DROPS Alaska
DROPS Alaska
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7150.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 173-22
DROPS Design: Mynstur nr x-418
Garnflokkur C eða A + A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS ALASKA frá Garnstudio
650-700-800-850-950-1050 g litur nr 04, grár

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l x 22 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 4,5 fyrir stroff – eða þá stærð sem þarf til að 18 l x 20 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla
DROPS TALA HRINGLAGA (Stál), NR 542: 4 st í allar stærðir

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alaska
DROPS Alaska
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7150.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.9. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

STUTTAR UMFERÐIR YFIR KANT AÐ FRAMAN:
Fyrir hverjar 20. umf sem er prjónuð, prjónið þannig: Prjónið yfir fyrstu 16-17-18-19-20-21 l frá réttu, snúið við og prjónið til baka yfir þessar l, prjónið 1 umf frá réttu (með mynstri og garðaprjóni eins og áður) yfir allar l.
Prjónið yfir fyrstu 16-17-18-19-20-21 l frá röngu, snúið við og prjónið til baka yfir þessar l, prjónið 1 umf frá röngu (mynstur og garðaprjón) yfir allar l.

ÚRTAKA:
Fækkið um 1 l hvoru megin við mynstureiningu með sléttprjóni þannig:
Prjónið 1 l sl, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, prjónið þar til 3 l eru eftir, prjónið 2 l slétt saman, prjónið 1 l sl.

ÚTAUKNING:
Aukið út um með því að slá 1 sinni uppá prjóninn innan við fyrstu og síðustu l með sléttprjóni, aðrar útauknar lykkjur eru prjónaðar br í næstu umf til að koma í veg fyrir göt.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir 4 hnappagötum á hægra framstykki þannig (frá réttu):
Prjónið 3 l, prjónið 2 l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 6-7-8-9-10-11 l, prjónið 2 l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn = 2 hnappagöt í sömu umf (3 l eftir á kanti að framan).
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
Stærð S: 28 og 36 cm
Stærð M: 29 og 37cm
Stærð L: 30 og 38 cm
Stærð XL: 31 og 39 cm
Stærð XXL: 32 og 40 cm
Stærð XXXL: 33 og 41 cm

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 215-233-243-269-295-313 l á hringprjóna nr 4,5 með Alaska. Prjónið 1 umf br frá röngu, prjónið síðan þannig – frá réttu: 16-17-18-19-20-21 l garðaprjón (= kantur að framan), 2 l br, A.1 (= 13 l), A.2 (= 10 l), stroff 2 l sl, 2 l br yfir næstu 24-32-36-48-60-68 l, 2 l sl, A.2, A.3 (= 15 l), 2 l br, A.4 (= 27 l), 2 l br, A.3, A.2,stroff 2 l sl, 2 l br yfir næstu 24-32-36-48-60-68 l, 2 l sl, A.2, A.1, 2 l br, 16-17-18-19-20-21 l garðaprjón (= kantur að framan). Prjónið nú STUTTAR UMFERÐIR YFIR KANT AÐ FRAMAN – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

Endurtakið 2 fyrstu umf í A.1 – A.4 þar til stykkið mælist 8 cm, passið uppá að næsta umf sé prjónuð frá réttu, prjónið síðan 2 síðustu umf í A.1 – A.4, JAFNFRAMT er fækkað um 4-5-6-9-12-11 l jafnt yfir 26-34-38-50-62-70 l í stroffi í hvorri hlið = 182-198-206-226-246-266 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5.
Prjónið síðan frá réttu – þannig: 16-17-18-19-20-21 l garðaprjón, 2 l garðaprjón, 2 l br, A.5 (= 10 l), 8 l br, 22-29-32-41-50-59 l sl, 8 l br, A.6 (= 12 l), 2 l br, A.7 (= 22 l), 2 l br, A.8 (= 12 l), 8 l br, 22-29-32-41-50-59 l sl, 8 l br, A.9 (= 10 l), 2 l br, 16-17-18-19-20-21 l garðaprjón.

Þegar stykkið mælist 10 cm er fækkað um 1 l í hverri br mynstureiningu með 8 l br og fækkað er um 1 l hvoru megin við mynstureiningu í sléttprjóni – LESIÐ ÚRTAKA (= 8 l færri), fækkið l alveg eins með 4 cm millibili, alls 6 sinnum, fækkið l í annað hvert skipti hæga og vinstra megin við br mynstureiningarnar = 134-150-158-178-198-218 l.
Fellið af fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 34 cm er aukið út um 1 l í hverri br mynstureiningu sem l var fækkað í og 1 l hvoru megin við mynstureiningu með sléttprjóni (= 8 l færri) – LESIÐ ÚTAUKNING, endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 46-47-48-49-50-51 cm = 150-166-174-194-214-234 l. Þegar stykkið mælist 50-51-52-53-54-55 cm prjónið þannig – frá réttu: Prjónið fyrstu 38-41-43-48-53-58 l eins og áður, fellið af næstu 4-6-6-6-6-6 l, prjónið næstu 66-72-76-86-96-106 l eins og áður, fellið af næstu 4-6-6-6-6-6 l, prjónið síðustu 38-41-43-48-53-58 l eins og áður. Hvert stykki er nú prjónað fyrir sig.

