DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4400.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Sweet Mint Cardigan

Hekluð peysa úr DROPS Safran með gatamynstri og hringlaga berustykki. Hekluð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.

DROPS 169-32
DROPS Design: Mynstur nr e-241
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS SAFRAN frá Garnstudio
500-550-600-650-700-750 g nr 50, ljós ísblár

DROPS HEKLUNÁL NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 21 st x 12 umf verði 10 x 10 cm.
DROPS PERLUTALA: Bogalaga (hvít), NR 522: 6-6-7-7-7-7 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4400.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.8.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Þegar heklað er fram og til baka:
Í hverri umf með st er fyrsta st skipt út fyrir 3 ll.
Í hverri umf með fl er fyrstu fl skipt út fyrir 1 ll.
Þegar heklað er í hring:
Í hverri umf með st er fyrsta st skipt út fyrir 3 ll, umf endar á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf.
Í hverri umf með fl er fyrstu fl skipt út fyrir 1 ll, umf endar á 1 kl í fyrstu ll í byrjun umf.

ÚTAUKNING-1:
Aukið út um 1 st með því að hekla 2 st í sömu l.

ÚTAUKNING-2:
Heklið þar til 2 st/ll eru eftir á undan prjónamerki, heklið 2 st í/um næsta st/ll (= 1 st fleiri), heklið 1 st í/um hvorn af næstu 2 st/ll, prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa st/ll, heklið 2 st í/um næsta st/ll (= 1 st fleiri). Endurtakið útaukningu við hvert prjónamerki.

MYNSTUR-1 (á við um fram- og bakstykki):
Heklið 1 st í hvern st þar til heklaðar hafa verið alls 6-8-10-10-10-10 umf, * heklið frá réttu: Heklið A.5 yfir fyrstu 6 st, A.6 yfir næstu st, endurtakið A.7 þar til 6 st eru eftir, A.8 yfir síðustu 6 st.
Þegar A.5 til A.8 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina eru heklaðar 6-8-10-10-10-10 umf með 1 st í hvern st *, endurtakið frá *-* til loka.

MYNSTUR-2 (á við um ermi):
* Heklið A.7 yfir alla st. Þegar A.7 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina er heklað áfram þannig: Heklið 6-8-10-10-10-10 umf með 1 st í hvern st *, endurtakið frá *-* til loka.

ÚRTAKA:
Fækkið um 1 st með því að hekla næstu 2 st saman þannig: Heklið 1 st, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið síðan næsta st, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 l á heklunálinni.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagati í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = skiptið út fjórða st frá kanti með 1 ll. Í næstu umf er kantlykkjan að framan hekluð eins og áður (1 st er heklaður um ll). Heklið hnappagat þegar stykkið mælist:
STÆRÐ S: 2, 11, 20, 29, 38 og 47 cm.
STÆRÐ M: 2, 11, 20, 29, 38 og 47 cm.
STÆRÐ L: 2, 10, 18, 26, 34, 42 og 50 cm.
STÆRÐ XL: 2, 10, 18, 26, 34, 42 og 50 cm.
STÆRÐ XXL: 2, 11, 20, 29, 38, 47 og 55 cm.
STÆRÐ XXXL: 2, 11, 20, 29, 38, 47 og 55 cm.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað fram og til baka, ofan frá og niður.

BERUSTYKKI:
Heklið 163-163-172-172-180-180 ll með heklunál nr 3,5 með Safran.
Heklið næstu umf þannig: Heklið 1 st í 4. ll frá heklunálinni (= 2 st) – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR, 1 st í hverja af næstu 5-5-0-0-1-1 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 st í hverja af næstu 6 ll *, endurtakið frá *-* = 139-139-146-146-153-153 st. Heklið síðan næstu umf frá röngu þannig: Heklið A.4 yfir fyrstu 7 st (= hægri kantur að framan), A.3 yfir næstu 6 st, endurtakið A.2 þar til 7 st eru eftir (= 17-17-18-18-19-19 sinnum á breiddina), endið á A.1 yfir síðustu 7 st (= vinstri kantur að framan). Haldið svona áfram, þ.e.a.s. frá réttu er heklað þannig: A.1, A.2 alls 17-17-18-18-19-19 sinnum, A.3 og A.4. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! MUNIÐ EFTIR HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan.

