DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12870.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Daniella

Hekluð peysa með vösum og pils úr DROPS Alpaca með gatamynstri og sólfjaðramynstri, heklað ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.

DROPS 170-31
DROPS Design: Mynstur nr Z-729
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

PEYSA:
Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
350-400-450-450-500-550 g nr 2110, ljós gulur

DROPS HEKLUNÁL NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 22 st x 12 umf verði 10 x 10 cm.
DROPS PERLUTALA: Bogalaga (hvít), NR 521: 6-6-7-7-8-8 st.

PILS:
Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
300-300-350-400-400-450 g nr 2110, ljós gulur

DROPS HEKLUNÁL NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 22 st x 12 umf verði 10 x 10 cm.
DROPS PERLUTALA: Bogalaga (hvít), NR 521: 4 st í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12870.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.15.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í hverri umf með st er fyrsta st skipt út fyrir 3 ll.
Í hverri umf með fl er fyrstu fl skipti út fyrir 1 ll.

ÚRTAKA:
Heklið þar til 5 st eru eftir á undan prjónamerki á hlið, heklið næstu 2 st saman, heklið 1 st í hvorn af næstu 2 st, heklið næstu 2 st saman, heklið 1 st í hvorn af næstu 2 st, heklið næstu 2 st saman (= 3 st færri við hvert prjónamerki = 6 st færri alls).

ÚTAUKNING:
Heklið þar til 4 st eru eftir á undan prjónamerki í hlið, heklið 2 st í næsta st, heklið 1 st í hvorn af næstu 2 st, heklið 2 st í næsta st, heklið 1 st í hvorn af næstu 2 st, heklið 2 st í næsta st (= 3 st fleiri við hvert prjónamerki = 6 st fleiri alls).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað ofan frá og niður, fram og til baka.

BAKSTYKKI:
HÆGRI ÖXL:
Heklið 27-31-35-35-39-42 ll með heklunál nr 3,5 með Alpaca. Heklið næstu umf þannig: Heklið 1 st í 4. ll frá heklunálinni (= 2 st) – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR, 1 st í hverja af næstu 3-2-1-1-0-3 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 st í hverja af næstu 4 ll *, endurtakið frá *-* = 21-24-27-27-30-33 st. Síðan er næsta umf hekluð (= frá réttu) þannig: Heklið A.4a yfir fyrstu 4 st, endurtakið A.5a yfir næstu 15-18-21-21-24-27 st (= alls 5-6-6-7-8-9 sinnum á breiddina), A.6a yfir síðustu 2 st. Þegar A.4a til A.6a hefur verið heklað 1 sinni á hæðina (= síðasta umf frá röngu). Geymið stykkið og heklið vinstri öxl. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!

VINSTRI ÖXL:
Heklið 27-31-35-35-39-42 ll með heklunál nr 3,5 með Alpaca. Heklið næstu umf þannig: Heklið 1 st í 4. ll frá heklunálinni (= 2 st), 1 st í hverja af næstu 3-2-1-1-0-3 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 st í hverja af næstu 4 ll *, endurtakið frá *-* = 21-24-27-27-30-33 st. Heklið síðan næstu umf (= frá réttu) þannig: Heklið A.1a yfir fyrstu 2 st, endurtakið A.2a yfir næstu 15-18-21-21-24-27 st (= alls 5-6-6-7-8-9 sinnum á breiddina), A.3a yfir síðustu 4 st. Þegar A.1a til A.3a hefur verið heklað 1 sinni á hæðina, heklið vinstri öxl saman við hægri öxl frá réttu þannig:

BAKSTYKKI:
STÆRÐ S-M:
Heklið A.1b yfir fyrstu 2 st á vinstri öxl, endurtakið A.2b yfir næstu 18-21 st, 1 st í síðasta st á vinstri öxl, heklið 39-39 ll fyrir hálsmáli, heklið 1 st í hvorn af fyrstu 2 st á hægri öxl, endurtakið A.2b yfir næstu 18-21 st og 1 st í síðasta st yfir hægri öxl eins og áður 42-48 st og 39-39 ll í umf. Í næstu umf er mynstur heklað eins og áður, en í ll er heklaður 1 st í hverja ll = 81-87 st.

