DROPS Melody
DROPS Melody
71% Alpakka, 25% Ull, 4% Polyamide
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4092.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Summer Melody

Prjónuð peysa úr DROPS Melody í sléttprjóni, V-hálsmáli og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.

DROPS 170-33
DROPS Design: Mynstur nr ml-007
Garnflokkur D
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS MELODY frá Garnstudio
150-200-200-200-250-250 g nr 14, vanillugulur

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 9 – eða þá stærð sem þarf til að 10 l x 12 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 8 – fyrir garðaprjón.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Melody
DROPS Melody
71% Alpakka, 25% Ull, 4% Polyamide
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4092.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

ÚRTAKA:
Fækkið lykkjum innan við l í garðaprjóni. Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum á undan l í garðaprjóni þannig: 2 l slétt saman.
Fækkið lykkjum á eftir l í garðaprjóni þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 54-58-62-68-74-78 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið á stykki) á hringprjóna nr 8 með Melody. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 9 og prjónið sléttprjón með 3 l garðaprjón í hvorri hlið á stykki.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 15 cm er klaufin tilbúin. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki. Þegar stykkið mælist 41-42-43-44-45-46 cm fellið af 2-2-3-5-6-6 l fyrir handveg í byrjun á 2 næstu umf = 50-54-56-58-62-66 l. Haldið áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 51-53-55-57-59-61 cm prjónið 4 umf garðaprjón yfir miðju 22-22-24-24-24-24 l. Í næstu umf frá réttu er fækkað um 1 l innan við l í garðaprjóni í hvorri hlið – LESIÐ ÚRTAKA. Í næstu umf eru felldar af miðju 14-14-16-16-16-16 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig = 17-19-19-20-22-24 l. Haldið áfram í sléttprjón og 4 l garðaprjón við hálsmál. Þegar stykkið mælist 55-57-59-61-63-65 cm prjónið 2 umf garðaprjón yfir allar l. Fellið af.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið á sama hátt og bakstykki. Þegar stykkið mælist 36-36-37-38-39-40 cm skiptis stykkið yfir í hægri og vinstri öxl, prjónið næstu umf frá réttu þannig: Prjónið eins og áður yfir fyrstu 26-28-30-33-36-38 l, setjið síðan þessar l á þráð fyrir vinstri öxl = 28-30-32-35-38-40 l fyrir hægri öxl.

HÆGRI ÖXL:
Prjónið síðan sléttprjón með 4 l garðaprjón við hálsmál og 1 kantlykkja í garðaprjón á hlið – JAFNFRAMT er fellt af fyrir handveg þegar stykkið mælist 41-42-43-44-45-46 cm eins og á bakstykki og fellt er af fyrir hálsmáli innan við 4 l garðaprjón þannig: 1 l í annarri hverri umf alls 9-9-10-10-10-10 sinnum = 17-19-19-20-22-24 l á prjóni. Þegar stykkið mælist 55-57-59-61-63-65 cm prjónið 2 umf garðaprjón yfir allar l. Fellið af.

VINSTRI ÖXL:
= 26-28-30-33-36-38 l. Fitjið upp 2 l í kanti við hálsmál þar sem hálsmálið skarast að framan = 28-30-32-35-38-40 l. Prjónið síðan öxlina á sama hátt og hægri öxl. Saumið niður 2 l með fallegu spori á bakhlið í kanti í hálsmáli á hægri öxl.

ERMI:
Stykkið prjónast fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 22-22-24-24-26-26 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 8 með Melody. Prjónið 4 umf garðaprjón. Skiptið yfir á hringprjóna nr 9 og prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki. Þegar stykkið mælist 6 cm er aukið út um 1 l innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið á stykki. Endurtakið útaukningu með 8-6-6-5-5-4 cm millibili 4-5-5-6-6-7 sinnum til viðbótar = 32-34-36-38-40-42 l. Fellið af þegar stykkið mælist 41-40-40-40-39-38 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla).
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið ermar í. Saumið erma- og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju niður að klauf.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 31.05.2017
HÆGRI ÖXL:..á bakstykki og fellt er af fyrir hálsmáli innan við 4 l garðaprjón þannig: 1 l í annarri hverri umf alls 9-9-10-10-10-10 sinnum = 17-19-19-20-22-24 l á prjóni. Þegar stykkið mælist 55-57-59-61-63-65 cm prjónið 2 umf garðaprjón yfir allar l. Fellið af.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 170-33

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (65)

country flag MARIE-CLAUDE wrote:

Bonjour, J'ai acheté de laine DROP MELODY et je souhaiterais faire un pull à col rond et je ne trouve pas de modèle à faire mais pas avec des aiguilles circulaire je ne sais pas tricoter en aiguille circulaire. Pourriez vous me dire si vous avec des modèles avec aiguilles droites. Merci

18.08.2023 - 12:44

DROPS Design answered:

Bonjour Marie-Claude, les aiguilles circulaires sont parfois utilisées pour tricoter en allers et retours, juste pour avoir suffisamment de place pour y loger toutes les mailles, c'est la cas ici, vous pouvez simplement tricoter avec des aiguilles droites - pour la prochaine fois, si besoin, découvrez grâce à cette leçon comment adapter un modèle sur aiguilles droites. Bon tricot!

