DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7436.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 68-23
DROPS Design: Mynstur nr R-390
Garnflokkur B
--------------------------------------------------------
Stærð: S - M - L
Efni:
DROPS Muskat frá Garnstudio
250-300-300 gr litur nr 28, rauðbrúnn
100-100-100 gr litur nr 38, dökk plómu
50-100-100 gr litur nr 49, dökk beige
50-100-100 gr litur nr 23, beige
50-100-100 gr litur nr 22, dökk brúnn
50 - 50 - 50 gr litur nr 35, dökk sinnepsgulur
50 - 50 - 50 gr litur nr 32, turkos
50 - 50 - 50 gr litur nr 08, natur

Nokkrir litir fást ekki lengur, hægt er að nota þessa liti í staðin (sjá einnig á nærmynd):
DROPS Muskat frá Garnstudio
250-300-300 g nr 79, vínrauður (í staðinn fyrir nr 28, rauðbrúnn)
50-100-100 g nr 09, ljós brúnn (í staðinn fyrir nr 22, dökk brúnn)
50 - 50 - 50 g nr 51, ljós appelsínugulur (í staðinn fyrir nr 35, dökk sinnepsgulur)

DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3, 3,5 og 4 – eða þá stærð sem þarf til að 23 l og 30 umf með mynstri verði 10 x 10 cm og 23 l og 40 umf með garðaprjóni verði 10 x 10 cm.
--------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7436.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna):
* 1 umf sl, 1 umf br *, endurtakið frá *-*

MYNSTUR:
Sjá teikningu – M.1 til M.7 og A.1a og A.1b. Mynsturteikningin sýnir mynstur séð frá réttu.

ÚRTAKA-1 (á við um berustykki að aftan): Öll úrtaka er gerð frá réttu. Fellt er af 1 l innan við 1 kantlykkju.
Fellið af á eftir 1 kantlykkju þannig: Prjónið 2 l slétt saman.
Fellið af á undan 1 kantlykkju þannig: Takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.

ÚRTAKA-2 (á við um berustykki að framan): Öll úrtaka er gerð frá réttu.
Fellt er af þannig: Prjónið 1 l sl, 3 l slétt saman, prjónið síðan lykkjurnar slétt fram að lykkju með prjónamerki, sláið uppá prjóninn á undan þeirri lykkju, prjónið l slétt og sláið uppá prjóninn, prjónið áfram slétt þar til 4 l eru eftir, þær eru prjónaðar þannig: Takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, 1 l sl. Allar l eru prjónaðar slétt til baka, fyrir utan uppsláttinn sem prjónaður er snúinn slétt.
--------------------------------------------------------

KJÓLL:
Kjóllinn er prjónaður á hringprjón neðan frá og upp. Fitjið laust upp 252-288-324 l á hringprjón nr 4 með rauðbrúnu Muskat. Prjónið 2 umf garðaprjón í M.1. Skiptið yfir á hringprjón nr 3,5 og prjónið áfram M.1 litaskiptum eftir A.1a og A.1b upp úr. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 28 cm byrjar úrtaka. Fækkað er um 14-16-18 l í hverri úrtöku umferð, þ.e.a.s. fækkað er um 2 l í annarri hverri mynstureiningu að auki við úrtöku umferð. Þetta er gert svona að öldumynstrið minnki.
Prjónið 1. úrtöku = 238-272-306 l, haldið áfram með M.2.
Þegar stykkið mælist 33 cm er prjónuð 2. úrtaka = 224-256-288 l,
Haldið áfram með M.3.
Þegar stykkið mælist 38 cm er prjónuð 3. úrtaka = 210-240-270 l,
Haldið áfram með M.4.
Þegar stykkið mælist 42 cm er prjónuð 4. úrtaka = 196-224-252 l,
Haldið áfram með M.5.
Þegar stykkið mælist 47 cm er prjónuð 5. úrtaka = 182-208-234 l,
Haldið áfram með M.6.
Þegar stykkið mælist 53 cm er prjónuð 6. úrtaka = 168-192-216 l,
Haldið áfram með M.7.
Þegar stykkið mælist 65-66-67 cm er skipt yfir á hringprjón nr 3 og prjónið til loka með rauðbrúnum í garðaprjóni. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Prjónið garðaprjón fram og til baka frá annarri hliðinni í 11-12-12 cm. Næsta umf er prjónuð þannig: Fellið af 3 l fyrir handveg, 86-98-110 l = framstykki, fellið af 7 l fyrir handveg, 68-80-92 l = bakstykki, fellið af 4 l fyrir handveg. Fram- og bakstykki eru nú prjónað til loka hvort fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 68-80-92 l. Fellið nú af fyrir handveg á hvorri hlið í annarri hverri umf – sjá ÚRTAKA-1 – Fellið af 1 l alls 7-10-14 sinnum = 54-60-64 l, fellið af.