STÆRÐ L-XL-XXL-XXXL:
Heklið A.1a yfir fyrstu 2 st á vinstri öxl, endurtakið A.2a yfir næstu 24-24-27-30 st, 1 st í síðasta st á vinstri öxl, heklið 39-45-45-45 lm fyrir hálsmáli, heklið 1 st í fyrsta st á hægri öxl, endurtakið A.5a yfir næstu 24-24-27-30 st og A.6a yfir 2 síðustu st á hægri öxl eins og áður = 54-54-60-66 st og 39-45-45-45 ll í umf. Í næstu umf er mynstur heklað eins og áður, en í ll er heklaður 1 st í hverja ll = 93-99-105-111 st. Þegar A.1a til A.6a hefur verið heklað 1 sinni á hæðina er heklað frá réttu þannig: Heklið 1 st í hvern og einn af fyrstu 2 st, endurtakið A.2b þar til 1 st er eftir, endið á 1 st í síðasta st. Endurtakið A.2b alls 1-1-2-2 sinnum.

ALLAR STÆRÐIR:
= 81-87-93-99-105-111 st. Heklið frá réttu þannig: A.7b yfir fyrstu 2 st, endurtakið A.8b yfir næstu 72-78-84-90-96-102 st (= alls 12-13-14-15-16-17 sinnum á breiddina), endið á A.9b yfir síðustu 7 st. Þegar A.7b til A.9b hefur verið heklað 1 sinni á hæðina er endurtekið A.7 yfir A.7b, A.8 yfir A.8b og A.9 yfir A.9b á hæðina.

STÆRÐ L-XL-XXL-XXXL:
Þegar stykkið mælist 17-18-16-16 cm er aukið út um 1 st í hvorri hlið á stykki með því að hekla 2 st í fyrsta og síðasta st (= 2 st fleiri). Endurtakið útaukningu í hverri umf 1-1-5-6 sinnum til viðbótar (= alls 4-4-12-14 st fleiri). Útauknir stuðlar eru heklaðir jafnóðum inn í mynstur. St sem ekki ganga upp í mynstur eru heklaðir eins og A.7. Eftir útaukningu mælist stykkið ca 19-20-21-22 cm.

ALLAR STÆRÐIR:
Þegar stykkið mælist 17-18-19-20-21-22 cm, passið að næsta umf sé frá réttu og að það sé umf með st (í mynstri A.8), klippið frá og festið enda. Geymið stykkið og heklið framstykki.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Heklið 27-31-35-35-39-42 ll með heklunál nr 3,5 með Alpaca. Heklið næstu umf þannig: Heklið 1 st í 4. ll frá heklunálinni (= 2 st), 1 st í hverja af næstu 3-2-1-1-0-3 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 st í hverja af næstu 4 ll *, endurtakið frá *-* = 21-24-27-27-30-33 st. Heklið næstu umf (= frá réttu) þannig: Heklið A.1a yfir fyrstu 2 st, endurtakið A.2a yfir næstu 15-18-21-21-24-27 st (= alls 5-6-7-7-8-9 sinnum á breiddina), A.3a yfir síðustu 4 st. Endurtakið A.1a til A.3a á hæðina alls 1-1-2-2-2-2 sinnum. Heklið síðan A.1b yfir A.1a, A.2b yfir A.2a og A.3b yfir A.3a. Endurtakið A.1b til A.3b á hæðina alls 1-1-1-1-2-2 sinnum. Heklið A.1c yfir A.1b, A.2c yfir A.2b og A.3c yfir A.3b. Klippið frá og festið enda þar til eftir er 1 umf í mynstri. Heklið 14-17-14-20-17-20 lausar ll með heklunál nr 3,5 með Alpaca, heklið síðustu umf í mynstri A.3c til A.1c frá röngu = 29-32-35-35-38-41 st og 14-17-14-20-17-20 ll.

