DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11088.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Helsinki

Hekluð peysa úr DROPS Karisma með marglitu mynstri og hringlaga berustykki, hekluð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.

DROPS 172-35
DROPS Design: Mynstur nr u-797
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio
550-600-650-750-800-900 g nr 21, milligrár
100-100-100-100-150-150 g nr 65, gallabuxnablár
50-50-100-100-100-100 g nr 44, ljós grár
100 g í allar stærðir nr 39, dökk bleikvínrauður
50 g í allar stærðir í þessum litum
nr 73, bensínblár
nr 13, kirsuber

DROPS HEKLUNÁL NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 18 st x 9 umf verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11088.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.11. Mynsturteikning sýnir litamynstur á peysu. Sjá mynsturteikningu fyrir rétta stærð. Mynstur A.1, A.4, A.5 og A.8 eru bara hekluð í stærð M-XL-XXXL.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Stykkið er heklað í hring fram og til baka, þ.e.a.s. hver umf er hekluð saman í lok umf.
Hver umf með st byrjar með 3 ll (kemur ekki í stað fyrsta st) og endar með 1 kl í 3. ll í byrjun umf, snúið stykkinu.
Í byrjun á hverri umf með sl, skiptið út fyrsta st með 3 ll. Umf endar með 1 kl í 3. ll frá byrjun umf.

ÚTAUKNING-1:
Heklið 2 st í sama lit í 1 st frá fyrri umf.

LITAMYNSTUR:
Þegar skipt er um lit er heklað þannig: Fyrsti st er skipt út fyrir 3 ll, ef síðasti st frá fyrri umf og fyrsti st í næstu umf eru með mismunandi litum er síðasti st heklaður þannig: Heklið síðast st með fyrri litnum, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, skiptið yfir í næsta lit og dragið þráðinn í gegn í lokin, heklið síðan næsta st. Þegar heklað er með tveimur litum er þráðurinn sem ekki er heklað með lagður ofan á l frá fyrri umf, heklað er utan um þráðinn þannig að hann sjáist ekki og fylgi með. Passið uppá að fylgiþræðirnir dragi ekki stykkið saman og að þræðirnir verði ekki of stífir þegar þeir eru teknir upp frá fyrri umf.

ÚRTAKA:
Heklið þar til 4 st eru eftir á undan prjónamerki, heklið 2 st saman, heklið 1 st í hvern af næstu 4 st (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa l), heklið 2 næstu st saman (= 2 st færri). Endurtakið við bæði prjónamerkin.

ÚTAUKNING-2:
Heklið þar til 3 st eru eftir á undan prjónamerki, heklið 2 st í næsta st, 1 st í hvern af næstu 4 st (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa l), 2 st í næsta st (= 2 st fleiri). Endurtakið við bæði prjónamerkin.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað fram og til baka, en er heklað saman í lok umf, ofan frá og niður.

BERUSTYKKI:
Heklið 106-110-115-120-124-129 ll með heklunál nr 4 með litnum gallabuxnablár og tengið saman í hring með 1 kl í fyrstu ll. Heklið 3 ll (= 1 st) – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR, heklið 1 st í hverja og eina af næstu 1-5-3-1-5-3 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 st í hverja af næstu 6 ll *, endurtakið frá *-*= 92-96-100-104-108-112 st. Heklið frá miðju að aftan þannig:

UMFERÐ 1 í A.1 til A.4 heklað og aukið út jafnt yfir þannig (= frá réttu): Heklið A.1 (= 2 st) yfir fyrstu 0-2-0-2-0-2 st, endurtakið A.2 (= 4 st) yfir næstu 14-13-16-15-18-17 st og aukið út um 2-3-4-5-6-7 st (= hálft bakstykki) – LESIÐ ÚTAUKNING-1, A.3 (= 4 st) – sjá útaukning í mynstri, endurtakið A.2 yfir næstu 10 st og aukið út um 2-2-2-2-6-6 st, A.3 yfir næstu 4 st (= hægri ermi), endurtakið A.2 yfir næstu 28-30-32-34-36-38 st og aukið út um 4-6-8-10-12-14 st (= framstykki), A.3 yfir næstu 4 st, endurtakið A.2 yfir næstu 10 st og aukið út um 2-2-2-2-6-6 st, A.3 yfir næstu 4 st (= vinstri ermi), endurtakið A.2 (= 4 st) yfir næstu 14-13-16-15-18-17 st og aukið út um 2-3-4-5-6-7 st, endið með A.4 yfir síðustu 0-2-0-2-0-2 st = 112-120-128-136-152-160 st (meðtalin útaukning í A.3) – LESIÐ LITAMYNSTUR!

