DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11088.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Irish Plaits

Prjónuð peysa úr DROPS Merino Extra Fine með köðlum á ermum, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.

DROPS 173-2
DROPS Design: Mynstur nr me-098
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio
600-650-700-800-850-950 g litur nr 08, ljós beige

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 og 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l x 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 3,5 fyrir garðaprjón/stroff – eða þá stærð sem þarf til að 22 l x 30 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11088.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 (sjá mynsturteikningu fyrir rétta stærð) og A.2.

LASKALÍNA:
Aukið er út fyrir laskalínu á undan prjónamerki og 2 l sl.
Aukið er út fyrir laskalínu á eftir prjónamerki og 2 l sl.
Aukið út um 1 l með því að slá uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo að ekki myndist gat.

ÚRTAKA:
Prjónið þar til 4 l eru eftir á undan A.2a/A.2b, prjónið 2 l slétt saman, 2 l sl, prjónið A.2a/A.2b, prjónið 2 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.

ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hversu oft eigi að auka út í umf, teljið fjölda lykkja í umf (t.d. 105 l) og deilið þessum l með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 11 l) = 9,5. Þ.e.a.s. í þessu dæmi þá er aukið út um 1 l á undan ca 9. og 10. hverri l.

ÚTAUKNING-2:
Prjónið þar til 2 l eru eftir á undan A.2b, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl, A.2b, 2 l sl, sláið uppá prjóninn. Endurtakið útaukningu í hinni hliðinni (= 4 l fleiri í umf). Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýju l slétt.

AFFELLING:
Til að affellingarkanturinn verði ekki of stífur þá er fellt af með ½ nr grófari prjónum.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna ofan frá og niður. Byrjun umf = miðja að aftan.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 105-109-113-120-124-130 l á hringprjóna nr 3,5 með Merino Extra Fine. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið síðan þannig:
Prjónið 1 umf slétt þar sem aukið er út um 11-15-27-32-32-38 l jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING-1 = 116-124-140-152-156-168 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4. Prjónið nú upphækkun aftan við hnakka, fram og til baka í sléttprjóni þannig: Prjónið 22-24-30-33-34-35 l, snúið við og prjónið 44-48-60-66-68-70 l til baka, snúið við og prjónið 49-53-65-71-73-75 l, snúið við og prjónið 54-58-70-76-78-80 l til baka. Haldið áfram fram og til baka yfir 5 l fleiri í hvert skipti sem snúið er við þar til prjónaðar hafa verið alls 8 umf með upphækkun, snúið við og prjónið til baka að miðju að aftan. Prjónið nú áfram hringinn með mynstri frá miðju að aftan þannig: Prjónið sl yfir fyrstu 16-18-20-23-24-25 l (= hálft bakstykki), setjið eitt prjónamerki, 2 l sl, prjónið A.1a (veljið mynstur fyrir rétta stærð) yfir næstu 22-22-26-26-26-30 l, 2 l sl (= ermi), setjið eitt prjónamerki, prjónið sl yfir næstu 32-36-40-46-48-50 l (= framstykki), setjið eitt prjónamerki, 2 l sl, prjónið A.1a (veljið mynstur fyrir rétta stærð) yfir næstu 22-22-26-26-26-30 l, 2 l sl (= ermi), setjið eitt prjónamerki, prjónið sl yfir næstu 16-18-20-23-24-25 l (= hálft bakstykki). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið svona áfram með mynstur. Þegar 2 umf í A.1a hafa verið prjónaðar til loka er endurtekið A.1b yfir A.1a, JAFNFRAMT í 1. umf í A.1b byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, hvoru megin við hvert prjónamerki. ATH: Aukið er út mismunandi á fram- og bakstykki og á ermum:

LASKALÍNA Á FRAM- OG BAKSTYKKI:
Aukið svona út í hverri umf 0-0-0-2-2-6 sinnum og í annarri hverri umf 24-26-28-28-32-32 sinnum. Nýjar l eru prjónaðar slétt.

LASKALÍNA Á ERMUM:
Aukið svona út í annarri hverri umf 16-24-25-27-25-23 sinnum og í 4. hverri umf 4-1-1-1-4-6 sinnum. Í stærð S-XXL prjónið nýjar útauknar l jafnóðum inn í mynstur A.1b þar til nóg pláss er fyrir allt mynstrið (= 30 l). Prjónið síðan nýjar útauknar l slétt. Í stærð XXXL eru allar nýjar l prjónaðar slétt.

