DROPS Puna
DROPS Puna
100% Alpakka
frá 968.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 15488.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Misty Mountain

Hekluð húfa og peysa úr DROPS Puna með röndum, heklað ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.

DROPS 173-37
DROPS Design: Mynstur nr pu-005
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

PEYSA:
Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS PUNA frá Garnstudio
500-550-600-650-700-750 g litur nr 07, ljós grár
50-50-50-50-100-100 g litur nr 01, natur
100 g í allar stærðir litur nr 04, grábrúnn

DROPS HEKLUNÁL NR 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 16 st x 8 umf verði 10 x 10 cm eða 12 umf mynstur verði 10 cm á hæðina.

HÚFA:
Stærð: S/M – M/L – XL
Höfuðmál: 54/56 – 56/58 – 58/60 cm

Efni:
DROPS PUNA frá Garnstudio
50-50-50 g litur nr 07, ljós grár
50-50-50 g litur nr 01, natur
50-50-50 g litur nr 04, grábrúnn

DROPS HEKLUNÁL NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 20 st x 10 umf verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Puna
DROPS Puna
100% Alpakka
frá 968.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 15488.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Sjá mynsturteikningu fyrir rétta stærð.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Hver umf með fl byrjar með 1 ll (kemur í stað fyrstu fl) og endar með 1 kl í fyrstu ll í byrjun umf.
Hver umf með st byrjar með 3 ll (kemur í stað fyrsta st) og endar með 1 kl í 3. ll í byrjun umf.
Í lok hverrar umf með st/fl er heklað þannig: Áður en þráðurinn er dreginn í gegnum síðasta st/fl í síðasta skipti er skipt um lit þannig: Takið næsta lit, þ.e.a.s. 2 umf niður (1 st umf og 1 fl umf), með nýja litnum er hekluð 1 kl um umf sem var hekluð (þ.e.a.s. um síðasta st/fl), 4 ll, dragið síðan þráðinn í gegnum síðustu lykkjuna á heklunálinni. Þetta er gert til að þráðurinn dragi ekki stykkið saman.

RENDUR:
RÖND 1: 1 umf með natur.
RÖND 2: 1 umf með ljós grár.
RÖND 3: 1 umf með grábrúnn.

ÚRTAKA (á við um fram- og bakstykki):
Passið uppá að næsta umf sé 1 umf með st. Heklið eins og áður þar til 1 l er eftir á undan prjónamerki, * heklið 1 st um næstu ll, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 st til viðbótar í sömu ll, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar l á heklunálinni (= 1 st færri) *, endurtakið frá *-* um næstu ll (þ.e.a.s. hinum megin við prjónamerki) = 2 st færri við hvort prjónamerki (= alls 4 st). Í hvert skipti sem l er fækkað, endurtakið A.1 alls 2 sinnum færra á breiddina.

ÚTAUKNING:
Passið uppá að næsta umf sé 1 umf með st. Heklið eins og áður þar til 1 ll er eftir á undan prjónamerki, heklið 3 st um næstu ll *, endurtakið frá *-* alls 2 sinnum = 2 st fleiri við prjónamerki, endurtakið við bæði prjónamerki (= alls 4 st fleiri). Í hvert skipti sem auka á út, endurtakið A.1 alls 2 sinnum oftar á breiddina.

ÚRTAKA-1 (á við um ermi):
Passið uppá að næsta umf sé 1 umf með st. * Heklið 1 st um fyrstu/næstu ll í umf, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 st til viðbótar um sömu ll, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar l á heklunálinni (= 1 st færri) *, endurtakið frá *-* um næstu ll = 2 st færri. Í hvert skipti sem l er fækkað, endurtakið A.1 alls 1 sinni færra á breiddina. Fækkið l til skiptis í byrjun og í lok umf (þ.e.a.s. þegar fækka á l í lokin er heklað eins og áður þar til 2 ll eru eftir í umf).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring, ofan frá og niður. Umf byrjar við miðju að aftan.

BERUSTYKKI:
Heklið 96-101-101-110-115-120 ll með heklunál nr 4,5 með litnum grábrúnn og tengið saman í hring með 1 kl í fyrstu ll. Heklið 3 ll (= 1 st) – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR, 1 st í hverja af næstu 5-3-3-5-3-1 ll * hoppið yfir 1 ll, 1 st í hverja af næstu 6 ll *, endurtakið frá *-* = 84-88-88-96-100-104 st.

