DROPS Belle
DROPS Belle
53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3828.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Woodstock

Prjónaður toppur úr DROPS Belle með gatamynstri og a-formi, prjónaður ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.

DROPS 167-6
DROPS Design: Mynstur nr vs-027
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS BELLE frá Garnstudio
300-300-350-350-400-450 g nr 11, bleikfjólublár

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 og 80 cm) NR 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 20 l x 26 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Belle
DROPS Belle
53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3828.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING-1:
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið (þ.e.a.s. í aftari lykkjubogann í stað fremri) til að koma í veg fyrir göt.
ATH: Nýjar l eru prjónaðar jafnóðum í sléttprjóni.

ÚTAUKNING-2:
Prjónið þar til 1 l er eftir á undan prjónamerki í hlið, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Endurtakið í hinni hliðinni. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður slétt. Það eiga að myndast göt!

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Fyrst er prjónað fram- og bakstykki hvort fyrir sig, fram og til baka niður að handveg, síðan er prjónað áfram í hring.

BAKSTYKKI:
Prjónið hægri öxl þannig:
Fitjið upp 16-17-17-18-20-20 l á hringprjóna nr 4,5 með Belle.
Prjónið þannig (1. umf = rétta): 3 l GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan (= við háls), prjónið 10-11-11-12-14-14 l sléttprjón, 3 l garðaprjón (= við handveg). Haldið svona áfram þar til prjónaðar hafa verið 4 umf í sléttprjóni innan við 3 l garðaprjón í hvorri hlið. Í næstu umf er aukið út um 1 l innan við 3 l garðaprjón við háls – LESIÐ ÚTAUKNING-1 17-18-18-19-21-21 l. Prjónið 1 umf til baka frá röngu og geymið stykkið.
Prjónið vinstri öxl þannig:
Fitjið upp og prjónið á sama hátt og hægri öxl, nema spegilmynd. Þ.e.a.s. aukið er út um 1 l á undan 3 l garðaprjón við hálsmál í 5. hverri umf í sléttprjóni. Prjónið 1 umf til baka frá röngu. Snúið við og prjónið eins og áður yfir allar l. Í lok umf eru fitjaðar upp 35-35-37-37-39-39 nýjar l fyrir hálsmál, prjónið síðan 17-18-18-19-21-21 l frá hægri öxl inn á prjóninn = 69-71-73-75-81-81 l. Nýjar l sem fitjaðar voru upp fyrir hálsmáli eru prjónaðar í garðaprjóni. Þegar prjónaðar hafa verið 4 umf yfir þessar l er haldið áfram með 2 umf sléttprjón innan við 3 l garðaprjón í hvorri hlið.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Prjónið nú mynstur í næstu umf frá réttu þannig (ATH: Byrjið í 13. umf í A.1-A.3, sjá stjörnu í mynstri): Prjónið 3 l garðaprjón, 2-3-4-5-0-0 l sléttprjón, A.1 (= 5 l), A.2 (= 16 l) 3-3-3-3-4-4 sinnum á breiddina, A.3 (= 6 l), 2-3-4-5-0-0 l sléttprjón, 3 l sléttprjón. A.1 - A.3 er endurtekið á hæðina til loka. Þegar stykkið mælist 13-12-12-10-10-7 cm frá uppfitjunarkanti er aukið út um 1 l innan við 3 l garðaprjón í hvorri hlið fyrir handveg. Endurtakið útaukningu í hverri umf frá réttu 2-4-6-9-11-16 sinnum til viðbótar = 75-81-87-95-105-115 l. Prjónið 1 umf til baka frá röngu eftir síðustu útaukningu og geymið stykkið.

FRAMSTYKKI:
Prjónið vinstri öxl þannig:
Fitjið upp 16-17-17-18-20-20 l á hringprjóna nr 4,5 með Belle.
Prjónið þannig (1. umf = rétta): 3 l garðaprjón (= við háls), prjónið 10-11-11-12-14-14 l sléttprjón, 3 l garðaprjón (= við handveg).
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
Haldið svona áfram, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 7-8-7-8-8-9 cm er aukið út fyrir hálsmáli og þegar stykkið mælist 13-12-12-10-10-7 cm aukið út fyrir handveg á sama hátt og á bakstykki!
ATH: Í stærð XXXL byrjar útaukning fyrir handveg á undan útaukningu fyrir hálsmáli!
ÚTAUKNING Í HÁLSMÁLI:
Aukið út um 1 l innan við 3 l garðaprjón við hálsmál. Endurtakið útaukningu í hverri umf frá réttu 4-4-5-5-6-6 sinnum til viðbótar = 5-5-6-6-7-7 l fleiri í hálsi. Þegar útaukningu er loki er prjónuð 1 umf til baka frá röngu. Geymið stykkið.