FRAMSTYKKI:
= 86-98-110 l. Setjið 43-49-55 l á annarri hliðinni á 1 band og bönd við brjóststykki eru prjónuð áfram hvor fyrir sig.

1. Brjóststykki: Setjið 1 prjónamerki í miðju á þeim 43-49-55 l sem eftir eru á prjóni. Prjónið garðaprjón fram og til baka – JAFNFRAMT er fellt af og aukið út þannig að stykkið verður þríhyrningslaga – sjá ÚRTAKA-2 að ofan. Með því að fella svona af, er fellt af 2 l í hverri umf. Fellið af í annarri hverri umf alls 16-19-22 sinnum = 11-11-11 l eftir á prjóni.
Haldið áfram að prjóna garðaprjón yfir þessar 11 l fyrir band. Fellið af þegar bandið mælist ca 30 cm – mátið kjólinn til þess að lengdin á bandinu verði rétt.
2. Brjóststykki: Setjið 43-49-55 l af bandi á prjóninn og prjónið eins og 1. Brjóststykki.

FRÁGANGUR:
Saumið hliðarsauma á berustykki – saumið yst í lykkjubogann svo að saumurinn verði ekki of þykkur. Saumið böndin á öxlum við bakstykki.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 24.05.2006
Útskýring á táknum í mynsturteikningu. Litur nr 23 beige er notaður ekki ljós beig nr 61

Mynstur

symbols = rauðbrúnn, litur nr 28
symbols = dökk appelsínugulur, litur nr 49
symbols = dökk plóma, litur nr 38
symbols = dökk sinnepsgulur, litur nr 35
symbols = turkis, litur nr 32
symbols = beige, litur nr 23
symbols = natur, litur nr 08
symbols = dökk brúnn, litur nr 22
symbols = úrtaka
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = 3 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni, 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir þær lykkjur sem prjónaðar voru slétt saman
symbols = slétt lykkja (á við um M.1-M.7)
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 68-23

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (59)

country flag BARREAU Évelyne wrote:

Je n'arrive pas à interpréter le diagramme de la robe Muskat DROPS 68-23 . Pour le changement des couleurs c'est bon , mais c'est pour la construction du tricot qui me pose problème .

04.01.2024 - 11:51

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Barreau, vous allez tricoter le point zigzag en suivant les diagrammes comme indiqué; répétez d'abord les 2 rangs de M.1 puis tricotez les 2 rangs ".1" pour diminuer. Tricotez ensuite M.2 jusqu'à la hauteur indiquée puis diminuer comme indiqué au 1er rang de ".2" et ainsi de suite. Autrement dit, les 2 rangs des diagrammes M.1,M.2,M.3... se répètent en hauteur et on diminue à la hauteur indiquée pour votre taille via les diagrammes 1., 2. 3. etc.. En espérant que ce soit plus clair ainsi. Bon tricot!

04.01.2024 - 13:12

country flag Hiske wrote:

Sorry typo: mz 23 steken op 10 cm op pen 3 en 21 steken op pen 3,5\r\nHoe kan in het patroon met verschillende grootte pennen hetzelfde aantal steken worden gebreid?

01.06.2023 - 16:57

DROPS Design answered:

Dag Hiske,

Het lijkt me het handigst dat je de naalddikte aanpast, zodat je voor zowel het patroon als de ribbelsteek op 23 steken uitkomt.