Í næstu umf er heklað frá réttu þannig: Heklið A.7 yfir fyrstu 2 st, endurtakið A.8 yfir næstu 30-36-36-42-42-48 st/ll (= alls 5-6-6-7-7-8 sinnum á breiddina), A.9 yfir næstu 7 ll, endið með 1 st í hverja og eina af síðustu 4 ll (= kantur að framan). ATH: Kantur að framan er heklaður eins og A.7, þ.e.a.s. í umf með fl er kantur að framan heklaður með fl og í umf með st er kantur að framan heklaður með st.

STÆRÐ L-XL-XXL-XXXL:
Þegar stykkið mælist 17-18-16-16 cm aukið út um 1 st á hlið á stykki með því að hekla 2 st í fyrsta st frá réttu og síðasta st frá röngu (= 1 st fleiri í hverri umf). Endurtakið útaukningu í hverri umf 1-1-5-6 sinnum til viðbótar (= alls 2-2-6-7 st fleiri). Útauknu st eru heklaðir jafnóðum inn í mynstur. St sem ekki ganga upp í mynstri eru heklaðir eins og A.7. Eftir útaukningu mælist stykkið ca 19-20-21-22 cm.

ALLAR STÆRÐIR:
Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 17-18-19-20-21-22 cm, stillið mynstur af eftir bakstykki, klippið frá og festið enda. Geymið stykkið og heklið vinstra framstykki.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Heklið 27-31-35-35-39-42 ll með heklunál nr 3,5 með Alpaca. Heklið næstu umf þannig: Heklið 1 st í 4. ll frá heklunálinni (= 2 st), 1 st í hverja af næstu 3-2-1-1-0-3 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 st í hverja af næstu 4 ll *, endurtakið frá *-* = 21-24-27-27-30-33 st. Heklið síðan næstu umf (= frá réttu) þannig: Heklið A.4a yfir fyrstu 4 st, endurtakið A.5a yfir næstu 15-18-21-21-24-27 st (= alls 5-6-7-7-8-9 sinnum á breiddina), A.6a yfir síðustu 2 st. Endurtakið A.4a til A.6a á hæðina alls 1-1-2-2-2-2 sinnum. Heklið síðan A.4b yfir A.4a, A.5b yfir A.5a og A.6b yfir A.6a. Endurtakið A.4b til A.6b á hæðina alls 1-1-1-1-2-2 sinnum. Heklið A.4c yfir A.4b, A.5c yfir A.5c og A.6c yfir A.6b.

Í síðustu umf í mynstri A.4c til A.6c eru heklaðar 17-20-17-23-20-23 ll (meðtaldar 3 ll til að snúa við með) í lok umf frá röngu = 29-32-35-35-38-41 st og 17-20-17-23-20-23 ll.

Í næstu umf er heklað frá réttu: Heklið 1 st í 4. ll frá heklunálinni, 1 st í hverja og eina af næstu 3 ll (= kantur að framan), A.7 yfir næstu 2 ll, endurtakið A.8 yfir næstu 30-36-36-42-42-48 ll/st (= alls 5-6-6-7-7-8 sinnum á breiddina), endið með A.9 yfir síðustu 7 st. Haldið svona áfram með mynstur. ATH: Kantur að framan er heklaður eins og A.7, þ.e.a.s. í umf með fl er kantur að framan heklaður með fl og í umf með st er kantur að framan heklaður með st.

STÆRÐ L-XL-XXL-XXXL:
Þegar stykkið mælist 17-18-16-16 cm (stillið af eftir bakstykki) aukið út um 1 st á hlið á stykki með því að hekla 2 st frá röngu og síðasta st frá réttu (= 1 st fleiri í umf). Endurtakið útaukningu í hverri umf 1-1-5-6 sinnum til viðbótar (= alls 2-2-6-7 st fleiri). Útauknu st er heklaðir jafnóðum inn í mynstur. St sem ekki ganga upp í mynstri eru heklaðir eins og A.7. Eftir útaukningu mælist stykkið ca 19-20-21-22 cm.

