DROPS Belle
DROPS Belle
53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4466.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Summer Bliss Vest

Heklað vesti úr DROPS Belle með a-formi, gatamynstri og snúru. Stærð S-XXXL.

DROPS 167-19
DROPS Design: Mynstur nr vs-019
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS BELLE frá Garnstudio
350-350-400-450-450-500 g nr 03, ljós beige

DROPS HEKLUNÁL NR 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 16 st x 8 umf verði 10 x 10 cm, eða 1 mynstureining af A.2 verði 5 cm á breidd. ATH: 1 ll-bogi = 1 st + 2 ll á að mælast 1½ cm á breiddina – passið uppá að hekla ll ekki of fast!

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Belle
DROPS Belle
53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4466.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í hverri umf með st er fyrsta st skipt út fyrir 4 ll.
Í hverri umf með tbst er fyrsta tbst skipt út fyrir 5 ll.
Í hverri umf með 3-tbst er fyrsta 3-tbst skipt út fyrir 6 ll.
Í hverri umf með fl byrjar umf á 1 ll. Ll kemur ekki í stað fyrstu fl.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.8.

ÚRTAKA:
Fækkið um 1 st með því að hekla næstu 2 st saman þannig: Heklið 1 st, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið síðan næsta st, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 l á heklunálinni.

ÚRTAKA LL-BOGAR:
Fækkið um 1 ll-boga í byrjun á umf séð frá réttu þannig: Heklið 2 ll, hoppið yfir fyrsta ll-bogann, heklið 1 st um næsta ll-boga. Í næstu umf er hoppað yfir síðasta ll-bogann séð frá röngu (= fyrsti ll-boginn séð frá réttu).

Fækkið um 1 ll-boga í lok umf séð frá réttu þannig: Heklið þar til 1 ll-bogi er eftir, 2 ll, hoppið yfir síðasta ll-boga, heklið 1 l í hverja af þeim l sem eftir eru. Í næstu umf er hoppað yfir fyrsta ll-boga, heklið 2 ll og 1 st um næsta ll-boga séð frá röngu (= síðasti ll-boginn séð frá réttu).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað fram og til baka, neðan frá og upp. Síðan er stykkinu skipt upp við handveg og haldið er áfram með bakstykki og framstykki hvort fyrir sig. Að lokum er heklaður kantur neðst niðri með netamynstri.

VESTI:
Heklið 197-206-225-244-272-290 lausar ll (meðtaldar 4 ll til að snúa við með) með heklunál nr 4,5 með Belle. Snúið við og heklið þannig: Heklið 1 st í 5. ll frá heklunálinni, heklið síðan 1 st í hverja af næstu 3-5-3-1-1-5 ll, * hoppið yfir 1 ll, heklið 1 st í hverja af næstu 6 ll *, endurtakið frá *-* 26-27-30-33-37-39 sinnum til viðbótar = 166-174-190-206-230-246 st og 4 ll til að snúa við með – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Haldið áfram fram og til baka með 1 st í hvern st þar til stykkið mælist 5-5-6-6-7-7 cm. Heklið nú mynstur frá umf 2 í mynstri frá réttu þannig: Heklið A.1 (= 8 st), heklið síðan A.2 (= 8 st) 19-20-22-24-27-29 sinnum á breiddina, A.3 (= 7 st). Í síðustu umf í mynstri A.1 til A.3 er fækkað um 32 st jafnt yfir í öllum stærðum – LESIÐ ÚRTAKA = 135-143-159-175-199-215 st. Haldið síðan áfram með 1 st í hvern st þar til stykkið mælist 25-25-26-26-27-27 cm á hæðina. Heklið síðan mynstur frá umf 2 í A.1, A.2 og A.3 eins og áður (en nú eru heklaðar 15-16-18-20-23-25 mynstureiningar af A.2 á breiddina). Endið á undan 2 síðustu umf í mynstri A.1 til A.3. Heklið nú 1 umf með 1 st í hvern st og lykkjufjöldinn er jafnaður til 136-140-161-173-197-210 st. Klippið frá. Setjið eitt prjónamerki hér. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Nú er stykkinu skipt í 2 framstykki og eitt bakstykki.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Heklið fyrstu umf þannig: A.4 yfir fyrstu 12 st, heklið síðan A.5 yfir næstu 15-15-21-24-30-33 st (= 5-5-7-8-10-11 mynstureiningar á breiddina), A.6 yfir næstu 6 st = 9-9-11-12-14-15 ll-bogar í fyrstu umf. Heklið nú áfram eftir stærðum eins og útskýrt er að neðan:

Stærð S og M:
Haldið áfram fram og til baka þar til umf 4 í A.4 hefur verið heklað til loka á hæðina. ATH: umf 2 og 3 í A.5 og A.6 eru endurteknar jafnóðum á hæðina. Nú hefur fækkað um 2 ll-boga fyrir hálsmáli fyrir miðju að framan í báðum stærðum.
Endurtaki síðan umf 3 og 4 í mynstri A.4 3-3 sinnum til viðbótar á hæðina = alls 5-5 ll-bogar færri í hálsmáli fyrir miðju að framan og það eru 4-4 ll-bogar (með 2 ll) eftir fyrir öxl. Stykkið mælist ca 13-13 cm.