UMFERÐ 2 í A.1 til A.4 er heklað þannig (= frá röngu):
Heklið A.4 yfir fyrstu 0-2-0-2-0-2 st, endurtakið A.2 yfir næstu 16-16-20-20-24-24 st, A.3, endurtakið A.2 yfir næstu 12-12-12-12-16-16 st, A.3, endurtakið A.2 yfir næstu 32-36-40-44-48-52 st, A.3, endurtakið A.2 yfir næstu 12-12-12-12-16-16 st, A.3, endurtakið A.2 yfir næstu 16-16-20-20-24-24 st, endið með A.1 yfir síðustu 0-2-0-2-0-2 st = 120-128-136-144-160-168 l (meðtalin útaukning í A.3). ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!

UMFERÐ 5 í A.1 til A.4 er heklað og aukin út jafnt yfir þannig (= frá réttu):
Heklið A.1 yfir fyrstu 0-2-0-2-0-2 st, endurtakið A.2 yfir næstu 16-16-20-20-24-24 st og aukið út um 0-2-4-4-4-4 st, A.3, endurtakið A.2 yfir næstu 12-12-12-12-16-16 st og aukið út um 4-4-4-4-8-8 st, A.3, endurtakið A.2 yfir næstu 32-36-40-44-48-52 st og aukið út um 0-4-4-4-8-8 st, A.3, endurtakið A.2 yfir næstu 12-12-12-12-16-16 st og aukið út um 4-4-4-4-8-8 st, A.3, endurtakið A.2 yfir næstu 16-16-20-20-24-24 st og aukið út um 0-2-4-4-4-4 st, endið með A.4 yfir síðustu 0-2-0-2-0-2 st = 152-168-180-188-216-224 st (meðtalin útaukning í A.3).

UMFERÐ 6 í A.1 til A.4 er heklað þannig (= frá röngu):
Heklið A.4 yfir fyrstu 0-0-0-2-0-2 st, endurtakið A.2 yfir næstu 16-20-24-24-28-28 st, A.3, endurtakið A.2 yfir næstu 16-16-16-16-24-24 st, A.3, endurtakið A.2 yfir næstu 32-40-44-48-56-60 st, A.3, endurtakið A.2 yfir næstu 16-16-16-16-24-24 st, A.3, endurtakið A.2 yfir næstu 16-20-24-24-28-28 st, A.1 yfir síðustu 0-0-0-2-0-2 st = 160-176-188-196-224-232 st (meðtalin útaukning í A.3) Haldið síðan áfram eftir stærðum þannig:

STÆRÐ S:
Nú hefur útaukning verið gerð til loka, haldið áfram að hekla A.1 til A.4 og aukið út eins og í A.3. Þegar A.1 til A.4 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina eru 180 st.

STÆRÐ M-L-XL-XXL-XXXL:
Umferð 7 í A.1 til A.4 er heklað og aukin út jafnt yfir þannig (= frá réttu):
Heklið A.1 yfir fyrstu 0-0-2-0-2 st, endurtakið A.2 yfir næstu 20-24-24-28-28 st og aukið út um 0-0-2-4-4 st, A.3, endurtakið A.2 yfir næstu 16-16-16-24-24 st og aukið út um 4 st, A.3, endurtakið A.2 yfir næstu 40-44-48-56-60 st og aukið út um 0-4-4-4-8 st, A.3, endurtakið A.2 yfir næstu 16-16-16-24-24 st og aukið út um 4 st, A.3, endurtakið A.2 yfir næstu 20-24-24-28-28 st og aukið út um 0-0-2-4-4 st, endið með A.4 yfir síðustu 0-0-2-0-2 st = 184-200-212-244-256 st.

