DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4950.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

A Royal Embrace

Settið samanstendur af: Prjónaðri húfu, axlarskjóli og vettlingum úr DROPS Snow með áferðamynstri.

DROPS 171-18
DROPS Design: Mynstur nr ee-564
Garnflokkur E eða C + C
----------------------------------------------------------

HÚFA:
Stærð: Ein stærð
Höfuðmál: ca 54/56 cm

Efni:
DROPS SNOW frá Garnstudio
100 g litur nr 21, bláfjólublár

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 cm) NR 7 – eða þá stærð sem þarf til að 12 l x 16 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN (40 cm) NR 6 – fyrir stroff.

AXLARSKJÓL:
Stærð: Ein stærð
Mál:
Ummál að ofan ca 47 cm.
Ummál að neðan ca 180 cm.
Hæð ca 36 cm.

Efni:
DROPS SNOW frá Garnstudio
300 g litur nr 21, bláfjólublár

DROPS HRINGPRJÓNAR (40 og 60 cm) NR 8 – eða þá stærð sem þarf til að 11 l x 15 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN (40 cm) NR 7 – fyrir stroff.

VETTLINGAR:
Stærð: S - M/L

DROPS SNOW frá Garnstudio
100-100 g litur nr 21, bláfjólublár

DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 7 (Stærð S) eða NR 8 (Stærð M/L) – eða þá stærð sem þarf til að 12 l x 16 umf með sléttprjóni (Stærð S) eftir 11 l x 15 umf með sléttprjóni (Stærð M/L) verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 6 (Stærð S) eða NR 7 (Strl M/L) – fyrir stroff.

Í ALLT SETTIÐ:
450 g í báðar stærðir nr 21, bláfjólublár

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4950.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7.

PERLUPRJÓN:
UMFERÐ 1: * 1 l sl, 1 l br *, endurtakið frá *-*.
UMFERÐ 2: br yfir sl og sl yfir br.
Endurtakið umf 2.

ÚTAUKNING VIÐ MIÐJU AÐ FRAMAN/AFTAN:
Aukið út um 1 l hvoru megin við miðju 2 l að framan og að aftan. Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður slétt svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING (á við um tilfærslu á mynstri):
Aukið út um 1 l á undan eða á eftir prjónamerki með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður slétt svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA:
Fækkið l á eftir prjónamerki þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.
Fækkið l á undan prjónamerki þannig: Byrjið 2 l á undan prjónamerki og prjónið 2 l slétt saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf.

HÚFA:
Fitjið upp 62 l á hringprjóna nr 6 með Snow.
Prjónið 1 umf slétt. Prjónið síðan stroff í hring eftir teikningu A.1A (= 2 mynstureiningar 31 l). Þegar stroffið mælist 4 cm er næsta umf prjónuð eins og útskýrt er í mynsturteikningu A.1B = 60 l í umf. Skiptið yfir á hringprjóna nr 7 og prjónið mynstur í hring eftir A.2 (= 2 mynstureiningar 30 l). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka eru 12 l í umf. Prjónið 1 umf þar sem l eru prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 6 l eftir í umf. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Húfan mælist ca 24 cm ofan frá og niður.

-------------------------------------------------------

AXLARSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna ofan frá og niður.

AXLARSKJÓL:
Fitjið upp 56 l á stutta hringprjóna nr 7 með Snow.
Prjónið 1 umf slétt. Næsta umf er prjónuð þannig: 1 l br, * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* þar til 3 l eru eftir í umf, endið með 2 l sl og 1 l br.
Haldið svona áfram með stroff þar til stykkið mælist ca 12 cm (eða að óskaðri lengd). Skiptið yfir á hringprjóna nr 8 og prjónið næstu umf þannig (byrjun umf = í hlið): 3 l PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan (= yfir öxl), A.3A (= 8 l), 6 l sléttprjón (= framan), A.3B (= 8 l), 6 l perluprjón (= yfir öxl), A.3A (= 8 l, 6 l sléttprjón (= bak), A.3B (= 8 l) og 3 l perluprjón (= yfir öxl). Setjið 1 prjónamerki hvoru megin við allt A.3A/A.3B (prjónamerki er einungis notað til að merkja hvar A.3 byrjar og endar – látið prjónamerki fylgja með í stykkinu). Haldið svona áfram með mynstur og fækkið l eins og útskýrt er í A.3A/A.3B (l sem auknar eru út yfir axlir eru prjónaðar jafnóðum inn í perluprjón = 4 l hver útauknings umferð). JAFNFRAMT í fyrstu umf byrjar ÚTAUKNING VIÐ MIÐJU AÐ FRAMAN/AFTAN – sjá útskýringu að ofan (= 4 l fleiri í hverri útauknings umferð – útauknar l eru prjónaðar í sléttprjóni). Aukið svona út í annarri hverri umf alls 14 sinnum (eða að óskaðri lengd – nú eru eftir ca 5 cm að loka máli). Eftir alla útaukninu eru 168 l í umf.

