DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5676.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Amandine

Prjónaður toppur með gatamynstri og gatakanti, prjónaður neðan frá og upp úr DROPS Cotton Merino. Stærð S - XXXL.

DROPS 176-12
DROPS Design: Mynstur cm-059
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS COTTON MERINO frá Garnstudio (tillheyrir garnflokki B B)
300-300-350-400-400-450 g litur 04, bleikfjólublár

DROPS HRINGPRJÓNAR (40 + 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 lykkjur og 28 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5676.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA-1:
Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), prjónið 2 lykkjur slétt saman.

ÚRTAKA-2:
Fækkið lykkjum innan við A.2/A.3 í hvorri hlið. Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum á undan A.3 þannig: Byrjið 1 lykkju á undan A.3: Prjónið síðustu lykkju í sléttprjóni og fyrstu lykkju í A.3 slétt saman.
Fækkið lykkjum á eftir A.2 þannig: Takið síðustu lykkju í A.2 óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið næstu lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjuna yfir lykkjuna sem var prjónuð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna upp að handvegi, síðan er framstykkið og bakstykkið prjónað fram og til baka hvort fyrir sig.

TOPPUR:
Fitjið upp 198-214-230-250-274-302 lykkjur á hringprjóna 4 með Cotton Merino. Prjónið mynstur A.1.
Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað í sléttprjóni. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, 1 í byrjun umferðar og 1 eftir 99-107-115-125-137-151 lykkjur (= hliðar). Þegar stykkið mælist 6 cm er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hlið (= 4 lykkjur færri) – LESIÐ ÚRTAKA-1. Fækkið lykkjum með 5-5-5½-5½-6-6 cm millibili alls 7 sinnum = 170-186-202-222-246-274 lykkjur. Þegar stykkið mælist 40-41-42-43-44-45 cm prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, yfir 12-16-16-24-28-40 lykkjur í hvorri hlið (= 6-8-8-12-14-20 lykkjur hvoru megin við hvort prjónamerki, þær lykkjur sem eftir eru halda áfram í sléttprjóni. Þegar prjónaðar hafa verið 4 umferðir í garðaprjóni í hlið er næsta umferð prjónuð þannig: Fellið af fyrstu 2-4-4-8-10-16 lykkjur, prjónið 81-85-93-95-103-105 lykkjur slétt, fellið af næstu 4-8-8-16-20-32 lykkjur, prjónið 81-85-93-95-103-105 lykkjur slétt og fellið af síðustu 2-4-4-8-10-16 lykkjur. Prjónið nú fram- og bakstykki til loka fram og til baka hvort fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 81-85-93-95-103-105 lykkjur. Prjónið síðan þannig, fyrsta umferðin er prjónuð frá röngu: A.3, byrjið á 2. umferð í mynstri (frá vinstri hlið í mynsturtexta) (= 10 lykkjur), prjónið sléttprjón þar til eftir eru 10 lykkjur og endið með A.2, byrjið á 2. umferð í mynstri (frá vinstri hlið í mynsturtexta) (= 10 lykkjur). Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju á hvorri hlið, lykkjum er fækkað innan við A.2 og A.3 – LESIÐ ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu) alls 3-5-6-7-8-9 sinnum = 75-75-81-81-87-87 lykkjur. Þegar stykkið mælist 44-46-47-49-50-52 cm (úrtöku er nú lokið) prjónið áfram frá réttu þannig: A.2, A.4 þar til 11 lykkjur eru eftir, endið með 1 lykkju sléttprjón og A.3. Þegar A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er haldið áfram frá réttu þannig: A.2, A.5 A (= 7 lykkjur), A.5 B yfir næstu 42-42-48-48-54-54 lykkjurnar, A.5 C (= 6 lykkjur), endið með A.3. Haldið áfram með þetta mynstur þar til stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm, fellið af miðju 31-31-35-35-39-39 lykkjur. Hvor öxl er nú prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju frá hálsi = 21-21-22-22-23-23 lykkjur eftir á hvorri öxl. ATH: Lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri við háls við úrtöku eru prjónaðar í sléttprjóni.
Fellið af þegar stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm.

FRAMSTYKKI:
= 81-85-93-95-103-105 lykkjur. Prjónið eins og bakstykki þar til stykkið mælist 52-54-56-57-59-61 cm = 75-75-81-81-87-87 lykkjur. Setjið nú miðju 25-25-29-29-33-33 lykkjur á þráð og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af fyrir hálsmáli í byrjun hverrar umferðar frá hálsi þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 2 sinnum = 21-21-22-22-23-23 lykkjur eftir á öxl – ATH: Þær lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri við háls þegar fellt er af eru prjónaðar í sléttprjóni. Haldið áfram með mynstur eins og áður. Fellið af þegar stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm. Endurtakið á hinni öxlinni.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma, saumið kant í kant í ystu lykkjuna til að sleppa við þykkan saum.

HÁLSMÁL:
Prjónið upp 80 til 100 lykkjur í kringum háls (meðtaldar lykkjur af þræði) á stutta hringprjóna 4. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, fellið síðan af með sléttum lykkjum.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 02.06.2017
Mynsturteikning A.3 hefur verið uppfærð

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = 2 lykkjur slétt saman frá réttu og frá röngu
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 lykkja
symbols = sláið 2 sinnum uppá prjóninn á milli 2 lykkja, í næstu umferð er fyrri uppslátturinn prjónaður slétt, sá seinni er látinn falla niður.
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir þær lykkjur sem prjónaðar voru slétt saman.
symbols = fellið af eina lykkju
symbols = prjónið 2 lykkjur slétt í 1 lykkju (frá réttu og frá röngu)
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 176-12

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (21)

country flag Marianne Langmark Villumsen wrote:

Når man har delt i bagstykke og forstykke og ligefør man skal begynde på mønster A.3 står der at 1. pind strikkes fra vrangen og mønster A.3 skal skal startes på 2. pind fra venstre den kan jeg ikke lige greje.

