DROPS Lace
DROPS Lace
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24

Falling in Lace

Prjónað sjal úr DROPS Lace í sléttprjóni með kanti í gatamynstri og garðaprjóni.

DROPS 169-8
DROPS Design: Mynstur nr la-026
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

Mál(eftir strekkingu):
Mælt meðfram kanti efst ca 154 cm.
Mælt meðfram miðju og niður að aftan ca 50 cm.

Efni:
DROPS LACE frá Garnstudio
100 g nr 7120, ljós grágrænn

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 3 - ATH! Lesið um prjónfestu að neðan.

PRJÓNFESTA:
Stykkið á að bleyta og strekkja í rétta stærð í lokin þannig að prjónfestan er ekki svo mikilvæg, en til þess að fá einhverja hugmynd um hvort prjónað sé of laust/fast er prjónuð prufa í sléttprjóni á prjóna nr 3 og þá eru ca 24 l x 32 umf sem verða 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Lace
DROPS Lace
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn br (þ.e.a.s. prjónað er í aftari lykkjubogann í stað fremri) svo að ekki myndist gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna ofan frá og niður.

SJAL:
Fitjið upp 72 l á hringprjóna nr 3 með Lace, setjið 2 prjónamerki í stykkið hvoru megin við miðju 60 l. Haldið áfram í sléttprjóni og 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN - sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið á stykki – JAFNFRAMT er aukið út þannig – LESIÐ ÚTAUKNING!
Aukið út um 1 l í hvorri hlið innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hverri umf og aukið út um 1 l hvoru megin við miðju 60 l í annarri hverri umf.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið svona áfram þar til aukið hefur verið alls 48 sinnum hvoru megin við 60 l og 96 sinnum í hvorri hlið = 360 l á prjóni. Prjónið nú 2 umf garðaprjón, JAFNFRAMT eru auknar út 3 l jafnt yfir í 1. umf í garðaprjóni = 363 l. Stykkið mælist nú ca 30 cm fyrir miðju að aftan.
Prjónið nú mynstur frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.1 (= 10 l), A.2 (= 10 l) 34 sinnum á breiddina, A.3 (= 11 l), 1 kantlykkja í garðaprjóni. Endurtakið A.1-A.3 alls 4 sinnum á hæðina. Stykkið mælist ca 43 cm. Fellið af með picotkanti.

PICOTKANTUR:
Fellið af 2 fyrstu l á prjóni (* stingið inn hægri prjón á milli 2 fyrstu l á vinstri prjóni, (þ.e.a.s. á milli l á prjóni, ekki í gegnum l), sláið 1 sinni uppá hægri prjóninn, dragið fram uppsláttinn á milli l og setjið uppsláttinn á vinstri prjón *, endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar, (= 3 nýjar l á vinstri prjón) ** Prjónið fyrstu l á vinstri prjón slétt, takið fyrstu l á hægri prjón yfir síðustu l sem prjónuð var ** ), endurtakið frá **-** alls 7 sinnum og endurtakið (-) meðfram öllu sjalinu þar til 1 l er eftir. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum síðustu l.

STREKKING:
Leggið sjalið í volgt vatn þar til það er orðið blautt í gegn. Pressið varlega vatnið úr sjalinu – það má ekki vinda það. Sjalinu er nú rúllað inn í handklæði og pressað til þess að ná enn meira vatni úr sjalinu – sjalið á nú að vera aðeins rakt. Leggið sjalið á mottu eða dýnu – dragið það varlega út í rétta stærð. Sjalið á að vera ca 50 cm frá hnakka fyrir miðju að aftan. Notið nálar meðfram köntum til þess að festa það með og setjið einnig 1 nál í hvern picot í affellingarkanti, svo að þeir sjáist betur. Látið sjalið þorna. Endurtakið þetta í hvert skipti sem sjalið er þvegið.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 29.04.2016
Leiðrétting á affellingskanti með picot

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = br frá réttu, sl frá röngu
symbols = 2 l slétt saman
symbols = takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður slétt. Það eiga að myndast göt!
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Falling in Lace

Marta, Czech Republic

Falling in lace shawl

Dorothea24, Luxembourg

Skrifaðu athugasemd um DROPS 169-8

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (48)

country flag Mimi wrote:

Je suis complètement perdue. Tel que je lis les instructions, le haut doit mesurer 154cm mais est constitué de 72 mailles au départ, ce qui correspond à environ 60 cm. Comment peut-on arriver à la forme finale? Si c'est tricoté de haut en bas, le plus grand nombre de mailles devrait se trouver en haut, non? Merci de m'éclairer

23.03.2024 - 15:44

DROPS Design answered:

Bonjour Mimi, le châle se tricote de haut en bas, les 72 mailles montées au départ sont celles du milieu dos mais on va augmenter de chaque côté du châle pour obtenir l'envergure de 154 cm (après blocage) = on augmente: 1 m de chaque côté tous les rangs + 1 de chaque côté des 60 m centrales tous les 2 rangs. Bon tricot!

02.04.2024 - 08:40

country flag Filo Rojas wrote:

Cuando empiezas el calado no se aumenta en los estrenos ? Se sigue siempre con los 363 puntos hasta terminar la labor?

24.09.2023 - 19:24

DROPS Design answered:

Hola Filo, como puedes ver, los calados descritos en los diagramas tienen aumentos que se contrarrestan con disminuciones. Por lo tanto, no se aumenta el número de puntos en la labor.