04.06.2023 - 10:19

country flag Hiske wrote:

In het patroon staat bij de steken verhouding 23 steken voor zowel pen 3,5 als voor pen 3. Met pen 3 heb ik idd 23 steken op 20 cm, met pen 3,5 21 steken. Waarom is voor 2 verschillende pennen het zelfde aantal steken opgegeven? Welke pennen kan ik gebruiken voor dit patroon?

31.05.2023 - 08:15

DROPS Design answered:

Dag Hiske,

Met pendikte 3,5 mm brei je een stekenverhouding van 23 steken in patroon en met pen 3 in ribbelsteek.

01.06.2023 - 13:17

country flag Lilian wrote:

Guys I want to make this beautiful dress but need at least xl if not xxl so how do I go about it¿ First I cast on 324 +36 which is the difference between the other sizes if I want a bigger size I add another 36 and that’s what I will do with all the way thru the pattern unless it’s length wise that don’t matter or I look for a similar top and skirt in my size and put them together. Hope I helped somebody!cheerio

24.04.2023 - 18:27

country flag Jocelyne wrote:

Avez vous une technique pour changer de fil couleur tout en tricotant. Merci

03.02.2023 - 14:30

DROPS Design answered:

Bonjour Jocelyne, cette vidéo montre par exemple comment tricoter des rayures en rond; est-ce que cela peut vous aider?

03.02.2023 - 15:22

country flag Pascale wrote:

Bonjour, pour le modèle 68-23, j’aimerais savoir comment je dois comprendre les diagrammes A.1a et A.1b Est-ce que je fais le diagramme A1.a (25 rangs) du bas vers le haut et ensuite le diagramme A.1b (31 rangs) pour recommencer avec le A.1a et ainsi de suite jusqu’à la hauteur désirée? Ou j’alterne (5 mailles du diagramme A.1a et 5 mailles du diagramme A.1b ) et on recommence jusqu’à la fin du rang ? Merci!!!

08.12.2022 - 21:12

DROPS Design answered:

Bonjour Pascale, vous tricotez le diagramme M.1 en suivant en même temps les rayures du diagramme A.1 - A.1 se compose de 2 diagrammes (pour qu'ils soient plus faciles à lire), autrement dit, commencez par A.1a puis suivez A.1b et continuez ainsi en répétant d'abord A.1a puis A.1b. Les diagrammes se lisent tous (y compris M.1) de bas en haut. Bon tricot!

09.12.2022 - 08:54

country flag Elin Roen wrote:

Hei, har et garn som jeg strikker 21 masker på 10 cm pinne 3,5. Hvilken størrelse bør jeg velge? Garnet heter Rustique - kan dere hjelpe?

27.07.2022 - 22:13

DROPS Design answered:

Hej Elin, du bør strikke denne kjole med en strikkefasthed på 23 masker på 10 cm, da vil størrelserne stemme med dem du finder i måleskitsen nederst i opskriften :)

04.08.2022 - 09:30

country flag Therese wrote:

Ich finde die vorgeschlagenen Farben nicht im Shop. Das Farbschema sollte angepasst werden.

30.05.2022 - 13:11

DROPS Design answered:

Liebe Therese, seit dieses Modell veröffentlicht wurden, wurde die Farbkarte geändert, gerne wird Ihnen aber Ihr DROPS Laden damit auch telefonisch oder per E-Mail helfen, die besten passenden Farben zu wählen. Viel Spaß beim stricken!

30.05.2022 - 16:35

country flag Isabel wrote:

Por donde se cierra el punto chevron , por el reves o por el derecho? Gracias

08.04.2022 - 16:27

DROPS Design answered:

Hola Isabel, este vestido se trabaja en redondo, por lo que solo se trabaja por el lado derecho en general, excepto a partir de la sisa, donde se trabaja de ida y vuelta (pero no hay punto chevron). Las disminuciones se trabajan por el lado derecho.

09.04.2022 - 18:19

country flag Anja wrote:

Kleur 38 is er ook niet meer waar is die.door te vervangen?

07.03.2022 - 20:33