DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2464.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Sunny Day Top

Prjónaður toppur úr DROPS Paris með V-hálsmáli, gatamynstri og klauf á hlið. Stærð S - XXXL.

DROPS 170-32
DROPS Design: Mynstur nr w-592
Garnflokkur C eða A + A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS PARIS frá Garnstudio
350-400-450-450-500-550 g nr 16, hvítur

DROPS PRJÓNAR NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l x 22 umf sléttprjón verði 10 x 10 cm.
DROPS PRJÓNAR NR 4 – fyrir kant með garðaprjóni.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2464.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA (á við um hliðar á fram- og bakstykki, við handveg og háls):
Fækkið l innan við 2 kantlykkjur í garðaprjóni á fram- og bakstykki og innan við 3 kantlykkjur í garðaprjóni meðfram handveg og háls. Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið l á eftir 2 eða 3 kantlykkjum þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.
Fækkið l á undan 2 eða 3 kantlykkjum þannig: Byrjið 2 l á undan kantlykkju og prjónið 2 l slétt saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað neðan frá og upp í tveimur hlutum.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 75-85-91-101-111-123 l á prjóna nr 4 með Paris. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Setjið 1 prjónamerki eftir fyrstu 37-42-45-50-55-61 l í umf (séð frá réttu) = 38-43-46-51-56-62 l á prjóni eftir prjónamerki, látið prjónamerki fylgja með í stykkinu. Skiptið yfir á prjóna nr 5 og prjónið sléttprjón með 2 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 12 cm er fækkað um 1 l í hvorri hlið – LESIÐ ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku með 8-8-7-7-7-7 cm millibili alls 4-4-5-5-5-5 sinnum í hvorri hlið = 67-77-81-91-101-113 l. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 15-16-17-14-15-16 cm prjónið nú mynstur eftir A.1 yfir miðju-l – mynstur byrjar frá réttu á eftir prjónamerki mitt í stykkinu (sjá ör í mynstri) – aðrar l eru prjónaðar eins og áður. Þegar A.1 hefur verið prjónað einu sinni á hæðina er haldið áfram með mynstur út að kanti í hvorri hlið alveg eins – passið uppá að það komi eitt heilt (eða hálft hjarta – sjá A.1A og A.1B, þ.e.a.s. A.1A er prjónað hægra megin við stykki og A.1B er prjónað vinstra megin við stykki), innan við kantlykkju í hvorri hlið. Þær l sem ekki ganga jafnt upp í eitt eða hálft hjarta út að hliðum eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 43-44-45-46-47-48 cm prjónið 4 umf garðaprjón yfir síðustu 5-7-8-9-10-11 l í hvorri hlið (aðrar l eru prjónaðar eins og áður). Fellið síðan af fyrstu 2-4-5-6-7-8 l í byrjun á 2 næstu umf fyrir handveg. Haldið áfram með mynstur með 3 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið (þar sem ekki er pláss fyrir eitt heilt hjarta eða hálft hjarta út við handveg þá eru þær l prjónaðar í sléttprjóni). JAFNFRAMT er fellt af fyrir handveg innan við kantlykkjur í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í hverri umf frá réttu) þannig: Fækkið um 1 l alls 1-4-4-7-10-14 sinnum – LESIÐ ÚRTAKA = 61-61-63-65-67-69 l eftir á prjóni. Þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm prjónið 4 umf garðaprjón yfir miðju 29-29-31-31-33-33 l í umf (aðrar l eru prjónaðar eins og áður). Í næstu umf frá réttu eru felldar af miðju 23-23-25-25-27-27 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram eins og áður með 3 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið. JAFNFRAMT er fellt af fyrir hálsmáli í annarri hverri umf þannig: Fækkið um 1 l alls 3 sinnum – LESIÐ ÚRTAKA = 16-16-16-17-17-18 l eftir á öxl. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm og fellið af. Endurtakið á hinni öxlinni.