Í síðustu umf í A.1-A.4 (= frá röngu) eru sett 8 prjónamerki og aukið út þannig: ATH: Heklið síðan eins og útskýrt er í mynstri A.1-A.4.
Heklið og aukið út JAFNFRAMT að auki eru auknar út 0-3-3-9-3-3 st jafnt yfir í allri umf – LESIÐ ÚTAUKNING-1: Heklið 36-36-38-38-40-40 st, setjið 1 prjónamerki í stykkið, heklið 4 st og aukið út um 2-4-4-4-4-4 st jafnt yfir (= hægra framstykki), setjið 1 prjónamerki, heklið 42-42-44-44-46-46 st, setjið 1 prjónamerki, heklið 4 st og aukið út um 2-4-4-4-4-4 st jafnt yfir, setjið 1 prjónamerki (= ermi), heklið 56-56-60-60-64-64 st, setjið 1 prjónamerki, heklið 4 st og aukið út um 2-4-4-4-4-4 st jafnt yfir, setjið 1 prjónamerki (= bakstykki), heklið 42-42-44-44-46-46 st, setjið 1 prjónamerki, heklið 4 st og aukið út um 1-4-4-4-4-4 st jafnt yfir, setjið 1 prjónamerki (= ermi), heklið 36-36-38-38-40-40 st (= vinstra framstykki) = 235-247-259-265-271-271 st í umf. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Stykkið mælist ca 9 cm.

Heklið 0-0-0-0-2-2 umf með 1 st í hvern st og aukið út um 0-0-0-0-12-15 st jafnt yfir í hverri umf (= 0-0-0-0-24-30 st alls) = 235-247-259-265-295-301 st.

Heklið A.5 til A.7 þannig (fyrsta umf er frá réttu): Heklið A.5 yfir fyrstu 6 st (= vinstri kantur að framan), A.6 yfir næsta st, endurtakið A.7 þar til 6 st eru eftir (= 37-39-41-42-47-48 sinnum á breiddina), endið á A.8 yfir síðustu 6 st (= hægri kantur að framan). Í umf 2 (þ.e.a.s. st-umferð) er aukið út við hvert prjónamerki – LESIÐ ÚTAUKNING-2 og aukið út um 2-8-8-8-8-8 st jafnt yfir í umf (= 2 st fleiri við hvert prjónamerki og 2-8-8-8-8-8 st fleiri jafnt yfir = alls 18-24-24-24-24-24 st fleiri í umf) = 253-271-283-289-319-325 st. A.7 er nú endurtekið 40-43-45-46-51-52 sinnum á breiddina. Endurtakið útaukningu (þ.e.a.s. 2 st fleiri við hvert prjónamerki og 2-8-8-8-8-8 st fleiri jafnt yfir = alls 18-24-24-24-24-24 st fleiri í umf) í síðustu umf í A.5 til A.8 = 271-295-307-313-343-349 st. * Heklið 1 umf með 1 st í hvern st. Heklið 1 umf með st og aukið út um 18-18-16-17-24-26 st jafnt yfir *, endurtakið frá *-* alls 1-1-2-3-2-3 sinnum = 289-313-339-364-391-427 st. Heklið 0-1-1-0-1-0 umf með 1 st í hvern st. Stykkið mælist ca 17-18-19-20-21-22 cm.

Í næstu umf (= frá réttu) er heklað þannig: Heklið 1 st í hvern af fyrstu 46-50-54-58-64-70 st (= vinstra framstykki), heklið 8 ll, hoppið yfir 60-64-69-73-75-79 st frá fyrri umf (= ermi), 1 st í hvern af næstu 77-85-93-102-113-129 st (= bakstykki), 8 ll, hoppið yfir 60-64-69-73-75-79 st frá fyrri umf (= ermi), 1 st í hvern af síðustu 46-50-54-58-64-70 st (= hægra framstykki) = 185-201-217-234-257-285 st/ll í umf.

