DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5104.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Tara

Settið samanstendur af prjónaðri basker / alpahúfu og prjónuðum handstúkum með dominoferningum ásamt hálsklút í vinkilprjóni með röndum úr DROPS Fabel.

DROPS 171-48
DROPS Design: Mynstur nr fa-357
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

BASKER / ALPAHÚFA:
Stærð: S/M – M/L
Höfuðmál: 54/56 – 56/58

Efni:
DROPS FABEL frá Garnstudio
50-50 g litur nr 623, bleik þoka
50-50 g litur nr 200, grár
ATH: Ef húfan er prjónuð með einum lit þá þarf 100 g Fabel.

DROPS HRINGPRJÓNN (40 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 l x 48 umf með garðaprjón verði 10 x 10 cm.

HÁLSKLÚTUR:
Mál:
Breidd: ca 22 cm.
Lengd: ca 150 cm

Efni:
DROPS FABEL frá Garnstudio
100 g litur nr 623, bleik þoka
100 g litur nr 200, grár
ATH: Ef hálsklúturinn er prjónaður með einum lit þá þarf 150 g Fabel.

DROPS PRJÓNAR NR 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 20 l x 40 umf með garðaprjóni verði 10 x 10 cm.

HANDSTÚKUR:
Stærð: S/M – M/L
Mál:
Ummál: ca 16-17 cm.
Lengd (meðtalin dominoferningur): 17-18 cm.

Efni:
DROPS FABEL frá Garnstudio
50 g litur nr 623, bleik þoka
50 g litur nr 200, grár
ATH: Ef handstúkurnar eru prjónaðar með einum lit þá þarf 50 g Fabel.

DROPS HRINGPRJÓNN NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 l x 48 umf með garðaprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5104.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

30% AFSLÁTTUR á 6 tegundum af bómullargarni!
Tilboðið gildir til 12.04.2024

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

1 RÖND Í GARÐAPRJÓNI = 2 umf garðaprjón.

RENDUR:
Prjónið alltaf upp l með litnum grár, prjónið síðan 1 umf frá röngu með litnum grár. Prjónið síðan * 2 umf með litnum bleik þoka, 2 umf með litnum grár *, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR (á við um hálsklút):
Sjá mynsturteikningu A.1.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 l með því að prjóna 2 l í 1 l.

ÚRTAKA:
Fækkið um 1 l með því að prjóna 2 l slétt saman.

HÁLFUR DOMINOFERNINGUR (húfa):
Setjið 1 prjónamerki í miðjulykkju.
UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið sl þar til 1 l er eftir á undan prjónamerki, takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir (= 2 l færri), prjónið sl út umf (= 2 l færri).
UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið sl þar til 1 l er eftir á undan prjónamerki, takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir (= 2 l færri), prjónið sl út umf.
UMFERÐ 3: Prjónið sl þar til 1 l er eftir á undan prjónamerki, takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir (= 2 l færri), prjónið sl út umf.
UMFERÐ 4: Prjónið fyrstu 2 l slétt saman (= 1 l færri), prjónið sl þar til 1 l er eftir á undan prjónamerki, takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir (= 2 l færri), prjónið sl þar til eftir eru 2 l, prjónið 2 síðustu l slétt saman (= 1 l færri).
Endurtakið umf 1-4, þ.e.a.s. að fækkað er um 1 l hvoru megin við prjónamerkin í hverri umf og fækkið um 1 l í byrjun og lok 4. hverrar umf þar til 1 l er eftir, klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum síðustu l.

DOMINOFERNINGUR (handstúkur):
Setjið 1 prjónamerki í miðjulykkju.
UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið slétt.
UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið sl þar til eftir er 1 l á undan l með prjónamerki í, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl (= l með prjónamerki í), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sl út umf.
UMFERÐ 3: Prjónið slétt.
ATH: Uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat.
Endurtakið umf 2 og 3 uppúr þar til auknar hafa verið út alls 13 l hvoru megin við miðjulykkju = alls 29 l í umf. Passið uppá að síðasta umf sem prjónuð sé frá röngu (með litnum bleik þoka).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

ALPAHÚFA / BASKER - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fyrst er prjónaður hringur með hálfum dominoferningum. Síðan eru lykkjur prjónaðar upp í kringum kantinn á 7 hálfum dominoferningum áður en haldið er áfram hringinn með kanti í garðaprjóni.

