DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8624.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Candy Lane Cardigan

Prjónuð peysa DROPS Karisma, prjónuð ofan frá og niður með hringlaga berustykki og mynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 171-6
DROPS Design: Mynstur nr u-800
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio
450-450-500-550-600-650 g nr 77, ljós eik
50-50-50-50-100-100 g nr 65, gallabuxnablár
50-50-50-50-50-50 g litur nr 40, ljós bleikfjólublár
50-50-50-50-50-50 g litur nr 50, grænn
50-50-50-50-50-50 g litur nr 52, sinnepsgulur
50-50-50-50-50-50 g litur nr 64, gráfjólublár

ATH: Ef peysan er prjónuð með einum lit þá þarf 600-650-700-750-850-950 g Karisma.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 + 60 eða 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l x 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 3 – fyrir kant með garðaprjóni.
DROPS STÁL TALA, Ójöfn NR 534: 7-7-7-8-8-8 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8624.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veljið mynstur fyrir rétta stærð (á við um A.1). Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

ÚTAUKNING (á við um berustykki):
Til þess að reikna út hversu oft eigi að auka út í umf, teljið fjölda lykkja í umf (t.d. 86 l), mínus kantlykkjur að framan (t.d 10 l) og deilið þessum l með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 25 l) = 3,02. Þ.e.a.s. í þessu dæmi þá er aukið út á eftir ca þriðju hverri l (ekki er aukið út yfir kant að framan). Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat (aukið er út bæði frá réttu og frá röngu).

LEIÐBEININGAR:
Ef prjónfestan passar ekki á hæðina og prjónað er of fast þá kemur flíkin að verða of stutt og handvegur of lítill – hægt er að stilla þessu af með því að prjóna 1 auka umf með jöfnu millibili í einlitu mynstureiningunum.
ATH: Ef prjónað er of laust verður flíkin of löng og handvegur og stór, þá er hægt að prjóna 1 umf færri með jöfnu millibili í einlitu mynstureiningunum.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi):
Byrjið 3 l á undan prjónamerki, prjónið 2 l slétt saman, 2 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir (úrtöku-l + 2 miðju-l undir ermi eru prjónaðar með litnum ljósri eik eftir allri erminni).

