DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6292.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Summer Leaves

Prjónuð peysa úr DROPS Muskat með blaðamynstri, garðaprjóni og hringlaga berustykki, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S – XXXL.

DROPS 169-3
DROPS Design: Mynstur nr r-691
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS MUSKAT frá Garnstudio
550-600-650-700-800-850 g nr 18, hvítur

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l x 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l x 35 umf með mynsturprjóni (A.2) verði 10 x 10 cm.
DPOPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít), NR 522: 4 stk

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6292.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í kanti að framan í lok umf séð frá réttu. Prjónið þar til 4 l eru eftir. Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu l slétt saman, prjónið 2 síðustu l á prjóni.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist (frá uppfitjunarkanti og meðfram kanti að framan):
STÆRÐ S: 2, 8, 14 og 19 cm.
STÆRÐ M: 2, 8, 14 og 20 cm.
STÆRÐ L: 2, 8, 14 og 21 cm.
STÆRÐ XL: 2, 8, 15 og 22 cm.
STÆRÐ XXL: 2, 9, 16 og 23 cm.
STÆRÐ XXXL: 2, 9, 16 og 24 cm.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Berustykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna með tölukanti á baki, síðan er bakstykkið og framstykkið prjónað í hring.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 89-95-101-113-125-131 l á hringprjóna nr 3,5 með Muskat. Fellið af fyrir HNAPPAGAT fyrir miðju að aftan – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 5 l GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan (= kantur að framan), A.1 þar til 5 l eru eftir, prjónið 5 l garðaprjón (= kantur fyrir tölur).
Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er nú prjónað þannig: 5 l garðaprjón, A.2 (= 6 l), endurtakið A.2 alls 13-14-15-17-19-20 sinnum, endið með fyrstu l í A.2 (svo að mynstrið verði alveg eins í hvorri hlið), endið á 5 l garðaprjón.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 245-263-281-317-353-371 l á prjóni. Prjónið nú þannig: 5 l garðaprjón, A.3 (= 17 l), endurtakið frá A.4 11-12-13-15-17-18 sinnum, A.5 (= 20 l) og 5 l garðaprjón. Þegar A.3-A.5 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 284-305-326-368-410-431 l á prjóni. Haldið áfram í garðaprjóni þar til stykkið mælist 20-21-22-23-24-25 cm, í síðustu umf frá röngu er lykkjufjöldinn jafnaður út til 283-307-331-365-397-429.
Prjónið síðan þannig (frá réttu): Fellið af fyrstu 5 l, prjónið fyrstu 39-43-47-53-59-65 l (= hálft bakstykki), setjið næstu 61-65-69-74-78-82 l á þráð (= ermi), fitjið upp 6 nýjar l undir ermi, prjónið næstu 78-86-94-106-118-130 l (= framstykki), setjið næstu 61-65-69-74-78-82 l á þráð (= ermi), fitjið upp 6 nýjar l undir ermi, prjónið þær 39-43-47-53-59-65 l sem eftir eru (= hálft bakstykki).

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Nú eru 168-184-200-224-248-272 l fyrir fram- og bakstykki. Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið á fram- og bakstykki þar sem fitjaðar voru upp nýjar l undir ermi (= 3 nýjar l hvoru megin við prjónamerkin). STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN! Skiptið yfir á hringprjóna nr 4. Haldið síðan áfram í sléttprjóni og prjónið í hring. Þegar stykkið mælist 4 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við hvort prjónameri (= 4 l fleiri).
Endurtakið útaukningu með 5-5-5-6-6-6 cm millibili 5 sinnum til viðbótar = 192-208-224-248-272-296 l. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 34-35-36-37-38-39 cm, skiptið yfir á hringprjóna nr 3,5 og prjónið 6 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Fellið af. Stykkið mælist alls ca 58-60-62-64-66-68 cm.