ALPAHÚFA / BASKER:
Fitjið upp 65-73 lykkjur með litnum grár Fabel á hringprjóna nr 3. Prjónið RENDUR og HÁLFUR DOMINOFERNINGUR (húfa) – sjá útskýringu að ofan.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar hálfi dominoferningurinn hefur verið prjónaður til loka á hæðina er haldið áfram þannig: Byrjið frá réttu með litnum grár og takið upp 1 lykkju í hverja lykkju meðfram uppfitjunarkanti niður að lykkju með prjónamerki í frá fyrri hálfa dominoferningi sem prjónaður var = 32-36 lykkjur, síðan eru fitjaðar upp nýjar 33-37 lykkjur. Prjónið síðan hálfan dominoferning og rendur alveg eins og fyrsti hálfi dominoferningur.
Haldið svona áfram að prjóna upp lykkjur og prjónið hálfa dominoferninginn hringinn þar til prjónaðir hafa verið alls 7 hálfir dominoferningar. ATH: Þegar síðasti hálfi dominoferningurinn hefur verið prjónaður, takið upp lykkjur meðfram uppfitjunarkanti á fyrri hálfa dominoferningi sem var prjónaður, takið síðan upp lykkjur meðfram uppfitjunarkanti á fyrsta hálfa dominoferningi.

Takið nú upp lykkjur í kringum kantinn á húfunni þannig:
Byrjið frá réttu með litnum grár Fabel á hringprjóna nr 3 og takið upp 28-32 lykkjur meðfram kanti á hverjum hálfum dominoferningi = 196-224 l
Setjið eitt prjónamerki hér. STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN! Prjónið GARÐAPRJÓN hringinn – sjá útskýringu að ofan. Þegar prjónaðar hafa verið 4 umferðir garðaprjón með litnum grár er haldið áfram hringinn með röndum og garðaprjóni eins og áður í næstu umferð er lykkjum fækkað þannig: * Prjónið 26-30 cm, prjónið næstu 2 lykkjur slétt saman *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 189-217 lykkjur.
Fækkið lykkjum svona í annarri hverri rönd með garðaprjóni alls 8-8 sinnum og í hverri rönd með garðaprjóni alls 3-6 sinnum = 119-126 lykkjur. ATH: Í hvert skipti sem lykkjum er fækkað er prjónuð 1 lykkja færri á milli hverrar úrtöku í hverri umferð með úrtöku. Haldið síðan áfram í garðaprjóni og í röndum þar til stykkið mælist 12-13 cm frá prjónamerki. Nú eru prjónaðar 8 umferðir garðaprjón með litnum grár. Fellið af.

-------------------------------------------------------

HÁLSKLÚTUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Hálsklúturinn er prjónaður fram og til baka.

HLUTI 1:
Fitjið upp 1 lykkju á prjón nr 4,5 með litnum grár Fabel. Prjónið GARÐAPRJÓN og RENDUR – sjá útskýringu að ofan. Aukið út um 1 lykkju í lok hverrar umferðar frá réttu – LESIÐ ÚTAUKNING, aukið svona út 17 sinnum = 18 lykkjur á prjóni. Prjónið 1 umferð til baka frá röngu þar sem fækkað er um 1 lykkju – LESIÐ ÚRTAKA = 17 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Setjið lykkjur á þráð / hjálparprjón. Klippið frá.

HLUTI 2:
Prjónið upp 17 lykkjur meðfram garðaprjóni í hlið á hluta 1 – sjá A.1 = ca 1 lykkja færri í hverri rönd í garðaprjóni. Prjónið garðaprjón og rendur eins og áður og í byrjun á hveri umferðar frá réttu er aukið út um 1 lykkju. Aukið svona út alls 17 sinnum = 34 lykkjur. Fækkið nú um 1 lykkju í byrjun hverrar umferðar frá réttu. Fækkið lykkjum svona alls 17 sinnum = 17 lykkjur. Síðasta umferð er prjónuð frá röngu. Setjið lykkjur á þráð / hjálparprjón. Klippið frá.