Þegar öll útaukning hefur verið gerð eru 292-328-356-384-408-436 l í umf. Stykkið mælist 22-24-26-27-30-32 cm frá öxl. Prjónið nú næstu umf þannig: Prjónið fyrstu 40-44-48-53-58-63 l, setjið næstu 66-76-82-86-88-92 l á þráð (= ermi), fitjið upp 8-8-10-10-12-14 l undir ermi, prjónið næstu 80-88-96-106-116-126 l, setjið næstu 66-76-82-86-88-92 l á þráð (= ermi), fitjið upp 8-8-10-10-12-14 l undir ermi, prjónið næstu 40-44-48-53-58-63 l á prjóni.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Nú eru 176-192-212-232-256-280 l fyrir fram- og bakstykki.
HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Prjónið nú mynstur þannig: Prjónið 38-42-47-52-58-64 l sl, prjónið A.2a (= 12 l), prjónið 76-84-94-104-116-128 l sl, prjónið A.2a, prjónið 38-42-47-52-58-64 l sl. Þegar A.2a hefur verið prjónað til loka á hæðina er A.2b endurtekið á hæðina yfir A.2a. Þegar stykkið mælist 4 cm er l fækkað hvoru megin við hverja mynstureiningu A.2a – LESIÐ ÚRTAKA. Fækkið l svona í 6.-6.-4.-4.-6.-6. hverri umf alls 4-4-5-5-4-4 sinnum = 160-176-192-212-240-264 l. Þegar stykkið mælist 13 cm í öllum stærðum er aukið út um 1 l hvoru megin við A.2b – LESIÐ ÚTAUKNING-2. Aukið svona út í annarri hverri umf alls 23 sinnum í öllum stærðum = 252-268-284-304-332-356. Haldið síðan áfram þar til stykkið mælist 34-34-34-35-34-34 cm – stillið af þannig að ein heil mynstureining A.2b hefur verið prjónuð til loka á hæðina.

Aukið nú l jafnt yfir með byrjun frá miðju að aftan þannig: Prjónið sl yfir fyrstu 57-61-65-70-77-83 l þar sem auknar eru út 9-7-8-8-9-8 l jafnt yfir, prjónið sl yfir sl og br yfir br yfir næstu 12 l, prjónið sl yfir næstu 114-122-130-140-154-166 l þar sem auknar eru út 18-15-17-17-18-16 l jafnt yfir, prjónið sl yfir sl og br yfir br yfir næstu 12 l, prjónið sl yfir næstu 57-61-65-70-77-83 l þar sem auknar eru út 9-8-9-9-9-8 l jafnt yfir = 288-298-318-338-368-388 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3,5 og prjónið sl fram að fyrstu mynstureiningu A.2b. Prjónið nú stroff þannig: * Prjónið sl yfir sl og br yfir br yfir fyrstu 12 l, prjónið (2 l sl, 3 l br) yfir næstu 130-135-145-155-170-180 l, prjónið sl yfir næstu 2 l *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar.
Þegar stroffið mælist 2 cm er aukið út um 1 l br í hverri einingu með 3 l br = 344-356-380-404-440-464 l. Haldið síðan áfram með stroff þar til stroffið mælist alls 4 cm. Fellið af með sl yfir sl og br yfir br – LESIÐ AFFELLING! Klippið frá og festið enda.

