DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24

Crystal Bright Cardigan

Prjónuð peysa úr DROPS BabyAlpaca Silk með hringlaga berustykki og áferðamynstri á berustykki. Stærð S - XXXL.

DROPS 171-52
DROPS Design: Mynstur nr bs-104
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS BABYALPACA SILK frá Garnstudio
350-400-450-450-500-550 g nr 1760, ljós gráfjólublár

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 + 60 eða 80 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 l x 32 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 2,5 – fyrir kanta.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.
DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 521: 8 st í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Prjónið frá réttu þannig: Prjónið 2 fyrstu l í umf slétt (kanturinn á að rúllast aðeins inn), 2 l br, 2 l sl, 2 l br, 2 l sl, 2 l br = 12 kantlykkjur að framan.

VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Prjónið frá réttu: 2 l br, 2 l sl, 2 l br, 2 l sl, 2 l br og 2 l sl síðustu l við miðju að framan (kanturinn á að rúllast aðeins inn) = 12 kantlykkjur að framan.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5 (veljið mynstur fyrir rétta stærð). Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA-1:
Til þess að reikna út hversu oft eigi að fækka l í umf, teljið fjölda l í umf (t.d. 277 l), mínus kanta að framan (t.d. 24 l) og deilið með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 41) = 6,2. Þ.e.a.s. í þessu dæmi þá eru prjónaðar til skiptis ca 5. og 6. hver l saman. Ekki er l fækkað yfir kanta að framan.

ÚRTAKA-2:
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið l á undan prjónamerki A og C þannig: Prjónið 2 l slétt saman á undan prjónamerki (= 1 l færri).
Fækkið l á eftir prjónamerki B og D þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir (= 1 l færri).

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 l með því að slá1 sini uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat (útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni).

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = Byrjið frá réttu, prjónið 6 kantlykkjur að framan eins og áður, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið 2 l br saman og prjónið þær kantlykkjur sem eftir eru eins og áður.
Í næstu umf (= ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
Stærð S: 3, 10, 17, 24, 31, 38, 45 og 50 cm.
Stærð M: 3, 10, 17, 24, 31, 38, 45 og 52 cm.
Stærð L: 4, 11, 18, 25, 32, 39, 46 og 54 cm.
Stærð XL: 4, 11, 19, 26, 34, 41, 49 og 56 cm.
Stærð XXL: 3, 11, 19, 27, 35, 43, 51 og 58 cm.
Stærð XXXL: 4, 12, 20, 28, 36, 44, 52 og 60 cm.

LEIÐBEININGAR-1:
Þær 12 kantlykkjur að framan í hvorri hlið eru prjónaðar eins og útskýrt er frá að ofan til loka. Þegar stendur í leiðbeiningu, t.d. prjónið 1 umf slétt frá réttu eða 1 umf brugðið frá röngu á það við um hinar l í umferðinni (kantlykkjur að framan halda áfram eins og áður).