Stærð L, XL, XXL og XXXL:
Haldið áfram fram og til baka með ll-bogum, JAFNFRAMT í næstu umf er fækkað um ll-boga fyrir hálsmáli fyrir miðju að framan og fækkað er um ll-boga fyrir handveg þannig:

ÚRTAKA HANDVEGUR:
Í næstu umf er fækkað um 1 ll-boga fyrir handveg – LESIÐ ÚRTAKA LL-BOGAR. Endurtakið úrtöku 0-1-2-2 sinnum til viðbótar = alls 1-2-3-3 ll-bogar færri fyrir handveg.

ÚRTAKA HÁLSMÁL:
Þegar umf 4 í A.4 hefur verið heklað til loka og fækkað um 2 ll-boga í stærð L, XL, XXL og XXXL. Endurtakið síðan úrtöku fyrir hálsmáli (þ.e.a.s. umf 3 og 4 í A.4) 3-3-3-4 sinnum til viðbótar = alls 6-6-6-7 ll-bogar færri í hálsmáli.

ALLAR STÆRÐIR:
Haldið síðan áfram með ll-boga eins og áður, en nú er umf 5 og 6 heklaðar í A.4 við hálsmál jafnóðum þar til stykkið mælist 16-17-18-19-20-21 cm. Snúið við og heklið 16-16-16-16-19-19 st jafnt yfir öxl. Klippið frá og festið enda. Stykkið mælist ca 17-18-19-20-21-22 cm.

BAKSTYKKI:
Byrjið við handveg á hægra framstykki og hoppið yfir 4-6-6-6-6-8 st fyrir handveg. Heklið A.7 (= 8 st), A.5 (= 3 st) 16-16-19-21-25-26 sinnum á breiddina, heklið A.6 (= 6 st) = 19-19-22-24-28-29 ll-bogar í fyrstu umf. Heklið nú eftir stærðum eins og útskýrt er frá að neðan:

Stærð S og M:
Haldið áfram fram og til baka með mynstur eins og útskýrt er í umf 2 og 3 í A.5 til A.7 þar til stykkið mælist 14-15 cm – passið uppá að næsta umf sé hekluð eins og umf 3!

Stærð L, XL, XXL og XXXL:
Haldið áfram fram og til baka með mynstri eins og útskýrt er í umf 2 og 3 í A.5 til A.7, JAFNFRAMT í næstu umf er l fækkað fyrir handveg í hvorri hlið innan við 3 l – LESIÐ ÚRTAKA LL-BOGAR. ATH: Heklið nú 3 tbst í stað 3 st í hvorri hlið í umf þar sem úrtakan er (þetta er gert svo að kantarnir verði ekki of stífir!). Endurtakið úrtöku 0-1-2-2 sinnum til viðbótar (= alls 1-2-3-3-3 úrtökur í hvorri hlið) = 20-20-22-23 ll-bogar eftir. Haldið nú áfram með ll-boga eins og útskýrt er í umf 2 og 3 í mynstri A.5 til A.7 þar til stykkið mælist 16-17-18-19 cm – passið uppá að næsta umf sem er hekluð sé eins og umf 3.

Haldið síðan áfram eins og útskýrt er að neðan í öllum stærðum:
Heklið 1 st í hvern af fyrstu 3 st og 4-4-4-4-5-5 heilir ll-bogar (þ.e.a.s. ll-bogar með 2 ll), heklið 1 st í næsta st, heklið síðan 24-24-26-26-26-28 st jafnt yfir næstu 10-10-11-11-11-12 ll-boga frá fyrri umf, heklið 1 st í næsta st og 1 st um næsta ll-boga, haldið áfram með 4-4-4-4-5-5 heila ll-boga (þ.e.a.s. ll-bogar með 2 ll) og 1 st í hvern af ystu 3 st. Nú eru 26-26-28-28-28-30 st eftir hverjum öðrum fyrir miðju á bakstykki.
Heklið síðan hvora öxl til loka fyrir sig. Snúið við og heklið eins og áður yfir fyrstu 4-4-4-4-5-5 ll-boga, heklið 1 st í hvern af fyrstu 3 st af þeim 26-26-28-28-28-30 st. Snúið við og heklið 16-16-16-16-19-19 st jafnt yfir fyrir öxl. Klippið frá og festið enda.
Heklið hina öxlina alveg á sama hátt nema spegilmynd: Byrjið við handveg og heklið 1 st í hvern af ystu 3 st, heklið síðan ll-boga eins og áður yfir de 4-4-4-4-5-5 ll-boga og 1 st í hvern af næstu 3 st. Snúið við og heklið 16-16-16-16-19-19 st jafnt yfir öxl. Klippið frá og festið enda.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Byrjið við handveg á bakstykki og hoppið yfir 4-6-6-6-6-7 st fyrir handveg. Heklið A.7 (= 8 st), A.5 (= 3 st) 4-4-6-7-9-10 sinnum á breiddina, endið með A.8 (= 13 st). Haldið svona áfram fram og til baka eins og hægra framstykki nema spegilmynd. Stillið af eftir hægra framstykki.

