DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13860.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS Extra 0-1310
DROPS Design: Mynstur nr me-095
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: S/M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio
750-900-1000-1100-1200 g nr 05, ljós grár

DROPS HEKLUNÁL NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 14 st verði 10 cm á breiddina, eða 1 mynstureining af A.2 verði 6 cm á breiddina.
DROPS PERLUTALA: Bogalaga (hvít) NR 540: 2 st í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13860.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í hverri umf frá réttu er heklað í aftari lykkjubogann í l frá fyrri umf og í hverja umf frá röngu er heklað í fremri lykkjubogann í l frá fyrri umf.
Hver umf með fl er hekluð frá röngu. Lykkjur sem ekki eru heklaðar eftir mynsturteikningu eru heklaðar eins og fyrsta l í mynstri, þ.e.a.s. í umf með fl eru l heklaðar með fl o.s.frv.
ATH: Þessar l eru einnig heklaðar í aftari og fremri lykkjubogann miðað við réttu og röngu.

LEIÐBEININGAR:
Í byrjun á hverri umf með st er fyrsta st skipt út fyrir 3 ll.
Í byrjun á hverri umf með fl er fyrstu fl skipt út fyrir 1 ll.
Í byrjun á hverri umf með þbst er fyrsta þbst skipt út fyrir 5 ll.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað frá bakstykki og upp að hnakka, skiptið síðan stykkinu og haldið er áfram niður á við á hvoru framstykki.

BAKSTYKKI:
Heklið 110-122-134-146-158 ll (meðtalin 1 ll til að snúa við með) með heklunál nr 5 með Merino Extra Fine.
Fyrsta umf í A.1 til A.3 (með fl) er hekluð frá röngu) þannig: Heklið A.1 yfir fyrstu 8 ll (meðtalin ll til að snúa við með), síðan A.2 yfir næstu 96-108-120-132-144 ll (= alls 8-9-10-11-12 sinnum á breidd), endið með A.3 yfir síðustu 6 ll – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Haldið svona áfram með mynstur. Endurtakið A.z á hæð.
ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Þegar stykkið mælist ca 50-51-52-53-54 cm – passið uppá að næsta umf sé 1 umf með st (= frá réttu) – klippið frá.

Heklið síðan ermar þannig: Heklið 25-22-20-17-14 LAUSAR ll, heklið síðan yfir bakstykki frá réttu þannig: Heklið A.6 yfir A.3, A.5 yfir A.2 og A.4 yfir A.1 (ATH: Passið uppá hvaða umf í mynstri A.6 og A.4 er byrjað á þannig að mynstrið haldi áfram á hæðina eins og áður) og endið með 25-22-20-17-14 LAUSAR ll (meðtalin 1 ll til að snúa við með) – LESIÐ LEIÐBEININGAR, snúið við.
Heklið frá röngu þannig: Heklið 1 fl í 2. ll frá heklunálinni (= 2 fl), 1 fl í hverja af næstu 23-20-18-15-12 ll, heklið A.4, A.5 og A.6 eins og áður, heklið 1 fl í hverja af síðustu 25-22-20-17-14 ll = 25-22-20-17-14 fl í hvorri hlið á stykki og A.4 til A.6 (= alls 159-165-173-179-185 l). Fyrstu og síðustu 25-22-20-17-14 l eru ekki heklaðar eftir mynsturteikningu, heldur eins og fyrstu l í mynstri, þ.e.a.s. ef þbst eru heklaðir í mynstri þá eru ermarnar heklaðar eins og þbst – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR!

Haldið svona áfram þar til stykkið mælist alls 70-72-74-76-78 cm, passið uppá að næsta umf sé frá réttu, geymið stykkið og heklið sjalkraga.

HÆGRI SJALKRAGI:
Heklið 34-39-34-39-34 ll (meðtaldar 3 ll til að snúa við með) með heklunál nr 5 með Merion Extra Fine. Heklið 1 st í 4. ll frá heklunálinni (= 2 st), 1 st í hverja af næstu 2-0-2-0-2 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 st í hverja af næstu 6 ll *, endurtakið frá *-* = 28-32-28-32-28 st.

