DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
DROPS Bomull-Lin
DROPS Bomull-Lin
53% Bómull, 47% Hör
frá 726.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8294.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Laid Back Afternoon

Prjónuð peysa úr DROPS Paris og DROPS Bomull-Lin með röndum og klauf í hliðum. Stærð S- XXXL

DROPS 170-19
DROPS Design: Mynstur nr l-139
Garnflokkur C eða A + A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS PARIS frá Garnstudio
200-200-200-250-250-300 g nr 01, apríkósa
50-100-100-100-100-100 g nr 38, kórall
og notið:
DROPS BOMULL-LIN frá Garnstudio
250-300-300-350-400-400 g nr 03, ljós beige
150-200-200-200-250-250 g nr 11, beige
50-50-50-50-50-50 g nr 05, brúnn

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 6 – eða þá stærð sem þarf til að 15 l x 19 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
DROPS Bomull-Lin
DROPS Bomull-Lin
53% Bómull, 47% Hör
frá 726.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8294.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

RENDUR BAKSTYKKI OG FRAMSTYKKI:
1. rönd: 15-15-16-16-17-17 cm með Bomull-Lin ljós beige.
2. rönd: 6-7-7-8-8-9 cm með Bomull-Lin beige.
3. rönd: 2 umf í allar stærði með Bomull-Lin brúnn.
4. rönd: 2 umf í allar stærðir með Bomull-Lin beige.
5. rönd: 6 umf í allar stærðir með Paris apríkósa.
6. rönd: 2 umf í allar stærðir með Bomull-Lin ljós beige.
7. rönd: 7-7-8-8-9-9 cm með Paris apríkósa.
8. rönd: 2 umf í allar stærðir með Paris kórall.
9. rönd: 4 umf í allar stærðir með Paris apríkósa.
10. rönd: 2 umf í allar stærðir með Paris kórall.
11. rönd: 4 umf í allar stærðir með Paris apríkósa.
12. rönd: 2 umf í allar stærðir með Paris kórall.
13. rönd: 2 umf í allar stærðir með Bomull-Lin brúnn.
14. rönd: 2 umf í allar stærðir með Paris apríkósa.
15. rönd: 2 umf í allar stærðir með Bomull-Lin ljós beige.
16. rönd: 4 umf í allar stærðir með Bomull-Lin beige.
17. rönd: 2 umf í allar stærðir með Paris kórall.
18. rönd: 4 umf í allar stærðir með Paris apríkósa.
19. rönd: 2 umf í allar stærðir með Bomull-Lin beige.
20. rönd: 2 umf í allar stærðir með Bomull-Lin brúnn.
21. rönd: 6-7-7-8-8-9 cm með Bomull-Lin beige.
22. rönd: Prjónið með Bomull Lin ljós beige til loka.

RENDUR ERMI:
1. rönd: Prjónið 12 cm með Bomull-Lin ljós beige.
2. rönd: 2 umf í allar stærðir með Bomull-Lin brúnn.
3. rönd: 4 umf í allar stærðir með Paris apríkósa.
4. rönd: 2 umf í allar stærðir með Bomull-Lin ljós beige.
5. rönd: 4 umf í allar stærðir með Bomull-Lin beige.
6. rönd: 2 umf í allar stærðir með Paris kórall.
7. rönd: 4 umf í allar stærðir með Paris apríkósa.
8. rönd: 2 umf í allar stærðir með Bomull-Lin beige.
9. rönd: 2 umf í allar stærðir með Bomull-Lin brúnn.
10. rönd: 5 cm í allar stærðir með Bomull-Lin beige.
11. rönd: Prjónið með Bomull-Lin ljós beige til loka.

ÚRTAKA:
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið um 1 l á undan l í garðaprjóni við hálsmál þannig: Prjónið þar til 2 l eru eftir á undan l í garðaprjóni, prjónið 2 l slétt saman.
Fækkið um 1 l á eftir l í garðaprjóni frá hálsmáli þannig: Takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.

ÚTAUKNING:
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn br svo ekki myndist gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna í sléttprjóni frá réttu, en þegar gengið er frá í lokin snýr rangan út.

BAKSTYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.
Fitjið upp 75-81-87-95-103-113 l á hringprjóna nr 6 með Bomull-Lin með litnum ljós beige. Haldið síðan áfram með RENDUR BAKSTYKKI OG FRAMSTYKKI – sjá útskýringu að ofan og prjónið þannig: Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan 2 l garðaprjón, sléttprjón þar til 2 l eru eftir, 2 l garðaprjón. Þegar stykkið mælist 21 cm í allar stærðir er fitjuð upp 1 kantlykkju í hvorri hlið á stykki í lok 2 næstu umf = 77-83-89-97-105-115 l. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram með 2 umf til viðbótar í sléttprjóni og garðaprjóni yfir síðustu 3 l í hvorri hlið (meðtaldar kantlykkjur) á stykki. Haldið síðan áfram í sléttprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 50-51-52-53-54-55 cm fellið af 1-2-2-2-2-3 l fyrir handveg í byrjun á 2 næstu umf = 75-79-85-93-101-109 l. Þegar stykkið mælist 61-63-65-67-69-71 cm prjónið þannig: Prjónið fyrstu 24-26-28-32-35-39 l eins og áður, prjónið garðaprjón yfir næstu 27-27-29-29-31-31 l, haldið áfram eins og áður yfir þær 24-26-28-32-35-39 l sem eftir eru. Þegar prjónaðar hafa verið 4 umf garðaprjón yfir miðju 27-27-29-29-31-31 l prjónið næstu umf frá réttu þannig: Prjónið þar til 2 l eru eftir á undan l í garðaprjóni, fækkið um 1 l – LESIÐ ÚRTAKA, prjónið 2 l garðaprjón, fellið af næstu 23-23-25-25-27-27 l fyrir hálsmáli, prjónið 2 l garðaprjón, fækkið um 1 l, prjónið þær l sem eftir eru á prjóni eins og áður = 25-27-29-33-36-40 l eftir fyrir öxl. Prjónið síðan hvora öxl til loka fyrir sig. Snúið við og prjónið fram og til baka í sléttprjóni 1 kantlykkju í garðaprjóni við handveg og 2 l garðaprjón við hálsmál. Þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm fellið af.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjóni eins og bakstykki. Þegar stykkið mælist 55-57-58-60-61-63 cm prjónið næstu umf frá réttu þannig: Prjónið eins og áður yfir fyrstu 29-31-34-38-41-45 l, prjónið síðan garðaprjón yfir næstu 17-17-17-17-19-19 l, haldið áfram yfir þær 29-31-34-38-41-45 l sem eftir eru. Þegar prjónaðar hafa verið umf garðaprjón yfir miðju 17-17-17-17-19-19 l eru næstu umf prjónaðar frá réttu þannig: Prjónið þar til 2 l eru eftir á undan l með garðaprjóni, fækkið um 1 l, prjónið 2 l garðaprjón, fellið af næstu 13-13-13-13-15-15 l fyrir háls, prjónið 2 l garðaprjón, fækkið um 1 l, prjónið þær l sem eftir eru eins og áður. Nú eru 30-32-35-39-42-46 l fyrir öxl. Prjónið síðan hvora öxl til loka fyrir sig. Haldið áfram fram og til baka yfir öxl í sléttprjóni, 2 l garðaprjón við hálsmál og 1 kantlykkja í garðaprjóni við handveg og endurtakið úrtöku í hverri umf frá hálsmáli 5-5-6-6-6-6 sinnum til viðbótar = 25-27-29-33-36-40 l fyrir öxl. Þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm fellið af.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

ERMI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.
Fitjið upp 32-33-36-37-38-39 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið á stykki) á hringprjóna nr 6 með Bomull-Lin með litnum ljós beige. Haldið síðan áfram með RENDUR ERMI – sjá útskýringu að ofan og prjónið þannig: Prjónið 4 umf garðaprjón. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 11-11-11-10-10-6 cm aukið út um 1 l innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið – LESIÐ ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu með 4-3½-3½-3-2½-2½ cm millibili 8-9-9-10-11-12 sinnum til viðbótar = 50-53-56-59-62-65 l á prjóni. Þegar stykkið mælist 47-47-46-44-41-40 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla), fellið laust af.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Gengið er frá peysunni þannig að rangan snúi út. Saumið axlasaumana innan við affellingarkantinn. Saumið ermar í á fram- og bakstykki og saumið ermasauma innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. Saumið hliðarsauma frá handveg og niður að klauf á hvorri hlið (= klauf = 21 cm). Klippið frá og festið enda.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 170-19

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (19)

country flag Ulrike wrote:

Hallo an alle, bei mir ist dasselbe Problem aufgetaucht wie bei Maike N.: Die Farben 03 und 11 von Bomull-Lin unterscheiden sich so gut wie gar nicht, auch verstrickt nicht. Meine Lösung des Problems war, dass ich als Ersatz für Farbe 11 Farbe 05 von Bomull-Lin verwendet habe, und als Ersatz für die Farbe 05 von Bomull-Lin dann Farbe 44 (braun) von Paris. Und tatsächlich, jetzt ist der Kontrast zwischen den drei Beige- und Brauntönen so schön wie auf dem Bild :)

23.01.2023 - 14:04

country flag Nathalie Boussard wrote:

Bonjour Je suis arrivée aux emmanchures du dos, doit - on reprendre les 3 m point mousse de chaque côté, même question pour l'encolure ? En vous remerciant pour votre aide.

08.06.2022 - 21:12

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Boussard, après les emmanchures, on ne tricote pas de mailles au point mousse sur le côté (sauf si vous préférez ce type de maille lisière), pour l'encolure, vous continuerez à tricoter 2 mailles point mousse côté encolure. Bon tricot!

