DROPS Belle
DROPS Belle
53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5104.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

After Swim

Prjónaður toppur með hálfu klukkuprjóns afbrigði úr DROPS Belle. Stærð S - XXXL.

DROPS 176-13
DROPS Design: Mynstur vs-038
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL – XXXL

Efni:
DROPS BELLE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
400-400-450-500-550-600 g litur 16, malva

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 20 lykkjur og 26 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð og 22 lykkjur og 26 umferðir með hálfu klukkuprjóni (A.2) verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.
DROPS HRINGPRJÓNAR (40 + 60 eða 80 cm) NR 3,5 – fyrir kanta með garðaprjóni.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Belle
DROPS Belle
53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5104.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING:
Til þess að reikna út hvernig auka eigi út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 104 lykkjur), mínus kantlykkjur (t.d. 4 lykkjur í hvorri hlið) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 9) = 10,6. í þessu dæmi þá er aukið út til skiptis eftir 10. og 11. hverja lykkju. Ekki er aukið út yfir kantlykkjur.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Framstykki og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna hvort stykki fyrir sig.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 104-110-118-128-140-154 lykkjur á hringprjóna 3,5 með Belle. Prjónið 8 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. JAFNFRAMT í 7. umferð (= rétta) er aukið út um 9-11-11-13-13-15 lykkjur jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING = 113-121-129-141-153-169 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjóna 4,5 og prjónið næstu umf frá réttu þannig: 4 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið A.1A þar til 5 l eru eftir á prjóni (= 26-28-30-33-36-40 mynstureiningar 4 lykkjur), prjónið A.1B (= 1 lykkja) og endið með 4 kantlykkjur í garðaprjóni. Prjónið til baka eins og útskýrt er í A.1 með 4 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 4 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið A.2A þar til 5 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið A.2B (= 1 lykkja) og endið með 4 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið áfram með A.2 með 4 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 25-26-27-28-29-30 cm fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur í lok 2 næstu umferða fyrir kant á ermum = 129-137-149-161-177-193 lykkjur. Haldið áframa með A.2 eins og áður með 12-12-14-14-16-16 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 43-45-47-49-51-53 cm setjið lykkjur á þráð í hvorri hlið fyrir skástæða öxl (til að sleppa við að klippa þráðinn frá sem prjónað er með, prjónið lykkjurnar áður en þær eru settar á þráðinn fyrir skástæða öxl). Setjið fyrstu 4-5-5-6-6-7 lykkjur í byrjun umferðar á þráð, prjónið umferðina út og setjið fyrstu 4-5-5-6-6-7 lykkjur í byrjun næstu umferðar á þráð. Haldið svona áfram með að setja 4-5-5-6-6-7 lykkjur á þræði alls 9 sinnum í hvorri hlið, setjið síðan síðustu 10-5-11-6-12-11 lykkjurnar á þráð fyrir skástæða öxl í hvorri hið.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm fellið af miðju 33-33-33-37-41-41 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram að setjið lykkjur á þráð fyrir skástæða öxl og fellið af 2 lykkjur í næstu umferð frá hálsi.
Þegar allar lykkjur hafa verið felldar af fyrir hálsmáli/settar á þráð eru 46-50-56-60-66-74 lykkjur á þræði fyrir öxl og stykkið mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá hæsta punkti á öxl og niður.
Setjið lykkjur frá þræði á hringprjóna 3,5. Byrjið frá réttu og prjónið 1 umferð slétt yfir allar lykkjur, en til að sleppa við göt í skiptingunum þar sem lykkjur voru settar á þráð er tengillinn á milli 2 lykkja tekinn upp og prjónaður snúinn slétt saman við fyrstu lykkjuna á prjóni. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu og fellið af með sl frá réttu (það er mikilvægt að affellingarkanturinn verði ekki stífur). Prjónið hina öxlina alveg eins.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp alveg eins og á bakstykki og prjónið eins og bakstykki þar til stykkið mælist 44-46-48-49-51-53 cm. Setjið miðju 19-19-19-23-27-27 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram með að setja lykkjur á þráð fyrir skástæðri öxl og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun hverrar umferðar frá hálsi þannig: 2 l 3 sinnum og 1 l 3 sinnum. Þegar allar lykkjur hafa verið felldar af fyrir hálsmáli/settar á þráð eru 46-50-56-60-66-74 lykkjur á þræði fyrir öxl og stykkið mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá hæsta punkti á öxl og niður. Setjið lykkjurnar af þræði á hringprjóna 3,5 og prjónið alveg eins og á bakstykki. Fellið af með sl frá réttu. Prjónið hina öxlina alveg eins.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn þannig að það verða 2 umferðir brugðið að hvorri annarri á öxl (séð frá réttu). Saumið sauminn undir ermakanti og niður meðfram hlið á fram- og bakstykki – saumið í ystu lykkjubogana þannig að saumurinn verði flatur, en endið þegar eftir eru ca 8 cm í hvorri hlið (= klauf).
Brjótið kantinn með garðaprjóni meðfram handveg tvöfaldan saman að réttu og festið ermakanti með nokkrum smáum sporum mitt á öxl og mitt undir ermi. Endurtakið á hinum ermakantinum.

