DROPS Polaris
DROPS Polaris
100% Ull
frá 1188.00 kr /100g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11880.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Earthling

Prjónað poncho úr DROPS Polaris prjónað ofan frá og niður með hettu og kögri. Stærð S - XXXL.

DROPS Extra 0-1221
DROPS Design: Mynstur nr po-078
Garnflokkur F eða E + E
----------------------------------------------------------

Stærð: S/M - L/XL - XXL/XXXL
Lengd fyrir miðju að framan: ca 52 - 54 - 56 cm (án kögurs)

Efni:
DROPS POLARIS frá Garnstudio
1000-1100-1300 g nr 06, ljós beige

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 15 – eða þá stærð sem þarf til að 7 l x 8 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Polaris
DROPS Polaris
100% Ull
frá 1188.00 kr /100g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11880.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 l hvoru megin við l með prjónamerki í.
Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn – uppslátturinn er prjónaður jafnóðum inn í stroff.

LEIÐBEININGAR UM STROFF:
Til að koma í veg fyrir að stroff dragi stykkið saman er hægt að prjóna 1 umf slétt yfir allar l á eftir 5. hverja l með stroffi (passið uppá að þetta sé umf án útaukningar).

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

LEIÐBEININGAR UM KÖGUR:
Til að kögrið hangi fallega á flíkinni verður að bleyta það, hrista það til og þurrka áður en það er hnýtt á.

BYRJUN Á NÝJUM ÞRÆÐI:
Þegar skipt er um dokku af Polaris þá er endanum skipt í tvo hluta á þræðinum sem er að ljúka ca 15 cm – klippið annan endann, það sama er gert við nýja þráðinn. Leggið fyrstu og síðustu 15 cm yfir hvorn annan svo að þykktin á þræðinum verði sú sama og prjónið áfram – með þessu er komið í veg fyrir að samskeytin sjáist.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PONCHO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna og prjónað er ofan frá og niður.

PONCHO:
Fitjið upp 36-36-48 l á hringprjóna nr 15 með Polaris.
Prjónið 1 umf br, 1 umf sl, 1 umf og 2 umf sl. Setjið 1 prjónamerki í 10.-10.-13. og í 28.-28.-37. l í umf (= miðja að framan og miðja að aftan).
Prjónið stroff (= 1 l sl, 2 l br) umf hringinn og aukið út um 1 l hvoru megin við slétta lykkju með prjónamerki í við miðju að framan og við miðju að aftan – LESIÐ ÚTAUKNING (= 4 l fleiri). Haldið áfram með stroff – LESIÐ LEIÐBEININGAR UM STROFF og endurtakið útaukningu í annarri hverri umf – ATH: Útauknu l eru prjónaðar jafnóðum inn í stroff, þ.e.a.s. sú fyrsta er prjónuð slétt, 2 næstu eru prjónaðar brugðið, næsta umf er prjónuð slétt og 2 næstu eru prjónaðar brugðið o.s.frv.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar ponchoið mælist ca 50-52-54 cm frá hálsmáli (mælt meðfram miðju að framan), prjónið 1 umf slétt yfir allar l (aukið út við miðju að framan og við miðju að aftan eins og áður). Prjónið 1 umf br og fellið síðan LAUST af með sl JAFNFRAMT er aukið út við miðju að framan og við miðju að aftan eins og áður (útauknu l eru felldar af eins og venjulegar lykkjur).

HETTA:
Byrjið frá réttu við miðju að framan á eftir l með prjónamerki og prjónið upp 1 l í hverja l í kringum hálsmál á hringprjóna nr 15 með Polaris (ekki er prjónað í l með prjónamerki í við miðju að framan) = 35-35-47 l á prjóni. Prjónið 3 umf slétt fram og til baka og aukið út um 5 l jafnt yfir í 2. umf (= frá réttu) = 40-40-52 l.
Prjónið síðan sléttprjón með 2 l GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið við miðju að framan þar til hettan mælist ca 36-37-38 cm. Fellið laust af og saumið hettuna saman efst uppi með lykkjuspori.

KÖGUR:
Festið kögur í aðra hverja l meðfram affellingarkanti á poncho þannig – LESIÐ LEIÐBEININGAR UM KÖGUR: Klippið 1 þráð Polaris ca 40 cm, leggið þráðinn saman tvöfaldan og dragið bogann í gegnum l, dragið síðan endana í gegnum bogann.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1221

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (16)

country flag Serenella wrote:

Seguendo le spiegazioni indicate nel pattern non riesco a capire come fare per far un senza aumenti. Questa spiegazione mi sembra sbagliata “SUGGERIMENTO PER LE COSTE: Per evitare che le coste facciano contrarre il lavoro, lavorare 1 giro dir su tutte le m ogni 5 giri a coste (aggiustarlo in modo che questo sia un giro senza aumenti).” Facendo gli aumenti ad ogni giro il poncho viene molto lungo al centro rispetto alla lunghezza dei lati. Grazie,

17.10.2022 - 20:30

DROPS Design answered:

Buonasera Serenella, gli aumenti sono a giri alterni. Buon lavoro!

