DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4224.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Sunrise Glow

Prjónuð tunika úr DROPS Paris með gatamynstri, klauf í hliðum og hringlaga berustykki. Prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.

DROPS 170-14
DROPS Design: Mynstur nr w-584
Garnflokkur C eða A + A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS PARIS frá Garnstudio
600-650-750-800-900-950 g nr 01, apríkósa

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l x 22 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 4 – fyrir kant með garðaprjóni.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4224.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.2. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

ÚTAUKNING-1:
Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn til að koma í veg fyrir göt.

ÚTAUKNING-2:
Prjónið þar til 2 l eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 4 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli l), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt til að koma í veg fyrir göt.

ÚRTAKA:
Fækkið á undan prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 l eru eftir á undan prjónamerki, 2 l slétt saman, 1 l sl.
Fækkið á eftir prjónamerki þannig: 1 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TUNIKA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað ofan frá og niður, í hring á hringprjóna.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 92-104-108-120-126-138 l á hringprjóna nr 4 með Paris. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan og aukið út um 16-16-24-24-30-30 l jafnt yfir í næst síðustu umf (= umf með sl) – LESIÐ ÚTAUKNING-1 = 108-120-132-144-156-168 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5. Prjónið A.1 (= 12 l) alls 9-10-11-12-13-14 sinnum á breidd.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 207-230-253-276-299-322 l á prjóni. Stykkið mælist ca 19-19-22-22-24-24 cm. Prjónið 1 umf slétt og aukið út um 1-0-1-0-1-0 l jafnt yfir = 208-230-254-276-300-322 l
Næsta umf er prjónuð þannig: Prjónið 32-36-41-45-49-53 l sl (= hálft bakstykki), setjið næstu 40-44-46-48-52-56 l á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8 nýjar l undir ermi, setjið 1 prjónamerki mitt á milli þessa 8 l, prjónið 64-71-81-90-98-105 l sl (= framstykki), setjið næstu 40-44-46-48-52-56 l á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8 nýjar l undir ermi, setjið 1 prjónamerki mitt á milli þessa 8 l, prjónið 32-35-40-45-49-52 l sl = 144-158-178-196-212-226 l.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Prjónið nú stykkið áfram í sléttprjóni. Setjið 1 prjónamerki í stykkið, HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Þegar stykkið mælist 3 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við hvert prjónamerki í hliðum (= 4 l fleiri) – LESIÐ ÚTAUKNING-2, endurtakið útaukningu með 4-4-3-2½-2-2 cm millibili 9-9-12-14-16-18 sinnum til viðbótar = 184-198-230-256-280-302 l. Þegar stykkið mælist 43-45-44-46-46-48 cm prjónið framstykki og bakstykki fram og til baka, til loka hvort fyrir sig (þ.e.a.s. stykkið skiptist við prjónamerkin).

BAKSTYKKI:
= 92-99-115-128-140-151 l. Prjónið sléttprjón með 4 l garðaprjón í hvorri hlið á stykki. Þegar stykkið mælist 47-49-48-50-50-52 cm frá prjónamerki, passið að næsta umf er frá röngu, aukið út um 1-1-0-0-0-0 l = 93-100-115-128-140-151 l. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 4 l garðaprjón, prjónið 4-2-4-5-0-0 l eins og fyrsta l í A.2, endurtakið A.2 (= 11 l) þar til eftir eru 8-6-8-9-4-4 l (= 7-8-9-10-12-13 sinnum á breidd), prjónið 4-2-4-5-0-0 l eins og síðasta l í A.2, endið á 4 l garðaprjón. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er næsta umf prjónuð frá réttu þannig: 4 l garðaprjón, endurtakið A.3 (= 3 l) þar til eftir eru 5 l JAFNFRAMT er aukið út um 0-2-2-1-1-2 l jafnt yfir í fyrstu umf, prjónið fyrstu l í A.3, endið á 4 l garðaprjón = 93-102-117-129-141-153 l. Þegar A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, skiptið yfir á hringprjóna nr 4. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN fram og til baka – sjá útskýringu að ofan. Fellið af.

FRAMSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og bakstykki.

ERMI:
Ermarnar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. Setjið til baka 40-44-46-48-52-56 l af þræði á sokkaprjóna nr 5. Fitjið upp 8 nýjar l undir ermi, setjið eitt prjónamerki mitt á milli þessa 8 l = 48-52-54-56-60-64 l. Setjið 1 prjónamerki í stykkið, HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerkið (= 2 l færri) – LESIÐ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 10 cm = 44-48-50-52-56-60 l. Þegar stykkið mælist 17 cm, skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4. Prjónið 4 umf garðaprjón. Fellið af.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = br frá réttu, sl frá röngu
symbols = 2 l slétt saman
symbols = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l, uppslátturinn er EKKI prjónaður snúinn í næstu umf, það eiga að myndast göt
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l, uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umf, það eiga ekki að myndast göt
symbols = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 170-14

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (22)

country flag Charity wrote:

Inc 16-16-24-24-30-30 sts evenly on next to last round What exactly does evenly mean? I will be casting on 104 stitches so where do I make the increases?

08.07.2023 - 17:03

DROPS Design answered:

Dear Charity, you increase on the ridges. Each ridge is composed of 2 rows in garter stitch which, when worked in the round, are 1 knit round and 1 purl round. You increase on the knit round of the second ridge. As for the increases, you have 104 stitches and need to increase 16 stitches for your size. 104/16= 6.5, so you will increase after every 6th or 7th stitch alternately. Happy knitting!

10.07.2023 - 17:01

country flag Tina wrote:

Hi, I thought this would make a great dress instead of a tunic, by simply making it longer? Then I compared this pattern with Vanilla Summer (Drops 159 -6) which IS a DRESS, and the length for both pieces are the same! Also the amount of Paris yarn is exactly the same. Why is this one considered a tunic please? On the model it does look like a tunic, but I'm confused because the measurements are the same as the Vanilla dress, which looks like a dress on the model!

07.04.2022 - 16:49

DROPS Design answered:

Dear Tina, the term tunic is sometimes used to describe a short dress. This is why the measurements are similar but they are called differently; in the end both of them are dresses. To work a longer garment, you could simply work straight or work a few increases on the sides if you want it slightly wider at the bottom, before working the bottom edge. Happy knitting!

07.04.2022 - 21:15

country flag Magdalena wrote:

Witam nie bardzo wiem jak mam rozumieć pewna część wzoru Chodzi mi dokładnie o dół tylowia Nie wiem jak wyliczyc ,kiedy mam zacząć to rozcięcie Proszę o pomoc

01.04.2022 - 16:30

DROPS Design answered:

Witaj Magdaleno, troszkę przeformułowałam to zdania: „Na wys. 43-45-44-46-46-48 cm od markera do mierzenia (tzn. tego umieszczonego na wysokości, gdzie były zdejmowane oczka na rękawy na druty pomocnicze), kończyć tył i przód osobno w tę i z powrotem (tzn. podzielić robótkę w miejscu markerów na bokach, na pęknięcia na dole sukienki)”. Mam nadzieję, że teraz łatwiej będzie zrozumieć. Pozdrawiamy!

04.04.2022 - 15:06

country flag Kate Frego wrote:

What are the relevant body measurements for S-M-L-XL in Sunrise Glow 170-14? (Inches please)

28.02.2021 - 01:01

DROPS Design answered:

Dear Kate, you can find the measurements of the finished piece on the schematic drawing at the bottom of the page. Happy Knitting!