ERMI:
Ermarnar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna.
HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Setjið til baka 66-76-82-86-88-92 l af þræði á sokkaprjóna nr 4 og takið upp 1 l í hverja og eina af 8-8-10-10-12-14 nýju l sem fitjaðar voru upp undir ermi = 74-84-92-96-100-106 l. Setjið eitt prjónamerki mitt á milli þessa nýju l (= 4-4-5-5-6-7 nýjar l hvoru megin við prjónamerkin). Haldið síðan áfram hringinn með mynstur A.1b yfir 30 l mitt á ermi og prjónið A.2a (= 12 l) mitt undir ermi (þ.e.a.s. það eru 6 l af mynstri A.2a hvoru megin við prjónamerki). Aðrar l eru prjónaðar slétt. Þegar A.2a hefur verið prjónað til loka á hæðina er A.2b endurtekið á hæðina yfir A.2a. Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við A.2b undir ermi – munið eftir úrtaka! Fækkið l svona í 7.-5.-4.-4.-4.-3. hverri umf alls 14-18-21-22-23-25 sinnum = 46-48-50-52-54-56 l. Þegar A.1b hefur verið prjónað alls 6 sinnum á hæðina (meðtalið mynstur á berustykki) er haldið áfram með A.1c (- sjá mynstur fyrir rétta stærð). Þegar allt A.1c hefur verið prjónað til loka á hæðina er haldið áfram með sl yfir sl og br yfir br yfir þessar l. Þegar stykkið mælist 44-42-42-42-40 cm – stillið af að A.2b hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3,5. Prjónið nú stroff með byrjun frá 12 l í A.2b mitt undir ermi: Prjónið sl yfir sl og br yfir br yfir fyrstu 12 l (= A.2b), 0-0-0-1-1-2 l br, 2-3-4-3-4-3 l sl, 0-0-0-1-1-2 l br, prjónið sl yfir sl og br yfir br yfir næstu 30 l, prjónið 0-0-0-1-1-2 l br, 2-3-4-3-4-3 l sl, 0-0-0-1-1-2 l br. Þegar stroffið mælist 3 cm er fellt af með sl yfir sl og br yfir br. Klippið frá og festið enda.
Prjónið aðra ermi á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 30.09.2016
Leiðrétting í mynstri A.1b - 6. umf og A.1c - umf 6 (allar stærðir)
Yfirfarið á vefsvæði: 18.10.2016
Nýtt mynstur A.2a/A.2b
Yfirfarið á vefsvæði: 04.05.2017
Leiðrétting: Nýtt mynstur A.2b.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = brugðin lykkja
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið af kaðlaprjóni
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón framan við stykkið, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón framan við stykkið, 1 lykkja slétt, 1 lykkja slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, 1 lykkja slétt, 1 lykkja slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 lykkjjur á kaðlaprjón framan við stykkið, 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið af kaðlaprjóni
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Irish Plaits

Minna, Germany

Irish Plaits

Anna, Sweden

Skrifaðu athugasemd um DROPS 173-2

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (56)

country flag Nete wrote:

Jeg strikker størrelse M, men kan ikke få maskeantallet til at passe. 109 m + udtagning 15 m = 124 - så langt så godt Så kommer raglanudtagninger: 2 m på hver side af mønster = 4 x 2 mønstre = 8 m 8 x 26 = 208 124 + 208 = 332 m Men i opskriften står der at man skal ende med 328 m Hvor er de sidste 4 masker blevet af?

19.01.2022 - 18:37

DROPS Design answered:

Hej Nete, du tager ud 26 gange på ryg & forstykke = 4 x 26 og så tager du ud 24 gange på ærmerne = 4 x 24 + 4x1 god fornøjelse!

21.01.2022 - 09:21

country flag Susanne wrote:

In der Anleitung steht der Rhytmus der Zunahmen für den Rumpf und die Arme ist unterschiedlich. Ich stricke in Größe L. Ich muss also für dem Rumpf 28x in jeder 2. Reihe zunehmen und für die Arme 25x in jeder 2. Reihe und dann 1x in der 4. Reihe? Fange ich mit den Zunahmen bereits hinten "damit der Nacken höher wird, glatt re wie folgt.... an? Für die Arme wiederhole ich das Muster A1b immer wieder, ohne die A1a?

14.09.2021 - 14:12

DROPS Design answered:

Liebe Susanne, also in L werden Sie 25 Mal 8 Maschen in jeder Zunahmenrunde zunehmen = beim Rumpf + Ärmel, dann nehmen Sie in jeder 2. Runde noch 3 Mal beim Rumpf und noch 1 Mal in jeder 4. Runde bei den Ärmeln. Die Raglanzunahmen beginnen mit der 1. Reihe A.1b - und ja genau A.1b wird dann in der Höhe wiederholt. Viel Spaß beim stricken!

14.09.2021 - 16:20

country flag Heike wrote:

Ist es richtig, dass Muster A.2a quasi unter dem Arm gestrickt wird?

22.01.2021 - 21:55

DROPS Design answered:

Liebe Heike, A.2 wird genau unter dem Arm/ unter der Ärmel gestrickt, dh 6 M vor der Markierung + 6 M nach der Markierung auf beiden Seite / unter der Ärmel. Viel Spaß beim stricken!

