DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24
DROPS Extra 0-1319
DROPS Design: Mynstur nr bs-106
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

Mál: Lengd við miðju að aftan: ca 106 cm. Breidd efst: ca 170 cm.

Efni:
DROPS BABYALPACA SILK frá Garnstudio
450 g nr 3250, ljós bleikfjólublár

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 l x 32 umf sléttprjón verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá hlið að hlið.

SJAL:
Fitjið upp 5 l á hringprjóna nr 3 með BabyAlpaca Silk.
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l br, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl = 7 l.
UMFERÐ 2 (= ranga): Uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið 2 l br, 3 l sl, 2 l br.
UMFERÐ 3: Prjónið 2 l sl, 3 l br, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl = 8 l.
UMFERÐ 4: Prjónið 2 l br, prjónið uppsláttinn snúinn br, 3 l sl, 2 l br.
UMFERÐ 5: Prjónið 2 l sl, 3 l br, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl = 9 l.
UMFERÐ 6: Prjónið 2 l br, prjónið uppsláttinn snúinn br, 1 l br, 3 l sl, 2 l br.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

Haldið áfram á sama hátt:
Frá réttu eru prjónaðar 2 l sl, 3 l br, A.1 þar til 2 l eru eftir á prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn og 2 l sl.
Frá röngu eru eru sléttar lykkjur prjónaðar slétt og brugðnar lykkur brugðið. Þ.e.a.s. aukið er út um 1 l í hverri umf frá réttu. Útaukning (uppsláttur) er allan tímann prjónað snúið, JAFNFRAMT eru útauknar l prjónaðar sl yfir sl og br yfir br eins og útskýrt er í mynsturteikningu A.1. ATH: Þegar það eru 15 l í umf (= 8 l í A.1) byrjar gatamynstur í A.1 í næstu umf frá réttu.

Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 50 cm – stillið af að næsta umf sé eins og umf 3 eða í A.1.

LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Aukið út í brugðinni einingu í lok hverrar umf frá réttu eins og áður þannig:
AUKIÐ ÚT Í MYNSTUREININGU MEÐ BRUGÐIÐ:
Næsta umf (frá réttu): 2 l sl, 3 l br, * A.1, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* þar til 2 l eru eftir á prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið 2 l sl. Í næstu umf frá röngu er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt. Prjónið nýjar l brugðið (séð frá réttu). Nú er aukið út um 1 l br í hverri br einingu á eftir 2 l sl og 3 l br í byrjun umf frá réttu.
Þegar stykkið mælist ca 60 cm (ca 10 cm á eftir fyrstu útaukningu í mynstureiningu með br) aukið út í gagnstæðri hlið við mynstureiningu með br (þ.e.a.s. í byrjun á úrtöku með br). Aukið út til skiptis á undan og á eftir mynstureiningu með br í 10. hverjum m 8 sinnum til viðbótar (= alls 10 sinnum) = 13 l br á milli allra gatamynstra.
AUKIÐ ÚT Í LOK HVERRAR UMF FRÁ RÉTTU:
Haldið áfram með útaukningu í lok hverrar umf frá réttu þar til stykkið mælist ca 130 cm frá uppfitjunarkanti (í prjónstefnu) og í síðustu útauknu l er 1 heil mynstureining af A.1. Haldið áfram með mynstur eins og áður þar til stykkið mælist ca 150 cm meðfram hlið í byrjun á umf frá réttu.
Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá úskýringu að ofan. Fellið laust af.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = br frá réttu, sl frá röngu
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður br, það eiga að myndast göt
symbols = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1319

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (13)

country flag Alexa wrote:

Hi again, there is another discrepancy: the german pattern says after 17 stitches on needle, the english pattern says after 15 stitches on needle. I don’t know if it’s me not being proficient enough at knitting, but this pattern is impossible for me. I frogged about 5 times already. Now I have 15 stitches on the needle and I’m confused again. The description is too cryptic. Explanatory written pattern for more rows would have been helpful to establish the logic of the design.

13.06.2022 - 21:50

DROPS Design answered:

Dear Alexa, thanks for your feedback, German pattern will be checked again - you have to work as follows: K2, P3, then you will work the next stitches as shown in A.1 (even if not all sts can be worked in A.1), increase and end with K2 (from RS). The number of stitches will increase on every row from RS and when you have 15 sts, you can start A.1: K2, P3, A.1 = K7, P1, increase (= 9th st in A.1), K2 and continue that way increasing as before and incorporating the new stitches in A.1. Can this help?

14.06.2022 - 09:23

country flag Alexa wrote:

There is a mistake in the english pattern. In the continuation section after row 6 it should read „ From RS K 2, P 3, k (not A.1) until 2 sts remain, 1 YO and K 2“ Found this out because the pattern made no sense to me. The german pattern had the “knit” instead of “A.1”.

12.06.2022 - 23:05

DROPS Design answered:

Dear Alexa, german pattern was wrong, thanks for noticing, you are supposed to work the next stiches as shown in diagram A.1, of course, there are not enough stitches yet to work the whole repeat, so that you will first knit them, but then you will have to purl the next increases so that you you have K7, P3 in A.1. Happy knitting!

13.06.2022 - 12:02

country flag Marinella wrote:

Nel paragrafo AUMENTARE NELLE SEZIONI A ROVESCIO DICE: ferro successivo(dal diritto dl lavoro): 2 maglie diritte , P 3........ cosa significa P3 ? grazie , Marinella

28.12.2020 - 20:56

DROPS Design answered:

Buonasera Marinella, abbiamo corretto il testo, P3 corrisponde a 3 maglie rovescio. Buon lavoro!