28.02.2021 - 11:06

country flag Debora wrote:

Buongiorno, vorrei fare questa tunica con filato Drops Muskat, più sottile, anzichè il Paris. Vesto una taglia M, avete un suggerimento che mi permetta di adattare il filato più sottile alla spiegazione? Il campione con Muskat è di 21 maglie in 10 cm.Grazie mille

29.04.2019 - 14:13

DROPS Design answered:

Buongiorno Debora, purtroppo non possiamo fornire un aiuto così personalizzato, ma presso il suo rivenditore DROPS di fiducia potrà trovare tutta l'assistenza di cui ha bisogno. Buon lavoro!

29.04.2019 - 15:00

country flag Lise wrote:

Je suis de taille LARGE. Dans votre tuto des tailles, vous donnez un exemple de taille large, ce qui donne des hanches de 108 cm et poitrine 96. Parfait pour moi. Dans le modèle W-584 ci-dessus la taille large donne 128 cm pour les hanches et 104 cm pour la poitrine ! Je ne comprends pas un tel écart... svp m’éclaIrer, je ne sais plus quelle taille choisir... merci.

03.04.2019 - 15:06

DROPS Design answered:

Bonjour Lise, la coupe de chaque modèle peut différer en étant plus ou moins près du corps, en taille L on a ici 52 cm x 2 = 104 cm de tour de poitrine, et la base du top (qui mesure 78 cm de hauteur totale) est de 69 cm x 2 = 138 cm. Mesurez un modèle similaire que vous avez et dont vous aimez la forme pour trouver la taille idéale. Bon tricot!

03.04.2019 - 16:15

country flag Nicola Summers wrote:

With regard to the sleeves and body, instead of casting on 8 stitches to the sleeve and then sewing up the hole between the sleeve and body at the end would it be OK to pick up 8 stitches from the cast off edge on the body piece instead? I\'m fairly new to knitting tops and have always ended up with holes when sewing up seams.

22.11.2018 - 10:09

DROPS Design answered:

Dear Mrs Summers, you can also pick up 1 stitch in each of the 8 sts cast on on body over sleeve instead of casting on new sts. This video is showing how to close the opening under arm (in that case the 8 sts cast on on body and the 8 sts cast on on sleeve). Happy knitting!

22.11.2018 - 11:09

country flag Tone Thorsen wrote:

Att Sunrice Glow. Øketips -2 må vel gi m i n d R e masker? Ikke flere som dere forklarer

28.01.2018 - 13:04

DROPS Design answered:

Hei Tone. Nei, øketips-2 gir en forklaring på at det økes med kast 4 ganger pr omgang det skal økes. ØKETIPS-2: Strikk til det gjenstår 2 m før merke, 1 kast (= 1 ØKT MASKE), 4 m rett (merke sitter midt mellom m), 1 kast (=1 ØKT MASKE TIL). På neste omgang strikkes de 4 kastene vridd rett for å unngå hull. God Fornøyelse!

30.01.2018 - 10:50

country flag Diana Hart wrote:

I am not quite understanding the hem pattern , does it mean for the small size the first and last 4 stitches are garter stitch then next and next to last 4 are stocking stitch and the stitches in between are A2? If I wanted to do this garment without the split, would I need to adjust stitches to a multiple of 11 and then just work A2 all round? Thank you for your help. Keep the patterns coming they are the best.

30.08.2017 - 13:39

DROPS Design answered:

Dear Mrs Hart, that's right, when working then back and forth for vents on sides, you are working with 4 sts in garter st at the beg and at the end of row. If you don't want any vents, you can then adjust the number of sts as you suggest and work A.11 all the round. Happy knitting!

30.08.2017 - 14:58

country flag Tammy wrote:

You have very nice patterns i would like to make but they make no scent and hard to understand. Patterns i've made were able to understand, I wish these were understandable.

18.06.2017 - 00:51

DROPS Design answered:

Dear Tammy, you will find some videos adapted to each pattern under tab "Videos" and at the very bottom of the page. Should you have any question please feel free to ask here, for any individual assistance remember your DROPS store will help you, even per mail or telephone. Happy knnitting!

19.06.2017 - 09:14