DROPS Puna
DROPS Puna
100% Alpakka
frá 968.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7744.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 173-39
DROPS Design: Mynstur nr pu-002
Garngrupp B
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS PUNA frá Garnstudio
400-450-500-550-600-650 g litur nr 06, grár

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l x 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 3 – fyrir kant með garðaprjóni.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.
DROPS TALA, NR 534: 3 st í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Puna
DROPS Puna
100% Alpakka
frá 968.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7744.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.
2 umf garðaprjón = 1 rönd í garðarpjóni.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3 (veljið mynstur fyrir rétta stærð). Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

HNAPPAGAT:
Fellt er af fyrir 3 hnappagötum þannig: Prjónið 3 l sl, 2 l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 13-15 l sl, 2 l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 13-15 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l slétt saman og 3 l sl. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat.

ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hversu oft eigi að auka út í umf, teljið fjölda lykkja í umf (t.d. 122 l), mínus kanta að framan (t.d. 12 l) og deilið þessum l með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 54 l) = 2,04. Þ.e.a.s. í þessu dæmi þá er aukið út til eftir ca aðra hverja l og ekki er aukið út yfir kant að framan. ATH: Aukið út um 1 l með því að slá uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2:
Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-3 (á við um hliðar á neðri parti á fram- og bakstykki):
Byrjið 3 l á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 6 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 6 l) og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat (útauknu l eru prjónaðar í sléttprjóni).

ÚRTAKA (á við um hálsmál):
Fækkið l innan við 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni + útauknar lykkjur fyrir sjalkraga. Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið l á eftir kanti að framan + kraga þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.
Fækkið l á undan kant að framan + kraga þannig: Byrjið 2 l á undan kanti að framan + kraga og prjónið 2 l slétt saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Byrjið með kaðlabekk eins og útskýrt er frá að neðan. Prjónið síðan upp l meðfram annarri langhliðinni á kaðlabekknum fyrir berustykki og meðfram hinni langhliðinni á kaðlabekknum fyrir neðri hluta á fram- og bakstykki.

KAÐLABEKKUR:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan.
Fitjið upp 38-38-38-42-42-42 l á hringprjóna nr 3 með Puna. Prjónið 12 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan (= kantur að framan). Setjið 1 prjónamerki, skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið mynstur fram og til baka eftir mynsturteikningu A.1 (veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð). Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka eru 46-46-46-50-50-50 l í umf. Prjónið síðan mynstur fram og til baka eftir mynsturteikningu A.2 (veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist ca 78-86-94-104-116-128 cm frá prjónamerki (stillið af eftir einni heilli mynstureiningu á hæðina þannig að mynstrið byrji og endi eins í hvorri hlið fyrir miðju að framan – mátið e.t.v. bekkinn og prjónið að óskaðri lengd, nú eru eftir ca 3 cm til loka) prjónið mynstur fram og til baka eftir mynsturteikningu A.3. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka eru 38-38-38-42-42-42 l í umf. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3 og prjónið 1 umf slétt frá réttu þar sem fellt er af fyrir 3 HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan.
Prjónið 1 umf slétt frá röngu, prjónið 10 umf garðaprjón og fellið af með sl frá réttu.