STROFF:
Skiptið yfir á hringprjóna nr 7 og prjónið næstu umf þannig (útaukning hvoru megin við miðju 2 l að framan og að aftan halda áfram í annarri hverri umf til loka): * Prjónið sl yfir fyrstu/næstu 17 l og aukið út um 4 l yfir þessar l (= 21 l), prjónið 2 l br, 2 l sl, 2 l br yfir A.3, prjónið sl yfir næstu 18 l og aukið út um 2 l yfir þessar l (= 20 l), 2 l sl (= miðja að framan), prjónið sl yfir næstu 18 l og aukið út um 2 l yfir þessar l (= 20 l), prjónið 2 l br, 2 l sl, 2 l br yfir A.3 og prjónið sl yfir næstu 17 l og aukið út um 4 l yfir þessar l (= 21 l) *, endurtakið frá *-* einu sinni til viðbótar = 192 l í umf. Næsta umf er prjónuð þannig: 1 l sl, * 2 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-* þar til 3 l eru eftir í umf og endið með 2 l br og 1 l sl (stroffið kemur nú til með að halda fallega áfram yfir A.3 í skásettu línunni og yfir 2 l við miðju-l að framan og að aftan – l sem auknar eru út við miðju að framan og við miðju að aftan eru prjónaðar jafnóðum inn í stroff).
Þegar stroffið mælist 2 cm er önnur hver 2 l br auknar út til 3 l br = ca 216 l (aukið er út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn í skiptingunni á milli sl og br, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn br svo ekki myndist gat). Þegar stroffið mælist ca 5 cm (passið uppá að auknar séu út alls 4 l hvoru megin við miðjulykkju að framan og að aftan) fellið af með sl yfir sl og br yfir br. Axlarskjólið mælist ca 36 cm ofan frá og niður þar sem það er styst.

-------------------------------------------------------

VETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.

VINSTRI VETTLINGUR:
Stærð S prjónuð í hring á sokkaprjóna nr 6 og 7.
Stærð M/L prjónuð í hring á sokkaprjóna nr 7 og 8.
Fitjið upp 30 l á sokkaprjóna nr 6-7 með Snow.
Prjónið 1 umf slétt. Prjónið síðan storff í hring eftir mynsturteikningu A.4 (= 1 mynstureining 30 l). Þegar stykkið mælist 4 cm er skipt yfir á sokkaprjóna nr 7-8. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf og 1 prjónamerki eftir fyrstu 7 l í umf – látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Prjónið síðan mynstur hringinn eftir mynsturteikningu A.5 (= 1 mynstureining 30 l). Eftir 2 umf byrjar tilfærsla á mynstri. Aukið út á undan fyrra prjónamerki – LESIÐ ÚTAUKNING og fækkið l á eftir 2. prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA. Haldið áfram með mynstur JAFNFRAMT er aukið út og l fækkað í annarri hverri umf alls 12 sinnum (þegar tilfærslan hefur verið gerð eru prjónamerkin tekin frá og mynstrið heldur áfram án útaukninga/úrtöku). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 13-14 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við næst síðustu l í umf fyrir op fyrir þumal (nú er aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat). Prjónið 1 umf án útaukninga fyrir þumal. Í næstu umf er aukið út fyrir þumal hvoru megin við 3 l fyrir opi fyrir þumal = 5 l fyrir op. Prjónið 1-2 umf án útaukninga. Setjið síðan 5 þumallykkur á þráð. Í næstu umf er fitjuð upp 1 ný l fyrir aftan l á þræði = 30 l. Þegar stykkið mælist 23-24 cm er sett 1 prjónamerki í hvora hlið (= 15 l á milli prjónamerkja). Prjónið sléttprjón hringinn yfir allar l JAFNFRAMT er l fækkað hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚRTAKA (= 4 l færri). Fækkið l svona í hverri umf alls 6 sinnum = 6 l eftir í umf.
Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel. Allur vettlingurinn mælist ca 27-28 cm.