FRÁGANGUR:
Saumið saman axlasauma. Saumið l eina og eina fallega saman og passið uppá að saumurinn verði ekki of stífur! Klippið frá og festið enda.

KANTUR NEÐST NIÐRI:
Heklið nú kant neðst niðri á vestinu:
UMFERÐ 1: Festið endann með 1 fl og 3 ll í fyrstu ll sem var hekluð í byrjun á stykki, heklið 1 st í hverja af næstu 3 ll (= kantur að framan), heklið síðan * 2 ll, hoppið yfir ca 1½ cm, heklið 1 st í næstu ll *, endurtakið frá *-* meðfram öllum kantinum þar til ca 1½ er eftir á undan síðustu 4 ll í umf, heklið 2 ll og endið með 1 st í hverja af síðustu 4 ll. Nú eru ca 66-69-76-83-93-99 ll-bogar og 4 st að kanti að framan í hvorri hlið – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR!
UMFERÐ 2: Heklið 1 st í hvern af fyrstu 4 st, heklið 1 ll, 1 st um næsta ll-boga, * 2 ll, 1 st um næsta ll-boga * í hvern ll-boga í umf og endið með 1 ll og 1 st í hvern af 4 st að kanti við kant að framan.
UMFERÐ 3: Heklið 1 st í hvern af 4 fyrstu st, heklið 2 ll, hoppið yfir 1 l og 1 st, * 1 st um næsta ll-boga, 2 ll *, endurtakið frá *-* þar til 1 ll-bogi er eftir með 2 ll, heklið 1 st um þennan ll-boga, 2 ll og endið með 1 st í hvern af 4 st við kant að framan.
Endurtakið umf 2 og 3 þar til stykkið mælist alls 78-80-82-84-86-88 cm (mælt frá öxl) eða að óskaðri lengd. Klippið frá og festið enda.

SNÚRA MEÐ KÖGRI:
Klippið 2 þræði ca 90 cm. Tvinnið þá saman þar til þeir taka í. Þræðið inn annan endann í gegnum síðustu st-umferðina sem hekluð var áður en stykkinu var skipt í framstykki og bakstykki og leggið snúruna saman tvöfalda þá kemur hún til með að tvinna sig aftur saman. Hnýtið hnút á endann sem hangir laus. Endurtakið á hinni hliðinni. Gerið síðan dúsk á endann á hvorri snúru: Klippið 14 þræði ca 24 cm, þræðið í gegnum endann á snúrunni og skiptið endunum þannig að þeir verði jafnir. Vefjið þráð nokkrum sinnum í kringum dúskinn ca 1 cm frá topp, þá myndast fallegt höfuð efst, og festið endann.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 03.03.2016
Leiðrétting í mynstri A.1 og A.2: 1 fl í l (ekki 1 fl um lykkju)
Yfirfarið á vefsvæði: 06.09.2016
Útskýring í mynsturtákni nr 10 hefur breyst: Þessi umferð er útskýrð í mynstri /byrjið frá 2. röð

Mynstur

symbols = 1 ll
symbols = 4 ll
symbols = 1 fl um l
symbols = 1 fl í l
symbols = 1 st í l
symbols = 1 st um ll/ll-boga
symbols = 1 tbst í l
symbols = 1 þbst
symbols = Heklið 2 þbst í 1 st þannig: Heklið 1 þbst en bíðið með að draga bandið í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni). Heklið 1 þbst í sömu l, en þegar bandið er dregið í gegn í lokin er það dregið í gegnum allar 3 l á heklunálinni
symbols = þessi umf er útskýrð í uppskrift/byrjið frá 2. röð
symbols = heklið í þessa l
symbols = heklstefna
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 167-19

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (82)

country flag Pia wrote:

Hej, jag har gjort klart bakstycket, men det ser inte alls ut som på modellbilderna. Det är ju ett helt annat sätt att virka bakstycket som syns på modellbilderna. Kan ni ge mig beskrivningen på hur man gör bakstycket som modellen bär?

