DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
DROPS SS24

Alvina

Prjónuð hringpeysa með blaðamynstri og garðaprjóni úr DROPS BabyAlpaca Silk og DROPS Kid-Silk. Stærð börn 3-12 ára

DROPS Children 27-12
DROPS Design: Mynstur nr bs-008-bn
Garnflokkur A + A eða C
----------------------------------------------------------
Stærð: 3/5 - 6/8 - 9/10 - 11/12 ára
Stærð í cm: 98/110 - 116/128 - 134/140 - 146/152
Efni:
DROPS BABY ALPACA SILK frá Garnstudio
200-200-250-250 g nr 8112, ísblár
DROPS KID SILK frá Garnstudio
75-100-100-125 g nr 07, ljós gráblár

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l x 34 umf með garðaprjóni með 1 þræði af hvorri tegund (= 2 þræðir) verði 10 x 10 cm.
----------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g

Leiðbeiningar um mynstur

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.2. Sjá mynsturteikningu fyrir rétta stærð.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.
----------------------------------------------------------

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 8 l með 1 þræði BabyAlpaca Silk og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir) og skiptið þeim niður á 4 sokkaprjóna nr 5 (= 2 l á hverjum prjóni). Prjónið eftir A.1 (= 8 mynstureiningar af A.1 á breidd). Þegar fyrstu 15-15-19-19 umf í A.1 hafa verið prjónaðar, á byrjun umf að færast til um 1 l til vinstri, fyrst í annarri hverri umf, síðan í 4. hverri umf – þ.e.a.s. byrjun umf er alltaf nákvæmlega á undan fyrsta uppslættinum í mynstri svo að hann verði eins ósýnilegur og mögulegt er. Byrjun umf kemur að lokum að vera í miðju á fyrstu mynstureiningu á A.1.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Skiptið yfir á hringprjóna eftir þörf. Þegar A.1 hefur verið prjónað einu sinni á hæð eru 144-144-176-176 l í umf, stykkið mælist ca 22-22-28-28 cm að þvermáli. Setjið 8 prjónamerki í stykkið, setjið 1. prjónamerki í 1. l í umf, setjið síðan 7 prjónamerki í l með 17-17-21-21 l á milli merkja, prjónamerkin eru staðsett beint yfir horni á hverju blaði.
Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT í fyrstu umf er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerkin. Aukið út með því að slá uppá prjóninn hvoru megin við l með prjónamerki – í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn br svo að ekki myndist gat = 16 l fleiri í umf. Aukið svona út í annarri hverri umf alls 1-2-1-2 sinnum = 160-176-192-208 l. Haldið áfram í garðaprjóni þar til stykkið mælist 26-28-32-34 cm að þvermáli.

Í næstu umf er prjónað sl, JAFNFRAMT er fækkað um allar l á milli 2. og 3. prjónamerkis og 7. og 8. prjónamerkis+ 1 l hvoru megin við prjónamerki fyrir handveg (= fellið af 23-25-27-29 l í hvorri hlið). Næsta umf er prjónuð br, JAFNFRAMT eru fitjaðar upp 23-25-27-29 nýjar (lausar) l yfir þær l sem fækkað var á milli 2. og 3. prjónamerkis og á milli 7. ig 8. prjónamerkis. Þegar allar l hafa verið fitjaðar upp eru 160-176-192-208 l á prjóni.

Prjónið síðan þannig: Prjónið A.2 yfir allar l, JAFNFRAMT er aukið út um 1 l hvoru megin við l með prjónamerki í hverri umf með stjörnu (= 16 l hver útauknings umferð). Prjónið A.2 2 sinnum á hæð = 288-304-320-336 l. Stykkið mælist ca 56-58-62-64 cm að þvermáli.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Prjónið síðan þannig: Haldið eftir l á milli 2. og 4. prjónamerkis á prjóni, aðrar l eru settar á þráð = 72-76-80-84 l á prjóni. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – fram og til baka yfir þessar l, JAFNFRAMT í lok hverrar umf eru settar 2 síðustu l á þráð (þær eru ekki prjónaðar, snúið). ATH! Haldið áfram með útaukningar hvoru megin við 3. prjónamerki í 4. hverri umf. Haldið áfram þar til 32 l eru eftir á prjóni. Setjið síðustu 32 l á þráð.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Setjið l á milli 6. og 8. prjónamerkis á hringprjóna nr 5 og prjónið alveg eins og vinstra framstykki.

