DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 16368.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Alanna

DROPS poncho úr Air prjónað frá hlið með köðlum, háum kraga og skúfum. Stærð S - XXXL.

DROPS 171-49
DROPS Design: Mynstur nr ai-039
Garnflokkur C eða A + A
----------------------------------------------------------

Efni:
DROPS AIR frá Garnstudio
600-700-800-800 g litur nr 10, þoka

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l x 22 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 4,5 – fyrir kant með garðaprjóni og háan kraga – eða þá stærð sem þarf til að 18 l x 23 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 16368.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PONCHO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Framstykki og bakstykki er prjónað hvort fyrir sig fram og til baka á hringprjóna. Síðan eru stykkin saumuð saman á öxl og kragi í hálsmáli er prjónaður í hring í lokin.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 112-120-126-132 l á hringprjóna nr 4,5 með Air. Prjónið 12 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5 og prjónið næstu umf frá réttu þannig: 6 kantlykkjur í garðaprjóni, 45-53-59-65 l sléttprjón, A.1 (= 13 l), A.2 (= 30 l), A.3 (= 16 l) og 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Prjónið til baka frá röngu alveg eins = 118-126-132-138 l á prjóni. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 6 kantlykkjur í garðaprjóni, 45-53-59-65 l sléttprjón, haldið áfram A.1 yfir næstu 13 l, prjónið A.4 yfir næstu 36 l, haldið áfram með A.3 yfir næstu 16 l og endið með 2 kantlykkjum í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist ca 45-45-52-52 cm setjið 1 prjónamerki í lok umf frá réttu, þ.e.a.s. ef prjónfestan heldur sig á hæðina á nú að vera 8 cm í stærð S/M + L/XL þar til prjónuð er til loka heil mynstureining A.4 á hæðina og 9 cm í stærð XXL + XXXL þar til prjónuð er til loka hálf mynstureining A.4 á hæðina – þ.e.a.s. það eru eftir 8-8-9-9 cm þar til stykkið mælist 53-53-61-61 cm (= miðja að framan).
Fellið nú af fyrir hálsmáli í byrjun hverrar umf frá röngu þannig: Fellið af 3 l 1 sinni, 2 l 2 sinnum og 1 l 3 sinnum = 108-116-122-128 l. Haldið áfram með mynstur eins og áður með 1 kantlykkju í garðaprjóni við háls þar til stykkið mælist 8-8-9-9 cm frá prjónamerki og setjið 1 nýtt prjónamerki (= miðja að framan). Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 2-2-3-3 cm frá prjónamerki við miðju að framan.
Fitjið nú upp l fyrir hálsmáli í lok hverrar umf frá réttu þannig: Fitjið upp 1 l 3 sinnum, 2 l 2 sinnum og 3 l 1 sinni = 118-126-132-138 l á prjóni (stykkið mælist nú ca 16-16-18-18 cm frá fyrsta prjónamerki (= háls). Haldið áfram með mynstur yfir allar l eins og áður þar til stykkið mælist ca 102-102-118-118 cm – endið eftir heila mynstureiningu A.4 á hæðina (= alls 6-6-7-7 mynstureiningar með A.4 á hæðina). Prjónið 1 umf frá réttu eins og áður, en 6 l í hverjum kaðli eru prjónaðar slétt saman tvær og tvær = 112-120-126-132 l eftir á prjóni. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4,5, prjónið 12 umf garðaprjón og fellið af með sl frá réttu (passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki of stífur).

BAKSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið eins og framstykki. Þegar fellt er af fyrir hálsmáli er það gert alveg eins, nema fellt er af þannig: Fellið af 1 l 1 sinni og 2 l 1 sinni = 115-123-129-135 l á prjóni. Þegar prjónaðir hafa verið 6-6-7-7 cm frá prjónamerki við miðju að aftan eru fitjaðar upp nýjar l fyrir hálsmáli alveg eins og á framstykki, nema nú er fitjað upp þannig: Fitjið upp 2 l 1 sinni og 1 l 1 sinni = 118-126-132-138 l á prjóni. Prjónið síðan áfram á sama hátt og á framstykki.