LEIÐBEININGAR-2:
Ef óskað er eftir að hafa peysuna þéttari í hálsmáli er hægt að halda áfram með stroff í A.5 að óskuðu máli, en til að koma í veg fyrir að hálsmálið verði of vítt þá er l fækkað jafnt yfir í br einingunum.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, neðan frá og upp.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 277-301-325-355-391-421 l (meðtaldar 12 kantlykkjur við miðju að framan í hvorri hlið) á hringprjóna nr 3 með BabyAlpaca Silk. Skiptið yfir á hringprjóna nr 2,5 og prjónið 1 umf br frá röngu. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 12 l HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN – sjá útskýringu að ofan, * 1 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* þar til 13 l eru eftir á prjóni og endið með 1 l sl og 12 l VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN – sjá útskýringu að ofan. Haldið svona áfram með stroff í 3-3-3-4-4-4 cm (passið að næsta umf sé prjónuð frá réttu og munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan). Skiptið yfir á hringprjóna nr 3 og prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.1 með 12 kantlykkjum að framan í hvorri hlið eins og áður – JAFNFRAMT í 1. umf (= rétta) er fækkað um 41-45-53-59-63-65 l jafnt yfir – LESIÐ ÚRTAKA-1 = 236-256-272-296-328-356 l. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka er haldið áfram í sléttprjóni og 12 kantlykkjur að framan í hvorri hlið eins og áður. Þegar stykkið mælist 8-8-8-9-9-9 cm setjið 4 prjónamerki í stykkið þannig: Fyrsta prjónamerkið er sett á eftir fyrstu 34-35-36-36-38-39 l í umf (= prjónamerki A), annað prjónamerki er sett á eftir næstu 62-70-76-88-100-112 l (= prjónamerki B), þriðja prjónamerki er sett á eftir næstu 44-46-48-48-52-54 l (= prjónamerki C) og fjórða prjónamerkið er sett á eftir næstu 62-70-76-88-100-112 l (= prjónamerki D), nú eru 34-35-36-36-38-39 l á prjóni á eftir síðasta prjónamerki. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu.
Í næstu umf frá réttu er l fækkað á undan prjónamerki A og C og á eftir prjónamerki B og D – LESIÐ ÚRTAKA-2 (= 4 l færri). Fækkið l svona í 8. hverri umf alls 5-5-5-4-4-4 sinnum = 216-236-252-280-312-340 l. Þegar stykkið mælist 22-22-23-23-23-23 cm aukið út á undan prjónamerki A og C og á eftir prjónamerki B og D – LESIÐ ÚTAUKNING (= 4 l fleiri). Aukið svona út í 6.-6.-6.-8.-8.-8. hverri umf alls 5-5-5-4-4-4 sinnum = 236-256-272-296-328-356 l. Þegar stykkið mælist 32-34-35-35-35-35 cm er næsta umf prjónuð frá röngu þannig: Prjónið fyrstu 60-65-68-74-81-87 l eins og áður (= vinstra framstykki), fellið af 10-10-12-12-14-16 l fyrir handveg, prjónið næstu 96-106-112-124-138-150 l eins og áður (= bakstykki), fellið af 10-10-12-12-14-16 l fyrir handveg og prjónið þær 60-65-68-74-81-87 l sem eftir eru eins og áður. Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Ermin er prjónuð í hring á sokkaprjóna neðan frá og upp, skiptið yfir á stutta hringprjóna eftir þörf.
Fitjið upp 46-48-50-52-56-58 l á sokkaprjóna nr 3 með BabyAlpaca Silk. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 2,5 og prjónið mynstur í hring eftir mynsturteikningu A.1. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka er aftur skipt yfir á sokkaprjóna nr 3. Prjónið 1 umf slétt. Næsta umf er prjónuð þannig: 1 l sl, 2 l br, prjónið sléttprjón þar til 3 l eru eftir í umf, prjónið 2 l br og 1 l sl. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 6 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við miðju 8 l mitt undir ermi – LESIÐ ÚTAUKNING (= 2 l fleiri). Aukið svona út alls 15-19-23-24-25-26 sinnum í stærð S: Í 8. hverri umf, í stærð M: Í 6. hverri umf, í stærð L: Í 5. hverri umf, í stærð XL: Til skiptis í 4. og 5. hverri umf, í stærð XXL: Í 4. hverri umf og í stærð XXXL: Til skiptis í 3. og 4. hverri umf = 76-86-96-100-106-110 l. Þegar stykkið mælist 43-43-42-41-39-37 cm (ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis) fellið af miðju 10-10-12-12-14-16 l undir ermi = 66-76-84-88-92-94 l á prjóni.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið inn ermarnar á sama hringprjón nr 3 og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg (þetta er gert án þess að prjóna l) = 348-388-416-448-484-512 l. Prjónið 2 umf slétt frá réttu – LESIÐ LEIÐBEININGAR-1 og fækkið JAFNFRAMT um 1-13-13-3-11-11 l jafnt yfir – LESIÐ ÚRTAKA-1 = 347-375-403-445-473-501 l. Prjónið 1 umf br frá röngu.
Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 12 kantlykkjur að framan, prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.2 þar til eftir eru 13 l á prjóni (veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð), prjónið fyrstu l í A.2 (þessi l fylgir mynstrinu þannig að mynstrið byrji og endi alveg eins í hvorri hlið, en ekki er l fækkað í þessari l) og endið með 12 kantlykkjur að framan. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka eru 301-325-349-385-409-433 l í umf. Prjónið 1 umf slétt frá réttu og fækkið JAFNFRAMT um 24-20-16-24-20-16 l jafnt yfir = 277-305-333-361-389-417 l í umf. Prjónið 1 umf br frá röngu.
Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 12 kantlykkjur að framan, prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.3A 1 sinni (= 14 l), endurtakið A.3B yfir næstu 224-252-280-308-336-364 l (= 8-9-10-11-12-13 mynstureiningar 28 l), prjónið A.3C 1 sinni (= 15 l) og endið með 12 kantlykkjum að framan. Haldið svona áfram með mynstur og fækkið l eins og útskýrt er í mynstri. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka (fylgið mynstri fyrir rétta stærð) eru 240-264-288-312-336-360 l í umf.
Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 12 kantlykkjur að framan, A.4A 1 sinni (= 13 l), endurtakið A.4B yfir næstu 192-216-240-264-288-312 l (= 8-9-10-11-12-13 mynstureiningar 24 l), prjónið A.4C 1 sinni (= 11 l) og endið með 12 kantlykkjur að framan. Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka eru 205-225-245-265-285-305 l í umf. Prjónið 1 umf slétt frá réttu og fækkið JAFNFRAMT um 0-8-4-12-8-16 l jafnt yfir = 205-217-241-253-277-289 l í umf. Næsta umf er prjónuð frá röngu þannig: 12 kantlykkjur að framan, prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.5 þar til 13 l eru eftir á prjóni (veljið mynstur fyrir rétta stærð = 15-16-18-19-21-22 mynstureiningar 12 l), prjónið fyrstu l í A.5 (þessi l fylgir mynstri, en ekki er l fækkað yfir þessa l) og endið með 12 kantlykkjur að framan. Haldið svona áfram með mynstur, en í umf merktri með ör í mynstri er skipt yfir á hringprjóna nr 2,5 áður en mynstrið heldur áfram. Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka eru 115-121-133-139-151-157 l í umf – LESIÐ LEIÐBEININGAR-2 og fellið af með sl frá réttu. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 10.01.2017
BERUSTYKKI: ... Prjónið 1 umf slétt frá réttu og fækkið JAFNFRAMT um 0-8-4-12-8-16 l jafnt yfir = 205-217-241-253-277-289 l í umf. Næsta umf er prjónuð frá röngu þannig: 12 kantlykkjur að framan, prjónið mynstur eftir teikningu A.5 þar til 13 l eru eftir á prjóni (veljið mynstur fyrir rétta stærð = 15-16-18-19-21-22 mynstureiningar 12 l), prjónið fyrstu l í A.5 (þessi l fylgir mynstri, en ekki er l fækkað yfir þessa l) og endið með 12 kantlykkjum að framan.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = br frá réttu, sl frá réttu
symbols = engin l, hoppið yfir þessa rúðu
symbols = prjónið 1 l br framan í og aftan í sömu l (= 1 l fleiri)
symbols = 1 KÚLA: Prjónið 1 l sl til skiptis framan og aftan í sömu l þar til það eru 5 l, snúið við og prjónið 4 umf sléttprjón fram og til baka yfir þessar 5 l síðan: steypið annarri l á hægri prjón yfir síðustu l sem var prjónuð *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum = 1 l eftir.
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
symbols = 2 l slétt saman
symbols = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = 2 l br saman
symbols = setjið 1 l á kaðlaprjón fyrir aftan stykkið, 2 l sl, 1 l br af kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 l á kaðlaprjón fyrir framan stykkið, 1 l br, 2 l sl af kaðlaprjóni
symbols = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir (= 2 l færri)
symbols = setjið 4 l á kaðlaprjón fyrir aftan stykkið, 2 l slétt saman, 2 l snúnar slétt saman af kaðlaprjóni, 2 l br saman af kaðlaprjóni (= 3 l færri)
symbols = setjið 2 l á kaðlaprjón fyrir framan stykkið, 2 l br saman, 2 l slétt saman, 2 l snúnar slétt saman af kaðlaprjóni (= 3 l færri)
symbols = prjónið 3 l sl, steypið fyrstu l sem prjónuð var yfir hinar tvær þannig að l liggi utan um þessar l (= 1 l færri)
symbols = setjið 1 l á kaðlaprjón fyrir framan stykkið, 1 l sl, 1 l sl af kaðlaprjóni
symbols = setjið 1 l á kaðlaprjón fyrir aftan stykkið, 1 l sl, 1 l br af kaðlaprjóni
symbols = setjið 1 l á kaðlaprjón fyrir framan stykkið, 1 l br, 1 l sl af kaðlaprjóni
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 171-52