Prjónið síðan allar l af þræði slétt frá réttu til baka inn á hringprjóna nr 5 – á milli hvers skiptis sem l eru settar á þráðinn í hlið er þráðurinn tekinn upp og snúið áður en hann er settur á prjóninn (þ.e.a.s. á milli annarrar hverrar l, þetta er gert til að koma í veg fyrir göt í skiptingunum) = ca 352-376-400-424 l.
Prjónið 4 umf garðaprjón. Fellið laust af með sl frá réttu þannig: Prjónið 1 l sl, ((** stingið inn hægri prjóni á milli 2 fyrstu l á vinstri prjón ((þ.e.a.s. á milli l á prjóni, ekki í gegnum lykkjurnar), sláið uppá prjóninn um hægri prjón, dragið uppsláttinn fram á milli l og setjið uppsláttinn á vinstri prjón **, endurtakið frá **-** 2 sinnum til viðbótar (= 3 nýjar l á vinstri prjón). * Prjónið fyrstu l á vinstri prjóni slétt, steypið fyrstu l af hægri prjóni yfir síðustu l sem var prjónuð *)), endurtakið frá *-* alls 6 sinnum og endurtakið frá ((-)) meðfram allri peysunni þar til 1 l er eftir, klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum síðustu l.

ERMI:
Ermin er prjónuð í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 30-30-32-34 l á sokkaprjóna nr 5 með 1 þræði BabyAlpaca Silk og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 8 umf garðaprjón, síðan er prjónað sléttprjón. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi. Þegar stykkið mælist 6 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki undir ermi. Aukið svona út með 4-3½-3½-4 cm millibili alls 7-9-10-10 sinnum = 44-48-52-54 l. Prjónið þar til stykkið mælist 35-40-44-48 cm, fellið af. Prjónið aðra ermi.


FRÁGANGUR:
Saumið ermar í.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 21.12.2016
Leiðrétting í A.1 (allar stærðir)

Mynstur

symbols = sl
symbols = br
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
symbols = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = 2 l slétt saman
symbols = útauknings umferð
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Alvina

Jacke Alvina, Germany

Alvina

Diana, Russian Federation

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 27-12

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (71)

country flag Sharon wrote:

Im looking for an adult size pattern for Alvina 27-12 please

13.04.2024 - 09:21

DROPS Design answered:

Dear Sharon, we are sorry, but we don't have the exact same pattern in adult size, however, HERE we have our selection of knitted and crocheted cirlcle jackets, where you might find something you like. Happy Crafting!

14.04.2024 - 07:48

country flag Sharon wrote:

Is there a pattern for adults for this pattern drops 27-12? pease

13.04.2024 - 07:51

DROPS Design answered:

Dear Sharon, you can find here our circle jackets with leaf pattern for women: https://www.garnstudio.com/search.php?action=search&c=women-circle-jackets&texture=leaf+pattern&lang=en. Happy knitting!

14.04.2024 - 23:09

country flag Paarnannguaq Zeeb wrote:

Hej Jeg er igang med at lave 6-8 år, men da jeg er færdig med forstykkerne og har taget ud hver mellem 2.maske mangler jeg stadigvæk omkring 40 stykker masker (jeg fik ikke 372 masker tilsidst) Hvad gør jeg forkert??? (Dvs. jeg har kun taget 44 masker ud da jeg strikkede maskerne ud fra tråden)

05.05.2023 - 15:23

DROPS Design answered:

Hei Paarnannguaq Litt usikker på hvor det blir feil hos deg, men har du husket å øke på hver side av den 3.merketråden på hver 4.pinne? mvh DROPS Design

08.05.2023 - 13:00

country flag Marine wrote:

Ce qui est assez compliqué dans cette video , c'est que vous ne mettez pas de marqueur de début on voit un fil vert et tout a coup un fil rouge et on ne sait pas quand celui ci a été mis . la dame commence le rang 17.... 2 mailles avant le fil vert ?? ne fallait il pas décaler le début des tours d'1 m à gauche d'abord ....on voit pas sur la video la rangé 16 !! merci de m'eclairer

23.10.2022 - 08:30

DROPS Design answered:

Bonjour Marine, le tour 17 commence au time code 14.35 (il est affiché en haut à droite); on commence par tricoter 1 maille endroit, puis le début du tour est décalé ici, juste avant le jeté, et on continue le diagramme comme indiqué. Bon tricot!