25.01.2021 - 08:26

country flag Berit Johansen wrote:

Under ragland ermer står det i andre avsnitt: Arbeidet måler 22-24-26-27-30-32cm fra skulderen. Hvor måler jeg fra? Veldig uklart hva som er skulderen. Måler jeg fra halskanten langs ermet eller fra halskant midt foran eller halskant langs raglandfellin foran? Skal i så fall rillene være med i målingen? Det virker også som om jeg skal ha fått riktig lengde når jeg er ferdig med raglanutleggingen. Det stemmer ikke.

12.05.2020 - 14:47

DROPS Design answered:

Hej Berit, Skulderen er højere end halskanten, du skal lægge trøjen foran dig og måler fra skulderen og lige ned. God fornøjelse!

22.05.2020 - 09:01

country flag Lena Westberg wrote:

Hej! De garner ni rekommenderar stämmer inte med bilderna. Har beställt både merino beige och karisma ljus ek. Vad är det egentligen för garn på bilderna? Jag tycker det är svårt att best online när det blir så här. Stickade en tröja i beige och det stämmer inte med färgen. Nytt försök med ljus ek och lika fel. Mvh Lena

20.01.2020 - 13:20

DROPS Design answered:

Hei Lena. Synd å høre at du ikke er fornøyd med fargene. Når jeg sjekker et nøste med både Karisma lys eik nr. 77 og Merio Extra Fine lys beige nr. 08 opp mot flere skjermer, er fargene helt innafor og de har en matchende navnebeskrivelsen. Anbefaler deg å ta en titt på skjermen din og dine fargeinnstillinger, kanskje den trengs en justering. mvh DROPS design

27.01.2020 - 13:34

country flag Andrea wrote:

Liebes Team, ich stricke Gr. M und komme am Ende der Passe bei den Ärmeln nur auf 72Maschen (22M + 24x2M zunehmen + 1x2M zunehmen). Ich soll aber 76M haben. Wo ist denn mein Fehler?

14.02.2019 - 11:54

DROPS Design answered:

Liebe Andrea, Ärmel ist: 2 M re, A.1a, 1 M re (= 26 M) + (24x2 M + 1 x 2 M) = 76 M. Viel Spaß beim stricken!

14.02.2019 - 14:44

country flag Elena wrote:

Buongiorno, sto lavorando la taglia S e negli aumenti per il raglan dovrei aumentare sul corpo a giri alterni per 24 volte e sulle maniche a giri alterni per 16 volte e poi ogni 4 giri per 4 volte. Il diagramma A1b mi permette di aumentare solo 13 maglie a giri alterni, poi il diagramma finisce. Devo ricominciare il diagramma per effettuare tutti gli aumenti? Grazie per l'aiuto.

18.05.2018 - 18:00

DROPS Design answered:

Buongiorno Elena. Continua ad aumentare nella stessa posizione e lavora le maglie aumentate a maglia rasata. Buon lavoro!

19.05.2018 - 06:48

country flag Gabi Stumpe wrote:

Am Rumpfteil wird ja das Muster A.2b über A.2a gestrickt. Wird danach immer das Muster A.2b wiederholt, oder bleibt A.2a dazwischen?

05.04.2018 - 17:41

DROPS Design answered:

Liebe Frau Stumpe, A.2a wird nur 1x in der Höhe gestrickt, dann wird immer nur A.2b in der Höhe wiederholt. Viel Spaß beim stricken!

06.04.2018 - 08:30

country flag Ana wrote:

Bom dia, não estou a compreender as diminuições em A.2a e A.2b. Devo repetir sempre A.2a e A.2b sucessivamente? As diminuições pedidas em A.2a após 4 cm só devem ser aplicados ao motivo ou também se considera que os diminuições também vão ser feitas em A.2b? Obrigada!

04.02.2018 - 12:09

DROPS Design answered:

Bom dia, Antes de mais, tricota A.2a apenas uma vez e repete A.2b. As diminuições estão explicadas aqui (tratam-se de diminuições que não estão incluídas nos diagramas A.2a e A.2b e que se fazem para as mangas): DIMINUIÇÕES: Tricotar até restarem 4 ms/pts antes de A.2a/A.2b, 2 ms/pts tricotadas juntamente em meia, 2 ms/pts meia, tricotar A.2a/A.2b, 2 ms/pts meia, deslizar 1 m/p em meia, 1 m/p meia, passar a m/p deslizada por cima da m/p tricotada. Bom tricô!

12.02.2018 - 12:10

country flag Iris wrote:

C'est limpide ! Un grand merci à vous !

02.11.2017 - 16:37