ALLAR STÆRÐIR:
Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 17-18-19-20-21-22 cm, stillið mynstur eftir bakstykki, klippið frá og festið enda.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Heklið nú stykkin saman frá réttu þannig: Heklið frá vinstra framstykki, yfir bakstykki og að lokum yfir hægra framstykki. Heklið 1 st í hvern og einn af fyrstu 4 st (= vinstri kantur að framan), heklið A.7-A.9 yfir vinstra framstykki eins og áður, heklið 9-9-11-11-15-16 lausar ll fyrir handveg (setjið eitt prjónamerki mitt á milli þessa nýja l = undir ermi), heklið A.7-A.9 yfir bakstykki eins og áður, heklið 9-9-11-11-15-16 lausar ll fyrir handveg (setjið eitt prjónamerki mitt á milli þessa nýju l = undir ermi), heklið A.7 – A.9 yfir hægra framstykki eins og áður, heklið 1 st í hvern af síðustu 4 st (= hægri kantur að framan) = 167-185-199-217-239-261 st og 9-9-11-11-15-16 ll í hvorri hlið á stykki (= alls 185-203-221-239-269-293 l).

Setjið 1 prjónamerki í stykkið, HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Látið prjónamerkið verða eftir í stykkinu, seinna prjónamerkið fylgir með í stykkinu.
Næsta umf er prjónuð frá röngu þannig: Heklið 1 st/fl í hvern af fyrstu 4 st/fl (= hægri kantur að framan), A.9 yfir næstu 7 st, endurtakið A.8 yfir næstu 168-186-204-222-252-276 st/ll (= alls 28-31-34-37-42-46 sinnum á breiddina), A.7 yfir næstu 2 st, 1 st/fl í hvern af síðustu 4 st/fl (= vinstri kantur að framan). ATH: Kanturinn að framan er heklaður eins og A.7 til loka, þ.e.a.s. í umf með fl er kanturinn að framan heklaður með fl og í umf með st er kanturinn að framan heklaður með st. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 4 cm, passið að næsta umf sé með st, heklið 3 st við hvort prjónamerki á hlið – LESIÐ ÚRTAKA, endurtakið úrtöku í 6. hverjum cm 2 sinnum til viðbótar = 167-185-203-221-251-275 st í umf. ATH: Fyrir hvert skipti í úrtöku er A.8 endurekið 1 sinni færri á breiddina. Þegar stykkið mælist 18 cm frá prjónamerki, passið að næsta umf sé umf með st, aukið út um 3 st við hvort prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA, endurtakið útaukningu í 3. hverjum cm 3 sinnum til viðbótar = 191-209-227-245-275-299 st. ATH: Fyrir hvert skipti í útaukningu er A.8 endurtekið 1 sinni fleiri á breiddina. Þegar stykkið mælist 33-34-35-36-37-38 cm frá prjónamerki, passið að síðasta umf sé umf með st frá röngu, heklið næstu umf frá röngu þannig: Heklið kant að framan eins og áður yfir fyrstu 4 kantlykkjur að framan, A.7a yfir næstu 2 st, endurtakið A.8a yfir næstu 174-192-210-228-258-282 st (= alls 29-32-35-38-43-47 sinnum á breiddina), A.9a yfir næstu 7 st, heklið yfir 4 kantlykkjur að framan eins og áður. Klippið frá og festið enda þegar A.7a til A.9 a hefur verið heklað 1 sinni á hæðina. Stykkið mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm alls.

