DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2552.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 173-19
DROPS Design: Mynstur nr fa-349
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

Mál:
Mælt meðfram kanti efst:ca 156 cm.
Mælt fyrir miðju ca 50 cm.

Efni:
DROPS FABEL frá Garnstudio
150 g litur nr 602, silfur refur
50 g litur nr 111, sinnepsgulur

DROPS HRINGPRJÓNN (60 cm) NR 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 20 l x 39 umf með garðaprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2552.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna til að fá pláss fyrir allar lykkjur. Allar umferðir eru prjónaðar slétt.

SJAL:
Fitjið upp 168 lykkjur á hringprjóna nr 4,5 með litnum sinnepsgulur. Prjónið 2 umferðir slétt. Prjónið þannig:
UMFERÐ 1: Skiptið yfir í litinn silfur refur, prjónið 2 lykkjur slétt saman (aðeins laust), prjónið þar til 1 lykkja er eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn og 1 lykkja slétt (= 168 lykkjur).
UMFERÐ 2: Prjónið allar lykkjur slétt, uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt.
UMFERÐ 3: Prjónið 2 fyrstu lykkjur slétt saman (aðeins laust), prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman (aðeins laust), prjónið út umferðina (= 166 lykkjur).
UMFERÐ 4: Prjónið allar lykkjur slétt.

Endurtakið umferð 1 til 4 þrisvar sinnum til viðbótar = 160 lykkjur.

UMFERÐ 17: Skiptið yfir í litinn sinnepsgulur.
Prjónið 2 fyrstu lykkjur slétt saman (aðeins laust), prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman (aðeins laust), prjónið þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 2 lykkjur í síðustu lykkju.
UMFERÐ 18: Snúið við og prjónið 3 lykkjur til baka.
Snúið við og prjónið 2 lykkjur, prjónið 2 lykkjur í síðustu lykkju.
Snúið við og prjónið 5 lykkjur til baka.
Snúið við og prjónið 4 lykkjur, prjónið 2 lykkjur í síðustu lykkju. Snúið við og prjónið 7 lykkjur til baka.
Snúið við og prjónið 6 lykkjur, prjónið 2 lykkjur í síðustu lykkju. Snúið við og prjónið 9 lykkjur.
Snúið við og prjónið 8 lykkjur, prjónið 2 lykkjur í síðustu lykkju. Snúið við, fellið af fyrstu lykkju (= 1 lykkja á prjóni), prjónið 7 lykkjur.
Snúið við og prjónið 8 lykkjur.
Snúið við, fellið af fyrstu lykkju (= 1 lykkja á prjóni), prjónið 5 lykkjur.
Snúið við og prjónið 6 lykkjur.
Snúið við, fellið af fyrstu lykkju (= 1 lykkja á prjóni), prjónið 3 lykkjur.
Snúið við og prjónið 4 lykkjur.
Snúið við, fellið af fyrstu lykkju (= 1 lykkja á prjóni), prjónið 1 lykkju.
Snúið við og prjónið 2 lykkjur.
Snúið við, fellið af fyrstu lykkju á prjóni, prjónið út umferðina = 158 lykkjur í umferð.
Nú hafa verið prjónaðar 18 umferðir yfir allar lykkjur (í hægri hlið).

Endurtakið síðan umferð 1-18. Prjónið svona þar til 8 lykkjur eru eftir á prjóni. Prjónið 2 lykkjur slétt saman, 4 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman = 6 lykkjur. Fellið af.
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 173-19

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (44)

country flag Ulla Møller wrote:

Jeg kan på ingen måde få strikke fastheden til at passe. På p 4,5 skal jeg have 28 masker , på p 5,0 26 masker og på p 5,5 24 masker. Men ved p 5,5 bliver det alt for løst, og ved tyndere pinde vil jeg jo aldrig få den samme størrelse som opskriften. Kan I lave en omregning som jeg kan bruge, for at få det rigtige resultat? Med venlig hilsen

05.09.2019 - 11:14

DROPS Design answered:

Hei Ulla. Vi har dessverre ingen mulighet til å lage en omregning som passer din strikkefasthet. I oppskriften står det: DROPS RUNDP (60 cm) nr 4,5 – eller det p.nr du skal bruge for at få 20 m x 39 p retstrik på 10 x 10 cm, litt usikker på hvor du får at du skal ha 28 masker? mvh DROPS design

23.09.2019 - 11:11

country flag Evaloena wrote:

Ik begrijp niet wat je in rij 13-14-15 en 16 moet breien? Eerst is er een beschrijving van 4 rijen, 3 maal te herhalen en dan gaat het plots over rij 17 en 18...

03.04.2019 - 21:38

DROPS Design answered:

Dag Evaloena,

Je herhaalt naald 1 tot en met 4 nog 3 keer, dus in totaal 4 keer en dan zit je dus op 16 naalden. Je hebt dan 160 steken op de naald omdat je 4 keer 2 steken hebt geminderd.