HLUTI 3:
Prjónið upp 1 lykkju í hverri rönd með garðaprjóni frá hlið á hluta 2 (= 34 lykkjur), setjið til baka lykkur af þræði / hjálparprjóni frá hluta 1 á prjóninn og prjónið þessar lykkjur = 51 lykkjur. Prjónið garðaprjón og rendur eins og áður. Í byrjun hverrar umferðar frá röngu er fækkað um 1 lykkju. Fækkið lykkjum svona alls 34 sinnum = 17 lykkjur. Síðasta umferð er prjónuð frá röngu. Setjið lykkjur á þráð / hjálparprjón. Klippið frá.

HLUTI 4:
Setjið til baka lykkjur af þræði frá hluta 2 á vinstri prjón og prjónið þær, prjónið upp 1 lykkju í hverri rönd með garðaprjóni frá hluta 3 = 51 lykkjur. Prjónið garðaprjón og rendur eins og áður. Í byrjun hverrar umferðar frá réttu er fækkað um 1 lykkju. Fækkið lykkjum svona alls 34 sinnum = 17 lykkjur. Síðasta umferð er prjónuð frá röngu. Setjið lykkjur á þráð / hjálparprjón. Klippið frá.

Endurtakið hluta 3 og 4 þar til hálsklúturinn mælist ca 134 cm meðfram lengstu hliðum. Næst síðasti hlutinn = hluti 5. Prjónið eins og hluti 3 en haldið eftir lykkjum á prjóni eftir úrtöku = 17 lykkjur. Haldið áfram í garðaprjón og með rendur eins og áður. Í byrjun og í lok hverrar umferðar frá réttu er fækkað um 1 lykkju. Fækkið lykkjum svona alls 8 sinnum, þræðið þráðinn í gegnum síðustu lykkju. Klippið frá.

SÍÐASTI HLUTI (HLUTI 6):
Setjið til baka lykkjur af þræði / hjálparprjóni á vinstri prjón og prjónið þær og prjónið upp 1 lykkju í hverri rönd með garðaprjóni frá fyrri hluta = 51 lykkjur. Prjónið garðaprjón og rendur eins og áður. Í lok hverrar umferðar er fækkað um 1 lykkju. Fækkið lykkjum svona alls 25 sinnum, þræðið þráðinn í gegnum síðustu lykkju.

-------------------------------------------------------

HANDSTÚKA:
Fitjið upp 3 lykkjur með litnum grár Fabel á hringprjóna nr 3.
Prjónið RENDUR og DOMINOFERNINGUR (handstúka) – sjá útskýringu að ofan.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar allur dominoferningurinn hefur verið prjónaður til loka er sett eitt prjónamerki í síðustu lykkju sem var prjónuð (= frá röngu). Klippið frá. Setjið allar lykkjur á þráð / hjálparprjón.

Fitjið upp 34-36 lykkjur með litnum grár Fabel á hringprjóna nr 3. Prjónið 1 umferð til baka frá röngu. Prjónið síðan fram og til baka í röndum og í garðaprjóni þannig:
UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri) og prjónið síðustu lykkju slétt saman með lykkju með prjónamerki í á dominoferningi + næstu lykkju á domonoferningi (= 2 lykkjur frá dominoferningi).
UMFERÐ 2 (ranga): Snúið við og prjónið til baka.
UMFERÐ 3: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri) og prjónið næstu lykkju slétt saman með 2 næstu lykkjum á dominoferningi.
UMFERÐ 4: Snúið við og prjónið til baka.
UMFERÐ 5: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið næstu 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið næstu lykkju slétt saman við 2 næstu lykkju á dominoferningi.
UMFERÐ 6: Snúið við og prjónið slétt til baka.
UMFERÐ 7: Prjónið yfir allar lykkjur.
UMFERÐ 8: Snúið við og prjónið til baka.
UMFERÐ 9: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið síðustu lykkju slétt saman með næstu 2 lykkjur á dominoferningi.
UMFERÐ 10: Snúið við og prjónið slétt til baka.
Endurtakið frá umferð 3-10 einu sinni til viðbótar (= alls 18 umferðir). Nú eru 27-29 lykkjur í umferð.
Prjónið nú þannig:
UMFERÐ 19: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á prjóni, prjónið hana slétt saman með næstu lykkju á dominoferningi (= miðjulykkja á toppi á dominoferningi).
UMFERÐ 20: Snúið við og prjónið til baka.