01.02.2024 - 14:38

DROPS Design answered:

Hei Marianne. Når du starter på bakstykket og skal strikke etter diagram A.3 starter du fra vrangen og du starter på 2. pinne i diagrammet (fra venstre side i diagrammet). Altså: strikk 4 masker rett, 2 masker vrang, 2 masker rett og 2 masker vrang. mvh DROPS Design

12.02.2024 - 09:00

country flag Froufrou wrote:

Bonjour, Dans le diagramme A1 : Je ne comprends pas les deux premier rangs. Rang 1 : que faut il faire ? Rang 2 : que faut il faire ? Est ce du point mousse ? Merci

26.09.2022 - 11:58

DROPS Design answered:

Bonjour Froufrou, suivez attentivement les indications de la légende, quand vous tricotez A.1 en rond, procédez ainsi: 1er rang: à l'endroit, 2ème rang: à l'envers, 3ème rang à l'endr, 4ème rang à l'envers, 5ème rang à l'endroit, 6ème rang (2 m ens à l'end, 1 jeté) tout le tour, 7ème rang: à l'end et 9ème rang à l'envers. Bon tricot!

26.09.2022 - 17:17

country flag Marion wrote:

Hallo, ich habe eine Frage beim Stricken des Musters A. 5. Es soll A5A und dann über 42 Maschen A5B gestrickt werden. In der dritten Reihe geht das Muster jedoch auch in A5A und A5C über(1Masche abheben, 2 zusammen stricken und abgehobene Masche über die zusammengestrickten ziehen). Wie sollen die 5. und 6. Masche bei dem Ende des ersten Mal A5B und die erste Masche ab der zweiten Wiederholung von A5B gestrickt werden?

25.10.2021 - 21:47

DROPS Design answered:

Liebe Marion, wenn Sie in der 3. Reihe A.5B stets wiederholen, ergibt sich automatisch die doppelte Abnahme (abheben, zusammenstricken, überziehen). Sie stricken diese doppelte Abnahme also mustergemäß so lang, bis A.5C gestrickt werden muss, also gegen Ende der Reihe vor A.3. Viel Spaß beim Weiterstricken!

28.10.2021 - 10:15

country flag Lise P wrote:

Re-bonjour. J’ai fait et refait des échantillons à plusieurs reprises, en suivant la vidéo en tricotant comme mentionné avec Le décalage indiqué et A-2 et A-3 ne donnent toujours pas le même effet. Est-ce que quelqu’un peut m’aider ? Je ne voudrais pas devoir abandonner ce projet. Merci!

25.06.2021 - 15:12

DROPS Design answered:

Bonjour Lise, contactez votre magasin en lui montrant ce que vous avez fait (même en photo), ce sera bien plus simple. Vous pouvez également demander de l'aide à d'autres tricoteuses dans notre 25.06.2021 - 16:22

country flag Lise P wrote:

Je crois que Sur l’endroit et sur l’envers les quatre dernières mailles se tricotent à l’endroit Il y a quelque chose que je n’arrive pas à saisir... Dommage que vous n’ayez pas fait la vidéo pour les trois diagrammes 🙂

16.06.2021 - 16:39

DROPS Design answered:

Bonjour Lise P, rappelez-vous que les diagrammes se lisent de droite à gauche sur l'endroit et de gauche à droite sur l'envers, vous ne faites pas la même chose en même temps sur A.2 et A.3, vous avez 1 rang de décalage. Les 4 premières mailles de A.2 et les 4 dernières mailles de A.3 sont des mailles point mousse (= à l'endroit tous les rangs). Bon tricot!

17.06.2021 - 08:16

country flag Lise P wrote:

Concernant la dentelle, j’ai regardé la vidéo plusieurs fois. Ça fonctionne bien pour les diagrammes montrés, soit A3 et A5 mais lorsqu’on fait le A2, ça ne donne pas exactement le même effet que A3. C’est comme si le jeté qu’on laisse tomber au 3e rang de A2 se retrouve sur l’avant du tricot et non à l’arrière comme sur A3

15.06.2021 - 19:34

DROPS Design answered:

Bonjour Lise, A.2 se tricote en début de rang sur l'endroit/fin de rang sur l'envers et A.3 se tricote en fin de rang sur l'endroit et en début de rang sur l'envers, ainsi, le rang avec le double jeté se fait au 2ème rang = sur l'envers dans A.2 et au 3ème rang = sur l'endroit dans A.3. Pour que le motif soit bien symétrique, ils ont un rang d'écart. En espérant que ceci puisse vous aider. Bon tricot!

16.06.2021 - 07:15

country flag Lotta Johansson wrote:

När jag stickar A4 och ska sticka 3 e raden uppifrån börjar jag på avigsidan?

17.04.2021 - 16:13

DROPS Design answered:

Hej Lotta, den skal strikkes fra avigsidan :)

28.04.2021 - 13:52

country flag Christa Dewilde wrote:

Hallo, ik zou graag dit patroon breien maar zou graag de hals wat dieper willen. Het is ook de eerste keer dat ik van boven naar beneden zal breien. Dankjewel voor de hulp

23.04.2020 - 18:29

country flag Isabelle wrote:

Bonjour je voudrais savoir si se modèle peux se faire au crochet merci

24.05.2019 - 08:25

DROPS Design answered:

Bonjour Isabelle, ce modèle existe uniquement en version tricot, vous trouverez ici tous nos modèles de hauts au crochet. Bon crochet!

24.05.2019 - 08:33