DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24

Fresh Lemonade

Prjónaður toppur úr DROPS BabyAlpaca Silk prjónaður ofan frá og niður með laskalínu og gatamynstri. Stærð XS - XXL.

DROPS 169-36
DROPS Design: Mynstur nr bs-099
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

Stærð: XS - S - M - L - XL - XXL

Efni:
DROPS BABYALPACA SILK frá Garnstudio
200-200-250-250-300-300 g nr 2110, púðurgulur

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 l x 32 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 2,5 – fyrir berustykki og kanta.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. ATH: Veljið mynstur fyrir rétta stærð.

LASKALÍNA:
Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við l með prjónamerki í (= 2 l fleiri). Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður slétt svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Fækkið lykkjum hvoru megin við A.2. Byrjið 2 l á undan A.2, prjónið 2 l slétt saman, prjónið A.2 (= 15-15-17-17-19-19 l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir (= 2 l færri).

ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Aukið út hvoru megin við A.2. Byrjið 1 l á undan A.2, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 l sl, A.2 og 1 l sl (= 17-17-19-19-21-21 l), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 l fleiri). Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Berustykki að framan og að aftan er prjónað fram og til baka hvort fyrir sig þar til garðaprjóni er lokið. Síðan eru stykkin sett saman og prjónað er í hring til loka.

BERUSTYKKI AÐ FRAMAN:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.
Fitjið upp 96-96-102-102-112-114 l á hringprjóna nr 3 með BabyAlpaca Silk. Skiptið yfir á hringprjóna nr 2,5. Setjið 1 prjónamerki í 24.-24.-26.-26.-28.-28. l inn frá hvorri hlið (= 48-48-50-50-56-58 l á milli prjónamerkja). Prjónið 1 umf slétt frá röngu. Prjónið 1 umf slétt frá réttu þar sem aukið er út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við 2 l með prjónamerki í – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan mynstur eftir mynsturteikningu A.1 (1. umf = ranga) JAFNFRAMT sem útaukning í laskalínu er endurtekin í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í hverri umf frá réttu) – ATH: Í 4. umf í A.1 eru prjónaðar 2 l slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn þar til 1 eða 2 l eru eftir á undan l með prjónamerki í, síðasta l á undan l með prjónamerki í er prjónuð slétt, aukið út eins og áður hvoru megin við l með prjónamerki í og prjónið 0 eða 1 l sl á eftir l með prjónamerki í svo að mynstrið byrji og endi alveg eins hvoru megin við l með prjónamerki í. Eftir A.1 er prjónað garðaprjón fram og til baka yfir allar l. Þegar auknar hafa verið út alls 14-17-17-19-19-22 fyrir laskalínu eru 152-164-170-178-188-202 l á prjóni. Prjónið 1 umf slétt til baka frá röngu á eftir síðustu útaukningu. Stykkið mælist nú ca 6-7-7-8-8-9 cm. Næsta umf er prjónið frá réttu þannig: Fellið af fyrstu 37-40-42-44-46-49 l (= band /hlýri), prjónið sl yfir næstu 78-84-86-90-96-104 l (sú fyrsta af þessum l er nú þegar á hægri prjóni), fellið síðan af síðustu 37-40-42-44-46-49 l (= band/hlýri), klippið frá. Næsta umf er prjónuð frá röngu: Fitjið upp 6-8-12-15-17-20 nýjar l í byrjun umf, prjónið 78-84-86-90-96-104 l og fitjið upp 6-8-12-15-17-20 nýjar l í lok umf = 90-100-110-120-130-144 l. Prjónið garðaprjón fram og til baka í 4-4-4-5-5-5 cm – JAFNFRAMT eftir 3-3-3-4-4-4 cm fellið af 1 l í hvorri hlið með því að prjóna 2 næst síðustu l í hvorri hlið, slétt saman frá réttu = 88-98-108-118-128-142 l. Passið að síðasta umf sé umf frá röngu. Geymið stykkið.

