DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24

Mimosa

Heklaður kjóll úr DROPS BabyAlpaca Silk með gatamynstri og sólfjaðramynstri, heklaður ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.

DROPS 170-30
DROPS Design: Mynstur nr bs-096
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS BABYALPACA SILK frá Garnstudio
550-600-700-750-800-900 g nr 2110, púðurgulur

DROPS HEKLUNÁL NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 22 st x 12 umf verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.10. Mynsturteikning A.10 sýnir hvernig umf í A.8 byrjar og endar þegar heklað er í hring.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Þegar heklað er fram og til baka:
Í hverri umf með st er fyrsta st skipt út fyrir 3 ll.
Í hverri umf með fl er fyrstu fl skipti út fyrir 1 ll.
Þegar heklað er í hring:
Hver umf með st byrjar á 3 ll og endar með 1 kl í 3. ll.
Hver umf með fl byrjar á 1 fl og endar með 1 kl í fyrstu ll.

ÚRTAKA:
Heklið þar til 5 st eru eftir á undan prjónamerki á hlið, heklið næstu 2 st saman, heklið 1 st í hvorn af næstu 2 st, heklið næstu 2 st saman, heklið 1 st í hvorn af næstu 2 st, heklið næstu 2 st saman (= 3 st færri við hvert prjónamerki = 6 st færri alls).

ÚTAUKNING-1:
Heklið þar til 4 st eru eftir á undan prjónamerki á hlið, heklið 2 st í næsta st, heklið 1 st í hvorn af næstu 2 st, heklið 2 st í næsta st, heklið 1 st í hvorn af næstu 2 st, heklið 2 st í næsta st (= 3 st fleiri við hvert prjónamerki = 6 st fleiri alls).

ÚTAUKNING-2 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hversu oft eigi að auka út í umf, teljið fjölda lykkja í umf, mínus kanta að framan (t.d. 234 l og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 12 l) = 19,50. Þ.e.a.s. í þessu dæmi þá eru heklaðir 2 st í annað hvert skipti í 19. og 20. st.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað ofan frá og niður, fram og til baka í stykkjum, áður en hann er heklaður saman og heklað síðan í hring.

BAKSTYKKI:
HÆGRI ÖXL:
Heklið 27-31-35-35-39-42 ll með heklunál nr 3,5 með BabyAlpaca Silk. Heklið næstu umf þannig: Heklið 1 st í 4. ll frá heklunálinni (= 2 st) – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR, 1 st í hverja af næstu 3-2-1-1-0-3 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 st í hverja af næstu 4 ll *, endurtakið frá *-* = 21-24-27-27-30-33 st. Síðan er næsta umf hekluð (= frá réttu) þannig: Heklið A.4a yfir fyrstu 4 st, endurtakið A.5a yfir næstu 15-18-21-21-24-27 st (= alls 5-6-6-7-8-9 sinnum á breidd), A.6a yfir síðustu 2 st. Þegar A.4a til A.6a hefur verið heklað 1 sinni á hæðina (= síðasta umf frá röngu). Geymið stykkið og heklið vinstri öxl. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!

VINSTRI ÖXL:
Heklið 27-31-35-35-39-42 ll með heklunál nr 3,5 með BabyAlpaca Silk. Heklið næstu umf þannig: Heklið 1 st í 4. ll frá heklunálinni (= 2 st), 1 st í hverja af næstu 3-2-1-1-0-3 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 st í hverja af næstu 4 ll *, endurtakið frá *-* = 21-24-27-27-30-33 st. Heklið síðan næstu umf (= frá réttu) þannig: Heklið A.1a yfir fyrstu 2 st, endurtakið A.2a yfir næstu 15-18-21-21-24-27 st (= alls 5-6-6-7-8-9 sinnum á breiddina), A.3a yfir síðustu 4 st. Þegar A.1a til A.3a hefur verið heklað 1 sinni á hæðina, heklið vinstri öxl saman við hægri öxl frá réttu þannig:

BAKSTYKKI:
STÆRÐ S-M:
Heklið A.1b yfir fyrstu 2 st á vinstri öxl, endurtakið A.2b yfir næstu 18-21 st, 1 st í síðasta st á vinstri öxl, heklið 39-39 ll fyrir hálsmáli, heklið 1 st í hvorn af fyrstu 2 st á hægri öxl, endurtakið A.2b yfir næstu 18-21 st og 1 st í síðasta st yfir hægri öxl eins og áður 42-48 st og 39-39 ll í umf. Í næstu umf er mynstur heklað eins og áður, en í ll er heklaður 1 st í hverja ll = 81-87 st.