Prjónið hægri öxl þannig:
Fitjið upp og prjónið á sama hátt og á vinstri öxl, nema spegilmynd. Þ.e.a.s. aukið út um 1 l á undan 3 l garðaprjón við hálsmál.
Þegar öll útaukning hefur verið gerð fyrir hálsmáli er prjónuð 1 umf til baka frá röngu. Snúið stykkinu og prjónið eins og áður yfir allar l. Í lok umf eru fitjaðar upp 27 nýjar l í öllum stærðum fyrir hálsmáli, síða eru prjónaðar allar l frá vinstri öxl inn á prjóninn. Haldið svona áfram fram og til baka (útaukning fyrir handveg heldur áfram) þar til prjónaðar hafa verið 4 umf garðaprjón yfir nýjar l fyrir hálsmáli. Í næstu umf frá réttu er prjónað mynstur A.4 (= 27 l) yfir miðju 27 l á prjóni. ATH: A.4 er prjónað 1 sinni á hæðina, en mynstureiningin verður ekki tilbúin á hæðina fyrr en framstykki og bakstykki hafa verið sett saman og prjónað hefur verið í hring á framstykki og á bakstykki!
Þegar öll útaukning fyrir handveg hefur verið gerð eru = 75-81-87-95-105-115 l á prjóni. Eftir síðustu útaukningu er prjónuð 1 umf til baka frá röngu. Snúið við og prjónið yfir allar l á framstykki, fitjið upp 4-6-8-10-12-14 nýjar l fyrir handveg, setjið eitt prjónamerki mitt á milli þessa nýju l (= 2-3-4-5-6-7 l hvoru megin við prjónamerki), prjónið inn 75-81-87-95-105-115 l frá bakstykki á sama hringprjóna, fitjið upp 4-6-8-10-12-14 nýjar l fyrir handveg, setjið eitt prjónamerki mitt á milli þessa nýju l (= 2-3-4-5-6-7 l hvoru megin við prjónamerki) = 158-174-190-210-234-258 l í umf. Byrjun umf er síðan eftir síðustu 4-6-8-10-12-14 nýju l sem fitjaðar voru upp.

FRAMSTYKKI OG BAKSTYKKI:
Stykkið er nú prjónað í hring á hringprjóna.
HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Haldið nú áfram með mynstur þannig: Prjónið 3 l garðaprjón, haldið áfram í sléttprjóni og mynstur eins og áður yfir næstu 69-75-81-89-99-109 l – ATH: Mynstur A.4 heldur áfram þar til öll mynstureiningin hefur verið prjónuð til loka 1 sinni á hæðina, prjónið síðan sléttprjón yfir allar l á framstykki, 10-12-14-16-18-20 l garðaprjón, sléttprjón yfir næstu 5-8-11-15-12-17 l, haldið áfram með mynstur A.1-A.3 eins og áður yfir næstu 59-59-59-59-75-75 l, 5-8-11-15-12-17 l sléttprjón, 7-9-11-13-15-17 l garðaprjón. Þegar prjónaðar hafa verið 4 umf garðaprjón yfir nýjar l fyrir handveg er haldið áfram í sléttprjóni yfir þessar l til loka. Þegar stykkið mælist 4 cm er aukið út um 2 l fleiri í hvorri hlið á stykki – LESIÐ ÚTAUKING-2! Endurtakið útaukningu í 4. hverri umf til loka. Þegar stykkið mælist 44-45-46-47-48-49 cm – passið uppá að enda eftir umf 10 eða 20 í mynstri A.1-A.3 – prjónið 1 umf sléttprjón. Nú eru ca 262-278-298-318-346-374 l í umf eftir því hvar endað sé í mynstri. Prjónið nú 4 umf garðaprjón. Fellið af.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma með lykkjuspori. Passið uppá að saumurinn verði ekki of stífur.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = 2 l slétt saman
symbols = takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
symbols = takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = byrjið á þessari umf í mynstri
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 167-6

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (50)

country flag Diana wrote:

Zodra alle steken op de rondbreinaald staan en er verder alleen nog in de rondte gebreid wordt, hoe brei ik dan het ajourpatroon? Er zijn dan geen averechtse naalden meer. Brei ik dan steeds de 2e naald de omslagen gewoon rechts zoals ze voorkomen? Ik heb het idee dat mijn gaatjes niet hetzelfde zijn als toen ik de omslagen averechts breidde? Alvast bedankt .

11.04.2022 - 22:46

DROPS Design answered:

Dag Diana,

Als je in de rondte breit, dan brei je inderdaad steeds de tweede naald recht. De spanning op de draad kan inderdaad soms wat anders zijn als je in de rondte breit. Dit is van persoon tot persoon verschillend. Dit zou je even in de gaten kunnen hebben. Voor de rest heeft het rondbreien verder geen invloed op het patroon (behalve dan dat je de steken recht aan de goede kant breit in plaats van averecht aan de verkeerde kant).

14.04.2022 - 11:45

country flag Isabelle wrote:

Bonjour, Je suis en train de tricoter le devant, j'ai tricote les deux epaules, droite en premier, puis gauche, conformement aux instructions, mais il me semble que le patron devrait etre inverse par rapport au dos; c'est a dire tricoter l'epaule GAUCHE en premier, laisser un fil en attente cote encolure, tricoter l'epaule DROITE et faire les 27 augmentations de l'encolure a partir de l'epaule droite et continuer a tricoter vers l'epaule gauche. Merci de preciser.