UMFERÐ 8 í A.1 til A.5 er heklað þannig (= frá röngu):
Heklið A.4 yfir fyrstu 0-0-0-0-2 st, endurtakið A.2 yfir næstu 20-24-28-32-32 st, A.3, endurtakið A.2 yfir næstu 20-20-20-28-28 st, A.3, endurtakið A.2 yfir næstu 40-48-52-60-68 st, A.3, endurtakið A.2 yfir næstu 20-20-20-28-28 st, A.3, endurtakið A.2 yfir næstu 20-24-28-32-32 st, A.1 yfir síðustu 0-0-0-0-2 st = 192-208-220-252-264 st (meðtalin útaukning í A.3).

UMFERÐ 9 í A.1 til A.4 er heklað og aukin út jafnt yfir þannig (= frá réttu):
Heklið A.1 yfir fyrstu 0-0-0-0-2 st, endurtakið A.2 yfir næstu 20-24-28-32-32 st og aukið út um 0-0-0-0-2 st, A.3, endurtakið A.2 yfir næstu 20-20-20-28-28 st og aukið út um 4 st, A.3, endurtakið A.2 yfir næstu 40-48-52-60-68 st og aukið út um 0-0-4-4-4 st, A.3, endurtakið A.2 yfir næstu 20-20-20-28-28 st og aukið út um 4 st, A.3, endurtakið A.2 yfir næstu 20-24-28-32-32 st og aukið út um 0-0-0-0-2 st, A.4 yfir síðustu 0-0-0-0-2 st = 212-228-244-276-292 st (meðtalin útaukning í A.3).

ALLAR STÆRÐIR:
Stykkið mælist nú ca 11 cm.

UMFERÐ 1 í A.5 til A.8 er heklað þannig (= frá röngu):
Heklið A.8 (= 4 st) yfir fyrstu 0-4-0-4-0-4 st, endurtakið A.6 (= 8 st) yfir næstu 16-16-24-24-32-32 st, endurtakið A.7 (= 7 st) yfir næstu 21 st, A.6 yfir næstu 16-24-24-24-32-32 st, endurtakið A.7 yfir næstu 21 st, endurtakið A.6 yfir næstu 32-40-48-56-64-72 st, endurtakið A.7 yfir næstu 21 st, A.6 yfir næstu 16-24-24-24-32-32 st, endurtakið A.7 yfir næstu 21 st, endurtakið A.6 yfir næstu 16-16-24-24-32-32 st, A.5 (= 4 st) yfir síðustu 0-4-0-4-0-4 st. Haldið svona áfram með mynstur og aukið út eins og sýnt er í A.7. Heklið 5-5-7-7-9-9 umf af A.5 til A.8.

Í 6.-6.-8.-8.-10.-10. hverri umf – sjá ör í mynstri A.5 til A.8 er heklað og aukið út jafnt yfir þannig (= frá réttu):
Heklið A.5 yfir fyrstu 0-4-0-4-0-4 st, A.6 yfir næstu 16-16-24-24-32-32 st og aukið út um 2-2-2-2-2-4 st, endurtakið A.7 yfir næstu 30 st, A.6 yfir næstu 16-24-24-24-32-32 st og aukið út um 4-0-2-6-0-4 st, A.7 yfir næstu 30 st, A.6 yfir næstu 32-40-48-56-64-72 st og aukið út um 4-4-4-4-4-8 st, endurtakið A.7 yfir næstu 30 st, A.6 yfir næstu 16-24-24-24-32-32 st og aukið út um 4-0-2-6-0-4 st, endurtakið A.7 yfir næstu 30 st, endurtakið A.6 yfir næstu 16-16-24-24-32-32 st og aukið út um 2-2-2-2-2-4 st, A.8 yfir síðustu 0-4-0-4-0-4 st = 232-256-276-300-320-352 st.
Heklið 1-2-1-2-1-2 umf til viðbótar af A.5-A.8 JAFNFRAMT í fyrstu umf er aukið út um 0-4-16-16-16-12 st jafnt yfir (þ.e.a.s. heklið alls 7-8-9-10-11-12 umf af A.5 til A.8) = 232-260-292-316-336-364 st. Stykkið mælist ca 19-20-21-22-23-24 cm. Haldið síðan áfram eftir stærðum þannig:

STÆRÐ M-XL-XXXL:
Næsta umf er hekluð þannig (= frá röngu):
Heklið A.6 yfir fyrstu 37-45-55 st (= hálft bakstykki), heklið 8-8-10 ll, setjið 1 prjónamerki í þessa l, hoppið yfir næstu 56-68-72 st (= vinstri ermi), A.6 yfir næstu 74-90-110 st (= framstykki), heklið 8-8-10 ll, setjið 1 prjónamerki á milli þessa l, hoppið yfir næstu 56-68-72 st (= hægri ermi), A.6 yfir síðustu 37-45-55 st (= hálft bakstykki) = 164-196-240 st.