STÆRÐ L-XL-XXL-XXXL:
Heklið A.1a yfir fyrstu 2 st á vinstri öxl, endurtakið A.2a yfir næstu 24-24-27-30 st, 1 st í síðasta st á vinstri öxl, heklið 39-45-45-45 lm fyrir hálsmáli, heklið 1 st í fyrsta st á hægri öxl, endurtakið A.5a yfir næstu 24-24-27-30 st og A.6a yfir 2 síðustu st á hægri öxl eins og áður = 54-54-60-66 st og 39-45-45-45 ll í umf. Í næstu umf er mynstur heklað eins og áður, en í ll er heklaður 1 st í hverja ll = 93-99-105-111 st. Þegar A.1a til A.6a hefur verið heklað 1 sinni á hæðina er heklað frá réttu þannig: Heklið 1 st í hvern og einn af fyrstu 2 st, endurtakið A.2b þar til 1 st er eftir, endið á 1 st í síðasta st. Endurtakið A.2b alls 1-1-2-2 sinnum.

ALLAR STÆRÐIR:
= 81-87-93-99-105-111 st. Heklið frá réttu þannig: A.7b yfir fyrstu 2 st, endurtakið A.8b yfir næstu 72-78-84-90-96-102 st (= alls 12-13-14-15-16-17 sinnum á breiddina), endið á A.9b yfir síðustu 7 st. Þegar A.7b til A.9b hefur verið heklað 1 sinni á hæðina er endurtekið A.7 yfir A.7b, A.8 yfir A.8b og A.9 yfir A.9b á hæðina.

JAFNFRAMT er aukið út þannig í stærð L-XL-XXL-XXXL:
Þegar stykkið mælist 17-18-16-16 cm er aukið út um 1 st í hvorri hlið á stykki með því að heklað 2 st í fyrsta og síðasta st (= 2 st fleiri). Endurtakið útaukningu í hveri umf 1-1-5-6 sinnum til viðbótar (= alls 4-4-12-14 st fleiri. Útauknir stuðlar eru heklaðir jafnóðum inn í mynstur. Eftir útaukningu mælist stykkið ca 19-20-21-22 cm.

ALLAR STÆRÐIR:
Þegar stykkið mælist 17-18-19-20-21-22 cm, passið að næsta umf sé frá réttu og að það sé umf með st (í mynstri A.8), klippið frá og festið enda. Geymið stykkið og heklið framstykki.

FRAMSTYKKI:
HÆGRI ÖXL:
Heklið 27-31-35-35-39-42 ll með heklunál nr 3,5 með BabyAlpaca Silk. Heklið næstu umf þannig: Hekli 1 st í 4. ll frá heklunálinni (= 2 st), 1 st í hverja og eina af næstu 3-2-1-1-0-3 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 st í hverja og eina af næstu 4 ll *, endurtakið frá *-* = 21-24-27-27-30-33 st. Heklið næstu umf (= frá réttu) þannig: Heklið A.1a yfir fyrstu 2 st, endurtakið A.2a yfir næstu 15-18-21-21-24-27 st (= alls 5-6-7-7-8-9 sinnum á breiddina), A.3a yfir síðustu 4 st. Endurtakið A.1a á hæðina alls 1-1-2-2-2-2 sinnum. Heklið síðan A.1b yfir A.1a, A.2b yfir A.2a og A.3b yfir A.3a. Endurtakið A.1b til A.3b á hæðina alls 1-1-1-1-2-2 sinnum. Heklið A.1c yfir A.1b, A.2c yfir A.2b og A.3c yfir A.3b. Heklið þar til síðasta umf í mynstri A.1c til A.3c er eftir. Geymið stykkið og heklið vinstri öxl.