24.09.2023 - 23:31

country flag Suk wrote:

DROPS Design 02.03.2020 kl. 11:24: Dear Suk, you increase 4 sts on every other row (= every row from RS) and 2 sts on every row, ie you increase a total of 6 sts after each set of 2 rows (= 1 row from RS + 1 row from WS) = 48 x 6 = 288 sts increased. I understand the increase 4 sts on every row, but how to increase 2 sts on the WS ? (ie the purl row). thanks

02.03.2020 - 13:16

DROPS Design answered:

Dear Suk, from WS you will increase 1 stitche on each side, inside the edge stitch: Inc 1 st in each side inside 1 edge st in garter st on every row ie from RS you will work 1 edge st, YO, work to marker, YO, K60, YO, K to last st, YO, K last st and every row from WS work: K1, YO, P to the edge st, YO, K1. Happy knitting!

02.03.2020 - 13:21

country flag Suk wrote:

According to the instruction above it says: ' Inc 1 st in each side inside 1 edge st in garter st on every row & inc 1 st on each side of the middle 60 sts every other row. Continue like this until inc have been done 48 times in total on each side of the 60 sts and 96 times in each side = 360 sts on needle.' f only increase on the RS rows, there won't be 360 sts on needle? Please help!! Thanks

02.03.2020 - 10:32

DROPS Design answered:

Dear Suk, you increase 4 sts on every other row (= every row from RS) and 2 sts on every row, ie you increase a total of 6 sts after each set of 2 rows (= 1 row from RS + 1 row from WS) = 48 x 6 = 288 sts increased + 72 sts at the beg = 360 sts. Happy knitting!

02.03.2020 - 11:24

country flag Suk wrote:

Thanks for the explanation on the RS row, how about on the WS row, R2(WS) & R4(WS) - how to increase on these rows? Thanks

28.02.2020 - 12:10

DROPS Design answered:

Dear Suk, you will only increase on the RS rows, from WS work: 1 edge st in garter st, purl until 1 st remain (= purl the yarn over twisted to avoid holes), finish with 1 edge st in garter stitch. Happy knitting!

28.02.2020 - 13:23

country flag Suk wrote:

Inc 1 st in each side inside 1 edge st in garter st on every row and inc 1 st on each side of the middle 60 sts every other row. - What does this mean? Is it like this: Cast on 72 sts, R1(RS): K6, K60, K6 (72 sts) R2(WS): P6, P60, P6 (72 sts) - R3(RS): K1, YO, K5, YO, K60, YO, K5, YO, K1 (76sts) R4(WS): K1,PTBL,K5, PTBL, K60, PTBL,K5,PTBL,K1 (76sts) - how to increase on this row? Thanks

27.02.2020 - 22:19

DROPS Design answered:

Dear Suk, correct, but you start increasing from first row, ie row 1: K1, YO, K5, YO, K60, YO, K5, YO, K1 YO and then work every RS row like this: K1, YO, K to the first marker, YO, slip marker, K60, slip marker, YO, K to the last st, YO, K last st. Happy knitting!

28.02.2020 - 08:11

country flag Cristina De Filippis wrote:

Io non riesco a capire come si fanno gli aumenti...

01.11.2019 - 20:44

DROPS Design answered:

Buonasera Cristina, gli aumenti vanno lavorati su tutti i ferri, all'interno della maglia di vivagno, e un ferro si e uno no ai lati delle 60 maglie centrali. Ci riscriva se ha ancora bisogno di aiuto. Buon lavoro!

01.11.2019 - 23:29

country flag Paula wrote:

Bonjour, J'ai une question sur les augmentations. Il faut augmenter 1 m de chaque côté des 60 m centrales tous les 2 rangs. Est-ce que l'augmentation de fait avant le marqueur ? C'est-à-dire, on arrive au marqueur, on fait une augmentation, in tricote les 60 mailles centrales, marqueur et ensuite une autre augmentation ? C'est ça ? Merci beaucoup !

11.10.2019 - 22:47

DROPS Design answered:

Bonjour Paula, pas exactement, vous tricotez jusqu'au marqueur, augmentez 1 m, glissez le marqueur, tricotez les 60 m, glissez le marqueur, augmentez 1 m = les 60 m entre les marqueurs ne vont pas augmenter, on va augmenter seulement avant et après ces 60 m. Bon tricot!

14.10.2019 - 09:03

country flag Hanne Gram wrote:

Kan det være rigtigt, at sjalet, uden at trække i det, kun måler 15cm i længden ved nakken, når udtagningens er færdige?

17.09.2019 - 08:36

DROPS Design answered:

Hej Hanne, hvis du strikker i DROPS Lace og overholder strikkefastheden, så får du målene som står i opskriften (altså 43 cm inden Picotkanten). Efter det beskriver vi hvordan man gør sjalet vådt og trækker det ud i de rigtige mål. Sørg for at du ikke strikker for stramt. God fornøjelse!

17.09.2019 - 15:41

country flag Madeline wrote:

I’m about to start working on this beautiful shawl but before I do I just want to clarify that all the increases occur before the lace section starts.

23.08.2019 - 13:42

DROPS Design answered:

Dear Madeline, correct, when all increases are done there are 363 sts and you work the lace pattern following the diagrams. Happy knitting!

23.08.2019 - 14:50