DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8910.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Shades of Grey

Prjónuð peysa með 2 þráðum úr DROPS Alpaca með hringlaga berustykki, röndum, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.

DROPS 172-23
DROPS Design: Mynstur nr z-748
Garnflokkur A + A eða C
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
150-150-150-150-200-200 g nr 100, natur
100-100-100-100-150-150 g nr 9020, ljós perlugrár
100-100-100-150-150-150 g nr 501, ljós grár
150-200-200-200-250-250 g nr 517, milligrár
50-50-100-100-100-100 g nr 506, dökk grár
ATH. Ef stykkið er prjónað með einum lit þá þarf 450-500-550-600-650-700 g með 2 þráðum Alpaca.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 eða 60 og 80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l x 22 umf með sléttprjóni með 2 þráðum Alpaca verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 eða 60 og 80 cm) NR 4,5 fyrir kant með garðaprjóni – eða þá stærð sem þarf til að 18 l x 23 umf með sléttprjóni með 2 þráðum Alpaca verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8910.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*.

UPPHÆKKUN:
Prjónið upphækkun í sléttprjóni í hnakka frá miðju að aftan þannig: ATH! Í hvert skipti sem snúið er við fyrir miðju á stykki er 1. l tekin óprjónuð, herðið á þræði og prjónið síðan áfram og prjónið. Prjónið 8-9-10-11-11-12 l, snúið við, herðið á þræði og prjónið 16-18-20-22-22-24 l. Snúið við, herðið á þræði og prjónið 29-31-33-35-35-37 l, snúið við herðið á þræði og prjónið 42-44-46-48-48-50 l. Snúið við, herðið á þræði og prjónið 50-52-54-56-56-58 l, snúið við, herðið á þræði og prjónið 58-60-62-64-64-66 l. Snúið við og prjónið að miðju að aftan.

RENDUR:
Allar rendur eru prjónaðar með 2 þráðum Alpaca. Þegar eftir er ca 1 cm í 1-5 rönd er prjónuð GATAUMFERÐ – sjá útskýringu að neðan.
RÖND 1: 9-9-9-10-10-10 cm með 2 þráðum natur
RÖND 2: 9-9-10-10-10-11 cm með 1 þræði natur + 1 þráður ljós perlugrár.
RÖND 3: 9-9-10-10-10-11 cm með 1 þræði ljós perlugrár + 1 þræði ljós grár.
RÖND 4: 9-10-10-10-11-11 cm með 1 þræði ljós grár + 1 þræði milligrár
RÖND 5: 9-10-10-10-11-11 cm með 2 þráðum milligrár.
RÖND 6: 10-10-10-11-11-11 cm með 1 þræði milligrár + 1 þræði dökk grár.

GATAUMFERÐ:
Þegar eftir er ca 1 cm í rönd 1-5 er prjónuð gataumferð þannig:
* 2 l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* umf hringinn. Ef eftir er 1 l í umf, prjónið hana sl. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat.

ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hversu oft eigi að auka út í umf, teljið fjölda lykkja í umf, (t.d. 88 l) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 16 l) = 5,5. Þ.e.a.s. í þessu dæmi þá er aukið út til skiptis um 1 l í 5. og 6. hverja l.

ÚTAUKNING-2 (berustykki):
Aukið út um 1 l með því að slá uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat.
Aukið út til skiptis hægra og vinstra megin við hvert prjónamerki.
Þ.e.a.s. í fyrsta skipti er aukið út hægra megin við öll prjónamerkin, í annað skipti er aukið út vinstra megin við öll prjónamerkin, o.s.frv.