STÆRÐ S-L-XXL:
Næsta umf er hekluð þannig (= frá réttu):
Heklið A.6 yfir fyrstu 33-41-49 st (= hálft bakstykki), hoppið yfir næstu 50-64-70 st (= hægri ermi), heklið 8-8-10 ll, setjið 1 prjónamerki á milli þessa l, A.6 yfir næstu 66-82-98 st (= framstykki), hoppið yfir næstu 50-64-70 st (= vinstri ermi), heklið 8-8-10 ll, setjið 1 prjónamerki í þessa l, A.6 yfir síðustu 33-41-49 st (= hálft bakstykki) = 148-180-216 st.

ALLAR STÆRÐIR:
= 148-164-180-196-216-240 st. Setjið 1 prjónamerki í stykkið. STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN! Endurtakið A.9 hringinn. Stykkið er síðan heklað með litnum milligrár. Þegar stykkið mælist 4 cm frá prjónamerki er fækkað um 2 st við hvert prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA! Fækkið l svona með 9-5-5-10-6-6 cm millibili alls 2-3-3-2-3-3 sinnum = 140-152-168-188-204-228 st. Þegar stykkið mælist 15-17-17-19-19-21 cm aukið út um 2 st við hvert prjónamerki – LESIÐ ÚTAUKNING-2! Aukið svona út með 3 cm millibili alls 4 sinnum = 156-168-184-204-220-244 st. Þegar stykkið mælist 31-33-33-35-35-37 cm aukið út um 0-0-2-0-2-2 st jafnt yfir = 156-168-186-204-222-246 st. Passið uppá að næsta umf sé frá réttu. Heklið A.10 (= 6 l) hringinn. Þegar A.10 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina mælist stykkið ca 54-56-58-60-62-64 cm frá kanti í hálsmáli. Klippið frá og festið enda.

ERMI:
= 50-56-64-68-70-72 st.
Ermin er hekluð í hring, ofan frá og niður. Byrjið á að hekla mitt undir ermi þannig: Heklið 8.-9.-10.-11.-12.-13. umf í mynstri A.8 yfir allar l þannig (þ.e.a.s. heklið rendur, mynstur gengur ekki jafnt upp í lykkjufjölda).
Heklið 1 fl í 5. ll af þeim 8-8-8-8-10-10 ll sem heklaðar voru í handveg á fram- og bakstykki, heklið 3 ll (= 1 st), heklið 1 st í hverja af næstu 3-3-3-3-5-5 ll, heklið 1 st í hvern st yfir ermi, heklið 1 st í hverja af þeim 4 ll sem eftir eru undir ermi = 58-64-72-76-80-82 st. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi. Setjið 1 prjónamerki í stykkið, látið þetta prjónamerki verða eftir í stykkinu, HÉÐAN ER NÚ MÆLT!, hitt prjónamerkið fylgir með í stykkinu. Heklið næstu umf þannig: Heklið 1-0-0-0-0-1 st, endurtakið A.11 yfir næstu 56-64-72-76-80-80 st (= 14-16-18-19-20-20 sinnum á breiddina), endið með 1-0-0-0-0-1 st. Þegar A.11 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina er stykkið síðan heklað með litnum milligrár. Þegar stykkið mælist 5 cm er fækkað um 1 st hvoru megin við prjónamerki (= 2 st færri). Fækkið l svona með 3- 2½-2-1½-1½-1½ cm milligrár alls 9-12-14-16-16-17 sinnum = 40-40-44-44-48-48 st. Þegar stykkið mælist 40-40-39-39-38-38 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis) heklið A.13 (= 2 st) hringinn. Klippið frá og festið enda þegar A.13 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina. Stykkið mælist ca 70-71-72-73-74-75 cm frá kanti í hálsi.
Heklið hina ermina á sama hátt.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Stykkið er heklað í hring frá miðju að aftan. Heklið í ll þar sem st voru heklaðir (þ.e.a.s. þær ll sem hoppað var yfir er ekki heklað í = 92-96-100-104-108-112 st). Heklið með litnum gallabuxnablár þannig:

