DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6292.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Beach Date

Prjónaður kjóll úr DROPS Muskat með hringlaga berustykki og gatamynstri, prjónaður ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.

DROPS 167-1
DROPS Design: Mynstur nr r-688
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS MUSKAT frá Garnstudio
550-600-650-700-800-850 g nr 05, púðurbleikur

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 og 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l x 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 og 80 cm) NR 3,5 – fyrir kant með garðarpjóni.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6292.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1-A.3. Sjá mynsturteikningu fyrir rétta stærð.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo að ekki myndist gat. Endurtakið útaukningu til skiptis hægra og vinstra megin við prjónamerkin.

ÚRTAKA:
Prjónið þar til 4 l eru eftir á undan prjónamerki í hlið, prjónið síðan þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, 4 l sl, 2 l slétt saman = 2 l færri. Endurtakið í hinni hliðinni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kjóllinn er prjónaður í hring ofan frá og niður.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 126-132-138-140-146-150 l á hringprjóna nr 3,5 með Muskat.
Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4. Setjið eitt prjónamerki í byrjun umf. Prjónið 1 umf sléttprjón þar sem aukið er út um 4-8-6-4-7-12 l jafnt yfir = 130-140-144-144-153-162 l. Prjónið síðan 0-0-0-0-2-2 umf með sléttprjóni. Í næstu umf er mynstur A.1 prjónað – sjá mynsturteikningu fyrir rétta stærð, 13-14-16-16-17-18 mynstureiningar í umf. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar alls A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina mælist stykkið 11-11-12-12-13-13 cm og það eru 234-252-288-320-340-360 l í umf. Setjið nú 2 prjónamerki í stykkið sem merkja skiptingar í mynstur sem halda áfram niður yfir bak. Prjónið fyrstu 12-12-12-14-14-14 l og setjið fyrra prjónamerki hér. Þetta er síðan byrjun umf! Setjið seinna prjónamerkið eftir 49-49-49-53-53-53 l án þess að prjóna fyrst l. Prjónið síðan mynstur – sjá mynsturteikningu fyrir rétta stærð, þannig: Prjónið A.2 (= 49-49-49-53-53-53 l). ATH: Mynstrið í A.2 á að passa yfir mynstur A.1. Þ.e.a.s. l með ör í mynstri A.2 á að passa yfir l með ör í mynstri A.1. Prjónið sléttprjón yfir þær l sem eftir eru í umf, JAFNFRAMT er aukið út um 20-26-14-14-30-42 l jafnt yfir l í sléttprjóni = 254-278-302-334-370-402 l.
Næsta umf er prjónuð þannig: Prjónið mynstur eins og áður yfir fyrstu 49-49-49-53-53-53 l, prjónið 14-17-22-25-32-38 l sléttprjón, setjið næstu 50-56-58-64-68-72 l á þráð (= ermi), fitjið upp 8 nýjar l undir ermi (setjið eitt prjónamerki mitt á milli þessa nýju l, þ.e.a.s. 4 nýjar l hvoru megin við prjónamerki), prjónið næstu 77-83-93-103-117-129 l, setjið næstu 50-56-58-64-68-72 l á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8 nýjar l undir ermi (setjið eitt prjónamerki mitt á milli þessa nýju l, þ.e.a.s. 4 l hvoru megin við prjónamerki), prjónið næstu 14-17-22-25-32-38 l í umf. Nú eru 85-91-101-111-125-137 l fyrir framstykki og bakstykki = 170-182-202-222-250-274 l alls.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Haldið áfram með mynstur aftan á baki eins og áður og prjónið sléttprjón yfir þær l sem eftir eru í umf. ATH: Haldið jafnóðum áfram í sléttprjóni á baki þegar mynstur hefur verið prjónað til loka. Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið – LESIÐ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku með 5-5½-5½-6-6½-7 cm millibili 3 sinnum til viðbótar = 154-166-186-206-234-258 l. Þegar stykkið mælist 24-26-27-29-30-32 cm setjið 4 ný prjónamerki í stykkið með byrjun frá prjónamerki í hægri hlið. ATH: Takið fyrst frá 2 prjónamerkin sem staðsett eru hvoru megin við gatamynstri á baki!
Prjónið 16-17-19-21-24-27 l, setjið 1. prjónamerki, prjónið 45-49-55-61-69-75 l, setjið 2. prjónamerki, prjónið 16-17-19-21-24-27 l, hér er prjónamerki fyrir vinstri hlið, prjónið 16-17-19-21-24-27 l, setjið 3. prjónamerki hér, prjónið 45-49-55-61-69-75 l, setjið 4. prjónamerki, prjónið næstu 16-17-19-21-24-27 l fram að prjónamerki í hægri hlið. Látið prjónamerin fylgja með í stykkinu. Í næstu umf er aukið út um 1 l á undan öllum prjónamerkjum (= 6 l fleiri) – LESIÐ ÚTAUKNINGU. Endurtakið útaukningu í 6. hverri umf 1 sinni til viðbótar, í 4. hverri umf 12-12-12-12-9-8 sinnum og í 6. hverri umf 2-2-2-2-4-4 sinnum = 250-262-282-302-324-342 l. Þegar stykkið mælist 62-64-65-67-68-70 cm aukið út um 2-8-6-4-0-0 l jafnt yfir = 252-270-288-306-324-342 l. Prjónið síðan mynstur A.3 (= 18 l) 14-15-16-17-18-19 mynstureiningar á breiddina. Þegar allt A.3 hefur verið prjónað á hæðina er skipt yfir á hringprjóna nr 3,5. Prjónið 4 umf garðaprjón og fellið af.