ERMI:
Stykkið er heklað ofan frá og niður. Heklið 21-28-31-38-42-45 ll með heklunál nr 3,5 með Alpaca. Heklið 2 st í 4. ll frá heklunálinni, 1 st í hvern af næstu 1-1-2-2-1-2 st, * hoppið yfir 1 ll, 1 st í hvern af næstu 6 ll *, endurtakið frá *-* 1-2-2-3-4-4 sinnum til viðbótar, 1 st í hvern af næstu 1-1-3-3-1-3 st, 2 st í síðasta st = 18-24-27-33-36-39 st. Heklið síðan frá réttu þannig: Heklið A.10 yfir fyrstu 3 st, endurtakið A.11 yfir næstu 12-18-21-27-30-33 st (= alls 4-6-7-9-10-11 sinnum á breiddina), endið með A.12 yfir síðustu 3 st. Þegar A.10 til A.12 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina eru 30-36-39-45-48-51 st í síðustu umf. Næsta umf er hekluð frá réttu þannig: Heklið A.10 yfir fyrstu 3 st, endurtakið A.11 yfir næstu 24-30-33-39-42-45 st (= alls 8-10-11-13-14-15 sinnum á breiddina), endið með A.11 yfir síðustu 3 st. Þegar A.10 til A.12 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina eru 42-48-51-57-60-63 st í síðustu umf.

Næsta umf er hekluð frá réttu þannig: Heklið A.13 yfir fyrstu 3 st, endurtakið A.14 yfir næstu 36-42-45-51-54-57 st (= alls 12-14-15-17-18-19 sinnum á breiddina), endið með A.15 yfir síðustu 3 st. Þegar A.13 til A.15 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina eru 54-60-63-69-72-75 st í síðustu umf. Næsta umf er hekluð frá réttu þannig: Heklið A.12 yfir fyrstu 3 st, endurtakið A.14 yfir næstu 48-54-57-63-66-69 st (= alls 16-18-19-21-22-23 sinnum á breiddina), endið með A.15 yfir síðustu 3 st. Þegar síðasta umf A.13 til A.15 er eftir, klippið frá. Heklið 5-5-6-6-8-8 lausar ll. Heklið frá röngu síðustu umf af A.15, endurtakið síðustu umf af A.14 alls 16-18-19-21-22-23 sinnum á breiddina JAFNFRAMT er aukið út um 0-0-1-1-0-2 st jafnt yfir, heklið síðustu umf af A.13, endið með að hekla 4-4-5-5-7-8 ll í lok umf = 66-72-76-82-84-89 st og 9-9-11-11-15-16 ll (= alls 75-81-87-93-99-105 l).

Heklið næstu umf þannig (frá réttu): Heklið A.7 yfir fyrstu 2 ll, endurtakið A.8 yfir næstu 66-72-78-84-90-96 ll/st (= alls 11-12-13-14-15-16 sinnum á breiddina), endið með A.9 yfir síðustu 7 st/ll. Setjið 1 prjónamerki í stykkið. STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN! Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi. Heklið síðan stykkið fram og til baka, en hver umf er hekluð saman í lok umf með 1 kl í 3. ll í umf. Snúið við. Þegar stykkið mælist 4 cm, passið að næsta umf sé með st, fækkið um 6 st jafnt yfir. Endurtakið úrtöku með 9-7-5-5-4½-4 cm millibili 3-4-5-5-6-7 sinnum til viðbótar = 51-51-51-57-57-57 st. ATH: Fyrir hvert skipti sem er úrtaka þá er A.8 endurtekið 1 sinni færri á breiddina. Þegar stykkið mælist 34 cm, passið að næsta umf sé umf með st, endurtakið 3 st jafnt yfir = 48-48-48-54-54-54 st.

Endurtakið síðan A.8a alls 8-8-8-9-9-9 sinnum á breiddina. Heklið A.8a alls 3 sinnum á hæðina. Klippið frá og festið enda þegar stykkið mælist alls 56 cm, endið fallega miðað við mynstur.
Heklið hina ermina á sama hátt.