17.10.2022 - 23:39

country flag Ulrike wrote:

Die Frage wurde nun schon öfter gestellt, aber nach wie vor verstehe ich nicht, wie das Rippenmuster mit 3 M bei 4 M Zunahme aufgehen kann. Wie stricke ich nach „Umschlag, Mittlere M, Umschlag“ weiter? Fange ich danach immer mit einer re M wieder an?

21.09.2022 - 13:09

country flag Annabelle wrote:

Bonjour, Je viens de finir ce poncho avec la laine polaris💎 Cette laine, étant assez épaisse, je me demande s il faut que je le bloque? Il gondole sur le bas. Les côtes en haut serrent et les augmentations et le rabat souple détend beaucoup Le bloquer, l uniformirait il? Et si oui, comment? Merci Au plaisir de vous lire

20.12.2020 - 21:47

DROPS Design answered:

Bonjour Annabelle, vous pouvez le bloquer si vous voulez (lavez-le en suivant bien les indications de l'étiquette + ces généralités) et faites le sécher bien à plat aux mesures du schéma correspondant à votre taille. Bon tricot!

21.12.2020 - 08:23

country flag Thérèse Fillion wrote:

Moi je serais intéressée a acheter ce patron et désirerais avoir le prix.. je le trouve tres jolie merci beaucoup

28.11.2020 - 18:33

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Fillion, ce modèle est gratuit, vous pouvez ainsi imprimer gratuitement les explications en cliquant sur le bouton "imprimer" - Bon tricot!

30.11.2020 - 08:43

country flag Thérèse Fillion wrote:

Est-ce que c'est possible de commander le patron combien ca coute?

21.11.2020 - 16:37

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Fillion, les explications de ce modèle sont gratuites, cliquez sur le bouton "imprimer" si besoin. Bon tricot!

23.11.2020 - 08:37

country flag Bryndis Thorarinsdottir wrote:

Hi I love knitting this poncho, so easy but I was wondering if it will get bigger after wash? I’m not using Polaris, I’m using Andes. Hope you can help, Bryndis

09.03.2020 - 17:33

DROPS Design answered:

Dear Mrs Thorarinsdottir, you can work this poncho with Andes using 2 strands (= 2 yarn group E = 1 yarn group F), you should have same tension (= 7 sts x 8 rounds stocking st = 10 x 10 cm). measurements should be the same. You can always swatch before to make sure you will get correct measurements. Happy knitting!

10.03.2020 - 10:13

country flag Jezirah wrote:

Hallo, es hat ein bisschen gedauert, bis ich das mit dem Rippenmuster trotz Zunahmen verstanden habe. Aber was ist mit "Bündchen" gemeint (in den Antworten auf Kommentare) und ich verstehe auch nicht, warum ich in jeder 5. Runde nur rechts stricken soll. Bei der dicken Wolle müsste man das im Bild oben sehen, aber da sind keine Runden nur rechts gestrickt. Ich habe schon viele Drops-Anleitungen gestrickt, aber diese ist irgendwie sehr verwirrend. Gruß Jezirah

15.11.2019 - 18:39

DROPS Design answered:

Liebe Jezirah, mit "Bündchen" war sicher früher "Rippenmuster" gemeint - es wird empfohlen, in jeder 5. Runde eine Runde rechts zu stricken, damit das Rippenmuster die Arbeit nicht zusammentzieht. Viel Spaß beim stricken!

18.11.2019 - 08:20

country flag Maya wrote:

Thank you for your reply. Can you translate that to yards?

16.10.2019 - 00:36

DROPS Design answered:

Dear Maya, the pattern is designed for DROPS POLARIS yarn, which is a rather thick yarn, 38 meters for a 100 gramms. From this yarn you will need 10-11-13 balls to knit up this pattern. If you want to use another of our yarns, please use the yarn converter linked in the pattern page. Happy Knitting!

16.10.2019 - 05:29

country flag Maya wrote:

I may just be missing it, but I don't see anywhere where it says how many skeins of yarn to us of the Polaris. Pls help. Thank you

15.10.2019 - 21:59

DROPS Design answered:

Dear Maya, you can find yarn amount next to the picture, on the right. For this pattern, you'll need 1000-1100-1300 g , colour 06, light beige of aPolaris, according to the different sizes. Happy crafting!

15.10.2019 - 22:10

country flag Helena wrote:

En ymmärrä mitä tarkoitetaan, kun ohjeessa lukee, että lisätyillä silmukoilla neulotaan joustinneuletta, kun lisättyjä silmukoita on 4. Ja eikö keskimmäisen silmukan tulisi olla oikea s? Ohjeessa on joustinneule-vinkki, joka käskee neuloa joka 5. kerroksen oikein. Toimiiko tämä myös vasenkätisille?

06.10.2019 - 09:21

DROPS Design answered:

Hei, keskimmäinen silmukka on aina oikea silmukka, tämän silmukan molemmin puolin neulotaan joustinneuletta, eli ensimmäisellä lisätyllä silmukalla neulotaan oikeaa, 2 seuraavalla lisätyllä silmukalla neulotaan nurjaa jne.

18.12.2019 - 17:04