18.08.2019 - 23:50

DROPS Design answered:

Bonjour Isabelle, votre commentaire a été transmis à nos stylistes qui vont l'étudier, merci pour votre retour. Si une correction doit être faite, vous la retrouverez en ligne. Bon tricot!

19.08.2019 - 10:48

country flag Isabelle wrote:

Bonjour, Dans les explications du dos: "À 13-12-12-10-10-7 cm depuis le rang de montage, augmenter pour les emmanchures ...", s'agit-il du rang de montage initial (le haut des epaules) ou bien le rang des augmentations de l'encolure? Les jetes des augmentations doivent-ils etre tricotes en mailles torses sur l'envers? Merci!

17.07.2019 - 08:40

DROPS Design answered:

Bonjour Isabelle, on mesure depuis les mailles de l'épaule pour que l'emmanchure soit juste en hauteur. Tout à fait, les augmentations doivent se tricoter torse - cf AUGMENTATIONS-1. Bon tricot!

17.07.2019 - 11:14

country flag Lise Tamara Sand wrote:

Jeg strikker str xxl og med 81 m før økning til ermehull så blir 11 økninger *2 , 11 for hver ermhull, så blir 81+22= 103m ikke 105

13.06.2019 - 00:03

DROPS Design answered:

Hei Lise. Du øker 11 ganger TIL - altså i tillegg til den første gangen som blir forklart. Dvs det økes totalt 12 ganger = 105 masker etter økningene til ermhull. God fornøyelse

13.06.2019 - 09:24

country flag Valerie wrote:

I am at the increase neck section. I have increased the appropriate number of stitches and am increasing for the armhole as well. Do I stop when the stitches for the neck are finished or continue until all the stitches for the armhole are finished?

19.08.2018 - 02:47

DROPS Design answered:

Hi Valerie, You work each shoulder separately, so increase for neck on the right shoulder and then work the left shoulder. Once you have worked both shoulders you cast on stitches for the neck and work the shoulders together. I hope this helps and happy knitting!

21.08.2018 - 07:54

country flag Susanna wrote:

These patterns are great, but I really wish they would be edited better. I couldn't tell which "cast on edge" to measure from when beginning the back armhole increases. I chose the neck cast on, and only after happening to read a comment here did I learn it was supposed to be the shoulders. Also, there is a mistake in the pattern for the front shoulders--the left shoulder should be knitted first, then the right, neck cast on to right shoulder, then left shoulder joined.

03.07.2018 - 20:38

country flag Natalie Hall wrote:

All the keys in every knitting chart are blank on all my devices so I don’t know if I am supposed to k2tog or sl k1 psso. Is there a key chart which is in a different format?

22.05.2018 - 11:41

DROPS Design answered:

Dear Mrs Hall, the dec are symbols 2 , 3 and 5, ie either diagonal line over 2 sts/squares (2nd and 3rd symbol) or black triangle over 3 sts (5th symbol). Happy knitting!

22.05.2018 - 12:47

country flag Margrethe Fauske wrote:

Hei!\r\nJeg har kommet til der jeg legger opp 27 masker til hals. Jeg strikker str. S.\r\nJeg har strikket høyre skulder: legg opp 16 masker, øk 5 masker til hals, øk 3 masker til ermehull = 24 masker. Jeg har gjort det samme med venstre skulder = 48 masker. Pluss de 27 maskene til hals har jeg da 75 masker. Men oppskriften sier at jeg skal fortsette å øke til ermehull til jeg har 75 masker, men det har jeg allerede? Hva har jeg gjort feil?

11.05.2018 - 11:58

KATE ROBINSON wrote:

Hi, When the pattern says "When piece measures 13-12-12-10-10-7 cm / 5"-4 3/4"-4 3/4"-4"-4"-2 3/4'' from cast-on edge, inc 1 st inside the 3 sts in garter st in each side for armhole." what is meant by "inside the 3 sts in garter st"? Where are those stitches to made exactly? Between the last stockinette stitch and the first garter stitch? And how many stitches are we increasing by? Is that one stitch for each garter st border, ie 4 stitches? Thank you!

17.04.2018 - 22:23

DROPS Design answered:

Dear Mrs Robinson, you increase from RS after the first 3 sts in garter st and before the last 3 sts in garter st. These new sts will be worked in stockinette stitch= you will increase 2 sts on each inc row = every RS row. Happy knitting!

18.04.2018 - 09:37

country flag Yvonne wrote:

Der Abschlussrand rollt sich trotz den 2 Reihen kraus rechts immer hoch. Hat jemand ein Tipp???

20.01.2018 - 12:44

DROPS Design answered:

Liebe Yvonne, Sie können das Top mit Stecknadeln auf einer geeigneten Unterlage spannen, anfeuchten (z.B. mit einer Sprühflasche für Blumen) und trocknen lassen, danach entfernen Sie die Stecknadeln, dann sollte sich der Rand nicht mehr rollen. Viel Spaß beim fertigstellen!

22.01.2018 - 09:08