KANTUR ERMI:
Setjið til baka l af þræði á sokkaprjóna nr 4 = 50-56-58-64-68-72 l. Takið upp 1 l í hverja af 8 nýjum l sem fitjaðar voru upp undir ermi = 58-64-66-72-76-80 l. Prjónið 1 umf þar sem fækkað er um 4 l jafnt yfir = 54-60-62-68-72-76 l. Haldið síðan áfram með 2 umf sléttprjón. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3,5 og prjónið 4 umf garðaprjón. Fellið af.
Prjónið hinn kant á ermi á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 30.09.2016
Breyting í mynstri A.1 umf. 29 í stærð L (búið að bæta við uppslætti).

Mynstur

symbols = sl
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður slétt, svo að myndist gat
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt (þ.e.a.s. prjónið í aftari lykkjubogann á l í stað fremri), svo að ekki myndist gat
symbols = 2 l slétt saman
symbols = takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = l með ör í mynstri A.2 á að prjóna yfir l með ör í A.1
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Beach Date

Pine Cabin Knitting, United States

167-1 Beach Date

JoeJ5, France

Beach Date

Danidula, Czech Republic

167-1 Beach Date

Christina, United States

Beach Date

Danidula, Czech Republic

Beach Date

Hanne Møller Pedersen, Denmark

Skrifaðu athugasemd um DROPS 167-1

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (88)

Dang wrote:

Bonjour, Merci pour votre réponse. Encore la dernière question pour bien confirmer votre réponse. Quand vous parlez de l'augmentation avant et après des marqueurs, c'est sur l'augmentation des différents marqueurs de la même ligne ou c'est l'augmentation du même marqueur sur des différentes lignes?

06.03.2017 - 10:07

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Dang, vous tricotez 1 tour en augmentant avant chaque marqueur, puis au tour d'augmentations suivant, augmentez après chaque marqueur, répétez ainsi ces tours d'augmentations, soit avant (= à droite des marqueurs), soit après (= à gauche des marqueurs). Bon tricot!

06.03.2017 - 10:17

country flag Dang wrote:

Bonjour, j'ai une question concernant la partie quand on commence à augmenter avec 6 marqueurs. Qu'est-ce que ça veut dire "faire suivre les marqueurs au fur et à mesure"? Et dans l'explication pour augmentations aussi, "répéter ces augmentations alternativement à droite et à gauche des 4 marqueurs", alors est-ce que les augmentations sont toujours faites AVANT chaque marqueur ou pas ? Merci d'avance pour votre réponse !

04.03.2017 - 14:14

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Dang, ces marqueurs doivent rester en place au fur et à mesure de votre travail, ils servent à délimiter des zones de travail et doivent donc rester sur l'aiguille/entre les mailles indiquées. Quand on augmente alternativement à droite à à gauche des marqueurs, on va augmenter d'abord avant (= à droite) puis à l'augmentation suivante on augmentera après (= à gauche). Et on répète ainsi ces augm: une fois avant puis à l'augmentation suivante, après les marqueurs. Bon tricot!