ÚTAUKNING-3 (fram- og bakstykki):
Prjónið þar til 2 l eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 sl (prjónamerkið er staðsett mitt á milli þessa l), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA:
Prjónið þar til 4 l eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 l slétt saman, prjónið 4 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa l), takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. ATH: Stillið úrtöku þannig af að hún verði ekki í gataumferð.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði ekki stífur þá er hægt að fella af með ½ nr grófari prjónum.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna ofan frá og niður. Byrjun umf = miðja að aftan.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 88-92-95-99-103-109 l með 2 þráðum í litnum natur á hringprjóna nr 4,5. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5. Prjónið 1 umf sléttprjón þar sem aukið er út um 16-16-21-21-21-23 l jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir) = 104-108-116-120-124-132 l.
Prjónið nú UPPHÆKKUN – sjá útskýringu að ofan, í sléttprjóni í hnakka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Setjið nú 6 prjónamerki í stykkið þannig: Prjónið 9-9-10-10-11-11 l, setjið eitt prjónamerki, prjónið 17-18-19-20-20-22 l, setjið eitt prjónamerki, prjónið 17-18-19-20-20-22 l, setjið eitt prjónamerki, prjónið 18-18-20-20-22-22 l, setjið eitt prjónamerki, prjónið 17-18-19-20-20-22 l, setjið eitt prjónamerki, prjónið 17-18-19-20-20-22 l, setjið eitt prjónamerki, prjónið þær 9-9-10-10-11-11 l sem eftir eru. Í næstu umf eru prjónaðar RENDUR og GATAUMFERÐ – sjá útskýringu að ofan og aukið út um 1 l við hvert prjónamerki - LESIÐ ÚTAUKNING-2 (berustykki).
Aukið svona út í hverri umf 13-17-19-20-21-21 sinnum og í annarri hverri umf 8-8-8-10-12-14 sinnum (= alls 21-25-27-30-33-35 sinnum) = 230-258-278-300-322-342 l. Prjónið 1 umf þar sem aukið er út um 2-4-2-2-4-2 l jafnt yfir = 232-262-280-302-326-344 l. Prjónið nú næstu umf þannig: Prjónið fyrstu 34-38-40-44-49-53 l (= hálft bakstykki), setjið næstu 48-55-60-63-65-66 l á þráð (= ermi), fitjið upp 6-6-8-8-10-12 l undir ermi, prjónið næstu 68-76-80-88-98-106 l (= framstykki), setjið næstu 48-55-60-63-65-66 l á þráð (= ermi), fitjið upp 6-6-8-8-10-12 l undir ermi, prjónið þær 34-38-40-44-49-53 l sem eftir eru (= hálft bakstykki).

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Nú eru 148-164-176-192-216-236 l fyrir fram- og bakstykki. Setjið eitt prjónamerki mitt á milli nýrra 6-6-8-8-10-12 l sem fitjaðar voru upp undir ermi (= 3-3-4-4-5-6 nýjar l í hvorri hlið). STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN! Haldið síðan áfram hringinn með röndum, sléttprjóni og gataumferð eins og áður. Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerkin í hvorri hlið – LESIÐ ÚRTAKA.
Fækkið l svona með 2 cm millibili alls 4 sinnum = 132-148-160-176-200-220 l. Þegar stykkið mælist 15-15-16-16-16-16 cm aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerkin í hvorri hlið – LESIÐ ÚTAUKNING-3 (fram og bakstykki). Aukið svona út með 2 cm millibili alls 7 sinnum = 160-176-188-204-228-248 l. Þegar stykkið mælist 39-39-40-40-40-40 cm er skipt yfir á hringprjóna nr 4,5. Prjónið 4 umf garðaprjón og fellið af – LESIÐ AFFELLING. Stykkið mælist alls 60-62-64-66-68-70 cm frá öxl.

ERMI:
Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN! Setjið til baka lykkjur af þræði á sokkaprjóna nr 5 = 48-55-60-63-65-66 l. Prjónið upp 1 l í hverja og eina af 6-6-8-8-10-12 l sem fitjaðar voru upp undir ermi, setjið eitt prjónamerki mitt í þessa l (= 3-3-4-4-5-6 nýjar l hvoru megin við prjónamerki) = 54-61-68-71-75-78 l. Haldið síðan áfram í sléttprjóni, rendur og gataumferð eins og á fram- og bakstykki. Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerki mitt undir ermi. Fækkið l svona með ca 4-3-2-2-2-2 cm millibili alls 9-12-15-15-16-17 sinnum = 36-37-38-41-43-44 l. JAFNFRAMT í stærð S, M og L er prjónuð rönd 3,4 og 5 2-2-1 cm lengri en á fram- og bakstykki (þetta er gert til að síðasta röndin verði ekki mikið lengri en hinar). Í stærð XL, XXL og XXXL prjónið rendur eins og á fram- og bakstykki.
Þegar rendur hafa verið prjónaðar til loka er haldið áfram með síðustu röndina (= rönd 6) til loka. Þegar stykkið mælist 48-47-46-44-43-41 cm er prjónuð gataumferð. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4,5. Prjónið 4 umf garðaprjón og fellið af.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Shades of Grey