Heklið 2. umf (= umf með fl/ll) í mynstri með RENDUR þannig – sjá útskýringu að ofan: Heklið A.1 yfir fyrstu 10-12-12-12-14-14 st (= 5-6-6-6-7-7 sinnum á breidd), A.2 yfir næstu 8 st (= 2 sinnum á breidd), A.1 yfir næstu 6-6-6-8-8-8 st (= 3-3-3-4-4-4 sinnum á breidd), A.2 yfir næstu 8 st (= 2 sinnum á breidd), A.1 yfir næstu 20-22-22-24-26-28 st (= 10-11-11-12-13-14 sinnum á breidd), A.2 yfir næstu 8 st (= 2 sinnum á breidd), A.1 yfir næstu 6-6-6-8-8-8 st (= 3-3-3-4-4-4 sinnum á breidd), A.2 yfir næstu 8 st (= 2 sinnum á breidd), A.1 yfir síðustu 10-10-10-12-12-14 st (= 5-5-5-6-6-7 sinnum á breidd).

Endurtakið A.1 á hæðina og aukið út eins og útskýrt er í A.2 JAFNFRAMT er aukið út jafnt yfir þannig:

Heklið umf 3 í mynstri JAFNFRAMT er aukið út jafnt yfir þannig: Heklið A.1 yfir fyrstu 10-12-12-12-14-14 l og aukið út um 0-2-2-4-4-4 st jafnt yfir, A.2 sem og áður (= 2 sinnum á breidd), A.1 yfir næstu 6-6-6-8-8-8 l og aukið út um 0-4-4-4-4-4 st jafnt yfir, A.2 eins og áður, A.1 yfir næstu 20-22-22-24-26-28 l og aukið út um 0-4-4-6-6-8 st jafnt yfir, A.2 eins og áður, A.1 yfir næstu 6-6-6-8-8-8 l og aukið út um 0-4-4-4-4-4 st jafnt yfir, A.2 eins og áður, A.1 yfir síðustu 10-10-10-12-12-14 l og aukið út um 0-2-2-2-4-4 st jafnt yfir = 100-120-120-132-138-144 st (meðtalin útaukning í A.2). ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!

Heklið umf 4 í mynstri þannig: Heklið A.1 yfir fyrstu 10-14-14-16-18-18 st, A.2 eins og áður, A.1 yfir næstu 6-10-10-12-12-12 st, A.2 eins og áður, A.1 yfir næstu 20-26-26-30-32-36 st, A.2 eins og áður, A.1 yfir næstu 6-10-10-12-12-12 st, A.2 eins og áður, A.1 yfir síðustu 10-12-12-14-16-18 st.

Heklið umf 5 í mynstri JAFNFRAMT er aukið út jafnt yfir þannig: Heklið A.1 yfir fyrstu 10-14-14-16-18-18 l og aukið út um 0-0-0-2-0-4 st jafnt yfir, A.2 eins og áður (= 2 sinnum á breidd), A.1 yfir næstu 6-10-10-12-12-12 l og aukið út um 0-2-4-4-0-0 st jafnt yfir, A.2 eins og áður, A.1 yfir næstu 20-26-26-30-32-36 l og aukið út um 0-0-2-4-4-8 st jafnt yfir, A.2 eins og áður, A.1 yfir næstu 6-10-10-12-12-12 l og aukið út um 0-2-4-4-0-0 st jafnt yfir, A.2 eins og áður, A.1 yfir síðustu 10-12-12-14-16-18 l og aukið út um 0-0-2-2-2-4 st jafnt yfir = 116-140-148-164-160-176 st (meðtalin útaukning í A.2).

Haldið áfram með mynstur og útaukningu í A.2. Þegar síðasta umf er eftir í A.2 mælist stykkið ca 18-18-19-19-21-21 cm frá kanti í hálsi (= 212-236-260-276-304-320 st).