Setjið 1 prjónamerki í stykkið, STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN! Heklið 1 umf frá röngu með 1 st í hvern st/ll. Heklið síðan MYNSTUR-1 frá réttu – sjá útskýringu að ofan og fækkið um 4-2-0-5-4-2 st jafnt yfir – LESIÐ ÚRTAKA = 181-199-217-229-253-283 st. Þegar stykkið mælist 12 cm, passið að næsta umf sé umf með st, fækkið um 6-12-12-6-6-6 st jafnt yfir = 175-187-205-223-247-277 st. Haldið áfram með mynstur eins og áður. Þegar stykkið mælist 19-20-21-22-23-24 cm, passið að næsta umf sé umf með st, aukið út um 12 st jafnt yfir. Endurtakið útaukningu með 3 cm millibili 5-5-5-5-6-6 sinnum til viðbótar = 247-259-277-295-331-361 st. Heklið mynstur eins og áður þar til stykkið mælist 44-45-46-47-48-49 cm frá prjónamerki. Klippið frá og festið enda.

ERMI:
Ermin er hekluð í hring, ofan frá og niður. Byrjið að hekla mitt undir ermi þannig: Heklið 1 fl í 5. ll af þeim 8 ll sem heklaðar voru í handveg á fram- og bakstykki, heklið 3 ll (= 1 st), heklið 1 st í hverja af næstu 3 ll, heklið 1 st í hvern st yfir ermi, heklið 1 st í hverja af þeim 4 ll sem eftir eru undir ermi = 68-72-77-81-83-87 st. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi. Setjið 1 prjónamerki í stykkið, STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN! Látið annað prjónamerkið vera eftir í stykkinu, látið hitt prjónamerkið fylgja með í stykkinu.

STÆRÐ-M:
Heklið 1 st í hvern st og fækkið um 2-0 st jafnt yfir = 66-72 st.

STÆRÐ L-XL-XXL-XXXL:
Heklið 1 st í hvern st og aukið út um 1-3-1-3 st jafnt yfir = 78-84-84-90 st.

ALLAR STÆRÐIR:
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM.
MYNSTUR ER HEKLAÐ OG ÚRTAKA HEFST:
MYNSTUR:
Heklið 1 st í hvern st þar til heklaðar hafa verið alls 5-7-9-9-9-9 umf með st.
Heklið MYNSTUR-2 – sjá útskýringu að ofan.
ÚRTAKA:
Þegar stykkið mælist 4 cm, passið uppá að næsta umf er 1 umf með st, fækkið um 6 st jafnt yfir, endurtakið úrtöku með 15-10-8-8-8-6 cm millibili 2-3-4-4-4-5 sinnum til viðbótar = 48-48-48-54-54-54 st. Klippið frá og festið enda þegar ermin mælist 46-45-45-44-44-43 cm.
Heklið hina ermina á sama hátt.

HÁLSMÁL:
Stykkið er heklað fram og til baka frá miðju að aftan. Heklið í ll þar sem st voru heklaðir (þ.e.a.s. þær ll sem hoppað var yfir er ekki heklað í = 139-139-146-146-153-153 st). Heklið 1 fl í hvern af fyrstu 22-22-24-24-26-26 st, * 1 hst í hverja af næstu 3 ll, 1 st í hverja af næstu 3 ll, 1 tbst í hverja af næstu 19 ll, 1 st í hverja af næstu 3 ll, 1 hst í hverja af næstu 3 ll *, 1 fl í hverja af næstu 33-33-36-36-39-39 ll, endurtakið frá *-* 1 sinni, 1 fl í hverja af síðustu 22-22-24-24-26-26 ll. Næsta umf er hekluð þannig: Heklið 1 fl í hverja af fyrstu 26-26-28-28-30-30 l, ** 1 hst í hverja af næstu 3 l, 1 st í hverja af næstu 3 l, * heklið næstu 2 tbst saman *, endurtakið frá *-* 5 sinnum til viðbótar, 1 st í hverja af næstu 3 l, 1 hst í hverja af næstu 3 l **, 1 fl í hverja af næstu 39-39-42-42-45-45 l, endurtakið frá **-** 1 sinni til viðbótar, endið á 1 fl í hverja af síðustu 26-26-28-28-30-30 l = 127-127-134-134-141-141 l. Heklið 1 umf með 1 fl í hverja l. Klippið frá og festið enda.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 27.09.2016
BERUSTYKKI: Setjið 1 prjónamerki í stykkið, STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN! Heklið 1 umf frá röngu með 1 st í hvern st/ll. Heklið síðan MYNSTUR-1 frá réttu – sjá skýringu að ofan og fækkið um 4-2-0-5-4-2 st jafnt yfir – LESIÐ ÚRTAKA = 181-199-217-229-253-283 st.
Yfirfarið á vefsvæði: 23.02.2024
Mynsturteikning A.1 hefur verið uppfærð