18.08.2023 - 16:04

country flag Luigina Farronato wrote:

Comment se procurer cette laine pour ce modèle je suis au Maroc plus précisément à Agadir Merci

13.12.2022 - 10:36

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Farronato, vous trouverez la liste des magasins DROPS expédiant dans le monde entier ici. Visitez leur site pour en savoir plus et n'hésitez pas à les contacter pour toute information complémentaire. Bon tricot!

13.12.2022 - 11:28

country flag Katleen wrote:

Drops Melody is dunner geworden. Kan u het patroon aanpassen ?

03.07.2022 - 23:10

DROPS Design answered:

Dag Katleen,

Bij mijn weten is DROPS Melody niet dunner geworden, maar bij dit patroon wordt met opzet een grotere naalddikte gebruikt en de stekenverhouding in dit patroon is ook anders dan dat standaard staat aangegeven bij het garen. Dit is om een meer open of losser effect te krijgen.

08.07.2022 - 08:49

country flag Virginia McCormack wrote:

I do not understand your response above to my question regarding the finished number of stitches for the sleeve. The largest size on the pattern is 42 sets. You say it should be 68sts. Is/was there a correction to the original pattern somewhere indicating this increase in numbers? Do I need to re write the pattern myself to make the sleeve fit the arm hole?

02.03.2022 - 04:34

DROPS Design answered:

Please check if previous answer can help you.

02.03.2022 - 09:57

country flag Virginia McCormack wrote:

The body of the sweater is perfect as per the tension swatch and size. My pattern says 42 stitches for finished X-LARGE sleeve. Wondering where you got the number 68?

01.03.2022 - 16:55

DROPS Design answered:

Dear Mrs McCormack, oops I missed your comment was about sleeves sorry, my bad. In XL you should have 38 sts for the sleeve (42 sts in XXXL), this means these 38 (42) sts are approx. 18 (20) cm (without the edge st for seams on each side). Your sleeve should then perfectly fit the armhole which should be 18 cm in XL and 20 cm in XXXL. Can this help?

02.03.2022 - 09:20

country flag Virginia wrote:

I have knit the sleeves for the Summer Melody sweater 3 times in different sizes incl. X-Large and none fit the sweater . All far too small and too short. Is there a correction to this pattern I have missed? has anyone else had this problem?

01.03.2022 - 05:26

DROPS Design answered:

Dear Virginia, what about your tension? Do you have 10 sts x 12 rows in stocking stitch = 10 x 10 cm? In XL you should have then 68 sts before armholes = approx. 66 cm (2 sts for seam allowance). Read more about tension here. Happy knitting!

01.03.2022 - 10:12

country flag LEBAS Denise wrote:

Je désirerais avoir les adresses des boutiques Drops en Belgique

14.02.2022 - 10:17

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Lebas, vous trouverez la liste des magasins DROPS en Belgique ici. Bon tricot!

14.02.2022 - 10:45

country flag Henriette Fischer wrote:

Que veut dire coudre 2 montées à points soignés derrière la bordure d encolure de l'épaule droite?

07.12.2021 - 23:00

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Fischer, il manquait le mot "mailles", merci pour votre retour, il a été ajouté. Vous devez coudre les 2 mailles montées côté encolure au début de l'épaule gauche sous les 2 mailles côté encolure de l'épaule droite, cousez de sorte que la couture soit invisible sur l'endroit. Bonne continuation!

08.12.2021 - 08:03

country flag Noëlla wrote:

Bonjour, peux ton prendre aiguilles droite pour faire se patron, car je ne sait pas comment me servir d'aiguilles circulaires merci

08.09.2021 - 02:36

DROPS Design answered:

Bonjour Noëlla, on utilise ici une aiguille circulaire pour avoir suffisamment de place pour y loger toutes les mailles, vous pouvez donc tout à fait utiliser des aiguilles droites dans ce cas, veillez à juste bien garder la bonne tension car vos mailles seront plus serrées - retrouvez plus d'infos ici sur les aiguilles circulaires. Bon tricot!

08.09.2021 - 07:43

country flag Machteld Vandervurst wrote:

Het lijkt mij precies dat de mouwen n zijn gebreid in boordsteek 1re 1 av. Of is dit gezichtsbedrog. Zo ook het deel van de pull thv de schouders. Graag uw gewaardeerd antwoord aub. Dankje.

29.04.2021 - 10:03

DROPS Design answered:

Dag Machteld,

Nee, de gehele trui wordt in tricotsteek gebreid, alleen de boord wordt in ribbelsteek gebreid.

29.04.2021 - 15:25