VASI:
Fitjið upp 30 ll með heklunál nr 3,5 með Alpaca. Heklið 1 st í 4. ll frá heklunálinni (= 2 st), 1 st í hvorn af næstu 2 st, * hoppið yfir 1 ll, 1 st í hverja af næstu 5 ll *, endurtakið frá *-* = 24 st. Heklið 1 st í hvern st þar til stykkið mælist ca 9 cm. Heklið 1 umf með * 1 fl, 3 ll, hoppið yfir 1 cm *, endurtakið frá *-*, passið að endað sé með 1 fl í síðasta st. Klippið frá og festið enda.
Heklið annan vasa á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið ermar í ystu lykkjubogana. Saumið vasana fyrir miðju á framstykki ca 8 cm upp frá kanti. Saumið tölur í vinstra framstykki, efsta tala er saumið 2 cm frá hálsmáli, saumið síðan hinar í með 9-9-8-8-8-8 cm millibili. Tölum er hneppt á milli 2. og 3. st í kant að framan.

HÁLSMÁL:
Heklið kant í kringum hálsmál þannig (byrjið við miðju að framan): Heklið 1 fl í fyrsta st, * 3 ll, hoppið yfir ca 1 cm *, endurtakið frá *-* í kringum allt hálsmálið, passið vel uppá að kanturinn verði ekki of stífur, passið uppá að endað sé með 1 fl í síðasta st. Klippið frá og festið enda.

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

PILS:

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.16 og A.17. Mynsturteikning A.17 sýnir hvernig hver umf byrjar og endar þegar A.16 er heklað í hring.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Þegar heklað er fram og til baka:
Í byrjun á hverri umf með st er fyrsti st skipt út með 3 ll.
Í byrjun á hverri umf með fl er fyrsta fl skipt út með 1 ll.
Þegar heklað er í hring:
Hver umf með st er byrjað með 3 ll (kemur í stað fyrsta st) og endað með 1 kl í 3. ll.
Hver umf með fl byrjar með 1 ll (kemur í stað fyrstu fl) og endar með 1 kl í 1. ll.

ÚTAUKNING-1:
Aukið út um 1 st með því að hekla 2 st í/um sömu l.

ÚTAUKNING-2 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hversu oft eigi að auka út í umf, teljið fjölda lykkja (t.d. 228 st) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 12 l) = 18,33. Þ.e.a.s. í þessu dæmi þá eru heklaðir 2 st í ca 18. hvern st.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PILS - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað fram og til baka ofan frá og niður eftir klauf í hlið, síðan er heklað í hring.

PILS:
Heklið 176-190-204-232-267-302 ll (meðtaldar 3 ll til að snúa við með) með heklunál nr 3,5 með Alpaca. Fyrsta umf er hekluð þannig: 1 st í 4. ll frá heklunálinni (= 2 st), 1 st í hverja af næstu 4 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 st í hverja af næstu 6 ll *, endurtakið frá *-* = 150-162-174-198-228-258 st. Heklið nú fram og til baka með 1 st í hvern st – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar heklaðar hafa verið alls 6-6-4-4-6-6 umf á hæðina eru sett 6 prjónamerki í stykkið þannig: Fyrsta prjónamerkið er sett eftir 13-14-15-17-19-21 st, síðan eiga að vera 25-27-29-33-38-43 st á milli hverra prjónamerkja, það eiga að vera 12-13-14-16-19-22 st á eftir síðasta prjónamerki í lok umf. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Í næstu umf er aukið út um 1 st á undan öllum prjónamerkjum (= 6 st fleiri) – LESIÐ ÚTAUKNING-1! Endurtakið útaukninguna í annarri hverri umf 12-12-14-14-14-14 sinnum til viðbótar – ATH: Aukið er út til skiptis á undan og á eftir prjónamerkjum = 228-240-264-288-318-348 st. JAFNFRAMT þegar heklaðar hafa verið alls 12 umf á hæðina endar klauf í hlið og stykkið er síðan heklað í hring með byrjun umf í hlið. Þegar stykkið mælist 28-29-30-31-32-33 cm heklið A.16 (= 6 st) alls 38-40-44-48-53-58 sinnum hringinn. Í 5., 10. og 14. umf í A.16 (= st-umf er aukið út um 12 st jafnt yfir í hverri og einni af umf – LESIÐ ÚTAUKNING-2 = 264-276-300-324-354-384 st. Í hvert skipti sem aukið er út er heklað A.16 2 sinnum fleiri á breiddina. Þegar A.16 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina mælist stykkið ca 39-40-41-42-43-44 cm. Endurtakið A.16 og útaukningu 1 sinni til viðbótar = 300-312-336-360-390-420 st. Þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm alls, passið uppá að síðasta umf er umf með st, heklið A.16a alls 50-52-56-60-65-70 sinnum á breiddina. Klippið frá og festið enda þegar A.16a hefur verið heklað 1 sinni á hæðina. Stykkið mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm.