Heklið síðustu umf A.2 þannig: Heklið A.1 yfir fyrstu 10-14-14-18-18-22 st, A.2 yfir næstu 20-20-22-22-26-26 st (= 1 sinni á breidd), 8-8-8-10-10-12 ll, hoppið yfir næstu 46-52-58-60-64-64 st (þ.e.a.s. 20-20-22-22-26-26 st A.2, 6-12-14-16-12-12 st A.1 og 20-20-22-22-26-26 st A.2 fyrir ermi), A.2 yfir næstu 20-20-22-22-26-26 st (= 1 sinni á breidd), A.1 yfir næstu 20-26-28-34-36-44 st, A.2 yfir næstu 20-20-22-22-26-26 st (= 1 sinni á breidd), 8-8-8-10-10-12 ll, hoppið yfir næstu 46-52-58-60-64-64 st (þ.e.a.s. 20-20-22-22-26-26 st A.2, 6-12-14-16-12-12 st A.1 og 20-20-22-22-26-26 st A.2 fyrir ermi), A.2 yfir næstu 20-20-22-22-26-26 st (= 1 sinni á breidd), A.1 yfir síðustu 10-12-14-16-18-22 st = 136-148-160-176-196-216 l. Stykkið er nú heklað áfram með litnum ljós grár.

Næsta umf er hekluð þannig: Heklið A.1 yfir fyrstu 30-34-36-40-44-48 l, 1 st í hverja af næstu 8-8-8-10-10-12 ll undir ermi, setjið 1 prjónamerki á milli þessa l, A.1 yfir næstu 60-66-72-78-88-96 l, 1 st í hverja af næstu 8-8-8-10-10-12 ll undir ermi, setjið 1 prjónamerki á milli þessa l, A.1 yfir síðustu 30-32-36-38-44-48 l. Setjið 1 prjónamerki í stykkið, HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Endurtakið síðan A.1 yfir allar l.

Þegar stykkið mælist 4 cm frá prjónamerki er fækkað um 2 st við hvert prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA! Fækkið l svona með 4-4-4½-4½-5½ cm millibili alls 3 sinnum = 124-136-148-164-184-204 l.

Þegar stykkið mælist 14-16-16-17-17-19 cm frá prjónamerki, aukið út um 2 st við hvert prjónamerki – LESIÐ ÚTAUKNING!

Aukið út svona með 2½ cm millibili alls 6 sinnum = 148-160-172-188-208-228 st. Haldið áfram með mynstur þar til stykkið mælist 35-37-37-38-38-40 cm frá prjónamerki (= 54-56-58-59-61-63 cm frá kanti í hálsi), passið uppá að enda með 1 umf st. Klippið frá og festið enda.

ERMI:
= 46-52-58-60-64-64 st. Fyrsta umf á ermi er hekluð með sama lit og síðasta röndin í fl á fram- og bakstykki. Ermin er hekluð í hring, ofan frá og niður. Byrjið að hekla mitt undir ermi þannig: Heklið 1 fl í 5.-5.-5.-5.-5.-6. ll af þeim 8-8-8-10-10-12 ll sem heklaðar voru í handveg á fram- og bakstykki, heklið 1 ll (= 1 fl), heklið 1 fl í hverja af næstu 3-3-3-5-5-6 ll, A.1 (þ.e.a.s. 1 umf með fl og ll) yfir 46-52-58-60-64-64 st yfir ermi, endið með 1 fl í hverja af þeim 4-4-4-4-4-5 ll sem eftir eru undir ermi = 54-60-66-70-74-76 l. Stykkið er nú heklað áfram með litnum ljós grár. Setjið 1 prjónamerki í stykkið, HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Heklið A.1 hringinn. Þegar stykkið mælist 3 cm frá prjónamerki er fækkað um 2 st undir ermi – LESIÐ ÚRTAKA-1. Fækkið l svona með 3- 2½-2-2-2-2 cm millibili alls 11-13-15-17-18-18 sinnum = 32-34-36-36-38-40 l. Þegar stykkið mælist 42-44-43-45-45-47 cm frá prjónamerki, stillið af að endað sé með 1 umf með st. Klippið frá og festið enda. Heklið hina ermina alveg eins.

KANTUR Í HÁLSI:
Heklið með litnum ljós grár frá réttu þannig: Heklið 1 fl í hverja ll sem st voru heklaðir í fyrstu umf (= 84-88-88-96-100-104 fl). Klippið frá og festið enda.

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað ofan frá og niður í RENDUR – sjá útskýringu að ofan.