Heklið síðan þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): 5 fl, 5 hst, 18-22-18-22-18 st.
UMFERÐ 2 (= ranga): Heklið 1 st í hverja af 28-32-28-32-28 l.
Endurtakið umf 1 og 2 þar til stykkið mælist ca 6-6-7-7-8 cm þar sem stykkið er styst – stillið af að endað sé með umf 2 (= ranga).
Klippið frá og festið enda.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Heklið síðan hægra framstykki saman við hægri sjalkraga frá réttu þannig:

Byrjið yst á ermi: Heklið fyrstu 25-22-20-17-14 l eins og fyrstu l í mynstri eins og áður, A.6 eins og áður (= 6 l), endurtakið A.5 yfir næstu 36-36-48-48-60 l (= alls 3-3-4-4-5 sinnum á breiddina), næsta A.5 er heklað yfir næstu 0-6-0-6-0 l á bakstykki og fyrstu 12-6-12-6-12 st frá sjalkraga, endurtakið A.5 alls 0-1-0-1-0 sinnum til viðbótar, A.4 yfir næstu 7 st, endið með 9-7-9-7-9 l eins og fyrstu l í mynstri (= kantur að framan) = A.5 er endurtakið alls 4-5-5-6-6 sinnum á breiddina (= 95-102-102-109-108 l).

Haldið svona áfram með mynstrið. Þegar stykkið mælist 40-42-44-46-48 cm frá þar sem ll voru heklaðar fyrir ermi (stykkið mælist alls 90-93-96-99-102 cm), passið uppá að næsta umf sé frá réttu. Klippið frá. Hoppið yfir fyrstu 25-22-20-17-14 l (= fyrir ermi), heklið A.3 yfir A.6 (passið uppá mynstur hringinn) og A.5 og A.4 eins og áður og 9-7-9-7-9 l eins og fyrsta l í mynstri (= 70-80-82-92-94 l).

Þegar stykkið mælist 50-51-52-53-54 cm frá þar sem hoppað var yfir l fyrir ermi (stykkið mælist alls 140-144-148-152-156 cm), passið uppá að endað sem á 1 heilli mynstureiningu af A.x (passið að það séu jafn margar mynstureiningar á hæðina eins og á bakstykki). Klippið frá og festið enda.

VINSTRI SJALKRAGI:
Heklið 33-37-33-37-33 ll (meðtaldar 3 ll til að snúa við með) með heklunál nr 5 með Merino Extra Fine. Heklið 1 st í 4. ll frá heklunálinni (= 2 st), 1 st í hverja af næstu 1-5-1-5-1 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 st í hverja af næstu 6 ll *, endurtakið frá *-* = 27-31-27-31-27 st.

Heklið síðan þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Heklið 17-21-17-21-17 st, 5 hst og 5 fl.
UMFERÐ 2 (= ranga): Heklið 1 st í hverja af 27-31-27-31-27 l.
Endurtakið umf 1 og 2 þar til stykkið mælist ca 6-6-7-7-8 cm þar sem það er styst – stillið af að endað sé með umf 2 (= ranga).

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Heklið ekki lengur yfir miðju 24 l (= 2 mynstureiningar af A.5) = hálsmál.

Heklið vinstra framstykki saman við vinstra sjalkraga frá réttu þannig: Heklið fyrstu 9-7-9-7-9 l frá sjalkraga eins og fyrsta l í mynstri, A.6 yfir næstu 6 st frá sjalkraga, A.5 alls 0-1-0-1-0 sinnum yfir sjalkraga, endurtakið A.5 yfir næstu 12-6-12-6-12 st frá sjalkraga, hoppið yfir 24 l fyrir hálsmál á milli hægra og vinstra framstykkis (= 2 mynstureiningar af A.5), heklið þær 0-6-0-6-0 l sem eftir eru, A.5 yfir fyrstu 0-6-0-6-0 st frá framstykki, endurtakið A.5 yfir næstu 36-36-48-48-60 l, A.4 yfir næstu 7 l, næstu 25-22-20-17-14 l eru heklaðar eins og fyrstu l í mynstri eins og áður = A.5 er endurtekið alls 4-5-5-6-6 sinnum á breiddina (= 95-102-102-109-108 l)

Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 40-42-44-46-48 cm frá þar sem ll voru heklaðar fyrir ermi (stykkið mælist alls 90-93-96-99-102 cm), passið að næsta umf sé frá réttu. Heklið frá réttu þannig: Heklið 9-7-9-7-9 l eins og fyrsta l í mynstri eins og áður, A.6 eins og áður, endurtakið A.5 eins og áður, heklið A.1 yfir A.4, snúið við og heklið til baka (= 70-80-82-92-94 l). Þ.e.a.s. ekki er lengur heklað yfir síðustu 25-22-20-17-14 l (= ermi).

Þegar stykkið mælist 50-51-52-53-54 cm frá þar sem hoppað var yfir l fyrir ermi (stykkið mælist alls 140-144-148-152-156 cm), passið að endað sé á 1 heilli mynstureiningu af A.z (stillið mynstrið af eftir hægra framstykki). Klippið frá og festið enda.

FRÁGANGUR:
Byrjið neðst niðri á peysunni og heklið hliðarnar saman frá röngu í gegnum bæði stykkin þannig: 1 fl, * 3 ll, hoppið yfir 1 cm, 1 fl um næstu umf *, endurtakið frá *-* meðfram allri hliðinni og endið með 1 fl. Haldið síðan áfram undir ermi í gegnum bæði stykkin þannig: * 1 ll, 1 fl í næstu l *, endurtakið frá *-* og passið að endað sé á 1 fl. Heklið kragann saman við miðju að aftan þannig: 1 fl, * 1 ll, 1 fl í næstu l *, endurtakið frá *-*. Saumið kragann við hálsmál. Brjótið smá kant uppá ermarnar og saumið eitt spor svo að kanturinn haldist uppi. Saumið tölur í. Tölum er hneppt í gegnum þbst umf í kanti að framan.

Mynstur

symbols = fl í fremri lykkjubogann á l (= frá röngu)
symbols = ll
symbols = st í aftari lykkjubogann á l (= frá réttu)
symbols = þbst í aftari lykkjubogann á l (= frá réttu)
symbols = ll umf er útskýrð í uppskrift
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1310

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (13)

country flag Ksrin wrote:

Ik ben met de voorkant bezig. Heb de linker en rechterkraag tegelijk gehaakt en merk nu dat het rechter voorpand met mouw ongeveer 38 cm breed wordt en het linker voorpand 60 cm, ook zit de hals opening niet in het midden. Maat s/m Partoonbeschrijving gebruikt ik. Klopt dat verschil in afmeting of doe ik iets verkeerd?

04.05.2023 - 11:48

DROPS Design answered:

Dag Ksrin,

Nee, het rechter en linker voorpand zou wel hetzelfde moeten zijn qua breedte en de hals hoort in het midden te zitten. Vermoedelijk heb je ergens iets verkeerd gedaan.

08.05.2023 - 21:13

country flag Mira wrote:

After 25 chain for sleeve, it says RS sc across, as diagram, end row 25 ch for other sleeve. Then turn continue RS. If you turn you are then on WS , how can you be on RS 2 rows in a row?

31.08.2020 - 06:29

DROPS Design answered:

Dear Mira, there is a mistake in the English pattern, this next row (after the 25 chains) should be worked from WS and not from RS. It will be fixed asap. Thank you! Happy crocheting!

31.08.2020 - 10:19

country flag Mira Goetsch wrote:

Are the reducing DC's and DTR's the same as dc and tr together? Skipping stitches, keeping them on the hook so they are only 1 stitch for the next row to go into?

10.08.2020 - 00:03

DROPS Design answered:

Dear Mrs Goetsch, in this pattern you don't work dc nor dtr together, to decrerase stitches skip sts just as shown in diagram. Happy crocheting!

10.08.2020 - 09:47

country flag Annelies wrote:

Ik had 2 dagen geleden een vraag over de kraag. als antwoordt kreeg ik dat je de kraag los gehaakt wordt een aan het einde eraan gehaakt. Maar in het patroon staat dat je hem met de voorkant mee haakt. Nu snap ik er nog mínder van. De foto bij het patroon valt het haar van mevrouw over de kraag. Hebben jullie misschien nog andere foto's?

