DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7260.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS Children 27-13
DROPS Design: Mynstur nr z-041-bn
Garnflokkur A + A eða C
----------------------------------------------------------
Stærð: 3/4 - 5/6 - 7/8 - 9/10 - 11/12 ára
Stærð í cm: 98/104 - 110/116 - 122/128 - 134/140 - 146/152
Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
150-150-200-200-250 gr nr 100, natur
DROPS KID-SILK frá Garnstudio
75-75-75-100-100 gr nr 01, natur

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l x 34 umf með garðaprjóni með 1 þræði af hvorri tegund (= 2 þræðir) verði 10 x 10 cm.
DROPS HEKLUNÁL NR 5 – fyrir snúru
----------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7260.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka á hringprjóna):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

ÚRTAKA:
Fækkið l innan við 4 l við miðju að framan (= innan við picotkant).
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið l á eftir 4 l þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.
Fækkið l á undan 4 l þannig: Prjónið 2 l slétt saman.

PICOTKANTUR (prjónaður fram og til baka):
HÆGRA FRAMSTYKKI:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sl þar til 4 l eru eftir, þær eru prjónaðar þannig: 2 l slétt saman, sláið uppá prjóninn, í hverja og eina af 2 síðustu l eru prjónaðar 2 l = 2 nýjar l á prjóni.
UMFERÐ 3 (= rétta): Takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, 1 l sl, steypið öftustu l á hægri prjón yfir fremstu l, nú hefur verið fækkað um 2 l – prjónið nú sl út umf.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið slétt.
Endurtakið umf 1 til 4.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sl þar til 4 l eru eftir, þær eru prjónaðar þannig: 2 l slétt saman, sláið uppá prjóninn, í hverja og eina af 2 síðustu l eru prjónaðar 2 l = 2 nýjar l á prjóni
UMFERÐ 2 (= ranga): Takið 1. l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, 1 l sl og steypið öftustu l á hægri prjón yfir fremstu l, fækkað hefur verið um 2 l – prjónið nú sl út umf.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið slétt.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið slétt.
Endurtakið umf 1 til 4.
--------------------------------------------------------

PEYSA:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.
Byrjið á öðru framstykkinu, fitjið upp l fyrir ermi og prjónið upp að öxl. Prjónið hitt framstykkið, tengið saman 2 framstykkin og prjónið niður yfir bakstykki.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið LAUST upp 44-46-50-52-54 l á hringprjóna nr 5 með einu þræði Kid-Silk og einu þræði Alpaca (= 2 þræðir) og prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan (1. umf = rétta). Prjónið picotkant yfir 4 síðustu l við miðju að framan (þ.e.a.s. fyrstu 4 l á prjóni).

LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
Þegar stykkið mælist 3-5-6-9-10 cm – passið að næsta umf sé prjónuð frá réttu, fækkið um 1 l innan við picotkant í byrjun umf – LESIÐ ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku í hverjum cm 24-24-27-28-29 sinnum til viðbótar. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 17-20-23-26-27 cm fitjið upp nýja l í lok umf í hlið fyrir ermi þannig: 5-4-4-4-4 l alls 5-7-9-9-11 sinnum og síðan 25-28-27-30-28 l 1 sinni. Eftir allar útaukningar og úrtökur eru 69-77-85-89-96 l á prjóni fyrir öxl/ermi.
Haldið áfram í garðaprjóni þar til stykkið mælist 30-34-38-42-44 cm. Setjið 1 prjónamerki = mitt ofan á öxl. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 2 cm frá prjónamerki, endið með 1 umf slétt frá röngu. Setjið allar l á þráð.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið eins og hægra stykki, nema spegilmynd, þ.e.a.s. að l er fækkað fyrir hálsmáli innan við picotkant í lok umf frá réttu (í stað byrjun umf frá réttu).

BAKSTYKKI:
Prjónið inn vinstra framstykki á hringprjóna (= sl frá réttu), fitjið upp 16-16-18-18-20 nýjar l (= aftan við hnakka) og prjónið inn hægra framstykki á hringprjóna (= sl frá réttu) = 154-170-188-196-212 l.
NÚ ER STYKKIÐ MÆLT FRÁ PRJÓNAMERKI Á ÖXLUM.
Haldið áfram í garðaprjóni fram og til baka.
Þegar stykkið mælist 9-9-9-10-10 cm fellið af erma-l þannig: Fellið af í byrjun á hverri umf í hvorri hlið þannig: 25-28-27-30-28 l 1 sinni og 5-4-4-4-4 l alls 5-7-9-9-11 sinnum = 54-58-62-64-68 l á prjóni. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist ca 30-34-38-42-44 cm – leggið stykkið saman tvöfalt við prjónamerki á öxlum og athugið að framstykki og bakstykki séu jafn löng – fellið síðan laust af.

FRÁGANGUR:
Saumið hliðar- og ermasauma kant í kant yst í lykkjubogana.

SNÚRA:
Þar sem l var fækkað við hálsmál á hægra framstykki er hekluð snúra með 1 þræði af hvorri tegund með heklunál nr 5 þannig: 1 fl í hornið, heklið síðan ll í ca 20-25 cm, snúið við og heklið 1 kl í hverja ll til baka. Heklið eina snúru til viðbótar alveg eins utanverðu við sauminn á vinstri hlið – passið uppá að snúran verði í sömu hæð og á framstykki. Heklið síðan 1 alveg eins snúru innan við sauminn á hægri hlið þar sem úrtaka fyrir hálsmáli byrjar á vinstri hlið – passið uppá að snúran verði í sömu hæð á öllum stöðum.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 27-13

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (46)

country flag Sofie Birgitta Rolfsdotter Åberg wrote:

Hej. Ska omslaget stickas på varv tre när picotkantan stickas? Då ökas ju en maska på de 4 varven.

