DROPS Big Delight
DROPS Big Delight
100% Ull
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24
DROPS 168-27
DROPS Design: Mynstur nr db-059
Garnflokkur C eða A + A
----------------------------------------------------------

Stærð: S/M – L/XL – XXL/XXXL

Efni:
DROPS BIG DELIGHT frá Garnstudio
400-500-600 g nr 12, gallabuxnablár

DROPS HEKLUNÁL 5,5 – eða þá stærð sem þarf til að 13 st x 8 umf verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Big Delight
DROPS Big Delight
100% Ull
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GALDRAHRINGUR:
Til þess að koma í veg fyrir göt í miðju er heklað með þessari aðferð.
Haldið í endann með vinstri hendi og gerið lykkju utan um vinstri vísifingur (frá vinstri að hægri). Haldið í lykkjuna með vinstri þumli og vísifingri. Stingið heklunálinni í gegnum lykkjuna, sækið þráðinn frá dokkunni, dragið þráðinn til baka í gegnum lykkjuna, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum lykkjuna á heklunálinni = 1 fl, heklið 3 ll, heklið síðan 15 st um lykkjuna, endið á 1 kl í 3.ll = 16 st. Heklið síðan eins og útskýrt er í uppskrift – JAFNFRAMT er dregið í endann á þræðinum þannig að lykkjan dragist saman og gatið hverfur.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.2.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Fyrsta st í byrjun er skipt út fyrir 3 ll. Endið umf á 1 kl í 3. ll í byrjun umf.
Fyrsta tbst í byrjun er skipt út fyrir 4 ll. Endið umf á 1 kl í 4. ll í byrjun umf.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HRINGPEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring.

HRINGPEYSA:
Heklið GALDRAHRINGUR – sjá útskýringu að ofan, með heklunál nr 5,5 með Big Delight. Haldið síðan áfram eftir A.1- ATH! Fyrsta umf í A.1 er útskýrð í galdralykkjunni, heklaðar eru 4 mynstureiningar af A.1 á breiddina. Kl í byrjun á A.1 og A.2 er einungis hekluð í byrjun umf.
LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!

Þegar A.1 hefur verið heklað til loka er heklað áfram eftir A.2, heklið 7 mynstureiningar af A.2 á breiddina, í síðustu umf í A.2 er fækkað um 1 st = 160 st. Haldið áfram að hekla eftir A.1, nú er byrjað á 5. umf – sjá ör í mynstri. Heklið 1-2-3 umf eins og í 5. umf í mynstri (= 80 st + 2 ll), síðan er heklaður handvegur þannig: Heklið * 1 st + 2 ll í fyrsta st *, endurtakið frá *-* yfir fyrstu 20 st, heklið 22-24-26 ll, hoppið yfir 10-11-12 st (= fyrri handvegur), heklið * 1 st + 2 ll í næsta st *, endurtakið frá *-* yfir næstu 40-38-36 st, heklið 22-24-26 ll, hoppið yfir 10-11-12 st (= seinni handvegur), endið á 1 kl í byrjun umf.

Heklið síðan eins og 6. umf í mynstri þannig: Heklið 1 st + 2 ll í hvern st fram að fyrri handveg, * heklið 1 st + 2 ll um ll-boga *, endurtakið frá *-* 10-11-12 sinnum til viðbótar, haldið áfram með 1 st + 2 ll seinni handvegs, * heklið 1 st + 2 ll um ll-boga *, endurtakið frá *-* 10-11-12 sinnum til viðbótar = 82 st með 2 ll á milli hverra. Endurtakið umf 7 8-7-6 sinnum. Heklið umf 7 1-3-5 sinnum til viðbótar, JAFNFRAMT er aukið út um 2 st jafnt yfir í hverri umf, þ.e.a.s. tvisvar sinnum í hverri umf er heklað þannig: 1 st + 3 ll + 1 st + 3 ll í 1 st = 84-88-92 st með 3 ll á milli hverra. Stykkið mælist ca 80-88-96 cm að þvermáli (= 40-44-48 cm frá miðju). Heklið síðustu umf í A.1, heklið síðan eftir A.2 (= 21-22-23 mynstureiningar á breiddina). Klippið frá og festið enda.