Prjónið síðan þannig:
UMFERÐ 1: Prjónið slétt þar til 1 lykkja er eftir á prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið næstu umferð slétt saman við 2 næstu lykkjur á dominoferningi.
UMFERÐ : Snúið við og prjónið slétt til baka. Uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.
UMFERÐ 3-6: Prjónið eins og umferð 1 og 2.
UMFERÐ 7: Prjónið slétt yfir allar lykkjur.
UMFERÐ 8: Snúið við og prjónið slétt til baka.
UMFERÐ 9: Prjónið slétt þar til 1 lykkja er eftir á prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið næstu lykkju slétt saman við næstu 2 lykkjur á dominoferningi.
UMFERÐ 10: Snúið við og prjónið slétt til baka. Uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Endurtakið umferð 3-10 einu sinni til viðbótar (= alls 18 umferðir).
Nú hafa allir dominoferningarnir verið prjónaðir saman í garðaprjóni og það eru 34-36 lykkjur á prjóni. Setjið eitt prjónamerki hér! STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN!
Haldið síðan áfram fram og til baka með röndum og garðaprjóni þar til stykkið mælist 8-9 cm – Passið uppá að endað sé í rönd með litnum bleik þoka. Fellið af.
Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki of stífur!
Saumið saman affellingarkantinn og uppfitjunarkantinn með því að sauma lykkjur eina og eina fallega saman með litnum grár. Klippið frá og festið enda.

Prjónið aðra handstúku á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 10.10.2016
HÁLFUR DOMINOFERNINGUR:
UMFERÐ 4: Prjónið fyrstu 2 l slétt saman (= 1 l færri), prjónið sl þar til 1 l er eftir á undan prjónamerki, takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir (= 2 l færri), prjónið sl þar til eftir eru 2 l, prjónið 2 síðustu l slétt saman (= 1 l færri).
Endurtakið umf 1-4, þ.e.a.s. að fækkað er um 1 l hvoru megin við prjónamerkin í hverri umf og fækkið um 1 l í byrjun og lok 4. hverrar umf þar til 1 l er eftir, klippið frá og dragið bandið í gegnum síðustu l.
Yfirfarið á vefsvæði: 29.07.2019
Leiðrétting - SÍÐASTI HLUTI (HLUTI 6):.. Í lok hverrar umf er fækkað um 1 l. Fækkið l svona alls 25 sinnum, dragið bandið í gegnum síðustu l.

Mynstur

symbols = prjónstefna
symbols = prjónið upp lykkjur
symbols = prjónið lykkjur frá bandi aftur á prjóninn
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 171-48

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (41)

country flag Busata wrote:

Bonjour je fais le modèle : fa 357 j'aimerai savoir combien de mailles faut-il pour un demi domino ,pour le béret je vous en remercie Mme busata

15.04.2023 - 08:01

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Busata, vous montez 65-73 mailles (cf taille) pour le 1er domino, puis vous relevez 32-36 m le long d'un côté du 1er domino/du domino précédent et montez 33-37 m = 65-73 pour chacun des dominos jusqu'à la fin. Bon tricot!

17.04.2023 - 08:49

country flag Nath wrote:

Bonjour, Pour le beret le commence-t-on en aller retour ou en rond . Si c'est en aller retour à quel moment continue-t-on en rond. Merci

16.12.2022 - 11:27

DROPS Design answered:

Bonjour Nath, on tricote d'abord les demi-dominos (chacun en allers et retours) les uns après les autres (à partir du 2ème domino, on relève les mailles le long du précédent + on monte l'autre moitié des mailles); quand les dominos sont terminés, on assemble le dernier au premier pour former le disque du dessus du béret, puis on tricote la bordure du bas du bonnet en rond. Bon tricot!

16.12.2022 - 11:30

country flag Martine Gidon wrote:

Bonjour, je démarre l'écharpe. Je suis au début de la PARTIE 2. Merci de m'indiquer si je dois relever les mailles sur le côté où j'ai augmenté sur le PARTIE 1, ou alors sur le côté où il n'y a pas eu d'augmentations. Je suis un peu perdue. Sincères salutations.

20.03.2022 - 18:04

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Gidon, posez votre partie-1 sur l'endroit, elle doit être comme dans le schéma (les augmentations faites en fin de rang sur l'endroit sont tout en bas). Relevez maintenant les mailles le long du côté gauche : dans les côtes mousse de la 1ère partie = le long de la ligne en pointillés avec de petits ronds (cf légende). et tricotez maintenant la partie 2. Bon tricot!