Monika, Sweden

Shades of Grey

spasskaya, Russian Federation

Shades of Grey

Isidor Knits, Germany

Skrifaðu athugasemd um DROPS 172-23

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (35)

country flag Eve wrote:

Augmentations I ( à repartir régulièrement dans le rang) De quel type d’augmentations s’agit-il? Prendre le fil dans le rang ou faire un jeté comme pour les augmentations II? Merci de votre réponse!

30.11.2023 - 01:24

DROPS Design answered:

Bonjour Eve, vous pouvez utiliser la technique que vous préférez ou bien augmenter comme pour le raglan et les côtés en faisant 1 jeté, tricotez ces jetés torse au tour suivant. Bon tricot!

30.11.2023 - 10:18

country flag Jonna wrote:

Hej, jeg kan simpelthen ikke tolke udtagningerne i bærestykket. Hvordan skal jeg tage 19m ud på omg, når der kun skal sættes 6 mærker

17.09.2023 - 20:33

DROPS Design answered:

Hei Jonna. I str. L. Du øker ved de 6 merkene, og dette skal du gjøre på hver omgange 19 ganger (altså 19 ganger i høyden), deretter skal du øke ved de 6 merkene på hver 2. omgang 8 ganger. mvh DROPS Design

26.09.2023 - 11:54

country flag Silke wrote:

Hallo, ist es richtig, dass ich ihn der Presse an 6 Stellen zunehmen muss? Bei einem Raglan Schnitt wird doch normalerweise nur an 4 Stellen zugenommen. Beim zunehmen an 6 Stellen bekomme ich auf der Brust und am Rücken unschöne Zunahmestellen. Vielen Dank für ein Feedback.

15.02.2020 - 15:05

DROPS Design answered:

Liebe Silke, es ist so richtig, es sind hier keine richtige Raglan, sondern lieber so eine Rundpasse - siehe Maßskizze. Es wird auch nur 1 Masche an jedem Markierung zugenommen (nicht 2 bei 4 Markierer wie beim Raglan). Viel Spaß beim stricken!

17.02.2020 - 08:23

country flag Wenche Rekkedal wrote:

Jeg har begynt å strikke, men det må være en feil i oppskriften. Det stemmer ikke med å sette inn 6 merker og så øke til sammen 21 ganger ved hvert av disse, det blir alt for mange masker på bærestykket. Så vidt jeg tidligere har erfart settes det inn 4 øke-merker når man strikker ovenfra og ned, men da stemmer heller ikke masketallene.

28.10.2019 - 11:38

DROPS Design answered:

Hei Wenche. Det skal økes vekselsvis på høyre og venstre side av hvert merke på bærestykket, les ØKETIPS-2 (bærestykke). Når du er ferdig med alle økningene skal du ha 230-258-278-300-322-342 masker. NÅ deles det deles opp mellom for-og bakstykke og ermene. Mange oppskrifter er skrevet med 4 merketråder, men denne har 6 merketråder. God Fornøyelse!

28.10.2019 - 14:56

country flag Val wrote:

Hi. The pattern lists 5 different colours but I’m looking at the picture and pretty sure I’m seeing 7 different colours. Could you please clarify this for me as I want to go and buy the yarn.

09.06.2019 - 02:44

DROPS Design answered:

Dear Val, you require only 5 colours but you will then work following the stripes = either 2 strands same colour or 2 strands from 2 different colours, see STRIPES. Happy knititng!