FRAMSTYKKI:
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
Fitjið upp og prjónið eins og á bakstykki þar til stykkið mælist 35-37-38-39-40-42 cm – ATH: A.1 er ekki prjónað á framstykki. Prjónið nú mynstur eftir mynsturteikningu A.2 yfir miðju l – mynstrið byrjar frá réttu eftir prjónamerki mitt í stykki (sjá ör í mynstri) – aðrar l eru prjónaðar eins og áður.
HANDVEGUR: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 43-44-45-46-47-48 cm prjónið 4 umf garðaprjón yfir síðustu 5-7-8-9-10-11 l í hvorri hlið eins og á bakstykki (aðrar l eru prjónaðar eins og áður). Fellið síðan af fyrir handveg í hvorri hlið eins og á bakstykki.
V-HÁLSMÁL: JAFNFRAMT þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru prjónaðar 4 umf garðaprjón yfir miðju 9 l fyrir miðju að framan (aðrar l eru prjónaðar eins og áður). Í næstu umf frá réttu á eftir garðaprjóni eru felldar af 3 miðju-l við miðju að framan fyrir hálsmáli og hvor hluti er prjónaður til loka fyrir sig. Haldið áfram í sléttprjóni og úrtöku fyrir handveg eins og áður og fækkið JAFNFRAMT l fyrir v-hálsmáli í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í hverri umf frá réttu) þannig: Fækkið um 1 l alls 13-13-14-14-15-15 sinnum – LESIÐ ÚRTAKA.
Eftir alla úrtöku fyrir handveg og v-hálsmáli eru 16-16-16-17-17-18 l eftir á öxl. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm og fellið af. Endurtakið á hinni öxlinni – ATH: Fyrsta umf er prjónuð frá miðju að framan (= ranga). Byrjið á að prjóna upp 1 l í fyrstu l frá hinni hliðinni og prjónið hana saman við fyrstu l í umf. Þetta er gert svo að ekki myndist “hak” neðst niðri í opi.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið hliðarsauma kant í kant yst í lykkjubogann – byrjið efst við handveg og saumið saman þar til ca 10 cm eru eftir í hvorri hlið (= klauf).

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
symbols = 2 l slétt saman
symbols = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = prjónamerki
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Sunny Day Top

Olga, Russian Federation

Sunny Day Top by Drops Design

Sew-In-Progress, Israel

Skrifaðu athugasemd um DROPS 170-32

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (14)

country flag Irene Golden wrote:

Sunny Day Top I didn't understand the reply. So, there are 2 knit sts at the beginning and end of each row. WHERE DO I DO THE 6 BIND OFFS for armhole without crating a hole between the edge sts and the row sts?

13.07.2022 - 16:32

DROPS Design answered:

Dear Irene, you cast off the 6 stitches at the beggining of each row as normal. In the following row, you work edge stitches in garter stitch which is usually slightly looser, so the gauge may get slightly looser and you may have a hole there. To avoid having a hole, you need to tighten the yarn between the start and end of the row, and adjust it well, i.e working the first 2 edge stitches more tightly. Happy knitting!

15.07.2022 - 12:47

country flag Irene Golden wrote:

Sunny day top

10.07.2022 - 21:57

country flag Irene wrote:

How do you bind off for armhole while maintaining the garter stitches without creating a hole?

10.07.2022 - 21:56

DROPS Design answered:

Hi Irene, You can work the first and last stitches together with the strand between them and the next stitch. Hope this helps and happy knitting!

11.07.2022 - 06:51

country flag Adelle wrote:

On the Back piece size L: when starting the neckline, there are 63st on the needle. the neckline will be the centre 31 st, meaning there will be 16 st. on each shoulder strap. We are told to decrease 3x each side to get to 16 st, but I already only have 16 st. Do I just ignore the decrease instruction, or will that make my top look funny?

07.05.2022 - 04:55

DROPS Design answered:

Dear Adelle, the 31 sts are those worked in garter stitch, but you cast off for the neckline 25 sts (as stated in the next line). Then, you decrease 1 st 3 times on each side, so you decrease 6 sts in total (31-25 = 6 sts). Then, you will have the 16 sts for each shoulder strap. Happy knitting!

08.05.2022 - 19:30

country flag Maja Stenholm wrote:

Hej. Jeg forstår ikke hvordan man fortsætter diagrammet efter A1? Skal man selv bare lægge hjerter til?