BERUSTYKKI:
Prjónið upp frá réttu meðfram annarri langhliðinni á kaðlabekknum (byrjið frá hlið með hnappagötum) á hringprjóna nr 4 þannig: Prjónið upp 1 l í hverja og eina af 6 röndum í garðaprjóni í kanti að framan, prjónið upp 1 l í hverja rönd í garðaprjóni meðfram kanti og að lokum í 1 l í hverja rönd í garðaprjóni meðfram kanti að framan í hinni hliðinni = ca 122-132-144-158-174-192 l. Í næstu umf (= ranga) er prjónað sl JAFNFRAMT er aukið út jafnt yfir til 176-192-208-232-256-280 l – LESIÐ ÚTAUKNING-1. Setjð 2 prjónamerki í stykkið 47-51-55-61-67-73 l inn frá hvorri hlið (= 82-90-98-110-122-134 l á milli prjónamerkja á bakstykki), látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Stykkið er nú mælt frá þar sem l voru prjónaðar upp. Prjónið sléttprjón með 6 kantlykkjum við miðju að framan í garðaprjóni í hvorri hlið – JAFNFRAMT er prjónað garðaprjón yfir 12-14-16-18-20-22 l í hvorri hlið á fram- og bakstykki (þ.e.a.s. yfir 6-7-8-9-10-11 l hvoru megin við bæði prjónamerkin). Þegar prjónaðar hafa verið 4 umf garðaprjón fyrir þessar l er næsta umf prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 45-48-51-56-61-66 l sl (= hægra framstykki), fellið af næstu 4-6-8-10-12-14 l fyrir handveg (þ.e.a.s. fellið af 2-3-4-5-6-7 l hvoru megin við prjónamerkin), prjónið sl yfir næstu 78-84-90-100-110-120 l (= bakstykki), fellið af næstu 4-6-8-10-12-14 l fyrir handveg og prjónið sl yfir þær 45-48-51-56-61-66 l sem eftir eru (= vinstra framstykki). Fram- og bakstykki eru prjónuð hvort fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 78-84-90-100-110-120 l. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og 4 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 5-5-5-8-8-8 cm frá kaðlabekk er aukið út um 1 l innan við 4 kantlykkjum í hvorri hlið – LESIÐ ÚTAUKNING-2 (= 2 l fleiri – ATH: Útauknu l eru prjónaðar í sléttprjóni). Aukið svona út með 5-5-5-8-8-8 cm millibili alls 4-4-4-3-3-3 sinnum = 86-92-98-106-116-126 l. Þegar stykkið mælist 22-24-26-26-27-28 cm setjið l á þráð fyrir öxl í byrjun á hverri umf í hvorri hlið þannig: * Prjónið 8-9-9-10-11-12 l, setjið þær á þráð og prjónið út umf *, prjónið alls 3 sinnum í hvorri hlið og setjið síðan 10-10-12-12-13-15 l 1 sinni í hvorri hlið á þráðinn alveg eins.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 23-25-27-27-28-29 cm fellið af miðju 14-14-16-18-20-20 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið af 2 l í næstu umf frá hálsi. Þegar allar l hafa verið felldar af/settar á þráð mælist stykkið ca 43-45-47-49-50-51 cm (mælt frá hæsta punkti á öxl með kaðlabekk).