28.10.2019 - 21:59

DROPS Design answered:

Dag Annelies,

Klopt, je haakt eerst een losse kraag en daarna haak je deze samen met de panden zoals beschreven in de tekst. Helaas zijn er geen andere foto's.

29.10.2019 - 09:39

country flag Annelies wrote:

Goedeavond, Ik heb het vest gehaakt maar kom er niet uit met de kraag. Hebben jullie een plaatje of duidelijke uitleg hoe dat moet?

26.10.2019 - 19:18

DROPS Design answered:

Dag Annelies,

De kraag wordt los van het kledingstuk gehaakt en aan het einde eraan genaaid. Je zet eerst het aantal lossen (behorende bij je maat) op en dan haak je 1 stokje in de 4e losse vanaf de haaknaald, dit is het 2e stokje (De eerste 3 lossen vervangen het eerste stokje). Daarna vervolg je de beschrijving.

27.10.2019 - 16:00

country flag Florence Viollette wrote:

Je ne comprends pas comment faire le col de ce modèle !

14.04.2018 - 13:16

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Violette, pour former le col châle, il doit être plus "haut" côté extérieur et moins côté intérieur (qui sera cousu le long de l'encolure dos), on va ainsi crocheter des "petites" mailles (= mailles serrées) côté intérieur et augmenter la hauteur des mailles (= demi-brides puis brides) pour le côté extérieur, vu sur l'endroit, on aura 5 ms, 5 dB, 18-22 B (cf taille) et sur l'envers: 18-22 B, 5 dB et 5 ms. Bon crochet!

16.04.2018 - 10:46

Tanya Fleming wrote:

I'm really sorry but that didn't help at all. And the video link is for a knitted pattern not a crochet one. I have crocheted the collar but I need more precise details on how to attach the collar and continue down the front

29.09.2017 - 14:11

DROPS Design answered:

Dear Mrs Fleming, sorry, I thought you wanted to know how to attach the collar at the very end. To work right front piece, first work shawl collar, cut the yarn and put aside. Then crochet over sleeve as explained, then on the shoulder on back piece (see number of repeats in your size) then crochet over the sts on shawl collar (over last row worked on collar). Collar is now crochet together and you can continue crochet right front piece from top down. Happy crocheting!

02.10.2017 - 13:00

Tanya Fleming wrote:

Please can I have a diagram or diagrams of how the collar is attached as the instructions are very unclear

29.09.2017 - 11:31

DROPS Design answered:

Dear Mrs Fleming, this video shows this technique for a knitted shawl collar. In that case, crochet together both fundation chains on collar, then crochet together end of rows of collar and neckline on back piece. Happy crocheting!

29.09.2017 - 13:32

country flag Loretta Morandin wrote:

Now I am being told my comment contains forbidden words. Do you have an email? This is very frustrating.

02.03.2017 - 06:49

DROPS Design answered:

Dear Mrs Morantin, try to reword your query and remember you can also get help from your DROPS Store, even per mail or telephone. Happy knitting!

02.03.2017 - 08:49

Georgiana wrote:

Hi I hope you can help me. I've reached the point where you attach the shawl colour and continue stitching the right front piece but I'm finding the pattern hard to understand. At what point do I turn to continue the front right part of the garment? Is it after I attach the shawl collar ? I feel like the pattern is telling me to continue the entire garment (185 stitches) but obviously this is not correct as it splits to left and right side of the cardigan.

27.02.2017 - 19:52

DROPS Design answered:

Dear Georgiana, when collar is done, work right shoulder on back piece from RS beg from sleeve (=in larger size): Work the first 14 sts like the first st in the pattern as before, A.6 as before (= 6 sts), repeat A.5 over the next 60 sts (= in total 5 times in width) (= sleeve/shoulder on back piece is now done), work now the first 12 tr from the shawl collar, A.4 over the next 7 tr, and finish with 9 sts like the first st in the pattern (= front band) = repeat A.5 in total 6 times in width (= 108 sts). Happy crocheting!

28.02.2017 - 08:53