BERUSTYKKI AÐ AFTAN:
Fitjið upp og prjónið á sama hátt og berustykki að framan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Stykkið nú prjónað í hring á hringprjóna.
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
Setjið l frá fram- og bakstykki á sama hringprjón nr 3. Prjónið 1 umf slétt yfir allar l = 176-196-216-236-256-284 l á prjóni. Prjónið 1 umf slétt, en endið umf þegar 8-8-9-9-10-10 l eru eftir í umf. Setjið 1 prjónamerki – HÉÐAN BYRJAR SÍÐAN UMF! Næsta umf er prjónuð þannig: Prjónið A.2 (veljið mynstur fyrir rétta stærð = 15-15-17-17-19-19 l), prjónið 16-21-25-22-26-33 l sléttprjón, prjónið A.3 (veljið mynstur fyrir rétta stærð = 41-41-41-57-57-57 l), prjónið 16-21-25-22-26-33 l sléttprjón, prjónið A.2 (= 15-15-17-17-19-19 l), prjónið 16-21-25-22-26-33 l sléttprjón, prjónið A.3 (= 41-41-41-57-57-57 l) og endið á 16-21-25-22-26-33 l sléttprjón.
Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið nú sléttprjón yfir þessar l.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 10 cm frá prjónamerki (stykkið mælist ca 30-31-32-34-35-36 cm frá öxl), fellið af 1 l hvoru megin við A.2 í hvorri hlið – LESIÐ ÚRTAKA (= 4 l færri) = 172-192-212-232-252-280 l eftir á prjóni.
Þegar stykkið mælist 14-15-15-16-16-17 cm frá prjónamerki (allur toppurinn mælist ca 34-36-37-40-41-43 cm frá öxl), aukið út um 1 l hvoru megin við A.2 í hvorri hlið – LESIÐ ÚTAUKNING (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu með 3-3-3-2½-2½-2 cm millibili alls 7-7-7-8-9-10 sinnum = 200-220-240-264-288-320 l. Þegar stykkið mælist 55-57-59-61-63-65 cm frá öxl, skiptið yfir á hringprjóna nr 2,5. Prjónið 6 umf GARÐAPRJÓN prjónað í hring – sjá útskýringu að ofan, áður er fellt er LAUST af.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma og saum undir handveg – saumið kant í kant í ysta lykkjubogann.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 08.09.2016
ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Aukið út hvoru megin við A.2. Byrjið 1 l á undan A.2, sláið uppá prjóninn, prjónið 1 l sl, A.2 og 1 l sl (= 17-17-19-19-21-21 l), sláið uppá prjóninn (= 2 l fleiri). Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = br frá réttu, sl frá röngu
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
symbols = 2 l slétt saman
symbols = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 169-36

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (13)

country flag Hanne Rosgaard Kristensen wrote:

Forstår ikke at der skal være mønster i øverste del? På billedet er det retstrik og ingen mønster.Passer billede og mønster overhovedet sammen? Mvh Hanne

01.03.2024 - 23:22

DROPS Design answered:

Hej Hanne, jo når du følger diagram A.1 får du de små huller du ser øverst i udskæringen :)

05.03.2024 - 14:25

country flag Anne-May Bueide wrote:

Ja, den har jeg sett. Det er størrelse Large. Jeg var innom en dropsbutikk også, og de trodde først det var en feil i oppskriften. De kom verfall ikke frem til noen spesifikk løsning som hjalp.

09.03.2020 - 13:34

DROPS Design answered:

Hei. Etter 1. raglansøkning (2. pinne på diagram A.1) går man fra 54 masker til 56 masker mellom merkene (maskene midt på toppen). Du har også økt på andre siden av "raglan", og har da 25 masker på hver side = 106 masker etter første raglansøkning (i str L). Neste raglanøkning skjer på 4.rad i diagram A.1. Da skal det strikkes 2 rett sammen og kast + raglansøkning ved merket (les evnt NB! i oppskriften). Noen ganger vil mønsteret (1 kast og 2 masker rett sammen) gå opp helt frem til økningen. Andre ganger går det ikke opp. Da strikker man 1 maske rett. Da må man også strikke 1 maske rett etter økningen for at det skal bli likt. God Fornøyelse!

