DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3520.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Dainty Date

Prjónuð DROPS peysa með silkiborðum og mismunandi gatamynstri úr Safran. Stærð S-XL.

DROPS 68-8
DROPS Design
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

Stærð: S/M - M/L - XL
Efni:
DROPS Safran frá Garnstudio
300-350-400 gr nr 05, ljós bláfjólublár
50 - 50 - 50 gr nr 06, gallabuxnablár
50 - 50 - 50 gr nr 08, fjólublár

DROPS HRINGPRJÓNAR OG SOKKAPRJÓNAR NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 l x 32 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
FYLGIHLUTIR: Silkiborði í lit að eigin vali Breidd: 0,6 cm. Lengd: 2 m.
----------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3520.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá teikningu M.1 til M.5. Teikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA (á við um hálsmál):
Öll úrtaka er gerð frá réttu innan við 4 l garðaprjón.
Fellið af á undan 4 l garðaprjón þannig: 2 l slétt saman.
Fellið af á eftir 4 l garðaprjón þannig: Takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.
----------------------------------------------------------

PEYSA:
Peysan er prjónuð fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan. Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjóna.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 219-243-267 l (meðtaldar 5 kantlykkjur við miðju að framan á hvorri hlið) á hringprjóna nr 3 með 2 þráðum gallabuxnabláu Safran. Skiptið yfir í 1 þráð og prjónið 2 umf GARÐAPRJÓN – sjá skýringu að ofan. Skiptið yfir í bláfjólublátt og prjónið næstu umf þannig: 4 l garðaprjón, 1 l sléttprjón, 209-233-257 l af M.1, 1 sléttprjón, 4 l garðaprjón. Haldið áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist ca 29-30-31 cm prjónið M.2 og síðan M.3 til loka, kantur að framan er prjónaður eins útskýrt er alla leið (4 l garðaprjón + 1 l sléttprjón).

LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN ÞÚ PRJÓNAR ÁFRAM! JAFNFRAMT (þegar M.3 hefur byrjað) prjónið 2 umf garðaprjón einungis yfir síðustu 4 l við háls (aðrar l eru ekki prjónaðar i þessum 2 umf). Fellið síðan af 1 l við háls innan við 4 l 18-18-18 sinnum í annarri hverri umf og síðan 6-7-7 sinnum í 4. hverri umf – sjá ÚRTAKA. JAFNFRAMT þegar fellt er af fyrir háls 2 sinnum (stykkið mælist ca 33-34-36 cm) prjónið næstu umf þannig: 50-56-62 l = framstykki, fellið af 7 l fyrir handveg, 101-113-125 l = bakstykki, fellið af 7 l fyrir handveg, 50-56-62 m = framstykki. Hvort stykki er nú prjónað til loka fyrir sig.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
= 50-56-62 l. Haldið áfram með úrtöku fyrir háls eins og skýrt var frá að ofan. JAFNFRAMT er fellt af fyrir handveg í annarri hverri umf: 2 l 2-3-5 sinnum og 1 l 2-5-6 sinnum. Eftir alla úrtöku fyrir háls og handveg eru 24-24-25 l eftir á öxl. Fellið af þær l sem eftir eru þegar stykkið mælist ca 52-54-56 cm – passið uppá að það verði minnst 2 umf sléttprjón yfir allar l áður en fellt er af.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Prjónið eins og vinstra framstykki nema með affellingu á gagnstæðri hlið.

BAKSTYKKI:
= 101-113-125 l. Fellið af fyrir handveg á hvorri hlið eins og á framstykki = 89-91-93 l. Þegar stykkið mælist ca 49-51-53 cm – passið uppá að það séu minnst 2 umf sléttprjón yfir allar l – prjónið 4 umf garðaprjón yfir miðju 45-47-47 l. Í næstu umf eru felldar af miðju 37-39-39 l fyrir hálsmáli og 4 l á hvorri hlið eru prjónaðar með garðaprjóni til loka. Fellið nú af 1 l við háls í annarri hverri umf 2 sinnum innan við 4 l garðaprjón – sjá ÚRTAKA = 24-24-25 l eftir á hvorri öxl. Fellið af þær l sem eftir eru þegar stykkið mælist jafn langt og framstykki.

ERMI:
Fitjið upp 62-62-62 l (meðtalin 1 kantlykkja á hvorri hlið) á prjóna nr 3 með 2 þráðum fjólubláu Safran. Skiptið yfir í 1 þráð gallabuxnablátt og prjónið næstu umf þannig (frá réttu): 1 kantlykkja með sléttprjóni, 6 l af M.4A, 48 l af M.4B, 6 l af M.4C, 1 kantlykkja með sléttprjóni. Prjónið M.4 tvisvar á hæðina. Skiptið nú til baka yfir í fjólublátt og prjónið M.5 (kantlykkja með sléttprjóni). Skiptið yfir í bláfjólublátt og prjónið M.1 áfram (kantlykkja með sléttprjóni). JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 15 cm er aukið út um 1 l á hvorri hlið alls 10-13-13 sinnum í 12.-9.-8. hverri umf = 82-88-88 l. Útauknu l eru prjónaðar inn í mynstrið jafnóðum. Þegar ermin mælist 49-47-45 cm prjónið M.2, haldið síðan áfram með M.3 til loka. Þegar ermin mælist 51-50-48 cm fellið af fyrir ermakúpu á hvorri hlið í annarri hverri umf: 3 l 2-2-2 sinnum, 2 l 3-4-2 sinnum, 1 l 3-3-9 sinnum, síðan eru felldar af 2 l 3-3-2 sinnum og að lokum eru felldar af 3 l á hvorri hlið þar til stykkið mælist 59-59-59 cm. Fellið af þær l sem eftir eru. Prjónið aðra ermi.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið ermar saman innan við 1 kantlykkju. Saumið ermar í við fram- og bakstykki. Klippið silkiborðann í 3 hluta, 2 st ca 60 cm og 1 st ca 80 cm. Þræðið einn 60 cm borða inn í gataumferð mitt í M.5 á hvorri ermi og hnýtið endana fasta á röngu. Borðinn sem er 80 cm er notaður til að hnýta peysuna saman við miðju að framan. Þræðið annan endann innan við hægri kant að framan þar sem úrtaka yfir hálsmáli byrjar og þræðið hinn endann innan við vinstri kant að framan. Þræðið bandið frá röngu og út að réttu. Hnýtið saman borðann við miðju að framan.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = sláið 1 sinni uppá prjónin
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni, 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir þær lykkjur sem prjónaðar voru slétt saman
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 68-8