FRÁGANGUR:
Saumið saman 2 stykkin á öxl – saumið kant í kant yst í lykkjubogana svo að saumurinn verði flatur. Saumið jafnvel spor í hverja hlið ca 30-35 cm frá öxl og niður.

HÁR KRAGI:
Prjónið upp frá réttu ca 68 til 78 l í kringum hálsmál á stutta hringprjóna nr 4,5. Prjónið 1 umf slétt þar sem aukið er jafnt út til 96-96-104-112 l (deilanlegt með 4). Prjónið stroff hringinn (= 2 l sl, 2 l br). Þegar stroffið mælist 10 cm er aukið út önnur hver 2 l sl til 3 l sl = 108-108-117-126 l. Þegar stroffið mælist 18 cm eru auknar út þær 2 l sl sem eftir eru til 3 l sl = 120-120-130-140 l. Haldið áfram hringinn með 3 l sl, 2 l br þar til kraginn mælist ca 20-22-22-24 cm og fellið laust af með sl yfir sl og br yfir br. Brjótið kragann niður.

SKÚFAR:
Notið pappírsbút eða álíka ca 15 cm. Vefjið þráðunum 25 sinnum utan um pappírsbútinn (eða að óskaðri þykkt). Notið annan þráð til að binda fast utan um þræðina á öðrum endanum. Takið annan þráð og þræðir í gegnum “lykkjuna” sem nú hefur myndast efst á skúfnum og notið þráðinn til að festa skúfinn á ponchoið. Klippið upp á milli endana á öðrum endanum á skúfnum. Gerið einn skúf í hvert horn á poncho (= 4 skúfar).

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = br frá réttu, sl frá röngu
symbols = prjónið 1 l fyrir framan og fyrir aftan í sömu l (= 1 l fleiri)
symbols = engin l, hoppið yfir þessa rúðu
symbols = 2 l slétt saman
symbols = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = setjið 1 l á kaðlaprjón fyrir aftan stykkið, 3 l sl, 1 l br af kaðlaprjóni
symbols = setjið 3 l á kaðlaprjón fyrir framan stykkið, 1 l br, 3 l sl af kaðlaprjóni
symbols = setjið 3 l á kaðlaprjón fyrir framan stykkið, 3 l sl, 3 l sl af kaðlaprjóni
symbols = setjið 3 l á kaðlaprjón fyrir aftan stykkið, 3 l sl, 3 l sl af kaðlaprjóni
symbols = prjónstefna
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 171-49

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (42)

country flag Birgitta Waldt wrote:

Hej förtydligande av min förra fråga. På bilden är längden från mönster A4 till axeln mycket längre än det blir på min stickning. Skiljer ca 10 cm. Det verkar saknas en del på mönstret. Mitt maskantal stämmer mot mönstret.

06.02.2024 - 14:13

DROPS Design answered:

Hei Birgitta. Se vårt forrige svar. mvh DROPS Design

15.02.2024 - 11:29

country flag Birgitta Waldt wrote:

Hej Jag håller på att sticka denna ponchon. Men när jag tittar på bilden är längden från mönster A4 mycket längre på bilden än på det jag fått. Verkar som om en del saknas i beskrivningen. Antal maskor stämmer.

05.02.2024 - 18:28

DROPS Design answered:

Hei Birgitta. Skal ikke mangle noe i oppskriften, men husk at ponchoen strikkes sidelengs. Så når du ser på diagrammet (A.4) stående, så blir det i virkeligheten liggende på selve plagget. mvh DROPS Design

15.02.2024 - 09:42

country flag Brigitte Grizonnet-Riviere wrote:

Bonjour,c est encore moi donc le diagramme A4 n'a pas toujours la même largeur? ou bien empiète t-il sur les diagrammes qui le bordent? encore merci et bonne journée.Brigitte

02.11.2023 - 11:24

DROPS Design answered:

Bonjour Brigitte, le diagramme A.4 va avoir la même largeur tout du long, si on augmente des mailles, c'est pour conserver la même largeur pour les torsades au milieu des 2 motifs; quand ces torsades sont terminées, on va diminuer les mailles augmentées. La largeur sera ainsi la même (il faut plus de mailles pour tricoter des torsades que du jersey/jersey envers, raison pour laquelle on doit augmenter, sinon l'ouvrage deviendrait plus étroit à ce niveau (et on manquerait de mailles pour les torsades). Bon tricot!

