DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4004.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Sea Nymph

Prjónuð peysa úr DROPS Muskat með laskalínu, gatamynstri og ¾ löngum ermum. Prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.

DROPS 168-1
DROPS Design: Mynstur nr r-689
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS MUSKAT frá Garnstudio
350-400-450-500-550-600 g nr 20, ljós mynta

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l x 28 umf með sléttprjóni og 17 l x 28 umf með gatamynstri verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4004.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Sjá mynsturteikningu fyrir rétta stærð!

LASKALÍNA:
Aukið er út í annarri hverri umf þannig:
Aukið út um 4 lykkjur á bakstykki, 4 l ykkjurá framstykki og 2 lykkjur á hvorri ermi (= alls 12 lykkjur fleiri, útaukning á ermi er með í mynstri) – byrjið 3 lykkjum á undan hverri mynsturteikningu A.2 og prjónið þannig:
Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), A.2, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Uppslátturinn næst prjónamerki er prjónaður slétt í næstu umferð svo að það myndist gat, uppslátturinn við bakstykki/framstykki er prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Aukið svona út 12 lykkjur 0-2-3-7-10-14 sinnum til viðbótar. (= 1-3-4-8-11-15 sinnum alls, fyrsta útaukning er útskýrð í uppskrift).

Aukið síðan út í annarri hverri umf þannig:
Aukið út um 2 lykkjur á bakstykki, 2 lykkjur á framstykki og 2 lykkjur á hvorri ermi (= alls 8 lykkjur fleiri, útaukning á ermi er með í mynstri) – byrjið 2 lykkjum á undan hverri mynsturteikningu A.2 og prjónið þannig: sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), A.2, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Uppslátturinn er prjónaður slétt í næstu umferð svo það myndist gat. Aukið svona út um 8 lykkjur alls 16-15-16-13-12-9 sinnum.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 87-91-95-99-103-107 l á hringprjóna nr 4 með Muskat.
Prjónið 1 umf sl, síðan er prjónað A.1, í síðustu umf í A.1 er aukið út um 15 l jafnt yfir = 102-106-110-114-118-122 l. Prjónið síðan þannig – frá miðju að aftan: Prjónið 17-18-19-20-21-22 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl (setjið eitt prjónamerki á milli þessa l), A.2 (= 11 l), 2 l sl (setjið eitt prjónamerki á milli þessa l), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 34-36-38-40-42-44 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl (setjið eitt prjónamerki á milli þessa l), A.2, 2 l sl (setjið eitt prjónamerki á milli þessa l), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 17-18-19-20-21-22 l sl. Haldið áfram með þetta mynstur og aukið út fyrir LASKALÍNA eins og útskýrt var frá að ofan, fyrsta útaukningin er nú lokið.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina (sjá merkingu fyrir rétta stærð) eru 242-262-286-314-346-374 l í umf, útaukningu er nú lokið. Næsta umf er prjónuð þannig:
Prjónið 38-42-46-52-58-64 l (= hálft bakstykki), setjið næstu 45-47-51-53-57-59 l á þráð (= ermi), fitjið upp 8 l undir ermi, prjónið næstu 76-84-92-104-116-128 l (= framstykki), setjið næstu 45-47-51-53-57-59 l á þráð (= ermi), fitjið upp 8 nýjar l undir ermi, prjónið síðustu 38-42-46-52-58-64 l (= hálft bakstykki).

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Nú eru 168-184-200-224-248-272 l á fram- og bakstykki. Haldið áfram í sléttprjón. Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið, mitt í 8 nýjar l sem fitjaðar voru upp. HÉÐAN ER NÚ MÆLT. Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerkin (= 4 l færri), endurtakið úrtöku með 4-4-4-5-5-5 cm millibili 3 sinnum til viðbótar = 152-168-184-208-232-256 l. Þegar stykkið mælist 22-23-24-25-26-27 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við hvort prjónamerki (= 4 l fleiri), endurtakið útaukningu í öðrum hverjum cm 5 sinnum til viðbótar = 176-192-208-232-256-280 l. Þegar stykkið mælist 36-37-38-39-40-41 cm prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, yfir allar l. Fellið af með 1 l sl, 1 l br (svo að affellingarkanturinn verði ekki bylgjulaga), stykkið mælist ca 55-57-59-61-63-65 cm frá uppfitjunarkanti.

ERMI:
Ermin er prjónuð í hring. Setjið til baka l frá ermi á sokkaprjóna nr 4, prjónið upp 1 l í hverja af 8 l undir ermi = 53-55-59-61-65-67 l. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi = umf byrjar hér. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið síðan þannig: 6-7-1-2-4-5 l sléttprjón, A.3 yfir næstu 40-40-56-56-56-56 l (byrjið A.3 þar sem A.2 endaði í þinni stærð), 7-8-2-3-5-6 l sléttprjón. Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerki. Þær l sem ekki ganga jafnt upp í mynstri eru prjónaðar í sléttprjóni, passið uppá að þær passi við fjölda úrtöku og útaukningu í mynstri.
Endurtakið úrtöku með 7-7-5-5-3-3 cm millibili 2-2-3-3-4-4 sinnum til viðbótar = 47-49-51-53-55-57 l. Þegar stykkið mælist 24-23-23-22-22-21 cm prjónið A.1 yfir allar l, fellið síðan af.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 28.09.2023
ERMI: Leiðrétting í stærð XXXL: ERMI:.. Prjónið síðan þannig: 6-7-1-2-4-5 l sléttprjón, A.3 yfir næstu 40-40-56-56-56-56 l (byrjið A.3 þar sem A.2 endaði í þinni stærð), 7-8-2-3-5-6 l sléttprjón...