ÞUMALL:
Setjið til baka 5 þumallykkjur á sokkaprjóna nr 7-8. Prjónið upp 5 l fyrir aftan þumal = 10 l. Prjónið sléttprjón hringinn þar til þumallinn mælist 5-6 cm. Í næstu umf eru allar l prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 5 l. Endurtakið í næstu umf = 3 l eftir. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel.

HÆGRI VETTLINGUR:
Fitjið upp og prjónið á sama hátt og vinstri vettlingur, nema spegilmynd – þ.e.a.s. prjónið stroff eftir mynsturteikningu A.6 og mynsturteikningu eftir A.7. Setjið 1 prjónamerki eftir fyrstu 23 l í umf og 1 prjónamerki í lok umf. Þegar mynstrið færist til er l fækkað á undan 1. prjónamerki og aukið er út á eftir 2. prjónamerki. Aukið er út fyrir op fyrir þumal hvoru megin við 2. l í umf.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 24.06.2021
Ný mynsturteikning A.5 og A.7.

Mynstur

symbols = sl
symbols = br
symbols = engin l, hoppið yfir þessa rúðu
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
symbols = 2 l slétt saman
symbols = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = 2 l brugðnar saman
symbols = prjónið 3 l sl, steypið fyrstu l sem var prjónuð yfir hinar tvær þannig að l liggi utan um tvær síðustu l (= 1 l færri)
symbols = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir (= 2 l færri)
symbols = 3 l br saman (= 2 l færri)
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 171-18

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (29)

country flag Susan Jonsson wrote:

Hej Susan, jo de nya maskorna stickas i moss-st på axeln och i slätst fram och bak. Du kan sätta markörer så du ved var mönstret börjar Svar på detta: jag ska från tio maskor till 8 från fjärde varvet av a2a och a2b till första igen. Vart ska jag he de två andra i mossst och räta st ska jag ta en på vardera sida av a2är eller två i början?

12.12.2023 - 14:44

DROPS Design answered:

Hej Susan, de 2 nye masker som du har taget ud i højre side ifølge diagram A.3A, strikkes i moss-st (som de andre skuldermasker), så næste gang du starter på pind 1 i A.3A, starter du på samme sted i diagrammet som tidligere (der hvor du har sat mærket). De 2 nye masker du har taget ud i venstre side ifølge diagram A.3B strikker du i moss-st (som de andre skuldermasker), så næste gang du starter på pind 1 i A.3B starter du der hvor du har sat mærket, strikker over 8 masker og fortsætter i moss-st.

13.12.2023 - 11:21

country flag Susan Jonsson wrote:

Jag har två till problem när jag kommer till de fjärde varvet så så kan jag inte följa mönster och de är omkast där också som ja blir tvingad att göra rät och sen när jag ska börja om igen på mönstret har ja ju för många maskor vad ska ja göra med alla.som.blir över kan ni va snäll och hjälpa?

11.12.2023 - 20:31

DROPS Design answered:

Hej Susan, jo de nya maskorna stickas i moss-st på axeln och i slätst fram och bak. Du kan sätta markörer så du ved var mönstret börjar.

12.12.2023 - 11:03

country flag Susan Jonsson wrote:

Hei Susan. Ta en titt på denne hjelpevideoen: Hur man stickar A.3A och A.3B på halsen i DROPS 171-18 Håper det vil hjelpe :) Du øker på hver side av feltet du strikker perlestrikk på hver skulder, altså 4 masker pr økeomgang mvh DROPS Design Svar på detta Okej så efter jag gör de tre första mossstickning då ökar jag med ett överkast?och sen börjar a3a med ett överkast då då blir de två överkast efter varandra är de rätt?

11.12.2023 - 13:57

DROPS Design answered:

Hej Susan, nej, du får inte 2 kast efter varandra. Du ökar med kast enligt diagram A.3A och A.3B!

13.12.2023 - 11:23

country flag Susan Jonsson wrote:

Du øker masker i perlestrikk ved skuldrene, disse strikkes fortløpende inn i perlestrikk. Svar på detta hur många ökar ja i perlestikk per ökningsvarv?och vart i perlestikk ska jag öka?