HÆGRA FRAMSTYKKI:
= 45-48-51-56-61-66 l. Haldið áfram fram og til baka með 6 kantlykkjum í garðaprjóni við miðju að framan og 4 kantlykkjum í garðaprjóni við handveg.
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
SJALKRAGI:
Þegar stykkið mælist 2 cm frá kaðlabekk er aukið út um 1 l í næstu umf frá röngu innan við síðustu l í umf – LESIÐ ÚTAUKNING-2 (útauknu l eru prjónaðar í garðaprjóni). Prjónið 2 umf garðaprjón fram og til baka einungis yfir síðustu 7 l við miðju að framan (þ.e.a.s. byrjið frá réttu, prjónið 7 l sl, snúið við, herðið á þræði og prjónið 7 l sl til baka).
Prjónið síðan fram og til baka aftur yfir allar l JAFNFRAMT er aukið út fyrir sjalkraga alveg eins innan við síðustu kantlykkjur að framan þannig: Aukið út um 1 l í annarri hveri umf alls 5-5-4-4-5-5 sinnum og síðan í 4. hverri umf alls 10-10-13-13-14-14 sinnum = 16-16-18-18-20-20 l útauknar fyrir sjalkraga (útauknar l eru prjónaðar í garðaprjóni).
HÁLSMÁL:
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 3 cm frá kaðlabekk er fækkað um 1 l fyrir hálsmáli – LESIÐ ÚRTAKA.
Fækkið l svona í 4. hverri umf alls 3 sinnum í öllum stærðum og síðan í 6. hverri umf alls 6-6-7-8-9-9 sinnum.
ÚTAUKNING VIÐ HANDVEG:
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 5-5-5-8-8-8 cm er aukið út um 1 l innan við 4 kantlykkjur í hlið – LESIÐ ÚTAUKNING-2. Aukið svona út með 5-5-5-8-8-8 cm millibili alls 4-4-4-3-3-3 sinnum (útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni).
ÖXL:
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 22-24-26-26-27-28 cm setjið l á þráð fyrir öxl í byrjun á hverri umf frá handveg þannig: * Prjónið 8-9-9-10-11-12 l, setjið þær á þráð, prjónið út umf, snúið við og prjónið til baka *, prjónið *-* alls 3 sinnum og setjið síðan 10-10-12-12-13-15 l 1 sinni á þráð.
Eftir allar útaukningar, úrtökur og lykkjur sem settar eru á þráð eru 22-22-24-24-26-26 l eftir á prjóni fyrir kraga og stykkið mælist ca 43-45-47-49-50-51 cm (mælt frá hæsta punkti frá öxl með kaðlabekk).

KRAGI:
= 22-22-24-24-26-26 l. Byrjið frá réttu og prjónið garðaprjón fram og til baka þannig: * Prjónið 2 umf garðaprjón yfir allar l, prjónið 2 umf garðaprjón einungis yfir síðustu 14-14-16-16-18-18 l við miðju að framan *, prjónið *-* þar til kraginn mælist ca 7-7-7-7-8-8 cm innst þar sem hann er minnstur (hann á að vera ca 14-14-14-14-16-16 cm lengst út þar sem hann er breiðastur), fellið af.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
= 45-48-51-56-61-66 l. Prjónið eins og hægra framstykki, nema spegilmynd. Þ.e.a.s. þegar fyrsta l er aukin út fyrir kraga er það gert frá réttu og þegar prjónaðar eru 2 umf garðaprjón einungis yfir síðustu 7 l við miðju að framan er fyrsta umf prjónuð frá röngu.
Þegar vinstra framstykki hefur verið prjónað til loka er prjónaður kragi eins og á hægra framstykki, en með byrjun frá röngu.

KANTUR Í GARÐAPRJÓNI Á ÖXL:
Setjið 34-37-39-42-46-51 l af þræði af annarri öxlinni á hringprjóna nr 3. Prjónið 1 umf slét frá röngu, en til að koma í veg fyrir göt í hverri skiptingu þegar l eru settar á þráð er þráðurinn settur á milli 2 l á prjóni og prjónað áfram slétt saman við fyrstu l á vinstra prjóni. Fellið síðan LAUST af með sl frá réttu (mikilvægt er að affellingarkanturinn verði ekki of stífur). Prjónið kant í garðaprjóni á hinum 3 öxlunum alveg eins.