UMFERÐ 1: Heklið 1 fl í hverja af fyrstu 8-9-10-11-12-13 l, * 1 hst í hverja af næstu 3 l, 1 st í hverja af næstu 3 l, 1 tbst í hverja af næstu 18 l, 1 st í hverja af næstu 3 l, 1 hst í hverja af næstu 3 l *, 1 fl í hverja af næstu 16-18-20-22-24-26 l, endurtakið frá *-* 1 sinni, 1 fl í hverja af síðustu 8-9-10-11-12-13 l.
UMFERÐ 2: Heklið 1 fl í hverja af fyrstu 12-13-14-15-16-17 l, ** 1 hst í hverja af næstu 3 l, 1 st í hverja af næstu 3 l, * heklið næstu 2 tbst saman *, endurtakið frá *-* 4 sinnum til viðbótar, 1 st í hverja af næstu 3 l, 1 hst í hverja af næstu 3 l **, 1 fl í hverja af næstu 24-26-28-30-32-34 l, endurtakið frá **-** 1 sinni til viðbótar, endið með 1 fl í hverja af síðustu 12-13-14-15-16-17 l = 82-86-90-94-98-102 l. Heklið 1 umf með 1 fl í hverja l. Klippið frá og festið enda.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 24.02.2017
ALLAR STÆRÐIR: ..Aukið svona út með 3 cm millibili alls 4 sinnum = 156-168-184-204-220-244 st. Þegar stykkið mælist 31-33-33-35-35-37 cm aukið út um 0-0-2-0-2-2 st jafnt yfir = 156-168-186-204-222-246 st.

Mynstur

symbols = 1 stuðull með litnum gallabuxnablár
symbols = 2 stuðull í stuðul með litnum gallabuxnablár
symbols = 1 stuðull með litnum milligrár
symbols = 2 stuðlar í stuðul með litnum milligrár
symbols = 1 stuðull með dökk litnum bleikvínrauður
symbols = 2 stuðlar í stuðul með litnum dökk bleikvínrauður
symbols = 1 stuðull með litnum bensínblár
symbols = 2 stuðlar í stuðul með litnum bensínblár
symbols = 1 stuðull með litnum ljós grár
symbols = 2 stuðlar í stuðul með litnum ljós grár
symbols = 1 stuðull með litnum kirsuber
symbols = útauknings umferð - sjá uppskrift
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 172-35

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (100)

country flag Lisa Soucy wrote:

What does ' work in mid back ' means ?

03.01.2017 - 05:26

DROPS Design answered:

Dear Mrs Soucy, you are working in the round from mid back, ie from the middle on back piece. Happy crocheting!

03.01.2017 - 09:30

country flag Linda Eliseussen wrote:

Holder på med XXL. Når genseren skal heklese fra vrangen og retten annenhver gang, skal også mønsteret følgese fra venstre mot høyre og så høyre mot venstre annenhver gang også?

25.12.2016 - 11:15

DROPS Design answered:

Hej Linda. Naar du hekler frem og tilbage saa hekler du som fölger: retten hekles (og laeses) fra höjre mod venstre og vrangen hekles (og laeses) fra venstre mod höjre.

30.12.2016 - 12:54

country flag Annick wrote:

Bonjour, je ne comprends pas comment crocheter les rangs 3 et 4, les explications sautent au rang 5. pourriez-vous me dire précisément comment les crocheter, quels diagrammes , dans quel ordre? merci

08.12.2016 - 07:37

DROPS Design answered:

Bonjour Annick, aux rangs 3 et 4 suivez simplement les diagrammes dans les même ordre qu'avant. On augmentera de nouveau à intervalles réguliers au rang 5. Bon crochet!

08.12.2016 - 08:59

country flag Linda Eliseussen wrote:

Når jeg har heklet ferdig 2. rad på A1-A4, skal jeg da hekle 3. rad av A1-A4 (fra retten) hele veien rundt, deretter 4. rad av A1-A4 (fra vrangen) hele veien rundt? I så fall, kan dere legge inn det i oppskriften. Det ville gjort det så mye lettere å forstå.