11.12.2023 - 12:55

DROPS Design answered:

Hei Susan. Ta en titt på denne hjelpevideoen: Hur man stickar A.3A och A.3B på halsen i DROPS 171-18 Håper det vil hjelpe :) Du øker på hver side av feltet du strikker perlestrikk på hver skulder, altså 4 masker pr økeomgang mvh DROPS Design

11.12.2023 - 13:29

country flag Susan Jonsson wrote:

Vad gör man efter den fjärde varvet av a3b och a3a slutar?börjar man om igen?

11.12.2023 - 09:46

DROPS Design answered:

Hei Susan. Ja, da gjentar du diagram A.3A og A.3B i høyden. mvh DROPS Design

11.12.2023 - 13:13

country flag Susan Jonsson wrote:

Kan ni va så snäll och ladda upp a3 mönster bilden till halsvärmare?Men de frågor jag undrar över är när a3a a3b tar slut efter första maskan ska jag börja på första igen? Ska jag öka maskor på mossstickning? Ska jag göra ökningarna på slätstickning a3a a3b och mossstickningen(om ja ska öka de?) På samma varv

10.12.2023 - 06:12

DROPS Design answered:

Hei Susan. Se vårt forrige svar til deg ang. A.3. Når A.3a og A.3b er strikket (8 masker på 1. rad) strikkes det 6 masker glattstrikk eller 6 masker perlestrikk, altså du strikker bare 1 rapport av A.3 diagrammene i bredden. Du øker masker i perlestrikk ved skuldrene, disse strikkes fortløpende inn i perlestrikk. Du øker også midt foran og midt bak, disse strikkes i glattstrikk. mvh DROPS Design

11.12.2023 - 12:50

country flag Susan Jonsson wrote:

Diagram a.3 finns ej

09.12.2023 - 13:12

DROPS Design answered:

Hei Susan. Du skal ikke strikke A.3, men i oppskriften henvises det at det strikkes OVER A.3 (A.3 = A.3A og A.3B). Altså når du skal strikke vrangborden, strikkes det 2 vrang, 2 rett, 2 vrang OVER A.3 (gjelder da både A + B). mvh DROPS Design

11.12.2023 - 10:56

country flag Susan Jonsson wrote:

Jag gör halsvärmare, Jag är på tredje varvet på mönstret och jag tror ja ska börja öka moss stickning med två i början i axeln och bak i axeln fyra per varann varv. Men problemet är när jag ska lägga till de två nya maskorna så har de inte de tvärtom aviga och räta etc och så är de ett omslag som ja måste göra och de bryter moss st ordningen har ja gjort ngt fel ngn stans?skulle jag ha ökat mossstickningen redan varv två?

09.12.2023 - 02:35

DROPS Design answered:

Hei Susan. Du skal starte å øke til skuldrene etter diagramme på første omgang du strikker A.3A og A.3B (første maske i A3A er et kast og siste maske i A.3B er et kast). De økte maskene over skuldrene strikkes fortløpende inn i perlestrikk. mvh DROPS Design

11.12.2023 - 09:20

country flag Marlena wrote:

Ich verstehe nicht, wo und wie ich beim Halswärmer die Zunahmen im Perlmuster mache. Ich wollte im Video zu den Mustern A3.A und A3.B nachsehen, dort kann ich aber in allen vier gezeigten Runden nur sechs Maschen Perlmuster zählen. Trotzdem ist am Ende des Videos der Schulterteil unten breiter. Wie funktioniert das?

19.12.2022 - 18:48

DROPS Design answered:

Liebe Marlena, die Zunahmen stricken Sie entweder rechts oder links je nach der vorrige/nächste Masche, dh wenn die vorrige/nächste Masche im Perlmuster eine rechte Masche sein soll, dann stricken Sie die Zunahme links und wenn die vorrige/nächste Masche im Perlmuster eine linke Masche sein soll, dann stricken Sie die Zunahme rechts - so haben Sie immer das Perlmuster (abwechslungsweise 1 M re, 1 M li). Viel Spaß beim stricken!

20.12.2022 - 07:56

country flag ISNARD Christine wrote:

Bonjour, j'arrive aux côtes finales pour le tour de cou. Les 192 mailles ne tiennent plus sur l'aiguille circulaire numéro 7 en 60 cm. Je vois qu'il faut continuer à augmenter. Quelle est la solution ? Faut il que j'achète des aiguilles plus longues ? Y a t'il une autre méthode ? Merci beaucoup pour votre aide.

21.11.2022 - 23:43

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Isnard, effectivement, une aiguille circulaire de 80 cm pourra vous faciliter la tâche. Bon tricot!

22.11.2022 - 10:10