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (17)

country flag Monica Larsson wrote:

Hej, diagram M1 stämmer inte med hur bilden ser ut, fattas det något i diagrammet?

27.03.2024 - 17:48

DROPS Design answered:

Hej Monica, hvad er det som ikke passer? Strikker du diagrammet nedefra og op?

05.04.2024 - 09:17

country flag Marie-Armelle AQUILINA wrote:

Je commence cet ouvrage, je tricote 2 rangs de point mousse, lors du changement de fil et début de M1 je suis sur le rang envers ? Donc je ne comprends pas

28.03.2023 - 16:37

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Aquilina, le 1er rang de M.1 doit être tricoté sur l'endroit, autrement dit, après le montage, tricotez 2 rangs endroit puis continuez avec l'autre couleur: ce 1er rang avec la nouvelle couleur est le 1er rang sur l'endroit. Bon tricot!

29.03.2023 - 09:29

country flag Barbara wrote:

Ile razy należy wykonać rzędy skrócone? Czy tylko w pierwszym rzędzie schematu M3?

22.09.2020 - 19:48

DROPS Design answered:

Witaj Barbaro! Przerabiasz rzędy skrócone tylko w 1-szym rzędzie schematu M3. Pozdrawiamy!

24.09.2020 - 08:14

country flag Angela Beer wrote:

Thank you for responding to my question. When re-reading the pattern I see I was over complicating it. I always peruse the patterns before I contemplate knitting them. However I must say that Drops yarn is fantastic both in colour range and quality. I have knitted and crocheted many of the flowers, hats, scarves and winter decorations. Thank you for providing continued interest and design to so many people. It is very inspiring.

07.10.2019 - 12:58

country flag Angela Beer wrote:

Pretty design but instructions do not seem very clear. Pattern does not seem to correspond with the M1 to M 5 in as much as which ones are for the sleeves and which ones are for the body. There is a remark to follow corrected chart of the pattern but which is the corrected one? Please I don't mean to criticise but unless carrying out a rough sample of the pattern on some scrap yarn first I feel some clearer explanation would have been nice. I am a dedicated fan of Drops yarns.

05.10.2019 - 10:58

DROPS Design answered:

Dear Mrs Beer, you work now in rows (= short rows), ie on first row, work the first 4 stitches at the beg of the row and slip these 4 sts on a thread, continue working all stitches to the end of the row, turn, work the first 4 sts and slip them on a thread, work to the end of the row (= there are now 4 sts on each side on a thread). Continue like this but slipping the first 2 stitches worked at the beginning of each row on each side (= both from RS and from WS) until 1 stitch remain on needle (= the middle stitch). Hope it helps, happy knitting!

07.10.2019 - 10:48

country flag Ágnes Bárányné Vizi wrote:

Vagyis 3-3-2 alkalommal.

02.09.2017 - 12:02

country flag Ágnes Bárányné Vizi wrote:

Az ujja leírás végén kimaradt egy rész: az utolsó 3 szem leláncolás előtt még van 2 szem leláncolása 2-3-3 alkalommal.

02.09.2017 - 11:57

country flag Inez Huizinga wrote:

Hoe kan ik dit patroon in een grotere maat breien?

21.05.2017 - 12:23

DROPS Design answered:

Hallo Inez, Als je voldoende ervaring hebt met patronen, dan zou je hem bijvoorbeeld groter kunnen maken met de volgende tips: - meer patroonherhalingen in de breedte/hoogte maken op het lijf en en mouwen(of meer tricotsteken tussen de herhalingen) - maak evt. meerderingen of minderingen na de mouwboord voor het juiste aantal steken voor mouwpatroon - Het armsgat en mouwkop evt. aanpassen - Eventueel kun je voor de maten kijken naar een bestaand patroon. - Let er op dat verandering van maatvoering ook effect heeft op halslijn, schouderbreedte etc. - Eerst goed meten en rekenen voor je begint.

22.05.2017 - 16:32

country flag MK wrote:

Re: pattern 1. It is to be done over 233 stitches. It is a 12 repeat pattern and 12 does not go into 233 evenly. Am I reading this wrong, or is the pattern wrong? Please advise. thank you so much!

20.05.2017 - 07:02

DROPS Design answered:

Dear MK, you will work M.1 as follows: repeat the 12 sts in M1 a total of 19 times, then work the first 5 sts in M1 = 19 x 12 sts + 5 = 233 sts. Happy knitting!

22.05.2017 - 09:36

country flag Norma Bradley wrote:

I have downloaded drops 68-8 and gave clicked on the website for help because the pattern seems to be incorrect, and it takes me to another pattern. I think the larger chart on the page is incorrect. Can you confirm this please?

19.04.2017 - 18:44

DROPS Design answered:

Hi Norma, the chart seems to be correct. However, we still will send your question to the design department.

22.04.2017 - 14:06