DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3168.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Sea Line

Prjónaður toppur úr DROPS Paris með röndum og kanti með tölum að aftan. Stærð S - XXXL.

DROPS 168-4
DROPS Design: Mynstur nr w-579
Garnflokkur C eða A + A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS PARIS frá Garnstudio
250-250-300-300-350-350 g nr 101, ljós blár
200-200-250-250-250-300 g nr 16, hvítur

ATH: Ef toppurinn er prjónaður með einum lit þá þarf 400-450-500-500-550-600 g Paris.

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l x 22 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 4 – fyrir kant með garðaprjóni.
DROPS PERLUTALA, Blóm (hvítt) NR 600: 5-5-5-6-6-6 stk.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3168.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

RENDUR:
* 1 umf í litnum hvítur, 1 umf í litnum ljós blár *, endurtakið frá *-*. ATH: Til að sleppa við að klippa frá er prjónað til skiptis 2 umf frá réttu og 2 umf frá röngu, en athugið að kantar í garðaprjóni í þessum umf eru prjónaðir þannig: * sl frá réttu, br frá réttu, br frá röngu sl frá röngu *, endurtakið frá *-*.

ÚRTAKA-1 (á við um fram- og bakstykki):
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Byrjið 3 l á undan prjónamerki, prjónið 2 l slétt saman, 2 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir (= 2 l færri).

ÚRTAKA-2 (á við um handveg):
Fækkið lykkjum innan við 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum á eftir 3 kantlykkjum í garðaprjóni þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.
Fækkið lykkjum á undan 3 kantlykkjum í garðaprjóni þannig: Prjónið 2 l slétt saman.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í vinstra bakstykki (séð frá réttu). 1 hnappagat = prjónið aðra og þriðju l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Fellið af fyrir hnappagati þegar stykkið mælist:
STÆRÐ S: 29, 35, 42, 48 og 55 cm.
STÆRÐ M: 29, 36, 43, 51 og 57 cm.
STÆRÐ L: 29, 36, 44, 52 og 59 cm.
STÆRÐ XL: 29, 35, 42, 48, 55 og 61 cm.
STÆRÐ XXL: 29, 35, 42, 49, 56 og 63 cm.
STÆRÐ XXXL: 29, 37, 44, 51, 58 og 65 cm.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að aftan.

TOPPUR:
Fitjið upp 166-178-194-210-230-250 l (meðtaldar 5 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna nr 4 með litnum ljós blár.
Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5 og setjið eitt prjónamerki 44-47-51-55-60-65 l inn frá hvorri hlið (= 78-84-92-100-110-120 l á milli prjónamerkja á framstykki). Prjónið síðan sléttprjón með 5 kantlykkjum i hvorri hlið við miðju að aftan.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 12 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚRTAKA-1 (= 4 l færri). Endurtakið úrtöku með 10-10-10-12-12-12 cm millibili alls 3 sinnum = 154-166-182-198-218-238 l. Munið eftir HNAPPAGAT í vinstri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 30-31-32-33-34-35 cm eru prjónaðar RENDUR yfir allar l – sjá útskýringu að ofan.
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
Þegar stykkið mælist 42-43-44-45-46-47 cm prjónið síðan með litnum hvítur til loka – JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 42-43-44-45-46-47 cm prjónið 4 umf garðaprjón yfir miðju 12-14-16-20-24-28 l í hvorri hlið (hinar l eru prjónaðar eins og áður). Í næstu umf frá réttu eftir garðaprjón eru felldar af miðju 6-8-10-14-18-22 l í hvorri hlið fyrir handveg og fram- og bakstykki eru prjónuð til loka hvort fyrir sig.

