðar hafa verið nægilega margar lykkjur.
Fitjið upp 50-52-56-58-60-64 lykkjur á sokkaprjóna 3 með litnum pistasía. Prjónið A.3 yfir allar lykkjur. Þegar A.3 hefur verið prjónað einu sinni á hæðina er prjónað áfram í sléttprjóni yfir allar lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar = mitt undir ermi. Þegar stykkið mælist 6-6-6-6-8-8 cm aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki mitt undir ermi – LESIÐ ÚTAUKNING. Aukið út með 3-2-1½-1½-1-1 cm millibili alls 13-17-20-21-23-23 sinnum = 76-86-96-100-106-110 lykkjur. Þegar ermin mælist 44-43-43-42-40-39 cm fellið af 10-10-12-12-14-16 lykkjur mitt undir ermi (= 5-5-6-6-7-8 lykkjur hvoru megin við prjónamerki) = 66-76-84-88-92-94 lykkjur.
Prjónið aðra ermi á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Prjónið inn ermar á sama hringprjón 3 eins og fram- og bakstykki þar sem felldar voru af lykkjur fyrir handveg, jafnframt er fækkað um 2-0-0-4-6-4 lykkjur jafnt yfir = 318-366-396-424-456-488 lykkjur. Prjónið A.4 yfir allar lykkjur (= 53-61-66-53-57-61 mynstureiningar af A.4). Haldið áfram með þetta mynstur, JAFNFRAMT er fækkað um 36-42-42-40-40-48 lykkjur jafnt yfir í hverri umferð með ör – LESIÐ ÚRTAKA-2. Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 102-114-144-144-176-152 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð þar sem fækkað er um 6-14-40-36-64-36 lykkjur jafnt yfir = 96-100-104-108-112-116 lykkjur. Til að fá betra form þá er hægt að prjóna smá UPPHÆKKUN aftan í hnakka með litnum natur – sjá útskýringu að ofan.
Prjónið að lokum 4 umferðir GARÐAPRJÓN með litnum natur – sjá útskýringu að ofan, fellið síðan af. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm fyrir öxl.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.

Mynstur

symbols = slétt lykkja með pistasía
symbols = brugðin lykkja með pistasía
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja
symbols = natur
symbols = turkos
symbols = kóral
symbols = gulur
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 175-9

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (23)

country flag Pernille wrote:

108 masker i halsen i XL…. Hvem kan få den over hovedet?

30.03.2024 - 01:22

country flag Pia wrote:

Salve, non ho ben compreso come realizzare lo sprone: " Dal 1°-1°-1°-2°-2°-2° ferro con diminuzioni, continuare lavorando A.1 a ogni lato con il panna". Per una taglia xl significa che dopo 2 ferri successivi alla diminuzione devo lasciare A4 e iniziare A1? A ogni lato di cosa? Grazie

14.06.2020 - 20:25

DROPS Design answered:

Buongiorno Pia. Abbiamo corretto il testo: la frase è stata rimossa. La ringraziamo per la segnalazione. Buon lavoro!

14.06.2020 - 22:44

country flag Dagmar wrote:

With wave patterns do I measure from the long or short part?

23.03.2020 - 17:07

DROPS Design answered:

Dear Dagmar, you can measure from the lower part. Happy knitting!

24.03.2020 - 09:33

country flag Bitte Gimming wrote:

Hei! Vedr lengden på ermene. I oppskrifen står det: "Når ermet måler 44-43-43-42-40-39 cm felles det av osv." Jeg strikker i str M, og da skal lengden være 43 cm. Stemmer det at ermene i de små størrelsene skal være lengre enn i de større? Mvh Bitte

14.06.2018 - 09:24

DROPS Design answered:

Hei Bitte. Ja det stemmer, de større størrelsene har videre ermkuppel/skulderparti og derfor strikkes de ikke like lange som de mindre størrelsene. God fornøyelse.