Mynstur

symbols = ll
symbols = fl í l
symbols = fl um ll-boga
symbols = st í l
symbols = st um ll-boga
symbols = kúla: Heklið 3 ll, 1 st um ll-hringinn, 3 ll, 1 kl um sama ll-hring
symbols = heklið 6 ll, 1 kl í 4 ll frá heklunálinni, snúið ll-hringinn (þ.e.a.s. haldið áfram að hekla í sömu átt), eftir það eru kúlur heklaðar áfram
symbols = heklið 1 st í st, en bíðið með að draga bandið í gegn í lokin, heklið 1 st til viðbótar í sama st, dragið bandið í gegnum allar 3 l á heklunálinni
symbols = heklið 1 st um ll-bogann, en bíðið með að draga bandið í gegn í lokin, heklið 1 st til viðbótar í sama ll-boga, dragið bandið í gegnum allar 3 l á heklunálinni
symbols = útaukningsumferð -sjá skýringu í uppskrift
symbols = byrjið hér (fyrsta umf í mynstri), st-umferð er útskýrð í uppskrift
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 169-32

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (97)

country flag Christine wrote:

Danke für Ihre Antwort vom 2.04. Wann ist denn mit einer Reaktion des Design-Teams zu rechnen ? Freundliche Grüße !

13.04.2024 - 21:55

country flag Nancy wrote:

Wederom een lastig patroon. In de diagrammen A1 t/m A4 tel ik verschil in het aantal toeren. A1 en A4 tel ik 10 toeren! A2 en A3 tel ik 11 toeren!

07.04.2024 - 14:35

country flag Nancy wrote:

Ook ik heb een vraag over de “bobbel”. Hoe ik hem moet haken weet ik, maar hoe kom ik van de vorige steek naar de eerste bobbel. En van de laatste bobbel naar de volgende steek? Ik had namelijk ergens gelezen dat je vanaf de lossenboog moet beginnen met de bobbel.

07.04.2024 - 09:28

DROPS Design answered:

Dag Nancy,

Vlak voor de bobbel haak je een vaste in de lossenboog van de vorige toer (dit is het symbool met het kruisje), de bobbel haakje ook in een lossenboogje en de vaste daarna haak je weer in het daaropvolgende lossenboogje.

07.04.2024 - 18:49

country flag Christine wrote:

Leider bin ich noch nicht weiter gekommen : A1 und A4 sollen doch symmetrisch sein, oder ? In Reihe 6 des Musters sind 2 Luftmaschen in A1 abgebildet, am Ende der Reihe in A4 nicht. Die findet man aber in A3. In der folgenden Reihe (beginnt in A4) wird die erste feste Masche dann dorthin plaziert. Am Ende der Reihe soll jedoch keine feste Masche in die 2 Luftmaschen von A1 gehäkelt werden ? Fröhliche Ostergrüße !

01.04.2024 - 11:27

DROPS Design answered:

Liebe Christine, wir habe Ihre Fragen zum Design Team weitergeleitet, danke im voraus für Ihren Geduld.

02.04.2024 - 15:08

country flag Christine wrote:

Tut mir leid, aber alle bisherigen Erklärungen beantworten nicht meine Frage. Ich versuche es noch einmal : In REIHE 7 des Musters sitzt die ERSTE feste Masche in dem 2ER-Luftmaschenbogen der Vorrunde, wogegen die LETZTE feste Masche in A2 in einem 5ER-Luftmaschenbogen der Vorrunde plaziert ist. Das ist doch kein symmetrischer Übergang, oder ? Meine Frage betrifft also NICHT die 8.REIHE des Musters, die ist klar. Es geht um die PLAZIERUNG der FESTEN Maschen der 7.Reihe.