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (20)

country flag Anne BERNARD wrote:

Bonjour Je vois dans ce modèle qu'il y une rectification au niveau de l'empiecement .Est ce que les explications ont été rectifiées ou il faut en tenir compte? Merci d'avance

25.03.2024 - 13:07

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Bernard, tant que vous avez imprimé les explications après la date de la correction, les explications en ligne sont justes, ces corrections ne s'appliquent que si vous aviez imprimé avant cette date. Bon tricot!

02.04.2024 - 09:33

country flag ANA ABAD wrote:

Al inicio de las mangas, cuando dice que hay que aumentar un punto a cada lado de los 8 puntos centrales BAJO LA MANGA ¿a qué se refiere? No sé si es a los 8 puntos centrales de los 46 que hay montados, o que tengo que aumentar antes y después de los 4 puntos de los bordes de la manga, ya que no estoy tejiendo en circular. Gracias

01.03.2023 - 14:18

DROPS Design answered:

Hola Ana, si no estás trabajando en circular, son los 4 pts a cada lado de los bordes de la manga (donde estaría la costura). Ten en cuenta que, si estás trabajando de ida y vuelta, tienes que trabajar 1 pt orillo a cada lado de la manga (los 4 pts a cada lado no incluyen este pt orillo).

05.03.2023 - 19:04

country flag Hillary wrote:

Have successfully knitted a few of your designs before but can\'t remember, do the measurements refer to the garment or the person? Also, how well does the alpaca yarn hold its shape? Thank you!

03.06.2022 - 14:12

DROPS Design answered:

Dear Hillary, measurements in the chart refer to the finished garment - read more here; read more about the yarn and its characteristics here - feel free to use our yarn converter if desired, your DROPS Store can also help you finding the best matching yarn - even per mail or telephone. Happy knitting!

03.06.2022 - 16:04

country flag Jean wrote:

On row 12 of A3C I find that I have one stitch too many. I re-did row 11 to make sure that I had not made a mistake there. Please help. Thank you for your wonderful patterns.

01.03.2022 - 17:59

DROPS Design answered:

Dear Jean, in row 11: P2, slip 2 sts on cable needle in front of piece, P 1, K 2 from cable needle, P2, K3, pass first st worked over the other two so that st is around the last two sts on right needle (= 1 st dec), P2, slip 1 st on cable needle behind piece, K 2, P 1 from cable needle, P2. Row 12: K3, P2, K2, P2, K2, P2, K2. Happy knitting!