18.06.2018 - 14:10

country flag Rose wrote:

Kunt u misschien een aangepaste versie van het patroon plaatsen? Ik ben geen ervaren breister dus durf niet zelf de maat te nemen en het aantal steken uit te rekenen. Ik zou niet weten hoe, eerlijk gezegd! Ik draag confectiemaat S/M, dus een omvang van ongeveer 90 cm gemeten over de billen.

31.05.2018 - 14:26

DROPS Design answered:

Dag Rose, Helaas is het voor ons niet mogelijk om patronen naar persoonlijke wens aan te passen. Je kunt wel altijd hulp vragen bij de winkel waar je het garen hebt gekocht en wellicht heb je wat aan de artikelen onder het kopje Tips&Hulp.

31.05.2018 - 15:13

Rose wrote:

Hoe kan ik het patroon aanpassen zodat de onderkant van de trui niet wijd uitloopt, maar gewoon recht? Ik houd niet zo van wijde modellen. Ideaal vind ik een beetje getailleerd, dus smaller in de taille, maar aan de onderkant wel aangesloten. Een recht model is ook goed, maar niet wijd uitlopend. Dan wordt het een beetje een jurkje :-)

27.05.2018 - 09:31

country flag Maike wrote:

Gibt es eine bestimmte Regel zur Abnahme von Maschen bei gleichzeitigem Erhalt (bzw. rudimentären) Fortsetzen des Mustersatzes - insbesondere beim Stricken in Runden? Stricke ich z.B. immer die letzen 5/4/3... oder die ersten 5/4/3... Maschen des MS um ein gleichmäßiges Muster über die gesamte Passe beizubehalten? Schon jetzt vielen herzlichen Dank!

07.05.2017 - 15:13

DROPS Design answered:

Liebe Maike, hier können sie lesen, wie man gleichmäßig abnehmen wird. Viel Spaß beim stricken!

08.05.2017 - 10:59

country flag Katrin Zolchow wrote:

Sehr geehrteschön Team, Die Erhöhung im Nacken kann gestrickt werden. Was ist, wenn ich diese nicht stricke? Sitzt dann der hinteren Bereich tiefer, zieht er sich sehr herunter? Wenn ich die Erhöhung stricke verschwindet dann die schöne runde Passform?

07.05.2017 - 07:32

DROPS Design answered:

Liebe Frau Zolchow, die Erhöhung wird dann mehr Reihen hinten am Rückenteil geben, so wird die Halsauschnitt weniger hoch beim Vorderteil und höher beim Rücktenteil. Dieses Video zeigt with man eine Erhöhung strikt. Viel Spaß beim stricken!

08.05.2017 - 10:44

country flag Ida wrote:

Undrar hur man ska göra när man stickar fram- och bakstycke och har kommit fram till delen där man ska sticka A.2 samtidigt som man ska minska 2 maskor i varje sida var 3:e cm. Det innebär ju att antalet maskor minskar och hålen (omslagen) i A.2 hamnar inte på rätt ställe. Hur gör man? Tacksam för svar!

06.05.2017 - 12:00

DROPS Design answered:

Hej Ida, jo du skall se till at hålmönstret (2m r tillsm, 1 omslag) fortsätter så du får hålen över varandra, det vill säga att när du har minskat 2 m, har du inga m kvar till yttersta hålet mot sidan, så du stickar slätst. fram till nästa hål i diagrammet och fortsätter enligt diagrammet. Lycka till!

08.05.2017 - 15:15

country flag Mona Kristengård wrote:

Hvor på strikketøyet begynner man på mønsteret? Etter første ermet?

24.04.2017 - 17:39

DROPS Design answered:

Hei Mona. Du strikker ermene inn på samme rundpinne som bolen der det er felt av masker til ermhull og på første omgang bolen og ermene strikker sammen felles det 2-0-0-4-6-4 masker jevnt fordelt = 318-366-396-424-456-488 masker. Når du har satt på begge ermene, starter du på diagram A.4 over alle maskene. God Fornøyelse!

26.04.2017 - 09:29