FRAMSTYKKI:
= 66-70-76-80-86-92 l. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og 3 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið. Í fyrstu umf frá réttu er fækkað um 1 l fyrir handveg í hvorri hlið – LESIÐ ÚRTAKA-2. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í hverri umf frá réttu) alls 4-5-7-8-10-12 sinnum = 58-60-62-64-66-68 l. Þegar stykkið mælist 54-56-57-59-60-62 cm setjið miðju 16-16-18-18-20-20 l á þráð fyrir hálsmál og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram í sléttprjóni og 3 kantlykkjum í garðaprjóni við handveg og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun hverrar umf frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 l 2 sinnum og 1 l 2 sinnum = 15-16-16-17-17-18 l eftir á öxl. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm og fellið af. Endurtakið á hinni öxlinni.

VINSTRA BAKSTYKKI:
= 38-40-43-45-48-51 l. Haldið áfram fram og til baka í röndum með 5 kantlykkjum í garðaprjóni við miðju að aftan og 3 kantlykkjum í garðaprjóni við handveg. JAFNFRAMT er fellt af fyrir handveg eins og á framstykki = 34-35-36-37-38-39 l eftir á prjóni. Þegar stykkið mælist 55-57-59-60-62-64 cm setjið fyrstu 15-15-16-16-17-17 l í umf (séð frá réttu) á þráð fyrir hálsmáli (það á að hafa verið prjónuð 1 umf á eftir síðasta hnappagati) – ATH: Til þess að sleppa við að klippa frá þráðinn sem prjónað er með, prjónið l áður en þær eru settar á þráðinn. Fellið síðan af í byrjun á hverri umf frá hálsi þannig: Fellið af 2 l 1 sinni og 1 l 2 sinnum = 15-16-16-17-17-18 l eftir á öxl. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm og fellið af.

HÆGRA BAKSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og vinstra bakstykki, nema spegilmynd.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma.

HÁLSMÁL:
Prjónið upp frá réttu ca 90 til 110 l í kringum hálsmál á hringprjóna nr 4 með litnum hvítur (meðtaldar allar l af þræði). Prjónið 1 umf slétt frá röngu, 1 umf slétt frá réttu og 1 umf slétt frá röngu áður en fellt er af með sl frá réttu. Saumið tölur í.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

168-4 Sea Line

Liesbeth, Netherlands

Sea line

Svetlana, United States

168-4 Sea Line

Selene, Italy

Sea Line

Paola Dansi‎, Italy

Skrifaðu athugasemd um DROPS 168-4

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (76)

country flag Christelle wrote:

Bonjour, je suis actuellement en train de tricoter ce modèle mais j'ai beaucoup de mal à comprendre les explications pour la partie des rayures. Pouvez- vous m'éclairer et me les ré-expliquer différemment ? Merci d'avance !

10.03.2017 - 18:10

DROPS Design answered:

Bonjour Christelle, pour éviter d'avoir à couper le fil, on tricote 2 rangs sur l'endroit, puis 2 rangs sur l'envers, ainsi le fil dont on a besoin se trouve toujours du bon côté, tricotez ainsi: 1 rang blanc à l'end sur l'endroit, 1 rang bleu clair à l'end sur l'endroit, tournez et tricotez 1 rang blanc à l'env sur l'envers, 1 rang bleu clair à l'env sur l'envers et continuez toujours ainsi en répétant ces 4 rangs. Les mailles de bordure vont elle se tricoter comme expliqué pour qu'elles soient toujours au point mousse. Bon tricot!

13.03.2017 - 09:39

country flag Mandy Smallwood wrote:

Hi could you please tell me what sort of wool type this is knitted in, (example double knitting or chunky) thank you

11.09.2016 - 17:50

DROPS Design answered:

Dear Mrs Smallwood, you'll find more information about the yarn clicking on the shadecard. Remember your DROPS store will also help you choosing a yarn if required. Happy knitting!

12.09.2016 - 09:25

Louise wrote:

Please indicate the gauge/tension for this pattern.

30.08.2016 - 21:23

DROPS Design answered:

Dear Louise, the gauge is indicated next to the picure. This pattern calls for DROPS CIRCULAR NEEDLE (60 or 80 cm) SIZE 5 mm - or size needed to get 17 sts x 22 rows in stocking st = 10 x 10 cm. Happy knitting!