27.02.2021 - 20:40

country flag Martine RIBAULT wrote:

Bonjour, Je souhaite réaliser ce modèle avec le fil de coton DROPS BELLE, aiguilles No 4. Hors, le fil préconisé pour sa réalisation est DROPS PARIS, aiguilles No 5. La taille est S, mais avec le fil DROPS BELLE au lieu de DROPS PARIS. Pouvez vous me dire quel est la taille adéquate à choisir ? La responsable d'une boutique m'a recommandé de suivre la taille L pour le nombre de maille et la taille S pour les centimètres. Merci pour votre réponse. Cdlt

27.05.2020 - 13:40

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Ribault, ce modèle est pour un fil du groupe C (Paris) or Belle appartient au groupe B, l'échantillon sera par conséquent différent et les explications ne correspondront effectivement pas. Nous ne sommes malheureusement pas en mesure de pouvoir adapter chacun de nos modèles à chaque demande; Vérifiez votre échantillon et recalculez d'après les mesures du schéma comment adapter à votre taille ou bien cherchez un autre modèle à tricoter en fil du groupe B comme belle. Bon tricot!

27.05.2020 - 14:10

country flag Agata wrote:

Czemu drukuje się jedynie pierwsza strona wzoru?(wszystkie parametry drukarki ustawione są prawidłowo)

12.06.2019 - 08:34

DROPS Design answered:

Witaj Agato. Musisz kliknąć na ikonkę drukarki z napisem WZÓR (tuż nad opisem wzoru). Następnie DRUKUJ WZÓR w prawym górnym rogu okna, które się pojawi i jest cały wzór do wydruku. Jeśli nie zadziała, po prostu zaznacz opis, skopiuj do worda i wtedy drukuj. Powodzenia!

12.06.2019 - 16:40

country flag Monica wrote:

Salve vorrei sapere se continuare con le 2 m. di vivagno a legaccio per tutta la lunghezza del davanti e dietro, oppure se lavorarle solo per la parte dello spacco laterale che non viene cucito. Nel caso si debba fare x tutta la lunghezza, lasciare a vista il legaccio durante la cucitura? Grazie

29.03.2018 - 07:48

DROPS Design answered:

Buongiorno Monica, è tutto spiegato nel modello, si lavora dall'alto in basso con 2 o 3 maglie di vivagno a seconda delle spiegazioni. E anche per la confezione, deve seguire le indicazioni e cucire il lato nel filo più esterno delle maglie di vivagno, quindi le maglie di vivagno rimangono a vista. Buon lavoro!

29.03.2018 - 09:34

country flag Agnes wrote:

Bonjour, je tricote le dos et je ai terminé le diagramme A1. VOUS dites de faire les diagraMmes A1a et A1b à droite et à gauche . Je ne comprends pas où les commencer et comment faire la suite des motifs au milieu Merci de me répondre

12.05.2017 - 14:01

DROPS Design answered:

Bonjour Agnès, Quand A.1 est terminé 1 fois en hauteur, continuez A.1 comme avant, c'est-à-dire que vous aurez 5 motifs ajourés en largeur au prochain rang et ainsi de suite (6, 7 ... ) - en fonction de votre taille, vous devrez tricoter A.1A au début du rang et A.1B à la fin du rang (si vous n'avez pas suffisamment de mailles pour faire des motifs complets en largeur). Bon tricot!

12.05.2017 - 15:38

country flag Carolin wrote:

Hallo habe gerade mit dem Rückenteil angefangen und eine Frage zum Mister A1: In der Anleitung steht dass das Muster nach dem Markierer beginnt...heißt also dass ich den ersten Umschlag nach dem Markierer mache oder? Irgendetwas stimmt da bei mir aber nicht da ich irgendwann mit den Löchern nicht mehr symmetrisch bin und es kein Herz mehr ergibt?! Der Markierer sollte aber doch die ganze Zeit einfach nur mitgeführt werden oder?

11.09.2016 - 15:23

DROPS Design answered:

Liebe Carolin, ja genau, der 1. Umschlag muss gerade nach dem Markierer sein, und dann wie im Diagram weiterstricken. Siehe auch das Video zum Diagram (am 3. Reihe mit Herze bekommen Sie mehr Herzen als im Video, da Sie mehr Maschen haben).

12.09.2016 - 09:23