VINSTRI ÖXL:
Heklið 27-31-35-35-39-42 ll með heklunál nr 3,5 með BabyAlpaca Silk. Heklið næstu umf þannig: Heklið 1 st í 4. ll frá heklunálinni (= 2 st), 1 st í hverja af næstu 3-2-1-1-0-3 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 st í hverja af næstu 4 ll *, endurtakið frá *-* = 21-24-27-27-30-33 st. Heklið síðan næstu umf (= frá réttu) þannig: Heklið A.4a yfir fyrstu 4 st, endurtakið A.5a yfir næstu 15-18-21-21-24-27 st (= alls 5-6-7-7-8-9 sinnum á breiddina), A.6a yfir síðustu 2 st. Endurtakið A.4a til A.6a á hæðina alls 1-1-2-2-2-2 sinnum. Heklið síðan A.4b yfir A.4a, A.5b yfir A.5a og A.6b yfir A.6a. Endurtakið A.4b til A.6b á hæðina alls 1-1-1-1-2-2 sinnum. Heklið A.4c yfir A.4b, A.5c yfir A.5c og A.6c yfir A.6b. Í síðustu umf í mynstri A.4c til A.6c er vinstri öxl hekluð saman við hægri öxl frá röngu þannig: Heklið síðustu umf af A.6c til A.4c eins og áður yfir vinstri öxl, heklið 23-23-23-29-29-29 ll fyrir háls, heklið síðustu umf af A.3c til A.1c eins og áður = 58-64-70-70-76-82 st og 23-23-23-29-29-29 ll (= alls 81-87-93-99-105-111 l).

FRAMSTYKKI:
Heklið frá réttu þannig: A.7b yfir fyrstu 2 st, endurtakið A.8b yfir næstu 72-78-84-90-96-102 st (= alls 12-13-14-15-16-17 sinnum á breiddina), endið á A.9b yfir síðustu 7 st. Þegar A.7b til A.9b hefur verið heklað 1 sinni á hæðina er endurtekið A.7 yfir A.7b, A.8 yfir A.8b og A.9 yfir A.9b á hæðina.

JAFNFRAMT er aukið út þannig í stærð L-XL-XXL-XXXL:
Þegar stykkið mælist 17-18-16-16 cm, stillið af við bakstykki, aukið út um 1 st á hvorri hlið á stykki með því að hekla 2 st í fyrsta og síðasta st (= 2 st fleiri). Endurtakið útaukningu í hverri umf 1-1-5-6 sinnum til viðbótar (= alls 4-4-12-14 st fleiri). Útauknu st er heklaðir jafnóðum inn í mynstur. Eftir útaukningu mælist stykkið ca 19-20-21-22 cm.

ALLAR STÆRÐIR:
Haldið áfram með mynstur svona. Þegar stykkið mælist 17-18-19-20-21-22 cm, stillið af eftir bakstykki.

Heklið nú stykkin saman frá framstykki að bakstykki frá réttu JAFNFRAMT í stærð M-XL-XXXL er aukið út um 6 st jafnt yfir í umf.
Heklið þannig: Heklið A.7-A.9 yfir framstykki eins og áður, heklið 9-9-11-11-15-16 lausar ll fyrir handveg (setjið eitt prjónamerki mitt á milli þessa nýju l = handvegur), heklið A.7-A.9 yfir bakstykki eins og áður, heklið 9-9-11-11-15-16 lausar ll fyrir handveg (setjið eitt prjónamerki mitt á milli þessa nýju l = handvegur), endið með 1 kl í 3. ll í byrjun umf = 162-180-194-212-234-256 st og 9-9-11-11-15-16 ll í hvorri hlið á stykki (= alls 180-198-216-234-264-288 l).