ERMI:
Ermin er hekluð í hring frá handveg og niður.
Heklið 1 st + 2 ll í hvern st sem hoppað var yfir og 1 st + 2 ll í neðri kant á hverjum st frá annarri hlið á handveg = 21-23-25 st með 2 ll á milli hverra. Setjið eitt prjónamerki mitt undir ermi. Haldið áfram með 1 st + 2 ll í hvern st. Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 st + 2 ll mitt undir ermi þannig: Heklið síðasta st á undan prjónamerki, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið næsta st (án þess að hekla 2 ll á milli), þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 l á heklunálinni (= 1 st + 2 ll færri).
Fækkið l með 5 cm millibili 7 sinnum til viðbótar, fækkið l til skiptis á undan og á eftir prjónamerki = 13-15-17 st með 2 ll á milli hverra. Haldið áfram þar til stykkið mælist 48 cm í öllum stærðum, klippið frá og festið enda.
Heklið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

symbols = galdralykkja - sjá útskýring
symbols = ll
symbols = fl um ll-boga
symbols = fl í picot
symbols = kl
symbols = st í l
symbols = st um ll-boga
symbols = st á milli st frá fyrri umf
symbols = 3 ll, 3 st í fyrstu ll (= picot)
symbols = 3 ll, 1 st í fyrstu ll (= picot)
symbols = tbst í picot
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 168-27

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (47)

country flag Patrizia wrote:

Buonasera, non riesco a capire perché da 160 maglie si passa a lavorare su 80m + 2 cat. Dopo aver finito lo schema A2 mi potete spiegare meglio cosa devo fare per realizzare gli scaldi? Grazie mille. Patrizia

29.06.2023 - 00:47

country flag Aziza wrote:

Hi, I finished A1 than went to A2 which completed the big round design on the last picture..how many times do I do A2..it says 7 repitions?.do i keep doing all the rows of A2 than go back to A1 starting at row 5?..this pattern not clear.. thank you

04.06.2023 - 10:30

DROPS Design answered:

Dear Aziza, you have 7 repeats of A.2 on the round. That is, to work over all of the stitches of A.1 in the previous round, you need to repeat the first round of A.2 7 times in the same round. Continue working the chart. When you finish working A.2 once, work A.1 again, now starting on the 5th round of the chart (marked with an arrow). Happy crocheting!

04.06.2023 - 17:39

country flag Susan Richardson wrote:

Hello! Me again! Thanks for earlier reply, now clear regarding slip stitches at beginning of rounds. I am now nearly at :Work 7th Round 1-3-5 times, AT THE SAME TIME inc 2 tr evenly on every row, i.e. two times on every row. Is there a best place to put these increases? I assume NOT in the arm hole areas, as this would alter the stitches for the arms? Or it may not! This pattern is challenging me, but with your help I will finish it ! Thank you.

26.02.2023 - 14:35

DROPS Design answered:

Dear Susan, as long as they are not adjacent/next to each other you can work the increases anywhere in the row, even in the armhole areas. Happy crocheting!

26.02.2023 - 23:55

country flag Susan Richardson wrote:

Thanks for answering my 1st question. I have now started this pattern & it is the first time I have used a diagram pattern. I can work out the stitches needed from the key, but am struggling with working out which stitches in the diagram are in which row at the beginning of the rows, mainly slip stitches in A2. Did row 3 of A2 OK, but when I started row 5 found I had got row 4 wrong 1 extra picot put in. Can you give me written instructions for rows 4 and 5, is start row 4 sl st, dc,sl st,tr?

22.02.2023 - 19:32

DROPS Design answered:

Dear Mrs Richardson, the slip stitches at the beginning of A.2 helps at the beg of round to start on correct place - at the beg of row 4 start with 1 slip st in first ch-space, *1 dc around ch-space, then (1 tr, 1 picot) x 9, 1 tr = 9 picots (10 tr with 1 picot between each), then repeat from * all the round - you should have 7 repeats of A.2 in total. Finish 4th round with 1 slip st in the first dc, then sl st to the first picot (= 3 sl sts), and start with 1 tr (= 4ch) + 6 chains, etc... Happy crocheting!