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagati í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 3 l eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu l slétt saman og prjónið síðustu l slétt. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat.
Fyrsta hnappagatið er fellt af í fyrstu umf frá réttu eftir kant með garðaprjóni í hálsmáli. Fellið síðan af næstu 6-6-6-7-7-7 hnappagöt með ca 8 cm millibili.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 86-90-92-96-98-102 l (meðdaldar 5 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna nr 3 með litnum ljós eik. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið 1 umf slétt frá réttu þar sem auknar eru út 25-25-27-31-33-33 l jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING = 111-115-119-127-131-135 l – munið eftir HNAPPAGAT í kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Til að peysan passi betur er nú prjónuð upphækkun aftan í hnakka þannig: Setjið 1 prjónamerki fyrir miðju að aftan. Byrjið frá röngu með litnum ljós eik og prjónið br þar til prjónaðar hafa verið 13-13-14-15-16-17 l framhjá prjónamerki (kantur að framan er prjónaður sl), snúið við, herðið á þræði og prjónið 26-26-28-30-32-34 sl til baka. Snúið við, herðið á þræði og prjónið 39-39-42-45-48-51 l br, snúið við, herðið á þræði og prjónið 52-52-56-60-64-68 sl til baka. Snúið við, herðið á þræði og prjónið 65-65-70-75-80-85 l br, snúið við, herðið á þræði og prjónið 78-78-84-90-96-102 l sl til baka. Snúið við og prjónið br út umf (kantur að framan er prjónaður slétt).
Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið mynstur eftir A.1 þar til 6 l eru eftir í umf (veljið mynstur fyrir rétta stærð), prjónið fyrstu l í A.1 (svo að mynstrið byrji og endi eins í hvorri hlið við miðju að framan) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur og aukið jafnt út í verri umf merktri með ör í mynstri eins og útskýrt er frá að neðan – LESIÐ ÚTAUKNING, LEIÐBEININGAR og ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Ör-1: Aukið 40-42-44-50-56-62 l = 151-157-163-177-187-197 l.
Ör-2: Aukið 40-42-44-50-56-62 l = 191-199-207-227-243-259 l.
Ör-3: Aukið 30-36-38-44-48-52 l = 221-235-245-271-291-311 l.
Ör-4: Aukið 30-34-36-40-44-48 l = 251-269-281-311-335-359 l.
Ör-5: Aukið 26-30-34-38-38-38 l = 277-299-315-349-373-397 l.
Ör-6: Aukið 16-24-32-34-34-34 l = 293-323-347-383-407-431 l.
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka mælist stykkið ca 20-22-24-26-28-30 cm fyrir miðju að framan (meðtalinn kantur í garðaprjóni í hálsmáli). Næsta umf er prjónuð frá röngu með litnum ljós eik þannig: Prjónið 46-50-53-59-64-69 l eins og áður (= hægra framstykki), setjið næstu 59-67-73-79-81-83 l á þráð (= ermi), fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar l á prjóni (= í hlið), prjónið 83-89-95-107-117-127 l sléttprjón (= bakstykki), setjið næstu 59-67-73-79-81-83 l á þráð (= ermi), fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar l á prjóninn (= í hlið) og prjónið þær 46-50-53-59-64-69 l sem eftir eru eins og áður (= vinstra framstykki).
Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónaðar hvert fyrir sig.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 191-205-221-245-269-293 l. Setjið 1 prjónamerki – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Í fyrstu umf (= rétta) er aukið út um 0-2-2-2-2-2 l jafnt yfir JAFNFRAMT er prjónað þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið mynstur eftir A.2 þar til 6 l eru eftir í umf, prjónið fyrstu l í A.2 (svo að mynstrið byrjar og endar eins í hvorri hlið við miðju að framan) og endið með 5 kantlykkjur í garðaprjóni (ekki er aukið út yfir kant að framan) = 191-207-223-247-271-295 l. Haldið svona áfram með mynstur og aukið jafnt út í hverri umf merktri með ör í mynstri eins og útskýrt er frá að neðan – MUNIÐ EFTIR ÚTAUKNING!
Ör-1: Aukið 12-10-10-6-6-6 l = 203-217-233-253-277-301 l.
Ör-2: Aukið 18-18-16-10-14-18 l = 221-235-249-263-291-319 l.
Ör-3: Aukið 14-14-14-14-14-14 l = 235-249-263-277-305-333 l.
Ör-4: Aukið 8-10-12-14-18-14 l = 243-259-275-291-323-347 l.
Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka er haldið áfram í sléttprjóni með litnum ljós eik til loka. Þegar stykkið mælist 34 cm frá prjónamerki (peysan mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl), skiptið yfir í hringprjóna nr 3. Prjónið 6 umf garðaprjón (fyrsta umf er prjónuð frá réttu), skiptið til baka yfir á hringprjóna nr 4 og fellið LAUST af með sl frá réttu. Peysan mælist ca 60-62-64-66-68-70 cm frá öxl.