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Stykkið er heklað í hring. Setjið 1 prjónamerki í stykkið, HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Látið prjónamerkið verða eftir í stykkinu, seinna prjónamerkið fylgir með í stykkinu.
Endurtakið A.8 yfir allar l (= alls 30-33-36-39-44-48 sinnum á breiddina). A.10 sýnir hvernig umf byrjar og endar.

Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 4 cm, passið uppá að næsta umf sé með st, fækkið um 3 st við hvort prjónamerki á hlið (= 6 l færri alls) – LESIÐ ÚRTAKA, endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 12 cm = 168-186-204-222-252-276 st. ATH: fyrir hvert skipti sem úrtakan er þá er A.8 endurtekið 1 sinni færri á breiddina. Þegar stykkið mælist 33-35-37-39-41-43 alls (þ.e.a.s. 16-17-18-19-20-21 cm frá prjónamerki), passið uppá að síðasta umf sé umf með st, heklið stykkið áfram með 1 st í hvern st.

Setjið 6 ný prjónamerki í stykkið í næstu umf þannig: Setjið fyrsta prjónamerki eftir 14-16-17-19-21-23 st, síðan eiga að vera 28-31-34-37-42-46 st á milli hverra prjónamerkja, þá koma til með að vera 14-15-17-18-21-23 st á eftir síðasta prjónamerki í lok umf. Látið prjónamerkin fylgja áfram með í stykkinu. Þegar stykkið mælist alls 37-39-41-43-45-47 cm aukið út um 1 st á undan öllum prjónamerkjum (= 6 st fleiri) – LESIÐ ÚTAUKNING-1! Endurtakið útaukningu með 3½ cm 10 sinnum til viðbótar – ATH: Aukið út í annað hvert skipti á undan og á eftir prjónamerkjum = 234-252-270-288-318-342 st.

Þegar stykkið mælist alls 77-79-81-83-85-87 cm heklið A.8 alls 39-42-45-48-53-57 sinnum hringinn. Í 5., 10. Og 14 umf í A.8 (= st-umf, merkt með ferhyrning í mynstri) aukið út um 12 st jafnt yfir í hverri umf – LESIÐ ÚTAUKNING-2 = 270-288-306-324-354-378 st. Í hvert skipti sem aukið er út heklast A.8 2 sinnum oftar á breiddina. Endurtakið A.8 og útaukningu 1 sinni til viðbótar = 306-324-342-360-390-414 st. Þegar stykkið mælist 98-100-102-104-106-108 cm alls, stillið af að síðasta umf sé umf með st, heklið A.8c alls 51-54-57-60-65-69 sinnum á breiddina. Klippið frá og festið enda þegar A.8c hefur verið heklað 1 sinni á hæðina.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma.

HÁLSMÁL:
Heklið kant í kringum hálsmál þannig (byrjið við miðju að aftan): Heklið 1 fl í fyrsta st, * 3 ll, hoppið yfir ca 1 cm *, endurtakið frá *-* í kringum allt hálsmálið, passið uppá að kanturinn verði ekki of stífur, passið uppá að endað sé með 1 kl í fyrstu fl. Klippið frá og festið enda.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 03.02.2016
Leiðrétting: FRAMSTYKKI: HÆGRI ÖXL:... Endurtakið A.1b til A.3b á hæðina alls 1-1-1-1-2-2 sinnum. Heklið A.1c yfir A.1b, A.2c yfir A.2b og A.3c yfir A.3b. Heklið þar til síðasta umf í mynstri A.1c til A.3c er eftir. Geymið stykkið og heklið vinstri öxl.

Mynstur

symbols = ll
symbols = fl í l
symbols = fl á milli 2 st
symbols = fl um ll
symbols = st í l
symbols = st um ll
symbols = fyrstu umf á ekki að hekla, hún hefur nú þegar verið hekluð, þetta sýnir bara hvernig næsta umf á að heklast inn í st
symbols = heklstefna
symbols = útauknings umferð - sjá uppskrift
symbols = kl
diagram
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 170-30

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (9)

country flag Mona Johansson wrote:

Fattar inte diagrammet: repetera A7 över A7b? A8 över A8b och A9 över A9b?? Vad är A7 etc?? Är det A7a och A7c? Jag kan inte se att dessa diagrammen är nämnda i texten. Tacksam för snabb hjälp eftersom de som är vana virkare inte heller förstår och kan hjälpa mig. Jag är desperat!