29.02.2024 - 18:45

country flag Christine wrote:

Danke für den Versuch, es ist aber immer noch nicht klargeworden, was ich meine. Die 8.Reihe, also die 7.Reihe des Musters beginnt laut Diagramm in A4. Die Übergänge von A4 nach A3 und am Ende der Reihe von A2 nach A1 werden jeweils mit 3 Luftmaschen gebildet. Aber um welche Luftmaschenbögen der Vorrunde ( also der 6. des Musters ) werden die erste ( in A3 ) und analog die letzte feste Masche ( in A2 ) gebildet ?? Schauen Sie bitte noch mal genau das Diagramm an !

29.02.2024 - 14:03

DROPS Design answered:

Liebe Christine, bei der 7. Reihe sind es beidseitig 3 Luftmaschen: Anfang Ende A.3 und am Ende A.1 (nach der letzten fM in A.2)- so wird das Muster symmetrisch sein, bei der 8. Reihe endet A.1 mit 3 Luftmaschen + 1 feste Masche in den ersten Luftmaschenbogen A.2 (mit nur 3 Lm), und am Ende der Reihe häkeln Sie nach den 5 Luftmaschen (am Ende A.3) 1 feste Masche in den letzten Luftmaschenbogen in A.3 (mit nur 3 Lm), dan 3 Lm, 1 Stäbchen überspringen, 1 Stäbchen in den nächsten Stäbchen häkeln. Aber gerne können Sie auch das Muster genauso anders anpassen. Viel Spaß beim häkeln!

29.02.2024 - 16:25

country flag Christine wrote:

Wahrscheinlich war meine Frage zu unkonkret. In Reihe 8 ( beginnt in A4 ) geht es mir um die Übergänge von A4 nach A3 und am Ende der Reihe von A2 nach A1. Die erste feste Masche in A3 wird um einen 2er Luftmaschenbogen der Vorrunde gehäkelt, aber die letzte feste Masche in A2 um einen 5er Luftmaschenbogen der Vorrunde. Das ist doch nicht symmetrisch ! Bitte können Sie das noch mal aufklären ? Freundlichen Gruß !

28.02.2024 - 20:38

DROPS Design answered:

Liebe Christine, bei der 7. Reihe beginnt A.2 mit 3 Lufmtaschen nach A.1 und endet A.3 mit 3 Luftmaschen vor A.4. Bei der 8. Reihe ist die feste Masche um diese Luftmaschenbogen gehäkelt. Viel Spaß beim Häkeln!

29.02.2024 - 08:03

country flag Christine wrote:

Danke für Ihre Antwort vom 16.02. und die Korrektur ! In Reihe 8 ist die letzte feste Masche in A2 nun um den 5er Luftmaschenbogen der Vorrunde, analog ist die erste feste Masche in A3 aber um den 2er Luftmaschenbogen der Vorrunde. Ist das so gedacht ?

27.02.2024 - 11:43

DROPS Design answered:

Liebe Christine, die feste Masche am Ende A.1 wird um den 1. Luftmaschen Bogen von der vorigen Reihe (= A.2) gehäkelt und die feste Masche am Anfang A.4 wird um den letzten Luftmaschenbogen am ende A.3 gehäkelt. Viel Spaß beim häkeln!

27.02.2024 - 13:34

country flag Dorthe wrote:

Hej i uppdateringen står det sen stickas mönster 1 ,😳är det inte virkmönster???

21.02.2024 - 17:46

country flag Christine wrote:

Hallo, ich habe eine Frage zum Muster der Passe. Ist das wirklich so gedacht, daß die Übergänge von A4 nach A3 und A2 nach A1 nicht gleich sein sollen ? Bei den ersten Reihen klappt das noch. Aber in Reihe 8 ( bzw. 7. Reihe des Musters ) kommen nach den Stäbchen drei Luftmaschen, die in einer festen Masche um den Bogen der vorigen Reihe enden. Das Ende in A2 sind dann drei Luftmaschen und A1 beginnt mit zwei Luftmaschen. Fehlt dazwischen nicht etwas ? Viele Grüße !

15.02.2024 - 15:38

DROPS Design answered:

Liebe Christine, ich werde Ihre Rückmeldung weiterleiten, und würde sagen daß man auch 2 Lm nach den Stäbchen in A.4 häkeln muss (so wird es mit A.1 symmetrisch). Viel Spaß beim häkeln!

16.02.2024 - 09:24