BAKSTYKKI: = 66-72-76-86-96-106 l. Haldið áfram mynstur eins og áður, JAFNFRAMT er haldið áfram með úrtöku í hvorri hlið fyrir handveg í annarri hverri umf: Fækkið um 2 l 0-1-1-2-3-4 sinnum og 1 l 0-0-1-3-5-7 sinnum = 66-68-70-72-74-76 l. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm fellið af 20-22-24-26-28-30 miðju-l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umf er fækkað um 1 l við háls = 22 l eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 68-70-72-74-76-78 cm.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
= 38-41-43-48-53-58 l. Haldið áfram með mynstur eins og áður, JAFNFRAMT er haldið áfram með úrtöku fyrir handveg í hlið eins og á bakstykki = 38-39-40-41-42-43 l. Þegar stykkið mælist 68-70-72-74-76-78 cm fellið af fyrstu 22 l frá röngu = 16-17-18-19-20-21 l á prjóni (= kantur að framan). Prjónið umf út. Prjónið nú stuttar umf yfir 16-17-18-19-20-21 l þannig – með byrjun frá réttu: * Prjónið 2 umf fram og til baka yfir fyrstu 8-8-9-9-10-10 l, prjónið 2 umf fram og til baka yfir allar l *, endurtakið frá *-* fyrir kant í hálsi mælist 9-9-10-10-11-11 cm þar sem stykkið er styst. Fellið af.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Prjónið eins og hægra, nema gagnstætt. Fellið af fyrir öxl frá réttu og prjónið stuttar umf með byrjun frá röngu.

ERMI:
Ermin er prjónuð í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp 45-45-50-50-50-50 l á sokkaprjóna nr 4,5 með Alaska. Prjónið 1 umf sl, prjónið síðan stroff 2 l sl, 3 l br. Prjónið stroff í 10 cm, síðan er prjónuð 1 umf slétt þar sem fækkað er um 11-9-12-10-10-8 l jafnt yfir = 34-36-38-40-40-42 l. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 5 og haldið áfram í sléttprjóni. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf. Þegar stykkið mælist 11 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki, aukið út um 4-3½-3-2½-2-1½ cm millibili alls 9-10-11-13-15-17 sinnum = 52-56-60-66-70-76 l. Þegar stykkið mælist 47-47-47-46-45-44 cm (ATH! Styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla), fellið af 6 l mitt undir ermi (= 3 l hvoru megin við prjónamerki), stykkið er nú prjónað til loka fram og til baka. Fellið af fyrir ermakúpu í byrjun hverrar umf í hvorri hlið þannig: 2 l 3 sinnum, 1 l 0-1-1-2-3-5 sinnum, fellið síðan af 2 l í hvorri hlið þar til stykkið mælist 53-53-54-54-54-55 cm fellið síðan af 3 l í hvorri hlið og fellið af þær l sem eftir eru. Stykkið mælist alls 54-54-55-55-55-56 cm.
Prjónið aðra ermi á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma, saumið ermar í. Saumið saman kant við miðju að aftan og saumið við hálsmál. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 30.05.2017
FRAM-OG BAKSTYKKI:...Fellið af fyrir HNAPPAGAT á hægri kant að framan – sjá skýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 34 cm er aukið út um 1 l í hverri br mynstureiningu sem l var fækkað í og 1 l hvoru megin við mynstureiningu með sléttprjóni (= 8 l færri) – LESIÐ ÚTAUKNING,

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = br frá réttu, sl frá röngu
symbols = takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = 2 l slétt saman
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
symbols = setjið 3 l á kaðlaprjón fyrir framan stykkið, 3 l sl, 3 l sl af kaðlaprjóni
symbols = setjið 3 l á kaðlaprjón fyrir aftan stykkið, 3 l sl, 3 l sl af kaðlaprjóni
symbols = 2 l br saman
symbols = engin l, hoppið yfir þessa rúðu
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 173-22

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (70)

country flag Jean Thurlow wrote:

Thank you for your quick respond your answer helps my fault I don’t always read the pattern correctly As I tend to get carried away Have knitted several items without a problem Great site and thanks again

28.03.2024 - 11:15

country flag Jean Thurlow wrote:

I’m not at the armholes I am at the beginning of the body and 8 stitches decrease from 215 does not make 182 stitches so therefore the pattern does not work out

28.03.2024 - 08:30

DROPS Design answered:

Dear Jean, Looking at the smallest sizes: in the first row, you knit the A.1 pattern 2 times, A.2 pattern 4 times, , A 3 pattern 2 times, and A4 patterns 1 time. In the 3d row of these patterns you decrese A.1 = -3 stitch, A2=+2 stitch, A.3=-3 stitch, A.4-5 stitch. So if you look at the row, you decrease alltogether 25 stitches (215-3-2-2-3-5-3-2-2-3= 190 stitches) Then the pattern tells you to decrese evenly 4 stitches on the ribbing at both side, that is another 8 stitches minus, and there you have the 182 stitches. I hope that helps. Happy Knitting!