14.04.2023 - 11:21

DROPS Design answered:

Hej Mona, A.7 er alle 15 rækker i diagrammet :)

18.04.2023 - 09:51

country flag Minelva Ssnchez wrote:

Dónde consigo un patrón de un conjunto que tiene para el verano en blanco en maya la imagen tiene un sombrero celeste

27.11.2021 - 00:52

DROPS Design answered:

Hola Minelva, esta información no es suficiente para determinar de qué patrón se trata; puede ser el patrón 136-18. En todo caso, puedes usar la función de buscador de nuestra página web para buscar el modelo concreto.

28.11.2021 - 19:10

country flag Andrea wrote:

Das Kleid ist fertig - und eigentlich total schön. Leider fehlt der Hinweis darauf, dass sich das Muster im Oberteil sehr dehnt, es wird beim Tragen immer länger. Meines ist jetzt etwa 4 cm zu lang, der blickdichte Teil würde den Beginn der Unterwäsche nicht mehr zuverlässig verdecken. Zum Glück habe ich ein Hemdchen in passender Farbe. Man sollte kräftig dehnen und das Kleid auf jeden Fall nur hängend messen. Und den Rock lieber ein paar Reihen zu hoch als zu tief ansetzen.

23.06.2021 - 14:03

country flag Eugenia Ciobanu wrote:

Mi dice di ripetere A1a per le 24 ma successive ma le ma sono di più.grazie

22.02.2018 - 22:14

DROPS Design answered:

Buongiorno Eugenia. Se capiamo correttamente il punto che non le è chiaro, per la Taglia L o XL, ha 27 m.a sulla spalla sinistra e le lavora in questo modo: diag. A.1a sulle prime 2 m.a, diagramma A.2a sulle 24 maglie successive e 1 m.a nell'ultima m.a: in tutto 27 m.a. Avvia poi le catenelle. Buon lavoro!

23.02.2018 - 08:43

country flag Ciobanu Eugenia wrote:

Volevo capire meglio come si uniscono le due spalle di dietro.Il passaggio con le catenelle non si capisce bene.grazie

22.02.2018 - 21:53

DROPS Design answered:

Buongiorno Eugenia. Per il dietro, deve prima lavorare le maglie della spalla sinistra come indicato, poi avvia le catenelle che consentono di unire le spalle e procede sulle maglie della spalla destra come indicato. Buon lavoro!

23.02.2018 - 08:38

Stephanie wrote:

Question concerning width of body: between 37cm and 77cm there are 11 increases of 6dc = 66dc more. According to the gauge this will increase the width of the dress by 30cm. Which is enormous. And the diagram shows that width increases 15cm. So should it be 5 increases? Or am I missing something? Thanks...

03.07.2017 - 17:44

DROPS Design answered:

Dear Stephanie, you inc a total of 11 times every 3,5 cm = 234 dc (= 106 cm around = 53 cm, as shown in diagram). When piece measures 77 cm, inc to 270 dc and then inc one more time = 306 dc (= ca 140 cm around = 70 cm, as shown in diagram). Happy crocheting!

03.07.2017 - 18:05

country flag Rosa Barroso wrote:

Hola! Estoy tejiendo este vestido y tengo una duda. Por lo que entiendo al leer el patrón la talla S no tiene aumentos para la sisa en la axila. ¿Es así?

04.03.2017 - 09:56

DROPS Design answered:

Hola Rosa. Los aumentos para las sisas se trabajan a partir de la talla L.

04.03.2017 - 11:26

country flag Päivi wrote:

Baby Alpaca Silk dress - nice style - nice to wear will make it for next summer

19.12.2015 - 14:40

country flag Elisabetta wrote:

è semplice ma molto d'effetto!!

16.12.2015 - 15:56