DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 400.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3200.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Summer Elegance

Prjónað pils úr DROPS Muskat prjónað ofan frá og niður með gatamynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 169-24
DROPS Design: Mynstur nr r-700
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS MUSKAT frá Garnstudio
400-400-450-500-550-600 g nr 18, hvítur

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l x 28 umf með gatamynstri verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 3 – fyrir kant og garðaprjón.
FYLGIHLUTIR: Ca 70 til 120 cm teygja.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 400.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3200.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

30% AFSLÁTTUR á 6 tegundum af bómullargarni!
Tilboðið gildir til 12.04.2024

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*.

ÚTAUKNING:
Til að reikna út hversu oft eigi að auka út í umf, teljið fjölda lykkja í umf (t.d. 150 l) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 8 l) = 18,8. Þ.e.a.s. í þessu dæmi þá er aukið út á eftir ca 19. hverri l.
ATH: Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt (ef næsta umf er slétt) eða snúið brugðið (ef næsta umf er brugðin) svo ekki myndist gat.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.4.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PILS - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður.

PILS:
Fitjið upp 150-168-184-204-230-256 l á hringprjóna nr 3 með Muskat. Prjónið 2 cm sléttprjón (= strengur), prjónið síðan 1 umf br (= brotakantur). Skiptið yfir á hringprjóna nr 3,5. Stjið 1 prjónamerki í stykkið – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 3-3-4-4-5-5 cm aukið út um 8-6-10-6-4-4 l jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING = 158-174-194-210-234-260 l. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 6-6-8-8-10-10 cm skiptið yfir á hringprjóna nr 3. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan og aukið út JAFNFRAMT um 10-6-10-6-6-4 l jafnt yfir í 1. umf = 168-180-204-216-240-264 l. Skiptið til baka yfir á hringprjóna nr 3,5 og prjónið mynstur í hring eftir mynsturteikningu A.1A (= 14-15-17-18-20-22 mynstureiningar 12 l). Eftir A.1A er prjónað A.1B. Þegar A.1B hefur verið prjónað einu sinni á hæðina eru 196-210-238-252-280-308 l í umf. Prjónið A.1C einu sinni á hæðina. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3 og prjónið 4 umf garðaprjón þar sem aukið er út um 27-19-15-7-9-5 l jafnt yfir í 1. umf = 223-229-253-259-289-313 l. Skiptið til baka yfir á hringprjóna nr 3,5 og prjónið mynstur í hring eftir A.2 þannig: Prjónið A.2A (= 7 l), endurtakið A.2B þar til 6 l eru eftir í umf (= 35-36-40-41-46-50 mynstureiningar 6 l) og endið á A.2C (= 6 l). Þegar A.2 hefur verið prjónað 2 sinnum á hæðina er skipt yfir á hringprjóna nr 3. Prjónið 4 umf garðaprjón þar sem aukið er út um 29-23-23-17-11-11 l jafnt yfir í 1. umf = 252-252-276-276-300-324 l. Skiptið aftur til baka yfir á hringprjóna nr 3,5 og prjónið mynstur í hring eftir mynsturteikningu A.3 (= 21-21-23-23-25-27 mynstureiningar 12 l). Þegar A.3 hefur verið prjónað einu sinni á hæðina eru 273-273-299-299-325-351 l á prjóni. Endurtakið nú A.X yfir A.3 þar til stykkið mælist ca 42-44-46-48-50-52 cm (eða að óskaðri lengd, nú eru eftir ca 4 cm til loka). Prjónið mynstur í hring eftir mynsturteikningu A.4 og fellið LAUST af.

FRÁGANGUR:
Brjótið strenginn að röngu og saumið fallega niður – ATH: Skiljið eftir smá op til þess að þræða teygjuna í gegn.