28.12.2020 - 22:13

country flag Ghislaine Ethier wrote:

Bonjours ma question est J’ai fait 6 rangs je suis rendue au paragraphe 2 continuez de la même façon sur l’endroit 2 endroit,3 envers A1 mais c’est la que je suis bloqué car A1 a 10 mailles et en tricotant 2 endroit et 3 envers ils est impossible de faire A1 car je n’ai que 9 mailles sur ma broche !!! J’attends votre réponse merci !!!!

26.12.2020 - 14:07

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Ethier, au tout premier rang, vous tricotez les 2 premières mailles de A.1 (= les 2 seules mailles possibles), et comme vous augmentez 1 maille avant les 2 dernières mailles, vous pourrez tricoter A.1 sur 3 mailles au rang suivant. Autrement dit, vous augmentez progressivement le nombre de mailles de A.1 et les tricotez comme le montre le diagramme. En même temps, tricotez les mailles de A.1 à l'endroit (et non au point ajouré) tant que vous n'avez pas 8 mailles pour A.1 (= 7 m point ajouré + 1 m env). Bon tricot!

04.01.2021 - 08:44

country flag Anneke wrote:

Na het meerderen in de averechte delen bij 50 cm: als ik in A1 een nieuw averecht deel brei, meerder ik dan door totdat er in dat averechte deel net zoveel steken staan als in de andere averechte delen? Of meerder ik pas in de naald waarin bij alle averechte delen een steek wordt gemeerderd? Dan hebben de averechte delen die na 50 cm zijn ontstaan aan het eind dus geen 13 steken.

22.08.2020 - 13:59

DROPS Design answered:

Dag Anneke,

Bij 50 cm meerder je in ieder averecht deel van A.1, dus dan heb je 4 steken averecht in plaats van 3 steken averecht in A.1 Daarnaast blijf je steeds meerderen aan de zijkant en als je genoeg steken hebt gemeerderd aan de zijkant om A8 steken van A.1 te kunnen breien, kun je dus een nieuwe herhaling van A.1 erbij maken op de toer. Deze brei je dan met hetzelfde aantal averechte steken als de andere A.1

26.08.2020 - 14:56

country flag Annika wrote:

Hej, det står att jag ska fortsätta ökningen i slutet på varje v från rätsidan tills arb mäter ca 130 cm från uppläggningskanten (i stickriktningen) och de sista ökade m är 1 hel rapport av A.1. Ska jag mäta lodrätt eller vågrätt? Fortsätt med mönster som förut tills arb mäter ca 150 cm längs sidan i början av v från rätsidan. Ska jag mäta lodrätt eller vågrätt?

27.04.2020 - 21:18

DROPS Design answered:

Hej Annika, når du måler i strikkeretningen så må det være lodret, den sidste side skal måle 150 cm. Mått: Längd mitt bak: ca 106 cm. Bredd överst: ca 170 cm. Lycka till :)

29.04.2020 - 10:38

country flag Pia Titz wrote:

Förstår inte riktigt hur många gånger jag ska öka i : Öka i partierna med aviga. Bara det varvet eller flera varv? Mvh Pia Titz

25.02.2020 - 19:37

DROPS Design answered:

Hej Pia, Om du läser 2 rader till, så ser du att man öker igen när arb mäter 60 cm (efter 10 cm). Lycka till :)

26.02.2020 - 09:53

country flag Agnieszka wrote:

Dzień dobry, w jaki sposób mam na początku (od rzędu 7) przerabiać schemat A1, gdy moja robótka nie ma nawet 10 oczek, a schemat A1 składa się z 10 oczek? Który fragment schematu mam przerabiać? W jaki sposób mam zacząć następny schemat A1?

03.05.2018 - 10:43

DROPS Design answered:

Witaj Agnieszko, na prawej stronie robótki ptrzerabiać 2 o.p., 3 o.l., a dalej na prawo do końca (dodawać oczko w odl. 2 o. od brzegu na końcu rzędu na prawej stronie robótki). UWAGA: gdy na drucie jest 15 o. (= 8 o. w schemacie A.1) zacząć ścieg ażurowy schematu A.1 w nast. rzędzie na prawej stronie robótki. Pozdrawiam i powodzenia

04.05.2018 - 13:03

country flag Jutta Bayer wrote:

In der Anleitung heisst es : In dieser Weise weiterstricken, bis die Arb. eine Gesamtlänge von 50 cm hat was heisst das, 50 cm auf der Stricknadel oder Seitenlänge rechts oder links, evtl. Maschenanzahl angeben. Danke

04.03.2017 - 02:05

DROPS Design answered:

Liebe Frau Bayer, Sie müssen wie zuvor weiterstricken, bis die Arbeit ca 150 cm an der rechten Seite (von der Vorderseite gesehen) misst, dh an der Seite des Beginns der Hin-R. Viel Spaß beim stricken!

06.03.2017 - 08:58

country flag Sonja Føhre wrote:

Et der en mål-tegning til den?

16.12.2016 - 17:13

DROPS Design answered:

Hej Sonja. Nej, det har vi ikke paa vores sjaler. Men ca. maalene staar i starten af opskriften: Mål: Længde midt bagpå: ca 106 cm. Bredde øverst: ca 170 cm.

19.12.2016 - 14:47