17.02.2024 - 19:21

DROPS Design answered:

Hej Pia, jo når du har delt arbejdet til 2 forstykker og bagstykke skal du kun hækle de huller som er øverst på bærestykket. Det er samme mønster i A4 A5 A6 A7 A8 den eneste forskel er at A4 og A8 viser hvordan du hækler mod V-halsen :)

23.02.2024 - 11:21

country flag Patricia wrote:

Lo siento pero no entiendo las explicaciones para disminuir, hay algún tutorial donde se vea como se hacen las disminuciones en este chaleco?

28.01.2024 - 18:55

country flag Ebru wrote:

Love this pattern and start tonight. Thank you for this beautiful vest. But there is a point I don't understand, why do we make an extra chain at the beginning of the row? Why is it 4ch instead of 1dc when it should be 3ch instead of 1dc? This will cause it to stay loose around the edges. And not all around. In one it will appear loose and then the other will appear normal.

23.06.2023 - 12:13

DROPS Design answered:

Dear Ebru, not sure what you mean with 1 extra chain, under CROCHET INFO we explain how to start the row either treble crochet (UK-English)/double crochet (US-English) / double treble crochet (UK-English) / treble crochet (US-English) or triple treble crochet (UK-English) / double treble crochet (US/English) - should you rather crochet 3 chains at the beg of the row, make sure these 3 chains are as high as 1 treble/double crochet will be (see appropriate English). Happy crocheting!

23.06.2023 - 15:51

country flag Madeline Odonnell wrote:

Hi can you please tell me how many ball of Drops Bella yarn would i need to order for x large size . Thank you Regards Madeline

28.06.2022 - 15:33

DROPS Design answered:

Dear Madeline, you will find the required amount of yarn under the header, so that in size XL you need 450 g DROPS Belle / 50 g a ball = you need 9 balls in XL. Happy crocheting!

29.06.2022 - 08:56

country flag María Jesús Aramendía wrote:

Hola!!! Me encantan vuestros patrones y los ovillos de Drops. He realizado varios proyectos y deseo seguir tejiendo con vosotros. Muchas gracias.

17.06.2021 - 18:01

country flag Marjo Kuhl wrote:

Sorry ik ben er al uit Fijne dag

06.06.2021 - 12:01

DROPS Design answered:

Dag Marjo,

Mooi dat je eruit gekomen bent en bedankt voor de terugkoppeling. Veel haakplezier!

07.06.2021 - 20:01

country flag Marjo Kuhl wrote:

Hallo ik ben begonnen met dit vest na het eerste deel ,5cm 174 stokjes wil ik het patroon haken heb daar alleen 175 steken voor nodig?1x a1 is 8 stokjes 20 x a2 is168 steken en 1 xa3 is 7 steken bij elkaar 175 steken .weet even niet meer hoe verder te gaan Ik hoop dat u mij kunt helepen met groeten

06.06.2021 - 11:29

country flag Yvonne Michels wrote:

Sorry voor mijn vorige bericht. Ben er achter gekomen dat het mijn eigen fout is. Heb het patroon niet goed gelezen. Steeds A1, A2,A3 gehaakt ipv A1, A2 A2 enz., A3. Alles uitgehaald en weer opnieuw begonnen. Hoop dat het nu wel lukt. Dank

17.05.2021 - 00:55

DROPS Design answered:

Dag Yvonne,

Mooi dat je het ontdekt hebt, zodat je verder kunt. Dank voor de terugkoppeling en veel haakplezier!

19.05.2021 - 10:05

country flag Yvonne Michels wrote:

Bij de 2e keer het patroon A1/A3 bij maat XXL heb ik 199 steken, als ik het patroon volg kom ik niet met de steken uit dan houd ik 15 steken over en ik heb er 23 nodig. Wat doe ik niet goed?

16.05.2021 - 17:50

country flag Alexandra wrote:

Ik maak maat L. Bij het achterpand staat voor de armsgaten aan beide zijden 1 lus minderen. Is dit alleen de lossen of 3 steken? Zoals je dit haakte bij het bovenstuk van het voorpand waarbij je één lus en stokje mindert? Wordt het dan niet erg scheef?

27.04.2021 - 13:19

DROPS Design answered:

Dag Alexandra,

Je kunt gewoon minderen zoals bovenaan bij 'tip voor het minderen l-lussen' staat aangegeven. Dan zou het goed moeten komen.

29.04.2021 - 15:13