ERMI:
Setjið til baka l af þræði á sokkaprjóna nr 3,5 = 61-65-69-74-78-82 l. Prjónið upp 1 l í hverja og eina af 6 l sem fitjaðar voru upp undir ermi, setjið eitt prjónamerki mitt í þessa l = 67-71-75-80-84-88 l.
Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4, síðan er prjónað sléttprjón. Þegar stykkið mælist 3 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerkin, endurtakið úrtöku með 2-2-1½-1½-1-1 cm millibili 9-10-11-13-14-15 sinnum til viðbótar = 47-49-51-52-54-56 l. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 27-27-26-26-25-25 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis), skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3,5 og prjónið 6 umf garðaprjón. Fellið af.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Leggið kant fyrir tölur undir kant með hnappagötum og saumið niður neðri kantinn að framan. Saumið tölur í.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = takið 1 lykkju óprjónaða, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = takið 1 lykkju óprjónaða, 2 lykkjur slétt saman, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 lykkja, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt/brugðið (= svo að það myndist gat)
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 lykkja, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúin (= svo að ekki myndist gat)
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 169-3

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (126)

country flag Elke wrote:

Goede namiddag, Op de uitleg voor de patronen staat dat de telpatronen het patroon aan de goede kant laten zoen. Dus voor A1 en A2 staan alleen de heengaande naalden vermeld en NIET de teruggaande naalden. Dus voor A1 brei ik 20 naalden?

17.04.2019 - 16:28

DROPS Design answered:

Dag Elke,

Zowel de heengaande als de teruggaande naalden zijn in het patroon verwerkt, maar het patroon staat erin getekend vanaf de goede kant gezien. Je begint rechts onderaan de teltekening.

21.04.2019 - 17:26

country flag Leena wrote:

Miksi kaikki on ylhäältä alas

13.04.2019 - 13:49

country flag SADORGE Mireille wrote:

Bonjour sur le diagramme A1 au 5 ème rgs si on doit avoir 5 mailles au début et à la fin pour la bordure de boutonnage il reste donc en taille S 79 mailles pour le motif hors c'est sur 2 mailles à chaque fois donc avant les 5 dernières il n'en reste qu'une au lieu de 2 !, j'ai un problème on dirait !! merci de m'aider !

04.04.2019 - 16:11

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Sadorge, tricotez simplement la dernière maille (avant les 5 m de bordure de boutonnage) à l'endroit et terminez par les 5 m au point mousse. Bon tricot!

05.04.2019 - 08:41

country flag Martine Viallet wrote:

Bonjour, je suis en train de tricoter ce joli modèle. Je suis à l'empiècement , diagramme A2, 35e rangée. Et je m'aperçois que le dessin ne se poursuit pas comme je l'attendais. N'y aurait-il pas une erreur dans la 34e rangée, où il devrait y avoir 7 mailles - au lieu de 5 au centre du diagramme A2 ?

08.03.2019 - 13:31

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Viallet, tout à fait, le diagramme A.2 va être corrigé, merci. Bon tricot!

21.03.2019 - 11:39

country flag Anna Blomquist wrote:

Hej! Vill gärna sticka Summer Leaves men utan knappslå bak på oket. Hur gör jag då?? Med vänlig hälsning, Anna

22.01.2019 - 16:10

DROPS Design answered:

Hej Anna, du kan välja att sticka runt utan knappslå, men se till att du har rätt antal maskor så du kan sticka A.2 (6 maskor) runt. Lycka till :)

24.01.2019 - 14:34

country flag Yvette wrote:

Bonjour encore moi dans le message précédant je lis 1 er rang 6 ma. endr et dans les explications c'est 5 mailles point mousse .ensuite 2 ième rang(sur l'envers) ; 2 m end,1 m env, .3 mend est ce cela tout le rang jusqu'au 5 dernière mailles. je trouve que A1 est pas facile à comprendre . une rangée c'est des carreau vide et l'autre des tirets.

02.12.2018 - 04:51

DROPS Design answered:

Bonjour Yvette, pour le pull, vous commencez le rang par 5 m point mousse (la bordure de boutonnage), puis vous tricotez A.1 (=1er rang = 8 m end) terminez par 5 m point mousse. Au 2ème rang (= sur l'envers), tricotez: 5 m point mousse, répétez A.1 (= 8 m end) et terminez par 5 m point mousse. Les explications précédentes concernaient A.2. Bon tricot!