06.03.2017 - 09:06

country flag Laura wrote:

Hallo! Ich habe das Kleid in XL angefangen zu stricken und das Muster A.1 beendet, die Maschenanzahl stimmt auch. Beim nächsten Schritt (Verlegung des Rundenbeginns und Muster A.2) liegen die mit einem Pfeil markierten Maschen nicht übereinander, es sind 7 M zu viel dazwischen. Habe ich irgend etwas falsch gemacht?

25.02.2017 - 07:15

DROPS Design answered:

Liebe Laura, beachten Sie, daß Sie die korrekte Maschenanzahl am Ende A.1 (= 18 oder 20 je nach der Größe haben), dann stricken Sie noch die ersten 12-14 M (= die ersten M der 1. A.1 = 6 M der ersten M sind jetzt übrig), dann A.2 stricken, die Pfeile werden gerade über die markierte M in A.1 sein. Viel Spaß beim stricken!

27.02.2017 - 09:36

Catharina wrote:

Heb je voor dit patroon beide rondbreinaalden nodig? Zowel 60 cm als 80 cm? Of kun je kiezen?

19.02.2017 - 10:06

DROPS Design answered:

Hoi Katharina. Je kan beide naalden gebruiken of als je de magic loop techniek kent, dan kan je het met alleen 80 cm breien. Zie de techniek hieronder:

20.02.2017 - 15:53

country flag Nina Aasheim wrote:

Deretter settes det andre merket etter 49-49-49-53-53-53 m uten å strikke m først. (Er i forbindelse med å legge markører ved start av A.2) Jeg klarer ikke helt å tyde den setningen, med at jeg ikke skal strikke m først. Er det slik at jeg skal strikke de 14 maskene, så de 53 før jeg da begynner på mønsteret eller? Jeg strikker størrelse XL.

15.01.2017 - 01:17

DROPS Design answered:

Hej Nina. Du strikker först de 14 og saetter en markör - denne markör er nu ogsaa starten paa din omgang. Saa taeller du herfra 53 m og saetter din anden markör. Og saa begynder du med at strikke fra din nye start omgang og fölger diagrammet

18.01.2017 - 16:14

country flag JanaV wrote:

Tere, Ilus muster, aga peale A1 mustri lõppu jääb selgitus natuke segaseks. Kududa 12 s ,panna SM järgmine SM peale 49 silma. Kas see teine SM tuleb 12+49s järel või on need 12 s juba selle 49 sees(12+37=49?) Ja veel, Kas kseemi A2 kootakse siin ikka kogu ring, lihtsalt ülejäänud silmad ainult parempidi? Jõudu tööle ja vastust ootama jäädes, Jana

20.07.2016 - 16:39

DROPS Design answered:

Ringi alguse asukohta muudetakse 12 s võrra (need on need esimesed 12 s). Siis kootakse 49 s mustrit seljaosal ja pärast mustri lõppu on teine SM. Need 2 silmusemärkijat on märkimaks mustri asukohta seljaosal. Pärast nende SM-de paigutamist tõstetakse varrukasilmused silmustehoidjatele (abilõngale) ja siis kootakse mustrit A.2 ainult seljaosal, ülejäänud silmused parempidises koes. Head kudumist!

17.11.2016 - 14:01

country flag Margita Andersson wrote:

Om eg tar "På neste omg økes det 1 m før alle merkene (= 6 m økt)" kver gang så vil skørtet bli vridet. Skal det ikke va økning føre/etter markør annenkver gang?

06.07.2016 - 22:51

DROPS Design answered:

Hej Margita. Nej, det er korrekt som der staar i opskriften.

22.11.2016 - 15:53

country flag Carine wrote:

Mangler det ett kast på siste omgang i mønster A1?får bare 272 masker på omgangen. Skal det være ett kast på hver side av fellingen? Det er ikke oppgitt i mønsteret

20.06.2016 - 15:07

DROPS Design answered:

Hej Carine. Hvilken störrelse strikker du? 272 m i forhold til? Tak :-)

21.06.2016 - 13:02

Ginny wrote:

Thank you! I overlooked that note! But where is now the beginning of round????

25.05.2016 - 22:17

DROPS Design answered:

Dear Ginny, rounds on body start on the side, where you joined piece tog. Happy knitting!

26.05.2016 - 09:48

Ginny wrote:

Great design! I don t understand the increases though. How can we have 4 markers and 6sts increase?

21.05.2016 - 03:07

DROPS Design answered:

Dear Ginny, you also have the two markers you've inserted on each side, where you've cast on new sts under sleeve, so you have 6 markers in piece. Happy knitting!

21.05.2016 - 21:30