HNESLUR:
Meðfram annarri hliðinni á opi sem er á framstykki eru heklaðar hneslur þannig (byrjið neðst niðri): 2 fl um fyrsta st, 3 ll, hoppið yfir 1 st, * heklið 2 fl um hvorn af næstu 2 st, 3 ll, hoppið yfir 1 st *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum og endið með 2 fl um síðasta st efst, snúið við og heklið til baka þannig: 1 fl í hverja fl og 3 fl í hvern ll-boga.

KANTUR FYRIR TÖLUR:
Meðfram annarri hliðinni á opi eru heklaðar 5 umf með fl fram og til baka (í fyrstu umf eru heklaðar 2 fl um hvern st = 24 fl), klippið frá. Saumið tölur í kantinn.

Mynstur

symbols = ll
symbols = fl í l
symbols = fl á milli 2 st
symbols = fl um ll
symbols = st í l
symbols = st um ll
symbols = fyrsta röð á ekki að hekla, hún hefur nú þegar verið hekluð, hún sýnir bara hvernig næsta umf er hekluð í l
symbols = heklstefna
symbols = útaukningar umf
symbols = kl
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 170-31

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (18)

country flag Hannelore Van Hauwermeiren wrote:

Hoe kan ik dan van 17 losse naar 32 stokjes gaan als ik enkel de laatste toer van a3c tot a1c moet haken?

08.03.2023 - 19:07

DROPS Design answered:

Dag Hannelore,

Als ik het goed begrijp ben je bij het rechter voorpand waar staat dat je 17 lossen moet haken en dan de laatste toer van A.3c tot A.1C moet haken. Het is niet de bedoeling om de laatste toer in die 17 stokjes te haken, maar na die stokjes haak je verder in de vorige toer van A.3C tot A.1C, dus de 17 stokjes bungelen ernaast.

08.03.2023 - 20:17

country flag Hannelore Van Hauwermeiren wrote:

Ik zit in de knoop bij het patroon rechtervoorpand. Er staat haal 17 l en dan laatste toer van ac3 tor ac1= 32 st en 17l. Als ik het patroon colg zijn dit enkel stokjes?

08.03.2023 - 00:34

DROPS Design answered:

Dag Hannelore,

Ja dat klopt hoor. De laatste toer zijn enkel stokjes. Let er bij A.3 op dat je de laatste 3 stokjes in 1 steek haakt.

08.03.2023 - 12:00

country flag Melanie wrote:

Bonjour je suis dans le début de la veste aux épaule et la je suis perdu pour faire un épaule à l'autre je ne voit pas comment le sens. Pouvez-vous m'éclairer svp

17.05.2022 - 00:30

DROPS Design answered:

Bonjour Mélanie, Pour le dos, on crochète d'abord l'épaule droite: 1 x les diagrammes A.4a et A.6a et on met en attente après 1 rang sur l'envers. On crochète ensuite l'épaule gauche, et, quand A.1a à A.3a sont faits, on assemble les 2 épaules au rang suivant sur l'endroit en fonction de votre taille vous crochetez les diagrammes a ou b et montez une chaînette de 39 à 45 ml entre les 2 épaules pour l'encolure dos. Vous augmenterez ensuite pour les emmanchures et mettrez en attente pour faire les devants au même niveau et ensuite reprendre les 2 devants et le dos en une seule pièce jusqu'à la fin. Bon crochet!