HÁLSMÁL:
Prjónið upp frá réttu ca 90 til 108 lykkjur í kringum háls (meðtaldar lykkjur af þræði að framan) á stutta hringprjóna 3,5. Prjónið 1 umferð brugðið, 1 umferð slétt og 1 umferð brugðið. Fellið síðan laust af með slétt.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = singið hægri prjóni í gegnum lykkjuna frá fyrri umferð, prjónið 1 lykkju slétt og sleppið lykkjunni niður af prjóni
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 176-13

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (25)

country flag Annelies wrote:

Maar bij dit patroon worden het voor- en achterpand afzonderlijk gebreid. Dan heeft het toch geen enkel voordeel om het op een rondbreinaald te breien? Of zie ik dit verkeerd?

15.03.2024 - 10:29

DROPS Design answered:

Dag Annelies,

Daar heb je gelijk aan. Ik denk dat in dit geval een rondbreinaald geadviseerd wordt omdat de steken dan beter op de naald passen, met name bij de grotere maten. In Noorwegen (waar de patronen ontworpen worden) is het veel gebruikelijker om standaard met rondbreinaalden te breien...

15.03.2024 - 10:46

country flag Annelies wrote:

Waarom wordt dit truitje op een rondbreinaald gebreid?

13.03.2024 - 11:54

DROPS Design answered:

Dag Annelies,

Veel truien worden standaard op de rondbreinaald gebreid, zodat je bijvoorbeeld geen zijnaden hebt, maar vaak kun je ze ook op rechte naalden breien.

Om een patroon aan te passen om op rechte naalden te breien hebben we een instructie gemaakt. Deze vind je hier.

14.03.2024 - 22:04

country flag Ania wrote:

What size is the model in the photo wearing?

21.01.2024 - 10:03

DROPS Design answered:

Hi Ania, You will find a size chart at the bottom of the page, with all measurements for the different sizes. Happy knitting!

22.01.2024 - 06:59

country flag Sara wrote:

Når man skal sætte masker på tråd, skal man så starte med kantmaskerne og arbejde sig ind mod midten? Jeg kan ikke helt se det for mig.

02.07.2022 - 09:20

DROPS Design answered:

Hei Sara. Du skal strikke maskene før du setter dem på 1 tråd. I str. S strikkes det da slik: Strikk de første 4 maskene og sett de deretter på 1 tråd, strikk ut pinnen, snu og strikk første 4 maskene på begynnelsen av neste pinne, sett disse maskene på 1 tråd, strikk pinnen ut, snu. Fortsett slik med å sette 4 masker inn på trådene totalt 9 ganger i hver side, deretter settes de siste 10 maskene på tråd til skrå skulder i hver side. mvh DROPS Design

04.07.2022 - 13:00

country flag Lorna wrote:

Hello, \r\nI\'m new to knitting and I\'ve not used circular needles, when the pattern says use circular needles, can I use straight needles instead?\r\n\r\nThank you\r\nLorna

05.04.2022 - 15:35

DROPS Design answered:

Dear Lorna, in this pattern you work back and front piece separately back and forth on circular needle to get enough room for all stitches. Only neck edge is worked in the round, to work it in rows instead sew one shoulder only then pick up sts along neck and finish sewing 2nd shoulder and neck edge together. Read more here. Happy knitting!

05.04.2022 - 16:42

country flag Marit Kronstad wrote:

Hei, når maskene skal settes på tråd til skrå skulder forstår eg det slik at det er i begynnelsen \r\n av pinnen. Vil det sei at det er første maskene i rillekanten ein setter på tråd?

07.04.2021 - 04:32

country flag Andrea wrote:

Wird die 1. Reihe nach dem Bündchen laut Diagramm A. 1A rechts oder links gestrickt? Und dann in der 2. Reihe (also Rückreihe) ist die erste Masche welche?

14.05.2020 - 09:15

DROPS Design answered:

Liebe Andrea, die erste Reihe in A.1 wird eine Hinreihe sein, wiederholen Sie A.1A (von rechts nach links) und enden Sie mit A.1B - bei den Hinreihen stricken Sie A.1B und wiederholen Sie A.1A (von links nach rechts) - mehr über Diagramme lesen Sie hier. Viel Spaß beim stricken!

14.05.2020 - 09:54

country flag Arnhild Klokkertrøen wrote:

Hei! Skjønner ikke hva som menes med ‘stikk høyre pinne gjennom masken fra forrige rad m, strikk 1 rett og slipp maskene av ‘. Jeg har bare en maske å slippe av liksom. Mulig jeg gjør det feil.

25.03.2020 - 22:03

DROPS Design answered:

Hej I denna video ser du hur man ska göra. Mvh DROPS Design

26.03.2020 - 08:28

country flag Ulla Ærbo wrote:

Skal der strikkes frem og tilbage på rundpind ?

21.07.2019 - 17:00

country flag Nathalie wrote:

Je pense qu’il y a une erreur dans la hauteur à laquelle il faut commencer l’encolure devant. Dans les explications on nous demande de les commencer au même niveau que celles du dos ce qui ne correspond pas au dessin technique.

08.05.2019 - 15:50

DROPS Design answered:

Bonjour Nathalie, l'encolure dos se forme à 50-52-54-56-58-60 cm en rabattant les 33-33-33-37-41-41 mailles centrales et l'encolure devant se forme à 44-46-48-49-51-53 cm en glissant en attente les 19-19-19-23-27-27 mailles centrales sur 1 arrêt de mailles, la hauteur de l'encolure est donc différente sur le devant et sur le dos, comme le montre le schéma. Bon tricot!

08.05.2019 - 15:58