HÚFA:
Heklið 4 ll með heklunál nr 3,5 með litnum grábrúnn og tengið saman í hring með 1 kl í fyrstu ll. Heklið A.3- LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR. Eftir 3 fyrstu umf af A.3 (= 36 st) endurtakið A.3 alls 4 sinnum hringinn.
ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar síðasta umf af A.3 hefur verið hekluð er aukið út um 0-2-4 st jafnt yfir = 96-98-100 st. Stykkið mælist ca 17 cm að þvermáli. Heklið síðan A.1 yfir allar l (= 48-49-50 sinnum hringinn). Þegar stykkið mælist alls 23-24-25 cm frá toppi, stillið af að síðasta umf sé umf með st, heklið 1 fl í hvern st (haldið áfram með rendur). Heklið alls 3 umf með 1 fl í hverja l. Stykkið mælist alls 24-25-26 cm frá toppi. Klippið frá og festið enda.

Mynstur

symbols = stuðull í loftlykkju
symbols = stuðull um loftlykkjju
symbols = fastalykkja í stuðul
symbols = fastalykkja á milli 2 stuðla
symbols = loftlykkja
symbols = fyrsta umferð er útskýrð í uppskrift, byrjið á 2. umferð
symbols = útauknings umferð - sjá útskýringu í uppskrift
diagram
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 173-37

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (107)

country flag Lea wrote:

Hej Jeg er begyndt på opskrift 173-37 i størrelse S men jeg er i tvivl om hvordan opskriften skal læses. Hvad skal fx hækles i omgang 2 og omgang 3? Og hvad menes der med at man skal gentage A1 i højden og samtidig tage ud som i A2? Hvis man skulle skrive opskriften kun til S hvilke tal skal jeg så kigge på? Venlig hilsen Lea

04.03.2024 - 21:28

DROPS Design answered:

Hej Lea, du skal kigge på det først tal til størrelse S. Så du starter med 96 lm og hækler ifølge diagrammerne :)

07.03.2024 - 15:37

country flag Mada wrote:

Jeg har forsøkt å hekle både jakka 173-38 og genseren 173-37, uten å få det til. Det er noe som virker galt med økningen i de første omgangene, det blir alt for mange masker. F.eks. Økning i str XL (genser), mellom 1. omg (96 m), 2. omg (økning 16 m =112 m), 3. omg (økning 38 m = 150 m). Ifølge oppskrifta skal det bare være 132 m etter 3. omg. Hva er galt?

18.01.2024 - 22:07

country flag Nina wrote:

Bonjour, merci pour votre réponse :) Pour ce fameux 3eme tour, lorsque je regarde la grille a.2, je comptes 8 brides (3 dans la 1ere m. en l'air, 2 dans la suivante et 3 dans la dernière). Si je dois faire la grille 2 fois comme vous l'indiquez, cela fait 16 brides au total. Est ce que je me trompes dans la ligne à lire sur la grille a.2 ? Merci encore pour votre aide.

30.11.2023 - 21:23

DROPS Design answered:

Bonjour Nina, le 3ème tour du diagramme A.2 est le 1er tour avec la flèche, autrement dit, celui où on crochète 6 brides (3 brides autour de chacune des mailles en l'air suivantes); le tour avec la 2ème flèche où on crochète 8 brides est le 5ème tour du diagramme, où on devra aussi augmenter à intervalles réguliers dans A.1 (pas dans A.2). Bon crochet!

01.12.2023 - 08:28

country flag Nina wrote:

Bonjour, je tente de réaliser ce modèle en taille M mais jai des difficultés avec les comptes de brides. Au tour 3, si je fais les augmentations en a.1 et a.2, je compte : 14 brides a.1 + 16 b a.2 + 10 b a.1 + 16 b a.2 + 26 b a.1 + 16 b a.2 + 10 b a.1 + 16 b a.2 + 12 b a.1 = 136 b au total. Pourtant il est écrit pour ce tour : " 120 B [y compris les augm. de la grille 2]". Je ne comprends pas où est mon erreur. Est-ce que vous pouvez maider sur cette étape ? Merci :)

29.11.2023 - 18:54

DROPS Design answered:

Bonjour Nina, au 3ème tour vous devez avoir: 12 brides dans chacun des A.2, pas 16: vous crochetez 2 fois A.2 en largeur soit 2 fois (3 brides autour de chacun des 2 arceaux), vous aurez ainsi 120 brides. Bon crochet!