17.03.2020 - 08:20

country flag Anne-May Bueide wrote:

Probl. beg. på 4. p i A1 , 2 sm og 1 kast. Man skal øke med 4 m, en på hver side av m med merke i annen hver p fra retten slik som beskrevet. Hvordan klarer man gå fra 54 m mell. merkene til 56 når man skal str 2 sm og 1 kast? Selv om jeg velger bare str 1 m og et kast i beg., går det ikke opp Eneste er å hoppe over et kast, men da blir ikke det likt på begge sider slik som beskr.Hvordan skal dette str?

08.03.2020 - 00:55

DROPS Design answered:

Hei Anne-May. Litt usikker på hva du mener. Hvilken størrelse strikker du? Har du sett hjelpevideoen til denne toppen? Den viser hvordan man strikker raglan med økningene. mvh DROPS design

09.03.2020 - 13:09

country flag Ketty Bundgaard wrote:

I opskriften til 169-36 synes jeg, der mangler instruktion om stropper og kanter. Eller måske giver det sig selv, når jeg kommer igang?

02.02.2020 - 09:33

DROPS Design answered:

Hei Ketty. Ja, det vil vise seg når du begynenr å strikke. Stroppene blir til når du strikker og øker til raglan, samtidig som du strikker A.1 (hullmønster). God Fornøyelse!

03.02.2020 - 11:13

country flag Jolanta wrote:

Witam . Dla rozmiaru L schemat A3 jest na 57 oczek opisu i robótki wychodzi że schemat powinień być na 41 oczek. Czy dobrze myślę?

02.09.2018 - 13:39

DROPS Design answered:

Witaj Jolu! L to czwarty rozmiar (ROZMIARY: XS - S - M - L - XL - XXL) więc schemat A.3 jest na 57 o. Miłej pracy!

03.09.2018 - 22:04

country flag Annab wrote:

Buongiorno, ho lavorato la prima parte del modello e ho messo da parte le maglie. Adesso però, per fare la parte del dietro, non so se devo tagliare il filo oppure continuare con un gomitolo nuovo? Non mi è molto chiaro il passaggio relativo al fatto di unire tutte le maglie su un ferro, con quale filo devo iniziare? potreste darmi qualche chiarimento in più? Grazie mille.

02.06.2017 - 16:41

DROPS Design answered:

Buongiorno Annab. Per il dietro, inizia con un nuovo gomitolo e segue le stesse istruzioni del davanti. Riporterà poi le maglie su un unico ferro lavorando prima le maglie del dietro e proseguendo sullo stesso giro con le maglie del davanti. Buon lavoro!

02.06.2017 - 17:49

country flag Cath wrote:

Hi Thanks for the reply to my previous question regarding the charts. I have just tried to join the yoke pieces in the round and I was getting the stocking stitch effect appearing on the very first K1 row but on the wrong side of the work!. Should I have slipped both yoke pieces onto the needles with the right side of the work facing outwards or inwards? Thanks.

20.03.2016 - 23:35

DROPS Design answered:

Dear Cath, yes you have to join in the round at the end of a row worked from RS so that you continue in the round from RS with the RS facing outwards. Happy knitting!

21.03.2016 - 10:30

country flag Cath wrote:

Hi, Please could you clarify the charts for me. For example am I reading Row 1 of A2 correctly if I work 3 stitches (knit or purl as appropriate), then 1 YO, then [s1, k1, psso], then 7 stitches (k or p), then K2 tog, then 1 YO, then a final 3 stitches (k or p)? Thank you.

14.03.2016 - 20:38

DROPS Design answered:

Dear Cath, that's correct in A.2 size M, but the first and last 2 st are P every row from RS (= every round), so that A.2 on row 1 has to be worked as follows: P2, K1, YO, (sl, K1, psso), K7, K2 tog, YO, K1, P2. Happy knitting!

15.03.2016 - 08:54

country flag Gunda Poll wrote:

Einfach fantastisch, diese Kollektion, wo soll ich nur anfangen, eins schöner als das andere, herrlich, danke, tausendmal danke!!!

10.02.2016 - 09:13

country flag Marilyn wrote:

Lovely pattern. Available to order

14.01.2016 - 23:01