NEÐRI HLUTI Á FRAM- OG BAKSTYKKI:
Prjónið upp l frá réttu meðfram annarri langhliðinni á kaðlabekknum (byrjið frá hlið án hnappagata) á hringprjóna nr 4 þannig: Prjónið upp 1 l í hverja og eina af 6 röndum í garðaprjóni í kanti að framan, prjónið upp 1 l í hverja rönd í garðaprjóni meðfram kanti og að lokum 1 l í hverja rönd í garðaprjóni meðfram kanti í hinni hliðinni = ca 122-132-144-158-174-192 l. Í næstu umf (= frá röngu) prjónið sl JAFNFRAMT er aukið út jafnt yfir til 176-192-208-232-256-280 l – LESIÐ ÚTAUKNING-1. Setjið 2 prjónamerki í stykkið 47-51-55-61-67-73 l frá hvorri hlið (= 82-90-98-110-122-134 l á milli prjónamerkja á bakstykki), látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Stykkið er nú mælt frá þar sem l voru prjónaðar upp á kaðlabekk.
Prjónið sléttprjón með 6 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. Þegar stykkið mælist 3-3-3-3-2-2 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚTAUKNING-3 (= 4 l fleiri). Aukið svona út með 1½ cm millibili (þ.e.a.s. í 4. hverri umf) alls 12-12-12-12-13-13 sinnum á hvorri hlið = 224-240-256-280-308-332 l. Þegar stykkið mælist 20-20-20-20-21-22 cm er skipt yfir á hringprjóna nr 3. Byrjið frá réttu og prjónið 12 umf garðaprjón fram og til baka yfir allar l. Skiptið til baka yfir á hringprjóna nr 4 og fellið LAUST af með sl frá réttu.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn með lykkjuspori. Saumið kragann saman við miðju að aftan (saumurinn á að snúa inn þegar kraginn er brotinn niður). Saumið kragann við hálsmál aftan við hnakka. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = prjónið 1 lykkju slétt framan í og aftan í sömu lykkju (= 1 lykkja fleiri)
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið af kaðlaprjóni
symbols = prjónstefna
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 173-39

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (26)

country flag Tilde wrote:

Hvordan kan det passe, at den nederste del kun skal være 20 cm, inden man strikker de 12 retpinde og slutter af, når man på både billedet og tegningen kan se, at den nederste del er længere end den øverste del? Og den øverste del er ca 26 cm iflg. opskriften og tegningen?

09.04.2023 - 16:07

DROPS Design answered:

Hej Tilde, design har bedømt at målene i måleskitsen er mere proportionerlig mht både snoninger i taljen og bærestykke. Du kan jo altid selv justere længden i og med den strikkes oppefra og ned :)

13.04.2023 - 15:18

country flag Sue wrote:

CABLE BORDER: When piece measures approx. 78-86-94-104-116-128 cm from marker (adjust after one whole repetition vertically so that pattern beg and end the same way in each side towards mid front – try the border on and work to desired length – approx. 3 cm remains until full lenght), After one repetition adjust! Adjust how? Is there a translation problem or a punctuation error or am I missing something here?

04.01.2023 - 01:19

DROPS Design answered:

Dear Sue, you have to adjust the whole length for your size so that the pattern is the same at the beginning and at the end (to let it be symmetrical inside front band stitches) ie work more/less rows but you should finish a whole repeat of the diagram. Happy knitting!

04.01.2023 - 09:22

country flag Annette Deurell wrote:

Jeg forstår ikke placeringen af de tre knaphuller. På billedet er de placeret midt på forkanten. Men det harmonerer ikke med opskriften, hvor der skal strikkes knaphuller lige før forkanten, altså mellem snoningsborten og forkanten.

17.03.2022 - 16:42

DROPS Design answered:

Hej Annette, design har taget en beslutning om at det bliver bedre at strikke knaphullerne lige før de sidste retstrikkede masker. Men du laver dem naturligvis hvor det passer dig bedst. God fornøjelse!

22.03.2022 - 13:31

country flag Annette Deurell wrote:

I starten af sjalskraven strikkes vendestrik over de 7 masker på forkanten. Er det eneste vendestrik, eller fortsætter jeg med vendestrik, når der tages ud, altså først 5 gange på hv 2 p og derefter på hv 4 p? Tak fra Annette

17.03.2022 - 13:12

DROPS Design answered:

Hej Annette, nej du strikker først vendestrik igen når du kommer ned til KRAVEN. God fornøjelse!