09.06.2022 - 08:25

country flag Boussard wrote:

Bonjour Au début du dos, juste après avoir fait 2 côtes au point mousse, il faut continuer 2m point mousse, jersey.... cela veut dire un rang endroit? Faut il continuer ainsi tout le dos? Merci pour votre aide.

12.05.2022 - 20:19

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Boussard, effectivement, sur l'endroit, vous tricoterez toutes les mailles à l'endroit, mais sur l'envers tricotez: 2 m endroit (= 2 m point mousse), à l'envers jusqu'à ce qu'il reste 2 m (= jersey) et terminez par 2 m endroit (= 2 m point mousse). Vous ajouterez ensuite 1 m point mousse (= 3 m point mousse de chaque côté), puis vous continuerez avec juste 1 m lisière au point mousse de chaque côté. Bon tricot!

13.05.2022 - 08:09

country flag Inge-Lise Laursen wrote:

Jeg er netop blevet færdig med trøjen og jeg har en masse garn i overskud. . Jeg har strikket i str XL det originale garn og har 8 hele nøgler for meget: 3 * Bomull-lin fv. 03, 2*Bomull-lin fv.11, 2*Paris fv 1 og 1*Paris fv 38 I bør justere i opskriften .

11.08.2021 - 16:53

country flag Ingrid Bahnsen wrote:

De 2 garnfarver i Bomull-Lin farve 03 Lys beige og farve 11 Beige er næsten identiske - men på fotoet i opskriften er der ret stor forskel i nuancen? Det påvirker resultatet, da de 2 nuancer strikkes i brede striber efter hinanden. Er der skrevet forkert i opskriften? Mvh Ingrid

18.07.2021 - 09:10

DROPS Design answered:

Hej Ingrid, der kan være sket en justering i årenes løb. Men vælg de 2 farver i DROPS Bomull-Lin som passer bedst til din smag og dit arbejde :)

04.08.2021 - 11:13

country flag Maike Novobilsky wrote:

Hallo, ich habe mir die Wolle für den schönen Pullover bestellt. Leider hat Bomull-Lin Nr. 3 (hellbeige) und Nr. 11 (beige) exakt den selben Farbton, Nr. 11 fühlt sich nur etwas härter an. Ich habe schon beide Farbtöne hintereinander verstrickt und man sieht wirklich überhaupt keinen Unterschied. Welche Wolle kann ich stattdessen nehmen? Ist dies von der Charge abhängig? Nr. 11 ist viel, viel heller als auf der Abbildung. Vielen Dank

07.04.2021 - 08:58

DROPS Design answered:

Liebe Frau Novobilsky, am besten wenden Sie sich direkt an Ihrem DROPS Händler, wo Sie das Garn bestellt haben, dort wird man Ihnen am besten weiterhilfen - auch telefonisch oder per E-Mail. Viel Spaß beim stricken!

07.04.2021 - 13:37

country flag Helen wrote:

Det står att tröjan stickas i både rätstickning och slätstickning med aviga ut! Vilket gäller?

26.07.2020 - 11:06

DROPS Design answered:

Hej Helen, du börjar med 4 varv rätst, sedan slätst med kantmaskor i rätst. Lycka till :)

27.07.2020 - 15:53

country flag Rianne Wiesje Kompier Krijnen wrote:

Als ik deze trui in 1 kleur, dus effen zou willen breien, hoeveel garen heb ik dan nodig?

17.05.2018 - 08:04

DROPS Design answered:

Hallo Rianne, Bij veel nieuwere patronen staat dit al aangegeven, maar bij dit patroon helaas niet. Je kunt je verkooppunt vragen of je overgebleven bollen in kunt leveren. Je breit dan eerst het achterpand en een mouw en aan de hand daarvan kun je uitrekenen hoeveel je in totaal nodig hebt.

21.05.2018 - 11:16

country flag Elaine Hébert wrote:

J’ai fait ce chandail avec de la laine. Mon échantillon respectait celui du patron. J’aimerais savoir quoi faire pour que la bordure inférieur en côtes mousses cesse de roulé

29.04.2018 - 20:44

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Hébert, vous pouvez bloquer votre pull: lavez-le en respectant les consignes de l'étiquette + les généralités ici. Faites le sécher bien à plat, en épinglant le bas si nécessaire. Bon tricot!

30.04.2018 - 11:02

country flag Marja wrote:

Zijn de patroonafmetingen met boordjes al in begrepen? Of moet je bijvoorbeeld voor de halsafmeting nog bijtellen indien ik geen boordje wens te breien? Dank voor uw antwoord. Groeten

01.03.2018 - 22:53

DROPS Design answered:

Hoi Marja, De afmetingen in de tekening onderaan zijn altijd inclusief, boordjes, halsranden, manchetten, etc.

04.03.2018 - 17:18