23.02.2023 - 13:30

country flag Susan Richardson wrote:

I am using Bomull lin for this pattern. Checked & believe it is an equivalent weight yarn. I am crocheting tension squares to check tension. 1st square made with 5.5 mm hook gives measurement of 9cm wide x 13 cm high, 13tr x 8 rows. 2nd square with 5 mm hook gives measurement of 8cm wide x 12cm high , 13tr x 8 rows. So neither correct. I am unsure what to do. I f I use smaller hook, I will end up with an even narrower width, & maybe reach 11 cm height. My tension is not giving a Square!

18.02.2023 - 17:44

DROPS Design answered:

Dear Susan, in these cases, it's more important the width (with the right amount of stitches) than the height (the amount of rows), since you could always work a few less rows, but it's more difficult to adjust the number of stitches. Therefore, you can work with a 5.5mm hook or even try if the width will match with a 6mm hook. Then, you will need to adjust the amount of rows to work (making rules of 3 of the length indicated for your size in a specific point in the pattern and the rows you have worked and have yet to work). Happy crocheting!

19.02.2023 - 19:27

country flag Denise wrote:

Looking at the picture, it looks like the last 2 rounds of A2 were not completed. According to the picture, the last round completed was the picot between dc around chain space. Am I correct?

23.09.2021 - 06:12

DROPS Design answered:

Hi Denise, All the rounds in A.2 are completed. Happy crocheting!

28.09.2021 - 14:48

country flag Patricia P wrote:

Hello, What size is this pattern making? How do you adjust to make S or XXXL? Does the hook size determine the size of the finished jacket? Thank you!

10.04.2019 - 20:15

DROPS Design answered:

Dear Patricia, for the finished size, please refer to the scematics at the bottom of the pattern. And yes, the sice of the hook does change the size of the finished item (the crocheted fabric will be thighter and the piece will be smaller with a smaller hook, and it will be looser and bigger with a bigger hook). Happy Crafting!

11.04.2019 - 08:57

country flag Julia Kaufmann wrote:

Hallo! Ich würde diese Kreisjacke gerne mit einem Farbwechsel-Bobbel häkeln. Sind da 750 m Lauflänge (3-fädig, 150 g) ausreichend? Danke.

17.07.2018 - 07:59

DROPS Design answered:

Liebe Frau Kaufmann, wir bitten um Verständnis, dass wir nicht Produkte unserer Konkurrenz empfehlen können und dass der Kauf des Materials uns hilft, weiterhin kostenlose Anleitungen zur Verfügung stellen zu können.

17.07.2018 - 09:28

country flag Gilda wrote:

Salve, vorrei un chiarimento sul punto, dopo gli scalfi, non ho capito bene cosa si intende in verticale; mi viene da pensare che devo lavorare fin sopra gli scalfi, ma non lavorare il collo; qualcuno può aiutarmi per favore?

26.04.2018 - 13:59

DROPS Design answered:

Buongiorno Gilda. Abbiamo corretto il testo. Deve ripetere il giro 7 il numero di volte indicato per la sua taglia. Buon lavoro!

26.04.2018 - 14:10

country flag Chou-coulate wrote:

Bonjour, Je viens de terminer le dernier rang de A2 et je ne comprends pas lorsqu'il est écrit " au dernier tour de A.2 diminuer 1 B = 160 B". Je dois effectuer des diminutions avant d'entamer la partie disant de reprendre A1 au 5eme rang ?

19.01.2018 - 16:17

DROPS Design answered:

Bonjour Chou-coulate, au dernier rang de A.2, vous avez 23 brides dans chaque A.2 x 7 A.2 = 161 brides, diminuez 1 m (crochetez par ex 4 brides au lieu de 5 autour d'un arceau) pour que vous ayez bien 160 brides à la fin de A.2. Bon crochet!

22.01.2018 - 08:44