21.03.2022 - 08:46

country flag Anto wrote:

Grazie per la descrizione della bellissima SCIARPA. Ho due domande. 1. Una cosa non mi è chiara: devo iniziare con una sola maglia, poi devo fare un aumento al giro di dritto e poi ancora una diminuzione al giro di rovescio. Così alla fine mi ritrovo sempre con una sola maglia 😕…come faccio a ritrovarmi con 17 maglie? 2. Inoltre dopo 17 giri dovrei trovarmi 17 maglie in sospeso! Ma quando avrei dovuto tenerle in sospeso…? Grazie 1000 Anto

22.01.2022 - 02:50

DROPS Design answered:

Buonasera Anto, deve partire con 1 maglia e aumentare 1 maglia alla fine di ogni ferro dal diritto del lavoro per 17 volte ottenendo 18 maglie, poi deve lavorare 1 ferro dal rovescio del lavoro diminuendo 1 maglia e poi deve mettere le maglie in sospeso. Buon lavoro!

22.01.2022 - 18:49

country flag Judi wrote:

Hi. I'm making the Tara beret & I need a clarification. The instructions for the 'Half Domino Square' specify that rows 1 & 3 are the wrong side & 2 $ 4 the right side. However, the stripes are showing on the odd rows, not the even rows. I'm working on my 1st domino square right now. This will matter when I need to pick up stitches for the next Half Domino Square because it says to begin from the right side (& I'm not sure if I should begin on the true right side)

21.12.2021 - 01:44

DROPS Design answered:

Dear Judi, colour change should always be from right side - read STRIPES, ie when working half domino square (hat), cast on/pick up the stitches with grey, work the first row from WS with grey, then change colour and work alternately 2 rows with rose, 2 rows with grey, starting from RS. Happy knitting!

21.12.2021 - 07:25

country flag Judi wrote:

Hello! When knitting the last row of the 1st section of the scarf, is the decrease at the beginning or the end of the row?

22.11.2021 - 03:51

DROPS Design answered:

Hi Judy, Decrease at the end of the row. Happy knitting!

22.11.2021 - 07:22

country flag Celine Francoeur wrote:

Bonjour ma question concerne le bonnet merci

15.11.2021 - 16:04

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Francoeur et merci! Lorsque vous tricotez les 4 premiers rangs du demi-domino (bonnet), vous tricotez jusqu'à ce qu'il reste 1 maille avant la maille centrale et diminuez 2 mailles au milieu du domino = vous diminuez 1 maille de chaque côté de la maille centrale = celle avec le marqueur. Vous diminuez en plus 1 m au début + 1 m à la fin du rang tous les 4 rangs (= tous les 2 rangs sur l'endroit). Est-ce que ceci peut vous aider?

16.11.2021 - 08:24

country flag Celine Francoeur wrote:

Bonjour confusion au niveau des instructions pour les diminutions: 1 à 4 indiqué rendu au marqueur glisser une maille tric 2 ensembles....dans les instructions après le rang 4 il faut diminuer 1 m de chaque côté du marqueur. Merci de clarifier

14.11.2021 - 18:12

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Francoeur, quelle modèle tricotez-vous? Le bonnet? L'écharpe ou bien les mitaines? Où en êtes vous précisément? Merci pour toutes ces infos qui pourront nous aider à vous répondre.

15.11.2021 - 08:29

country flag Martine wrote:

J'ai tricoté 6 triangles pour le béret en suivant les explications, il me semble que le 7 ème serait en trop puisque posé bien à plat le cercle est complet, est-ce bien nécessaire ce 7 ème triangle ?

06.01.2021 - 23:10

DROPS Design answered:

Bonjour Martine, le cercle doit se composer de 7 dominos triangles au total - vérifiez bien votre tension, cela peut en être la cause - en cas de doute, montrez votre ouvrage à votre magasin, ce sera plus facile pour eux de vous aider (n'hésitez pas à leur envoyer une photo par mail si besoin). Bon tricot!

07.01.2021 - 10:16

country flag Maryvonne Kottelat wrote:

Bonjour, je ne trouve pas la version française du béret, pouvez-vous m'indiquer où elle se trouve svpl ? Merci d'avance et meilleures salutations

19.12.2020 - 18:14

DROPS Design answered:

Bonjour Maryvonne! La version francaise est ICI. Bon tricot!

20.12.2020 - 22:49