28.03.2024 - 09:27

country flag Jean Thurlow wrote:

On the cardigan I cast on 215 stitches then it says to cast off 4 stitches on each side before changing needles making a total of 207 stitches but pattern says 182 stitches left Is there a fault or am I not reading it correctly Help

27.03.2024 - 21:12

DROPS Design answered:

Dear Jane, there are decreases in the pattern to ive tha cardigan a strong A shape, that is whiy you have less stitches at the armholes, than you started with. Happy Knitting!

27.03.2024 - 22:26

country flag Veerle Van Coillie wrote:

Waarom krijg ik geen antwoord op mijn opmerking over het foute patroon ? Het zou jammer zijn voor alle anderen na mij !

11.02.2024 - 09:56

DROPS Design answered:

Dag Veerle,

Je vraag was als opmerking geplaatst, vandaar dat hij niet in beeld kwam bij mij in eerste instantie. Nu het antwoord op je vraag: Het klopt dat de bovenwijdtes verschillend zijn, dit is ook aangegeven in de maattekening onderaan het patroon. Het ene vest is dus wijder dan het andere vest en heeft dus een andere pasvorm.

14.02.2024 - 20:16

country flag Veerle Van Coillie wrote:

Dat is dan ook nog inclusief de boord aan weerszijde van 10 cm voor de sluiting die over elkaar moet met de knoopsluiting.

22.01.2024 - 20:38

country flag Veerle Van Coillie wrote:

Nog niet lang geleden patroon 172-39 gebreid in maat L prima ! Ik maak altijd een proeflapje en gebruik de aangegeven wol. Nu vest 173-22 af en de maat L is veel kleiner ! Dus te klein ! Van het eerst genoemde vest is de bovenwijdte 58 cm maat L van het laatst gebreide maat L 48 cm ? Ik ben heel erg teleurgesteld, het is dus veel te klein !!!!!!

22.01.2024 - 16:30

country flag Li wrote:

Hej! Har stickat denna modell nu och blir besviken över att den sitter så tätt på kroppen och går inte helt omlott i framkanten. Vågar jag blocka den och i så fall hela eller bara delar av den, t ex bara i sidan eller framstycket?? Är rädd att hålmönstret ska töjas ut för mycket bl a. Förklara gärna hur det är tänkt vad gäller bl a blockning eller hur ni tycker man ska göra. Mvh Li

21.10.2022 - 21:30

DROPS Design answered:

Hej, ja du kan prøve forsigtigt på den nederste ribkant. Mål før og efter så du ser hvor meget det påvirker :)

25.10.2022 - 13:15

country flag Margret Scipio wrote:

Lijf na de boord: je volgt patroon 5 t/m 9 met daar tussen rechte en av steken aan de goede kant. Brei je dezelfde steken ook aan de verkeerde kant? Dus ook bijv. 8 AV en 22 R (in maat S)? Of juist andersom?

24.09.2022 - 18:36

DROPS Design answered:

Dag Margret,

De steken die je recht breit aan de goede kant, brei je averecht aan de verkeerde kant en vice versa. Dus zoals ook aangegeven staat bij de symboolverklaring boven de telpatronen.

27.09.2022 - 18:16

country flag Claudine wrote:

Ne peut-on pas tricoter la bordure avec 2 fils afin que celle ci soit plus solide comme pour le modèle bluebird n° U-619 ? afin que le col et la bordure soient plus fermes et jolis ? Merci de votre retour

10.09.2022 - 23:04

DROPS Design answered:

Bonjour Claudine, c'est un choix qui n'a pas été fait pour ce modèle, peut-être en raison de la laine, dans ce cas, je ne pense pas que ce soit nécessaire, mais vous pouvez essayer si vous le souhaitez (notez que la quantité de laine en sera affectée aussi). Bon tricot!

12.09.2022 - 09:59

country flag Thera Klerk De Van Der Heijden wrote:

Ik brei patroon 173-22\r\nIk kom niet uit met de telling in het patroon.\r\nGraag met mij meekijken:\r\nMaat L LIJF 243 stkn. (in de boordsteek 38 stkn.) moet ik 2x 6 stk gelijkmatig minderen. Dan moet ik 206 stkn. overhouden maar 243 -12 =231 Van de 36 2r/2av houd ik dan geen 32 maar 29 over. In het patroon is die 36 ineens 38????? RaRA\r\nThera

07.01.2022 - 19:58

DROPS Design answered:

Dag Thera,

Naast de 2x6 steken minderen in de boordsteek aan elke kant, zijn er ook minderingen opgenomen in de telpatronen (2 av samen). Als je in de boordsteek 38 steken hebt en je mindert daar 6 steken, dan heb je 32 steken over. In de volgende paragraaf brei je weer 32 recht over die steken.

12.01.2022 - 09:56