30.08.2016 - 21:27

country flag Bodil wrote:

Spurte dere om et spørsmål for ca. 2 uker siden. Hvor lang tid skal det ta før man får et svar? Ingen vits å spørre om noe hvis dere ikke svarer på spørsmålene 😉

16.08.2016 - 07:12

country flag Bodil wrote:

Strikker toppen i Medium og har kommet til der jeg skal strikke bare hvit, altså 43cm. Skal strikke 2 riller over de midterste 14m i hver side, har nå 166m. Hvor mange masker blir det til forstykket og hvor mange masker blir det ellers? Får ikke regnestykket til å gå opp 😜 Setter stor pris på hjelp, please 😃

10.08.2016 - 09:52

DROPS Design answered:

Hej. När du har 166 m så är det 78 m på framst + 44 på varje bakstycke (78+44+44=166). Sedan minskar du i 8 m i varje sida till armhål och du har då 70 m på framst och 40 på varje bakstycke kvar. Lycka till!

16.08.2016 - 11:56

country flag Bodil wrote:

Hei. Jeg sendte dere et spørsmål den 30/7, ang. at det står for liten garnmengde på den lyseblå fargen til toppen. Setter pris på å få et svar snart 😉

02.08.2016 - 10:36

country flag Bodil wrote:

Jeg strikker denne modellen i størrelse M og skal begynne på stripene. Har ikke mer av den lyseblå fargen igjen. Altså jeg må bestille mer garn fordi det står feil i oppskriften, det må rettes opp av dere. Veldig irriterende å bestille kanskje 1 ekstra nøste og betale frakt ennå en gang. Holder det med 1 ekstra nøste lyseblå til stripene? Håper på raskt svar 😉😄

30.07.2016 - 11:01

country flag Maria wrote:

Buongiorno, nel bordo a punto legaccio ho passato la prima maglia formando cosi una bella catenella. ora sono arrivata al punto di iniziare le strisce, come devo fare a passarlo dovendo cambiare il colore? grazie

06.07.2016 - 15:59

DROPS Design answered:

Buonasera Maria, la 1° m non andava passata ma lavorata a m legaccio come il resto del ferro. Per le strisce può continuare a passare la 1° m e iniziare con il nuovo colore dalla 2° m o lavorare l'ultima m del f precedente con il nuovo colore. Buon lavoro!

06.07.2016 - 22:23

country flag Pam wrote:

I am ready to work the left back piece with 38 stitches on the needles. I don't understand where to start the three edge sts in garter st for the armholes. My row looks like this: 5 garter st, 14 sts, the 6 st gap where I bound off for the ridges and then 19 sts.

04.06.2016 - 14:59

DROPS Design answered:

Dear Pam, after decreasing, before casting off the 6 sts at each side for the armholes, you should have 41 sts before the first marker and after the second marker (back pieces); then you should cast off 3 sts and each side of the markers for the armholes (= 38 sts remaining for each back piece). Then you have to work each part separately, starting from the left back piece: you should have 5 band sts in garter st towards mid back and at the other side you have to work 3 edge sts in garter st towards the armhole next to the bound off sts. Happy knitting!

04.06.2016 - 20:49

country flag Karen Rickmers wrote:

Thank for answer.. Have another one. Have sts separated 44-66-44 = 154 sts. When piece is 16 1/2" i work 2 ridges middle 12 sts but is that middle of the 44, thats what i did but when i go to front piece the 3 garter sts are not in the 66 sts of front piece, so i am not sure on where to do the 12 sts of ridges then the 3 edge sts in garter st for the armholes. Could you please clarify where to do the 12 st ridges and the 3 edge garter sts. Thanks

01.06.2016 - 15:37

DROPS Design answered:

Dear Mrs Rickers, the 2 ridges over the middle 12 sts on the side will be for armholes, ie you will work 2 ridges over 6 sts before + 6 sts after each of markers on the sides (where you decreased). Then you bind off for armholes the middle 6 of these 12 sts = you will have 3 sts in garter st, 6 sts bound off (marker on the side is in the middle of these sts), 3 sts in garter sts. Happy knitting!

01.06.2016 - 16:24