04.04.2019 - 08:03

country flag Erna Palfi-Towsley wrote:

Ok I figured out what Row 2 was about - Now ? - what do you mean in Row 18 when you say Our and work 3 sts. What am I doing to the 3 sts. and so on - explain what work the stitches means?

29.05.2018 - 20:06

DROPS Design answered:

Dear Mrs Palfi-Towsley, the video below shows how to work the beginning of the shawl and how to work row 18 and short row to work the leaf at time code 05:46. Happy knitting!

30.05.2018 - 08:38

country flag Erna Pafi-Towsley wrote:

In Row 2 you suggest K all Sts, K YO twisted - are you suggesting the YO from Row 1`? and what does K YO twisted - how do you do this twisted stitch ?

29.05.2018 - 17:41

DROPS Design answered:

Dear Mrs Pafi-Towsley, correct on row 2 you will work the YO from row 1 twisted (= work in the back loop instead of front loop to avoid a hole) - as shown in the video below for 2nd yarn over -see time code 1:11 (1st yarn over from WS is worked as usual to create a hole). Happy knitting!

30.05.2018 - 08:29

country flag Chrissie wrote:

I am having a problem with the end of row 2, K YO twisted. The video clip is very fast and I can't see if this is an increase stitch, if it is then there will be 167 stitches at the end of row 4. Can you clarify this for me? Thank you

24.04.2018 - 22:59

DROPS Design answered:

Dear Chrissie, at the beg of row 2 you will knit the YO worked at the end of row 1 twisted (= into back loop instead of front loop). At the end of row 2 you should still have 168 sts. On row 3 you dec 2 sts by K2 tog 2 by 2 the 4 first sts on row = 166 sts remain. Happy knitting!

25.04.2018 - 08:19

Eleonora wrote:

Thank you for the detailed explanations on the forum for the Dragon tail pattern. However if it were having a printable version would be of great assistance. Having a fixed set window on the screen you may need to scroll many times left and right which gives an uncomfortable sense of working.

06.02.2017 - 11:28

DROPS Design answered:

Dear Eleonara, you can print the pattern and follow the explanations from the forum on computer or reversed if you rather work like this. Happy knitting!

06.02.2017 - 13:22

country flag Evelyne Leprêtre wrote:

Comment vous joindre pour une question autre que celle s'applicant à un modèle ? Je vous ai expliqué mon problème avec le site garnstudio, mais c'était trop long et le message n'est pas parti. Comment accéder à l'index alphabétique des techniques et points que j'avais avant,(très pratique) ? C'est devenu un casse-tête chinois pour trouver ce que l'on cherche. Merci de me répondre. Evelyne

18.01.2017 - 19:20

DROPS Design answered:

Bonjour Evelyne, vous pouvez poser votre question via cet outil disponible sous les modèles, vidéos, fils et leçons. Pour toute assistance individuelle, vous pouvez également demander à votre magasin DROPS ou sur le forum DROPS. Bon tricot!

19.01.2017 - 08:52

Irma Pérez wrote:

En el patrón dice:168 pts, Fila 1: tejer 2pjd (flojos) tejer hasta que reste 1 pt., 1 HEB (lazada) y 1 d.; hilera 2 Todos derechos; 3: los primeros 2 pts JUNTAMENTE DERECHO y el resto derecho, aqui dice que quedan 166); 4: todos derechos. Pregunta: NO ENCUENTRO LAS DISMINUCIONES.

10.01.2017 - 04:02

DROPS Design answered:

Hola Irma. En la tercera fila hay que trabajar seguido 2 pts juntos de derecho dos veces al inicio de la fila, es decir 2 pjd, 2 pjd, trabajar resto de los pts de derecho. (168 pts - dos disminuciones (= un total 2 pts dism) = 166 pts). Ha sido un fallo de traducción. Gracias

14.01.2017 - 12:47

country flag Priscillia wrote:

Bonne année!! alors voila je voulais savoir comment faire pour le rang 1 : dois je faire 2m ens à l'end puis sur le reste du rang faire "1 jeté et 1m end" ou "2m ens à l'end, 1 jeté, 1m end" repeter ceci jusqu'a qui reste une maille? merci pour votre reponse :)

05.01.2017 - 17:12

DROPS Design answered:

Bonjour Priscillia et merci! au 1er rang, on tricote 2 m ens à l'end, puis on continue à l'endroit jusqu'à ce qu'il reste 1 maille, on termine par 1 jeté, 1 m end (= 1 dim en début de rang, 1 augm en fin de rang). Bon tricot!

06.01.2017 - 08:31

country flag Dea wrote:

Quando si fanno le strisce col grigio, il filo giallo viene lavorato assieme all'altro durante la prima maglia sul lato per poter essere trasportato? Tra le righe dei due colori ci sono molti ferri quindi il filo che non si lavoro deve essere trasportato, ma come per precisione? Grazie

04.12.2016 - 18:25

DROPS Design answered:

Buonasera Dea, dal momento che ciono parecchi ferri tra i due colori sarebbe meglio tagliare ogni volta il filo giallo e ripartire, per avers un lavoro più pulito anche sul retro. Buon lavoro!

04.12.2016 - 20:01