11.03.2021 - 08:09

DROPS Design answered:

Hej Sofie. Du börjar med 4 maskor, sedan får du 2 nya maskor på varv 2, minskar 2 maskor på varv 3 så att du återigen har 4 maskor på varv 4. Mvh DROPS Design

11.03.2021 - 09:53

country flag Jayeeta Chattopadhyay wrote:

Nice pattern

12.02.2021 - 03:58

country flag Jayeeta Chattopadhyay wrote:

Should I decrease the neck first and then do the picot edge or vice versa while doing the left front piece?

12.02.2021 - 03:58

DROPS Design answered:

Dear Mrs Chattopadhyay, on right front piece, you decreased for neck after the stitches on picot edge (beg of row from RS), on left front piece, picot edge is worked at the end of row from RS, you will decrease before the sts on picot edge. Happy knitting!

12.02.2021 - 08:05

country flag Yvonne wrote:

Hallo ik heb geen rondbrei naald kan je de panden ook gewoon op breinaalden breien dan afhechten en later aan het achterland naaien? Bestaat het achterland ook met aangebreide mouwen? Alvast mijn dank

12.10.2019 - 21:36

DROPS Design answered:

Dag Yvonne,

Er wordt een rondbreinaald geadviseerd omdat je (met name in de grotere maten) op een gegeven moment veel steken op de naald hebt, vanwege de aangebreide mouw. Als het aantal steken geen probleem is kan het vest ook prima op rechte naalden gebreid worden.

15.10.2019 - 18:36

country flag Beatriz wrote:

Serait-il possible d'avoir d'autres modèles de boléro, exemple pour danseuse de ballet? Merci

21.09.2019 - 13:13

DROPS Design answered:

Bonjour Beatriz, vous trouverez ici tous nos modèles de boléros et là tous nos modèles de cache-coeurs. Bon tricot!

23.09.2019 - 08:44

country flag Marijke Jaspers wrote:

U geeft als steekverhouding 17 steken 34 naalden dit is 10x10. Als ik, voor het vestje dat ik wil maken nl 134/140, 52 steken opzet, kom ik niet aan 38 cm. 52 : 17 = 3x10 = 30 cm. Waar denk ik verkeerd? Of moet ik meer steken opzetten?

07.05.2019 - 19:21

DROPS Design answered:

Dag Marijke,

Het (rechter) voorpand met overslag beslaat niet de volledige breedte van het vest. Aan de onderkant van het achterpand (wat wel over de hele breedte is) heb je 64 steken.

22.05.2019 - 14:02

country flag Marijke Jaspers wrote:

Met welk Drops garen kan ik dit vestje breien als ik niet met het voorgestelde garen wil werken? Graag een garen dat gewoon in de wasmachine gewassen kan worden

03.05.2019 - 07:24

DROPS Design answered:

Dag Marijke,

Je zou bijvoorbeeld Big Merino kunnen gebruiken. Dit komt ongeveer overeen met de aanbevolen garendikte (C) en kun je in de machine wassen (wel even de wasvoorschirften lezen.)

05.05.2019 - 17:45

country flag Beatriz wrote:

Bonjour, je tricote l\'échantillon avec une aiguille numéro 5 comme suggéré mais je seulement 5 centimètres de tricot. ce n\'est pas normal, quoi faire s\'il vous plaît, merci

02.04.2019 - 11:21

DROPS Design answered:

Bonjour Beatriz, tricotez-vous bien avec 1 fil Alpaca et 1 fil Kid-Silk en même temps (= 2 fils)? Vous devez bien avoir 17 m en largeur et 34 rangs au point mousse (= 17 côtes mousse) en hauteur. Bon tricot!

02.04.2019 - 12:40

country flag Finette wrote:

Bonjour j’ai fait les 2 devants et je ne comprends pas comment relier et faire le dos.. vos explications ne sont pas très claires pour mon petit niveau de tricoteuse.. pouvez vous m’aider? J

28.01.2019 - 17:51

DROPS Design answered:

Bonjour Finette, vous allez rassembler les deux devants, sur l'endroit: tricotez les mailles du devant gauche, montez les mailles de l'encolure dos et tricotez ensuite les mailles du devant droit. Continuez maintenant au point mousse, vous rabattre ensuite les mailles des manches et terminez le dos. cette vidéo montre comment monter les mailles à la fin du devant gauche, quand toutes les mailles sont montées, tricotez les mailles du devant droit. Bon tricot!

29.01.2019 - 08:42

country flag Jany wrote:

Bonjour le cache cœur je voudrais savoir si l'on peut le faire avec des aiguilles normales si oui pourrais je avoir l’explication pour du 8 ans merci beaucoup

02.12.2018 - 08:40

DROPS Design answered:

Bonjour Jany, le cache-coeur se tricote en allers et retours sur aiguille circulaire pour avoir suffisamment de place pour y loger toutes les mailles. Vous pouvez tricoter sur aiguilles droites, mais vos mailles seront plus serrées, pensez à bien conserver la bonne tension. Vous trouverez ici plus d'informations sur les aiguilles circulaires. Bon tricot!

03.12.2018 - 09:28