24.10.2022 - 10:37

country flag Lorraine STEPHENS wrote:

Need help understanding the left front itpiece in the drops 27-12 Alvina pattern. It says to keep sts between 2nd & 4th marker on needle and slip remaining sets on st holder = 80 sts on needle. This whole set of instructions is very confusing to me. Could someone explain it to me in more detail or is there a video that could show me

11.05.2022 - 02:20

DROPS Design answered:

Dear Mrs Stephens, to create the desired rounded shape at the top and bottom of each front piece, you will now work short rows over the stitches between the markers, ie keep the 80 sts on needle and work as before, but work 2 sts less at the end of every row (continue increasing on each side of the 3rd (left front piece)/7th (right front piece) marker on every 4th row) until 32 sts remain, put aside. After both front pieces are worked, you will pick up stitches all around the whole jacket: circle + front pieces - ca 400 sts and bind off with a picot edge. Happy knitting!

11.05.2022 - 08:42

country flag Cornelia Reinhard wrote:

Hello, Does this pattern exist in Spanish and/or German¿? And how can i get them¿? Thanks a lot and in advance of your reply Conni

25.04.2022 - 15:49

DROPS Design answered:

Dear Cornelia, you can select the language in a box under the photos of the pattern; it will tell you if the pattern has been translated to a specific language or not. In this case, the pattern is translated both in Spanish and German. Happy knitting!

25.04.2022 - 21:21

country flag Christiane wrote:

Setzt man folgendes wieder beim 1. Markierer an, oder strickt man das nach dem 2. Vorderteil einfach in Runden weiter? Und müsste es in der Klammer nicht nach jeder 2. M heißen? „Dann alle stillgelegten M in einer Hin-R re auf die Rundnadel Nr. 5 zurückstr, dabei jedes Mal zwischen den Übergängen den Querfaden auffassen und verschränkt auf die Nadel legen (d.h. nach jeder 2. R, um ein Loch in den Übergängen zu vermeiden)“

15.04.2022 - 17:14

DROPS Design answered:

Liebe Christiane, man kann nach dem 2. Vorderteil in Runden weiterstricken - und richtig, es sollte " jede 2. Masche" heißen, die Anleitung wird korrigiert, danke für den Hinweis. Viel Spaß, beim stricken!

19.04.2022 - 09:16

country flag Hirth wrote:

Wenn ich zwischen dem 2 und 3 Markierer Und zwischen dem 7und 8 Markierer abkette und später wieder anschlage wird das dich asymmetrisch? Das ganze sieht ziemlich schief aus ? Was mache ich denn falsch

01.03.2022 - 18:24

DROPS Design answered:

Liebe Frau Hirth, so bekommen Sie 2 "Löcher" für die Ärmel, dh Sie sollen die Maschen zwischen den Markierungen abketten und dann sofort bei der nächsten Runde diese Maschen wieder anschlagen. Die Armausschnitte sollen wie in der Maßskizze aussehen, dh mehr Maschen unten als oben am Hals. Viel Spaß beim stricken!

02.03.2022 - 09:24

country flag Marimar wrote:

Bonjour, Je suis en train de tricoter ce joli modèle en taille 3-5 ans . Mais je ne comprends pas les indications suivantes : "décaler le début des tours d'1 m à gauche d'abord tous les 2 tours, puis tous les 4 tours – c'est-à-dire que le début des tours est toujours avant le 1er jeté du diagramme pour qu'il soit moins visible. Le début des tours à la fin sera au milieu du 1er motif de A.1. " Pouvez vous m'éclairer ? Merci beaucoup

13.02.2022 - 21:10

DROPS Design answered:

Bonjour Marimar, pour que les "raccords" entre les tours dans la partie point mousse, on va commencer les tours en décalant le tour au niveau du 1er jeté de A.1 - regardez la vidéo, au time code 14:36 environ, on va montrer cette transition. Bont ricot!

14.02.2022 - 10:36

country flag Angeline Loh wrote:

Hi there thank you for the beautiful pattern. I have now completed both fronts and knitted right around incorporating the stitches on stitch holders. I watched the video you provided another knitter and picked up, twisted and k2tog so there were no increases when adding the twisted stitches. However I have gone right round and now can't get 376 stitches. I am 44 stitches short. Even if I did not do k2tog I can't get 44 sts more. Please help! How do I get from 304 before the fronts to 376?

17.01.2022 - 22:44

DROPS Design answered:

Dear Mrs Loh, you should pick up these stitches as explained in the video, but they should be worked as stitches to get the correct number of sts and avoid the sides on front piece being tight, ie you should pick up approx. 1 st between each set of 2 sts a total of 18 times then you should get the correct number of sts: 152+76 sts on each front piece + 18 sts picked up on each side of each front piece = 376 sts. Happy knitting!

19.01.2022 - 09:59