01.03.2022 - 18:19

country flag Fabienne Rodrigo wrote:

Bonjour! Je n'arrive pas à tomber juste au 15 è rang de À 2 en taille XXL. J'ai bien 445 mailles. Je commence par une maille seule en Jersey puis 12 mailles Jersey, 2 mailles ensemble, 12 mailles Jersey, 2 mailles ensemble mais à la fin il me reste 14 mailles au lieu de 13😭.J'ai essayé différentes combinaisons mais ça ne tombe jamais juste. Qu'est-ce que je ne fais pas bien? Merci d'avance

09.12.2021 - 20:40

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Rodrigo, tricotez ces 445 m (en taille XL - 473 en XXL) tout du long ainsi: 12 m de bordure devant, répétez 30 fois les 14 mailles de A.2, tricotez la 1ère maille de A.2 et terminez par 12 m de bordure devant (= 12+ 30x14 + 1+12=445). Au 7ème rang, terminez par 1 m end avant la bordure devant; lorsque vous avez 1 diminution au début de A.2. Au 15ème rang, répétez 30 x (2 m ens à l'end, 12 m end) et terminez par 1 m end = 12+30x13+1+12=415 m (vous avez diminué 30 m). Est-ce que cela peut vous aider?

10.12.2021 - 08:23

country flag Agáta Manasková wrote:

Píšete že lem je z lícové strany 1 hladce a 2 krát obratce, přitom na obrázku vidím že je to opačně?

21.02.2021 - 19:43

DROPS Design answered:

Dobrý den, Agáto, ano, je to přesně tak - lem tvoří 1 oko hladce, 2 obrace (z lícové strany). Podíváte-li se na fotku pozorně, odpovídá úplet právě tomuto rozvržení. Hodně zdaru! Hana

21.02.2021 - 21:20

country flag Helle Kjær Høybye wrote:

I afsnittet Bærestykket står der: Næste p strikkes således fra retsiden: 12 kantm, strik mønster efter diag A.2 til der er 13 m tilbage på p (vælg diag for rigtig str), strik første m i A.2 (denne m følger mønsteret så mønsteret starter og slutter ens i hver side, men der tages ikke ind i denne m) og afslut med 12 kantm. Når A.2 er strikket færdig er der 301-325-349-385-409-433 m på p.” Skal der tages ind og hvor meget pr. omgang- og hvor på omgangen?

24.11.2020 - 12:58

DROPS Design answered:

Hei Helle. Se på diagrammet i din størrelse. Der ser du at hver rapport av diagram A.2 starter med 14 masker og slutter med 12 masker. Uavhengig av hvilken størrelse du strikker så felles det 2 masker pr rapport av A.2. Strikker du f.eks str. S, strikkes diagram A.2 23 ganger, da er det felt 46 masker når A.2 er strikket ferdig i høyden. God Fornøyelse!

24.11.2020 - 13:44

country flag Gunilla wrote:

Hej! Jag är lite synsvag och hittar inte förklaring till zigzagmönstret i mitten av A1. Jag ser ju att det är ett hålmönster i koftan, men hur gör jag?

01.07.2019 - 10:42

DROPS Design answered:

Hej. Just det mönstret hittar du i A.3A, A.3B och A.3C. Om du bara följer mönstret och diagrammen så kommer du att få samma mönster som på bilden. Lycka till!

01.07.2019 - 11:43

country flag Maria wrote:

En el gráfico que tiene siete cuadritos horizontales y una línea diagonal que lo atraviesa, en las explicaciones que empieza por " deslizar 2 puntos...", me gustaría saber qué significa la "x" en 2pjdX. Sé que es 2 puntos juntos derecho. ¿Qué significa la X final?

08.04.2019 - 00:04

DROPS Design answered:

Hola Maria. Ha sido una errata. Ya esta corregido.

13.04.2019 - 20:26

Marlen wrote:

Hello, I am planning on knitting this cardigan and have one question: Given that it is knit out of alpaca and that alpaca will stretch, will this cardigan hold its shape over a long period of time? And are the measures given before or after blocking? Thank you very much and happy new year

31.12.2017 - 01:10

DROPS Design answered:

Dear Marlen, you can first make a swatch, then wash and block your swatch and check your tension as well as the measurment in chart. For any further individual assistance you are welcome to contact your DROPS store, even per mail or telephone. Happy knitting!

02.01.2018 - 11:03