02.11.2023 - 17:51

country flag Brigitte Grizonnet-Riviere wrote:

Bonjour, Au 12eme rang du schéma A4 faut- il augmenter de 4 mailles au total, puis diminuer de 4 mailles au 26 eme rang? merci Brigitte

31.10.2023 - 17:45

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Grizonnet-Riviere, tout à fait, il vous suffit d'augmenter au niveau des étoiles (cf diagramme et légende) puis vous diminuerez (Cf 5ème et 6ème symboles figurant également dans le diagramme. Bon tricot!

01.11.2023 - 14:55

country flag Brigitte Grizonnet-Riviere wrote:

Bonjour,je ne comprends pas le diagramme A 4.Vous dites dans un précédent commentaire que les cases noires correspondent à des mailles que l on a précédemment diminuées.je ne comprends pas à quel moment nous avons diminué ces 2 mailles.\D\'autre part,sur le tricot, A4 contient combien de mailles(36ou38ou40)?.merci;Brigitte

31.10.2023 - 17:39

country flag Annabelle Garcia wrote:

Bonjour, je dois commencer le col et je ne comprends pas le répartition ni le nombre d'augmentations comme expliqué:Quand les côtes mesurent 10 cm, augmenter 1 m dans 1 section 2 m end sur 2 = 108-108-117-126 m. Quand les côtes mesurent 18 cm, augmenter 1 m end dans les sections 2 m end restantes = 120-120-130-140 m. Merci pour votre aide

10.10.2023 - 14:33

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Garcia, vous devez augmenter le nombre de mailles envers des côtes 2/2, autrement dit, après la 1ère augmentation, vous aurez *2 m end, 2 m env, 3 m end, 2 m env* tout le tour; puis vous augmenterez dans les sections 2 m end restantes pour continuer en côtes 3 m end, 2 m env. Vu sur l'endroit quand le col sera replié, vos côtes se présenteront en 2 m end/3 m env. Bon tricot!

10.10.2023 - 16:26

country flag Angela Beer wrote:

Thank you so much for your reply. I feel so sorry for posting a negative review on this pattern when had read it properly in the first instance and looked at the directional arrow instead of leaping ahead, I would have realised it was sideways on!!!! I have now started the garment and hope that because I am knitting it for my daughter it'll turn out well. I love everything about Drops yarns and have used them extensively. The colour palette is amazing. Thank you.

23.10.2022 - 16:06

country flag Angela Beer wrote:

I cannot comprehend this pattern. Is it because the instructions do not go from right to left across the garment, but rather sideways, then the neck, and then the remainder of the front of the garment. Similarly the back would be knitted the same way. It is important because I have got the yarn, a lot of it, and it was going to be a present for my daughter.

19.10.2022 - 15:38

DROPS Design answered:

Dear Mrs Beer, correct, the front piece is worked sideways from the right side towards the left (when poncho is worn), then back piece is worked sideways from the left side towards the right side (when poncho is worn); you then sew pieces together on shoulder and work neck in the round around neckline. Hope it will help. Happy knitting!

19.10.2022 - 16:23

country flag Angela Beer wrote:

I have just posted a query and have been answered in not a very appropriate fashion. My comments contain forbidden words. I am sorry I do not see why I have said anything offending.

19.10.2022 - 15:33

country flag Lynda wrote:

J’ai de la difficulté avec les cases noires dans le diagramme A4. Je ne comprend pas la diminution.

25.10.2021 - 13:52

DROPS Design answered:

Bonjour Lynda, le rang precedent 4 mailles ont ete diminuees, d'ou viennent les modifications du diagramme (y compris les cases noires). Le rang suivant, vous commencez le diagramme dans le meme endroit qu'avant, les cases noires ne sont pas a tricoter, passez directement a la case suivante du diagramme. Bon tricot!

26.10.2021 - 08:15