30.11.2023 - 10:07

country flag Kristel wrote:

Ik kan niet goed terugvinden welke maat het beste bij mijn lichaamsafmetingen zou passen. Is er een maattabel waar ik dit op kan opzoeken? Met vriendelijke groet, Kristel.

20.07.2023 - 23:30

DROPS Design answered:

Dag Kristel,

Het handigst is om een kledingstuk erbij te pakken dat je lekker zit en daarmee de maten te vergelijken. Ook vind je veel informatie op kledingmaat.nl

24.07.2023 - 20:14

country flag Emma Klasson wrote:

Jag förstår inte riktigt hur minskningen i mönstret ska göras. Vad menas med minska så med 4 cm mellanrum totalt 3 ggr. Ska jag virka 4 cm till på längden från första minskningen eller ska alla minskningar göras på samma varv?

22.03.2023 - 19:05

DROPS Design answered:

Hei Emma. Ja, du skal virka 4 cm till på längden från första minskningen, så virka 4 cm till og minska. Minska totalt 3 ganger. mvh DROPS Design

27.03.2023 - 11:29

country flag Leigh wrote:

Do you have any yarn substitutions recommendations for yarns that are machine washable? I have a baby and am constantly getting dirty so machine washable is a must!

01.11.2022 - 13:29

DROPS Design answered:

Dear Leigh, always follow the instructions on the label / shade card, you will find even more tips here - your Yarn store might have even more tipps for you, feel free to contact them even per mail or telephone. Happy knitting!

01.11.2022 - 15:48

country flag Evie wrote:

Hello, what does treble around chain mean? Thank you

17.09.2022 - 15:51

DROPS Design answered:

Dear Evie, it means that you need to work treble crochet under the chain, not inside it. Happy crocheting!

17.09.2022 - 16:09

country flag Amtonella wrote:

Buongiorno, nel.diagramma A2 il motivo parte con 4 m.a. da ripetere 2, nell'ultima riga le m.a. sono 20 (conti le maglie sul.diagrsmma) da ripetere 2 volte. Se fa i conti dei punti per ogni giro, tra aumenti in A1 e in A 2, il numero dei punti non corrisponde mai a quanto riportato sul testo di descrizione del lavoro......

06.01.2022 - 16:24

DROPS Design answered:

Buongiorno Antonella, ad esempio il 3° giro per la taglia M si lavora in questo modo: A.1 (12 maglie) + 2 aumenti, A.2 ripetuto 2 volte (= 12 maglie), A.1 (6 maglie) + 4 aumenti, A.2 ripetuto 2 volte (= 12 maglie), A.1 (22 maglie) + 4 aumenti, A.2 ripetuto 2 volte (= 12 maglie), A.1 (6 maglie) + 4 aumenti, A.2 ripetuto 2 volte (= 12 maglie), A.1 (10 maglie) + 2 aumenti = 120 maglie. Poi prosegue con lo stesso approccio per i giri successivi. Buon lavoro!

08.01.2022 - 13:27

country flag Antonella wrote:

I suggerimenti ricevuti non mi hanno aiutata. Avete controllato il testo e confrontato con il diagramma? Ripeto oltre a non essere assolutamente chiari, sono fuorvianti con i conteggi dei punti e gli aumenti indicati . Altro che schemi semplici! Secondo me ci sono errori di punteggiatura nel testo che dovreste rivedere. Nel frattempo ho acquistato la lana che non riesco a usare, sperienza NEGATIVA e lavoro a uncinetto da 40 anni!

04.01.2022 - 09:54

DROPS Design answered:

Buonasera Antonella, ci dispiace per la sua esperienza negativa: noi abbiamo risposto a TUTTE le sue domande e commenti, cercando di aiutarla. Il diagramma A.2 è parte con 4 maglie che diventano 6 al 3° giro e ogni volta che si lavora A.2 si lavorano 2 ripetizioni, partendo quindi da 8 maglie (= 2 ripetizioni per volta) al 1° giro e arrivando a 12 maglie (= 2 ripetizioni per volta). Inoltre al 3° giro per la taglia M deve aumentare il numero di maglie indicato nei diagrammi A.1. Buon lavoro!

04.01.2022 - 20:57