30.03.2022 - 14:02

country flag Anne-Maj wrote:

Hoi hoi, ik ben bij de kraag aangekomen (na rechterbovenlijf) en moet nu doorgaan met ribbelsteek tot het 7 cm op het korte stuk is en 14 cm op de lange kant. Ik begrijp alleen niet wat jullie met korte en lange kant bedoelen. Vanaf waar moet ik het meten? Ik hoor graag antwoord zodat ik verder kan :-) Kan namelijk niet wachten dit vest te dragen deze herfst!!

29.09.2018 - 08:25

DROPS Design answered:

Dag Anne-Maj, Omdat je afwisselend ribbels over de hele kraag breit, en over alleen de buitenste steken, zal er a.h.w. een kromming in de kraag komen en is de buitenkant van de kraag (dus aan de kant van het voorpand) langer dan de binnenkant (dus aan de kant van de schouder). Op de korte kant moet hij 7 cm zijn en in de 'buitenbocht' 14 cm.

30.09.2018 - 21:19

country flag Evaluna wrote:

Hallo, Ik zie een probleem bij de beschrijving van de afschuining van de schouder in de voorpanden. Ik brei maat XL en moet dus 3 keer 10 st op een hulpdraad zetten en daarna nog 12 keer 5 st. Moet dat niet nog 1 keer 12 st zijn? Die schouder is toch niet zo hoog?

19.03.2018 - 13:17

DROPS Design answered:

Hallo Evaluna, Dat was inderdaad een foutje. Het is nu aangepast en bedankt voor het doorgeven!

04.04.2018 - 18:19

country flag Margareta Wiklund wrote:

Är på axeln, skall sticka rätt v fr avigan. Här fastnar jag, vid # lägg tråden mellan 2 m o sticka ihop vriden med nästa m på v sticka# vilken tråd? Det blir hål ändå, Tack på förhand

05.12.2017 - 07:45

DROPS Design answered:

Du ska ta upp den vågräta tråden mellan två maskor och sticka denna tråd vriden ihop med följande maska. Då ska det inte bli hål i arb.

05.12.2017 - 14:11

country flag Margareta Wiklund wrote:

Gör jag det förkortade varvet i sjalkragen endast 1 gång ? Tack på förhand

13.11.2017 - 17:19

DROPS Design answered:

Du ska upprepa de förkortade varven tills kragen mäter ca 7-7-7-7-8-8 cm innerst.

13.11.2017 - 17:57

country flag Annelie Dynell wrote:

Hej har provat nu 5 ggr å varje gång blir allt riktigt utan slingan i mitten som skall korsas ? Den hamnar på avigsidan å allt annat mönster på framsidan ??? Hjälp 😩

23.03.2017 - 10:18

DROPS Design answered:

Hej Annelie. Du maa strikke noget forkert, fletten kommer paa retsiden i alle pinde. Desvaerre kan jeg ikke her paa afstand se hvad du gör, men maaske har du mulighed for at besöge en af vores butikker eller en strikkegruppe

27.03.2017 - 13:03

country flag Grethe Skotheim wrote:

Hei ! Jeg strikker en barnegenser ,str. 2 år i PUNA-garn. Nederst på bolen er det en rillekant på 2 riller. Den ruller inn ,hva gjør jeg med det når garnet ikke skal strykes? Garnet farger veldig av på fingrene når jeg strikker. Vil dette være en genser som farger av ,eller gir det seg etter en vask? Mvh Grethe

05.03.2017 - 12:04

DROPS Design answered:

Hei Grethe. Du kan presse den let naar du har vasket den förste gang, enten ved at du lader den ligge mellem to haandklaeder et par timer - eller du kan presse let med et strygejern (og et viskestykke imellem). Og tit bliver det ogsaa mindre, naar du har strikket laengere og arbejdet faar lidt mere tyngde. Der kan vaere overskudsfarve i garn, men for det meste er det ogsaa vaek efter förste vask. Husk at vaske det efter anvisningerne - og alene, saa det ikke smitter af paa noget andet :)

06.03.2017 - 15:18