11.06.2019 - 10:47

country flag Turid wrote:

Hei igjen, takk for god hjelp. Har et spørsmål igjen. Jeg har nå kjøpt 3 nøster av 6 farger av Paris. Ser at bomullsgarn er ikke "tøyelig". Ble i tvil og tror jeg må drikke i str L istedet for. Går det samme mengde garn på L som på M? Takk igjen :-)

08.05.2019 - 20:54

DROPS Design answered:

Hei Turid. Ja det skal nok gå fint. Om du ser på garnforbruket i Alpaca ser du det er det samme i de 2 størrelsene - rundet opp til hele nøster. God fornøyelse

09.05.2019 - 15:01

country flag Turid wrote:

Takk for rask tilbakemelding! Hvor mye garn trenger jeg for 1 stripe på ca 10 cm med Paris i størrelse M?

03.05.2019 - 07:33

DROPS Design answered:

Hei Turid. Se svar lenger ned: du vil nok trenge mellom 2 og 3 nøster til 1 stripe. God fornøyelse

03.05.2019 - 12:00

country flag Turid wrote:

Har et spørsmål ti. Jeg ser nå at det er 6 striper med Alpaca og 5 farger da det er strikket med 2 tråd. Jeg har valgt 5 farger av Paris som jeg skal bruke 1 tråd i stedet for 2. Bør jeg velge en farge til eller hvordan bør fordele stripene med 5 farger.

02.05.2019 - 21:48

DROPS Design answered:

Hei Turid. Det blir litt opp til deg, hvordan du vil gjøre det. Du kan feks legge til en stripe i en av fargene du allerede har (feks kan den øverste og den nederste stripen være like), men da vil det går med mer garn av denne fargen. Alternativt kan du velge 1 farge til, som du sier. Eller så kan du tilpasse oppskriften slik at du har 5 striper: altså strikke hver stripe litt lenger. Hullradene strikkes når det gjenstår 1 cm av stripen, som forklart i oppskriften. God fornøyelse

03.05.2019 - 07:13

country flag Turid wrote:

Jeg vil gjerne bruke Paris i stedet for. Har sett på fargene 16, 17, 19, 35 og 23 ( hals og ned) Vil disse passe bra sammen? Tilsvarer det samme antall nøster som Alpaca? Dvs 3, 2, 2, 4 og 1 i str M. Takk for hjelpa.

02.05.2019 - 21:17

DROPS Design answered:

Hei Turid. Ja, det høres ut som en fin kombinasjon det. Eventuelt kan du vurdere å bytte 23 med 26 da denne tar igjen tonene i natur og lys gul. Om du vil legge til en farge til (se svaret ditt over) har du jo flere muligheter innen både gultoner og grå- (eller brun) toner. Om du strikker alle 6 stripene vil jeg tro du trenger et sted mellom 2 og 3 nøster til hver stripe i størrelse M. Som du ser er noen av fargene i Alpaca brukt i av stripene - det vil jo ikke være tilfellet for deg. Kanskje det holder med 2 nøster til den øverste stripen. God fornøyelse

03.05.2019 - 07:37

country flag Anika wrote:

Hallo liebes Drops-Team, ich verstehe die Passe Anleitung leider nicht. 1. Wie nehme ich bei 6 Maschenmarkierern 13 Maschen zu? 2 je Markierung und dann eine am Ende der Reihe? 2. Wie nehme ich bei 6 Markierern 8 Maschen in der 2. Runde zu? Danke für die Hilfe und liebe Grüße Anika

08.04.2019 - 22:20

DROPS Design answered:

Liebe Anika, es werden 6 Maschen bei jeder Zunahmenrunde zugenommen = 1 Masche am jeder Markierer und diese Zunahmen wiederholen Sie 13 x in jeder Runde (= 6 Zunahmen x 13 = 78 M sind dann zugenommen) und 8 x in jeder 2. Runde (= 6 Zunahmen x 8 = 48 M sind dann zugenommen) = 104 + 78 + 48 = 230 M. Siehe ZUNAHMENTIPP-2 (Passe). Viel Spaß beim stricken!

09.04.2019 - 10:18