17.05.2022 - 09:05

country flag Christina Alexander wrote:

L am confused with the term RS ,kindly can l get the meaning of the term.Thanks.

21.11.2020 - 16:11

DROPS Design answered:

Dear Cristina, RS means the right side of the piece. That is the side that will be seen, when the piece is worn. Happy Crafting!

22.11.2020 - 21:28

country flag Anna wrote:

Beste, ik heb geen idee wat ik met de lossen in het armsgat moet doen. Sla ik deze gewoon over als ik het patroon haak? Veel dank vast.

28.11.2019 - 21:28

DROPS Design answered:

Dag Anna,

Je haakt eerst over het linker voorpand, dan haak je 9-9-11-11-15-16 lossen voor het armsgat. Hier doe je eerst verder niets mee , dus je haakt verder over het achterpand en er zitten dus lossen tussen de panden. Op de volgende toer haak je over de lossen.

16.12.2019 - 12:33

country flag Germana wrote:

Grazie per la risposta ma ho ancora un problema ...quando finisco la spalla sx e faccio le catenella e poi mi aggancio alla spalla dx mi dice che dovrei avere in tutto 54 ma e 39 catenella ma io in realtà ne ho 38 di ma...

27.09.2017 - 12:08

DROPS Design answered:

Buongiorno Germana, lei deve avere 27 maglie su ciascuna spalla prima dell'unione. Deve lavorare la spalla sinistra come indicato sotto "Dietro", avviare 39 catenelle e lavorare la spalla destra come indicato: otterrà quindi 54 m.a e 39 catenelle. Buon lavoro!

27.09.2017 - 12:21

country flag Germana wrote:

Buongiorno e aiutoooo...non riesco a capire nel cardigan come si uniscono i due pezzi delle spalle sigh...seguendo le istruzioni mi trovo che sulla spalla sinistra ho 2 giri in più.....quando devo fare le 39 catenella....aiutoooo

26.09.2017 - 18:09

DROPS Design answered:

Buongiorno Germana. Il numero di righe sulle spalle dovrebbe essere lo stesso: catenella di base; prima riga di maglie alte come indicato, poi le due righe dei diagrammi. Su entrambe le spalle l’ultima riga è sul rovescio del lavoro. Unisce adesso le due spalle: lavora la spalla sinistra (seguendo i diagrammi indicati), avvia le 39 cat e poi prosegue con la spalla destra. Ci riscriva se ancora in difficoltà. Buon lavoro!

27.09.2017 - 09:15

Doris wrote:

I'm crocheting the jacket, but I'm having a lot of trouble doing the back. I can't get the number of stitches right, no matter how many times I try. Doing large size, I can't get 105 stitches. I get 93 every time. Please help. Love the pattern, but I'm real frustrated

28.07.2017 - 03:30

DROPS Design answered:

Dear Doris, under Back piece, the number of sts under "SIZE L-XL-XXL-XXXL:" is 93 sts in size L, so that you are doing right - 105 sts applies to size XXL. Happy crocheting!

28.07.2017 - 08:41

country flag Tracey Down wrote:

I am working on the 170-31 pattern. I do not understand two of the symbols. The symbol that looks like a V with a dash in between - please explain what it means - i.e. is it an increase? What does the dash mean? Also the symbol that is a vertical line with a dot near the top - what does this mean? I have searched the internet for these symbols and they are not referenced as standard crochet symbols anywhere. Thank you for your help.

16.05.2017 - 18:00

DROPS Design answered:

Dear Mrs Down, do you mean the symbole used on 2nd row in A.2 (= the one with an arrow)? then it is 1 dc, 1 ch (= dash), 1 dc worked in the same dc. Happy crocheting!

17.05.2017 - 08:31

country flag DEB wrote:

I am crocheting the skirt and the instructions say to use A.16 but there is no A.16 on the pattern charts. Help, please!

11.04.2016 - 07:18

DROPS Design answered:

Dear DEB, A.16, A.17 are to the right of A.7 above instead of next to A.15

11.04.2016 - 08:42