03.12.2016 - 22:26

DROPS Design answered:

Hej Linda. Du haekler naturligvis rad 3 og 4. Vi har her valgt kun at beskrive de rader hvor der tages ud. De andre rader hekler du iflg mönstret med 1 st i 1 st

06.12.2016 - 15:34

country flag Linda Eliseussen wrote:

Hei, Stemmer det at ifht digrammene, så hekler du rad 1 høyre mot venstre, rad 2 venstre mot høyre, rad 3 høyre mot venstre osv.? Og stemmer det først skal rad 1 hekles, deretter rad 2 og så hoppe rett til rad 5?

01.12.2016 - 22:10

DROPS Design answered:

Hej Linda. Nej, ikke her, fordi du hekler rundt, saa starter hver omgang fra höjre mod venstre. Naar du haekler frem og tilbage, saa hekler du 1 omg fra höjre mod venster, 2 omg fra venstre mod höjre osv.

02.12.2016 - 15:07

country flag Tea Bodewes wrote:

Nogmaals dezelfde vraag over de 10e toer van de Helsinki trui ( haakpatroon) Kan ik daar ook iemand over bellen aangezien er niet gereageerd wordt op mijn vraag? Alvast bedankt

17.11.2016 - 15:02

DROPS Design answered:

Hoi Tea. Ivm drukte kan ik helaas niet sneller reageren op alle vragen - daarbij moet ik bij dit model wat meer induiken dan andere. Je moet even geduld hebben - of bel met je DROPS verkooppunt voor persoonlijke ondersteuning. Bedankt voor je begrip!

17.11.2016 - 15:19

country flag Tea Bodewes wrote:

Mijn vraag gaat over de 10e toer. Ik haak maat M. Na toer 9 is het de bedoeling dat je 228 stokjes hebt. In toer 10 moet je weer gaan meerderen maar kom je in totaal op 224 -12 meerderingen = 212 stokjes uit. Houd je dus 16 stokjes over dit is dus een vermindering. Lees ik niet goed????,of zit hier een fout in het patroon. In ieder geval hoop ik dat iemand mij hiermee kan helpen.

14.11.2016 - 19:17

DROPS Design answered:

Hoi Tea. Excuses voor de wachttijd. Je hebt 212 stk aan het eind van toer 9 (je haakt deze toeren alleen voor de maten M-L-XL-XXL-XXXL). Dus dan klopt het als je begint op toer 10. Je eindigt maat S na toer 6 met 180 stk.

30.11.2016 - 15:08

country flag Marie wrote:

Je suis bloquée au niveau du départ des manches. Vous dites : sauter 64 brides (taille L) pour la manche droite. Dois-je faire des mailles en l'air pour sauter ou piquer directement 64 B plus loin ? Aussi, à quoi sert la chainette de 8 ml à faire après ? Merci de votre aide

07.11.2016 - 09:53

DROPS Design answered:

Bonjour Marie, la chaînette de 8 ml que l'on fait correspond à l'emmanchure et remplace les 64 brides sautées sur ce rang. Bon crochet!

07.11.2016 - 11:01

country flag Janette wrote:

Hei. Missä on kierrokset 3 ja 4? kun hyppää kierrokselta 2 suoraan vitoseen ja silmukoitten lisäyksiä olisi pitäny kierroksella tulla 32silmukkaa... Todella nätti pusero olisi tuloillaa, mutta taas pitää alkaa purkaan ja miettiin kuinka nuo kaksi puuttuvaa kierrosta tekeepi

01.11.2016 - 20:23

DROPS Design answered:

3. ja 4. kerroksella virkataan pylväitä ilman lisäyksiä, joten näitä kerroksia ei selitellä erikseen.

22.11.2016 - 16:38

country flag Elisabeth Läng wrote:

Ich kann leider die passenden Videos zu dieser Anleitung nicht finden. Wie muss ich das machen?

18.10.2016 - 16:47

DROPS Design answered:

Liebe Frau Läng, um die Videos zu sehen, können Sie den Fensterinhalt nach oben verschieben oder unter den Tab "Videos" rechts von Tab "Material", dh hier.

19.10.2016 - 08:59