Mynstur

symbols = sl
symbols = br
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l, uppslátturinn er prjónaður slétt í næstu umf (= gat)
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l, uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umf (= ekki gat
symbols = 2 l slétt saman
symbols = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 169-24

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (22)

country flag Sharon wrote:

I used the smaller needles for the garter rows on the hems, and for the eyelet row at the bottom. This worked out to be the perfect size. I did a very simple bind off ; a crochet slip stitch using a 4mm crochet hook which worked perfectly. On the second skirt I made the top stockinette section with smaller needles and more stitches to get a denser, sturdier fabric around the waist/hips ,( no unsightly increases were needed for the next section. )

13.08.2022 - 02:43

country flag Sharon wrote:

This skirt was so lovely to wear that I made a second one. The first was made with Belle and has such a soft and drapey fabric, the 2nd with muskat ended up much bigger after blocking so do a swatch first .Belle is a lot lighter as it uses less yarn so better in hot weather.

13.08.2022 - 02:31

country flag Ekaterina wrote:

Hallo, my waist is much smaller than other parts of body. How elastic will be the top? It will be my first work with the Muskat. Maybe better to add the buttons already from the begin of the work?

15.09.2021 - 14:19

country flag Alysia wrote:

The pattern says that from the cast on to the folding edge is the hem. However, this is actually waist band, correct? The pattern is worked from top, or waist, down?

28.07.2021 - 16:20

DROPS Design answered:

Dear Alysia, yes, that is correct - skirt is worked top down, from waist to the bottom edge. Happy knitting!

28.07.2021 - 17:34

country flag Sharon wrote:

Sorry, I meant A4.

24.01.2021 - 16:34

DROPS Design answered:

Dear Sharon, A.4 is worked with needle size 3,5mm just as for A.3. Happy knitting!

25.01.2021 - 10:30

country flag Sharon wrote:

Is A3 idone with the 3mm needles? Or is it different from the other garter rows because it forms the hem? PS Ive enjoyed making this in Belle. Belle makes a gorgeous fabric , thank you. I learned to read knitting charts , it wasnt too hard.

24.01.2021 - 14:16

DROPS Design answered:

Dear Sharon, diagrams are worked with the larger needles and between diagrams you will work 2 ridges with the smaller needles. Happy knitting!

25.01.2021 - 09:54

country flag Aneta wrote:

Hello, I don’t know how to start the row 11 and 17 in A.3 pattern. The first 2 stitches are missed somehow in the pattern. I don’t get it.

28.08.2019 - 15:10

DROPS Design answered:

Dear Aneta, on the first repeat on the round, slip the first 2 stitches on the right needle and work first A.3: the last st in first A.3 is worked together with the 2 stitches on next A.3 - the new stitches (= decrease + YO) are now the first 2 sts on next repeat. Continue like this, and on last repeat on the round, work the last st last repeat tog with the first 2 sts on the round you slipped (= these are now the first 2 sts on the round). Happy knitting!

28.08.2019 - 15:32

country flag Concy wrote:

Ciao a tutte, Ho appena finito questa bellissima gonna..ho scoperto da poco questo sito e lo trovo molto interessante. Finalmente dei bei modelli da copiare!! Io non sono bravissima ma mi piacciono le sfide. Questa è la prima volta che uso i ferri circolari 😌. Vorrei aggiungere una foto del lavoro finito, ma come?

05.05.2019 - 12:47

DROPS Design answered:

Buongiorno Concy, ci fa piacere che sia soddisfatta dei nostri modelli: può pubblicare la foto della sua gonna iscrivendosi su Facebook al gruppo DROPS Workshop. Buon lavoro!

05.05.2019 - 13:42

country flag Irene wrote:

Good morning, I have a question: How can I work pattern A3 without circular neeedls? How can I start the pattern at rows 11 and 17? Thank you very much!

17.05.2018 - 11:37

DROPS Design answered:

Dear Irene, you can try starting with K2 tog, YO over the first 2 sts 1st repeat A.3 and finish with YO, slip 1 as if to K, K1, psso. Happy knitting!

17.05.2018 - 13:27

country flag Jamie wrote:

Bonjour ! Diagramme A2B troisième rang commence par une maille endroit et puis un jeté? ou par deux mailles ensemble et un jeté? Merci

02.04.2018 - 23:03

DROPS Design answered:

Bonjour Jamie, au 3ème rang de A.2, tricotez les 2 dernières mailles de A.2A/A.2B avec la 1ère m de A.2B/du A.2B suivant/de A.2C. Le jeté après la double diminution devient la 1ère maille du A.2B suivant/de A.2C. Bon tricot!

03.04.2018 - 10:02