Mynstur

symbols = sl
symbols = br
symbols = 2 l slétt saman
symbols = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Sea Nymph

Mariarrosa

Sea Nymph

Diane, United Kingdom

Sea Nymph

Janina, Czech Republic

168-1 Sea Nymph

OOSeleneOo, Italy

168-1 Sea Nymph

Magali, United States

Sea Nymph

Svetlana, United States

Sea Nymph

Inga, Estonia

Sea Nymph Top

Motánky, Czech Republic

Skrifaðu athugasemd um DROPS 168-1

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (160)

country flag Lubica wrote:

The color shown on the picture is not #20, I think it´s #50.

29.02.2024 - 16:02

country flag Bastian wrote:

Liebes Garnstudio, bitte bietet in Zukunft doch PDFs an, die beim Drucken (oder zoomen) verlustfrei skalieren. Es gibt auch Nutzer, die nicht mehr so gut gucken können und da sind verschmierte JPGs aus dem vorigen Jahrhundert einfach nicht mehr so zeitgemäß. Danke! LG!

16.05.2023 - 18:41

country flag Marie Auffret wrote:

Bonjour Est ce qu'il faut rabattre pour les manches comme pour le dos devant en côtes 1 m end/1m env?

03.05.2023 - 12:13

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Auffret, vous pouvez, ou bien vous pouvez également rabattre les mailles des manches à l'endroit; Bon tricot!

03.05.2023 - 13:46

country flag Marie Auffret wrote:

Merci beaucoup ! Vous êtes très réactive et cela nous aide beaucoup.

12.04.2023 - 16:08

country flag Marie Auffret wrote:

Bonjour, Pour la taille M, quand on tricote le dos/ devant nous avons 184 mailles. Nous devons diminuer 3 fois 4 diminutions au total . Il nous reste donc 172 mailles et non 168. N'y aurait -il pas une erreur ? D'ailleurs vous dîtes après qu'il faut augmenter 5 fois 4 augmentations soit 20 mailles et on a bien 192 mailles après ces augmentations. Merci d'avance pour votre réponse.

12.04.2023 - 10:26

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Auffret, effectivement, il faut les répéter encore 3 fois soit 4 fois au total (la correction va être faite), vous avez ainsi 184 m - (4x4)= 168 mailles. Vous augmentez ensuite 6 fois au total (d'abord 1 fois puis encore 5 fois) = 168+ (6x4) = 192 mailles. Bon tricot!

12.04.2023 - 12:49

country flag Marie Auffret wrote:

Bonjour, Je viens de finir l'empiècement et je crois avoir bien suivi vos explications. Je suis inquiète car lorsque je regarde le devant ou le dos du pull les lignes de trous du raglan sont inversées quand je regarde la manche gauche et la manche droite. Est-ce normal ou bien est-ce que j'ai loupé une explication? Merci d'avance. NB:Je vous aurai bien envoyé une photo pour vous montrer. J'espère que vous avez compris.

28.03.2023 - 20:42

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Auffret, je ne suis malheureusement pas bien sûre de saisir, les augmentations doivent partir du col en diagonale vers les manches: le point fantaisie des manches augmente et les mailles jersey (dos/devant) aussi. les lignes des raglans doivent former une ligne nette avec les jetés de chaque côté. N'hésitez pas à envoyer une photo à votre magasin ou même dans le DROPS Workshop pour qu'une autre tricoteuse puisse vous aider. Bon tricot!

29.03.2023 - 09:52

country flag Maren Butti wrote:

Größe L , bisher 20 cm ab Armausschnitt gestrickt, passt wie angegossen. Gestrickt aus Seide/ Baumwollmischung, Creme, Nadel 4, Maschenprobe 21M auf 10 cm. Statt Muster glatt rechts im Rumpf stricke ich jede 6. REIHE und jede 6. Masche links, versetzt, wie im Perlmuster. Die Ärmel werde ich nur als kurze Ärmel stricken. Als Bündchen dort und unten im Rumpf nochmal Lochmusterreihe wie am Hals. Bin sehr zufrieden.

11.03.2023 - 11:54

country flag Marie Auffret wrote:

Désolée de vous avoir ennuyée ,j'ai compris mon erreur. Peut-être à plus tard. Merci

05.03.2023 - 11:24

country flag Marie Auffret wrote:

Bonjour, J'aime beaucoup votre site et je le diffuse autour de moi. Vous avez toujours répondu à mes questions et cela m'a bien aidé. On alterne un tour à l'endroit et un tour à l'envers soit du jersey mais dans le diagramme A2 et A3 il n'y a pas de rangs à l'envers. J'ai du rater une explication ??????

05.03.2023 - 10:08

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Auffret et merci :) On tricote ici A.2 en rond, donc on va tricoter les tours sans point ajourés tout à l'endroit (les tours 1 et 2 de A.2 ainsi que tous les tours pairs de A.2). De même dans A.3, on tricote les rangs pairs à l'endroit sur l'endroit. Bon tricot!

06.03.2023 - 09:42

country flag Jessie Davies wrote:

Note: YARN OVERS DIFFICULT TO SEE in pattern and when pattern is printed. Look carefully, they are there

12.07.2022 - 22:22