ERMI:
LESIÐ ALLAN KAFLANN UM ERMI ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM (útauknings umf í A.2 eiga ekki við um ermi)!
Ermin er prjónuð í hring á stutta hringprjóna, skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf.
Setjið 59-67-73-79-81-83 l af þræði í annarri hliðinni á stykki á stutta hringprjóna nr 4 og prjónið að auki upp 1 l í hverja af 8-8-10-10-12-14 l sem fitjaðar voru upp undir ermi á fram- og bakstykki = 67-75-83-89-93-97 l. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf (= mitt undir ermi) og 1 prjónamerki í miðju-l í umf (= miðja ofan á ermi). Prjónið mynstur í hring eftir A.2, en í hvorum kant með mynsturbekk sem er prjónaður, er mynstrið talið út með byrjun frá miðju-l í mynstri (sjá ör í mynstrið – miðju-l í mynstri á að passa með l með prjónamerki í mitt ofan á ermi).
ATH: Mynstrið kemur ekki til með að ganga jafnt upp mitt undir ermi – prjónið eins mikið mynstur eins og mögulegt er, en 4 miðju-l undir ermi eru alltaf prjónaðar með litnum ljós eik. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 2 cm er fækkað um 2 l mitt undir ermi – LESIÐ ÚRTAKA. Fækkið l svona alls 13-16-19-21-22-23 sinnum: Í stærð S: Í 8. hverri umf, í stærð M: Í 6. hverri umf, í stærð L: Í 5. hverri umf, í stærð XL: Í 4. hverri umf, í stærð XXL + XXXL: Til skiptis í 3. og 4. hverja umf = 41-43-45-47-49-51 l. Þegar prjónað hefur verið að ör með punkti merkt í A.2 er mynstrið prjónað í hring eftir A.3 alveg eins. Eftir A.3 er prjónað með sléttprjóni með ljós eik þar til ermin mælist 42-40-39-38-36-35 cm frá skiptingu undir ermi (eða að óskaðri lengd). Skiptið yfir í sokkaprjóna nr 3 og prjónið 6 umf GARÐAPRJÓN prjónað í hring – sjá útskýringu að ofan. Skiptið til baka yfir á sokkaprjóna nr 4 og fellið LAUST af með sl. Ermin mælist ca 44-42-41-40-38-37 cm frá skiptingu undir ermi.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = ljós eik
symbols = ljós bleikfjólublár
symbols = sinnepsgulur
symbols = grænn
symbols = gráfjólublár
symbols = gallabuxnablár
symbols = prjónstefna
symbols = útaukningsumferð
symbols = miðju-l
symbols = stoppið eftir þessa umf á ermi
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 171-6

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (6)

country flag Lisette Madsen wrote:

Jeg har strikket den med sort baggrund i stedet for lys eg. Sort fremhæver mønsterfarverne meget mere end lys eg og den er blivet rigtig flot.

10.09.2023 - 20:09

country flag Palina wrote:

Kan inte förstå hur det blir den totala antal maskor om man stickar upp 2 till på var sida. Sätt de 59-67-73-79-81-83 m från tråden i den ena sida av arb på kort rundst 4 och sticka dessutom upp 1 m i var och en av de 8-8-10-10-12-14 m som lades upp under ärmen på fram- och bakst = 67-75-83-89-93-97 m.

19.06.2021 - 10:19

DROPS Design answered:

Hei Palina. Litt usikker på hvor du ser at man skal strikke opp 2 til på hver side. Man setter de 59-67-73-79-81-83 maskene fra tråden i den ene side av arbeidet på liten rundpinne, strikker deretter opp 1 maske i hver av de 8-8-10-10-12-14 maskene som ble lagt opp under ermet på bolen = 67-75-83-89-93-97 masker. mvh DROPS design

21.06.2021 - 11:26

country flag Bodil Riise Bjørnebye wrote:

Fargene på bildet og fargene i virkeligheten er helt forskjellig. Mye finere på bildet, så jeg ble så skuffet, men strikker likevel med fargene jeg har fått tilsendt.

26.04.2019 - 11:09

country flag Mirja Kraack wrote:

Hallo, ich habe das Rumpfteil fertig und bin beim Ärmel angelangt, dass ich zu A3 wechseln soll. Irgendwie passt aber weder das Muster noch die Farbe zu dem Foto mit der Jacke. Wie geht's richtig? Viele Grüße Mirja

16.01.2017 - 15:15

Laura wrote:

A really pretty & feminine design - love it - please include!

11.06.2016 - 08:03

country flag Ynke wrote:

Beauty!

05.06.2016 - 12:17