03.12.2018 - 09:26

country flag Yvette wrote:

J'ai fais le 1 ier rang endroit en tenant compte des 5 mailles point mousse a ch. rang. 2 ième envers. 3 ième endroit. 4 ième envers. ensuite 5 ième points pour mes trous celui ci très réussi . mais encore défait mon traval. ça roule , alors aider moi svp si il faudrait que je fasse des cotes 1/1 pour empêcher de rouler merci de m'aider

27.11.2018 - 14:11

DROPS Design answered:

Bonjour Yvette, Tricotez les 4 premiers rangs de A.1 comme indiqué ci-dessous. Au 5ème rang: 3 m end, 1 jeté, 1 m end, 1 jeté, 2 m end. Au 6ème rang: 2 m end, 3 m env, 3 m end. Tricotez ensuite les mailles ainsi, comme indiqué dans le diagramme. Les mailles ne se tricotent pas de la même façon tous les rangs, ni sur l'endroit, ni sur l'envers - celles avec un - sur l'envers se tricotent au point mousse (= à l'endroit tous les rangs), les cases blanches sur l'envers sont des mailles jersey (= à tricoter à l'endroit sur l'endroit et à l'envers sur l'envers). Bon tricot!

27.11.2018 - 14:39

country flag Yvette Therrien wrote:

Bonjour je suis a faire ce modèle et je sais qu'il faut commencer de A.1 de bas en haut le premier tour, est ce à l'endroit qu'on commence après le rang de montage . je l'ai commencer et défait 2 x on dirait que je ne comprend pas vraiment comment débuté . ex premier rang endroit. deuxième rang envers . merci de m'aider à débuter et après je crois que ça va aller .

26.11.2018 - 01:07

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Therrien, vous tricotez effectivement le diagramme de bas en haut ainsi: 1er rang (sur l'endroit): 6 m end, 2ème rang (sur l'envers): 2 m end, 1 m env, 3 m end. 3ème rang: 6 m end. 4ème rang: 1 m end, 3 m env, 2 m end. Et ainsi de suite. Lisez de droite à gauche sur l'endroit et de gauche à droite sur l'envers en suivant bien la légende des symboles. Bon tricot!

26.11.2018 - 10:38

country flag Frankie Johnson wrote:

I did not want the button band, I cast on 117 stitches and did row one and two twice and than did chart A1 as a knitter helper told me . I knit 5 +8 =13 9 times. I am ready to start A2 but I do not understand the translation how to increase to get the 263 stitches. What is the method of Increase. Please advise. Thanks Frankie

05.11.2018 - 05:04

DROPS Design answered:

Dear Mrs Johnson, if you don't want the buttonband, you may then still need the 5 sts on mid back to get the width matching, you will work these 5 sts only once: 5 sts in garter st ("button" band mid back), then repeat A.2 in the round. You will increase a total of 12 sts in each A.2 so that you should ge the correct number of sts (less 5 sts if you only cast on 5) at the end of A.2. Please contact the store where you bought the yarn for any further individual assistance, it will be much easier for them to help you - even per mail or telephone. Happy knitting!

05.11.2018 - 10:09

country flag Lisa wrote:

Guten Abend! Ich habe nun A2 bei der Passe beendet. In der Anleitung steht: „Wenn A.2 1x in der Höhe gestrickt wurde, sind 281 M auf der Nadel“. Ich habe allerdings 280, habe es mehrfach kontrolliert und die letzte Reihe von A.2 passt, es müsste da ja bereits eine Masche felhen, es fehlt aber keine, das Muster geht genau auf. (281 M gehen allerdings nicht mit dem Muster von A.2 auf, woher kommt also diese eine Masche?). Daher bin ich sehr verwirrt und hoffe, Sie können mir helfen.

26.10.2018 - 19:37

DROPS Design answered:

Liebe Lisa, haben Sie zufällig die 1. Masche von A.2 zu stricken? dh : 5 M kraus re, A.2 (= 6 M) insgesamt 15 x, enden mit der ersten M von A.2 (damit das Muster an beiden Seiten symmetrisch wird) und 5 M kraus re - wenn A.2 fertig ist haben Sie: 5 M + A.2 (= 18 M.) 15 x (= 270 M.) + die erste M von A.2 + 5 M = 281 M. Viel Spaß beim stricken!

29.10.2018 - 09:43